Morgunblaðið - 13.02.2000, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 31
lands, því ísland er eins og eitt stórt
auglýsingasvæði, með útiauglýsing-
um og svo í blöðunum. En Danir líta
líka upp til íslendinga sem bókaþjóð-
ar.“
Sigrún segist oft finna fyrir minni-
máttarkennd Islendinga í garð Dana
sökum stærðarmunarins, en það sé
óþarfi, því Danir líti á íslendinga
sem jafningja. íslendingar séu dug-
legir og falli betur inn í danskt þjóð-
félag en áður, þegar nokkuð bar á ás-
ókn íslendinga í danska
félagsmálakerfið.
Vaxandi áhugi Dana á íslending-
um fer ekki framhjá Sigrúnu, sem
segist hitta marga, sem hafi farið til
íslands. „Helsti gallinn er að flugfar-
ið til Islands er dýrt í augum Dana,
miðað við hvað hér er hægt að fá af
flugferðum til fjarlægra staða, svo ég
er dugleg að benda fólki á Net-tilboð
Flugleiða. Gistingin er ekki mikið
mál, því fólk er vant að borga fyrir
hana, en fargjaldaverð er hindrun.11
Annað sem íslendingar ættu að
mati Sigrúnar að gera meira af er að
styðja við viðskiptaþjónustu utanrík-
isþjónustunnar. „Það er enginn við-
skiptafulltrúi við íslenska sendiráðið
hér. Sjálf hef ég nýtt mikið danska
viðskiptafulltrúann í Reykjavík.11
Islenskar viðskiptakonur
of líkar körlunum
í Danmörku er vel stutt við fólk,
sem hefur viðskipti í Danmörku.
„Hér er þér hjálpað að stofna fyrir-
tæki. Það kostar ekkert að fá virðis-
aukanúmer né breyta fyrirtækja-
heiti. Allir, sem vilja byrja með
fyrirtæki getað fengið sem svarar
70.000 íslenskar krónur í ókeypis að-
stoð hjá endurskoðendum og lög-
fræðingum og öðrum til að hefja
rekstur. Áður fyrr var það þannig að
allir fengu hálfar atvinnuleysisbætur
í 2-2V2 ár í gegnum atvinnubótakerfið
til að byrja, en það var lagt af fyrir
tveimur árum. Það er í fjárlögum
íyrir næsta ár tillaga um að auka við
aðstoð til þeirra, sem hafa verið með
rekstur í tvö ár til viðbókar við það
sem nú er gert. Síðan eru öll sam-
skipti við toll- og skattyfirvöld mun
þægilegri. Það er litið á mann sem
einstakling með verðmætasköpun í
huga, ekki sem svindlara. ísland er
eina landið sem ég þekki til, þar sem
fólk er nánast þvingað til að veðsetja
eigur annarra þegar tekið er lán.
„Danmörk er gósenland íyrir Is-
lendinga í viðskiptum," fullyrðir
Sigrún. „íslendingar eru duglegri en
Danir, en það er auðveldara að
stofna fyrirtæki í Danmörku en á Isl-
andi. Viðskiptamenningin í Dan-
mörku er góð, svo ég hvet alla til að
prófa viðskiptahugmyndir sínar hér,
því markaðurinn er stærri og auðvelt
að starfa hér. Viðskiptaumhverfið
hér getur virst flókið, en það er það
ekki þegar maður kynnist því.“
Það er líka kostur að íslendingar
hafa að mati Sigrúnar ríkari þjón-
ustulund en Danir og gefast heldur
ekki upp þó á móti blási. „En íslend-
ingar gætu lært skipulagsgáfu af
Dönum, að skipuleggja fram í tí-
mann og gera ekki alltaf allt á síð-
ustu stundu. Og þeir geta einnig lært
af þeim samvinnu, að tala saman og
skiptast á upplýsingum um hvað þeir
séu að gera.“
Það kom Sigrúnu á óvart þegar
hún fór að starfa í dönsku viðskipta-
umhverfi hvað kvenlegt gildismat
hefur síast hér inn. „Þegar yfirmað-
ur minn sleit snögglega fundi kl. 16
af þvf hann þurfti að fara að sækja
barnið sitt í gæslu þá hélt ég hann
væri að grínast. Konur í íslenskum
viðskiptaheimi eru alltof karlalegar,
stöðugt að passa sig að láta ekki
ganga yfir sig. Umræðan hér er
miklu skemmtilegri og konur dug-
legar að fá karlana að sjá hlutina
með sínum augum. Karlamir hafa
verið duglegir að tileinka sér viðhorf
kvenna og umhverfið því blíðara. Á
íslandi er allt miklu harðara."
Umburðarlyndi Dana kann Sigrún
einnig vel að meta. „Það þykir í lagi
að skiptast á skoðunum og vera ekki
sammála. Menn tjá sig og hlusta á
skoðanir annarra, en eru ekki með
stöðugar árásir á þá, sem ekki eru
þeim sammála."
Clara Kringlunni, Sara Bankastræti, Lyfja Lágmúla, Lyfja Setbergi, Lyfja Hamraborg,
Snyrtistofan Hrund, Grænatúni, Gullbrá Nóatúni, Amaró, Akureyri, Apótek Keflavíkur.
Nú einnig fyrir augu
Ný lyfting - ’nýtt líf.
Estée Lauder kynnir
Resiliente Lift
.
Eye Creme
ESTfE LAJJ06R
Stesrftejnof LA
iwjl'Hi— CmmrHt'Sl
flfciiliwnl - ■-1WS
•
Nú getur þú einnig fengið hið fræga Resilience Lift fyrir augu. Njóttu þess að horfa á færri
línur, siéttara og fastmótaðra augnsvæði, geislandi af nýju lífi. Þetta léttkennda, afar virka
augnkrem sér um það.
Notaðu það ásamt Resilience Lift kremi fyrir andlit og háls frá Estée Lauder og þú getur glaðst
yfir yngra og ferskara útliti.
Resilience Lift Eye Creme 16 ml. kr. 3.315.
Resilience Lift Face og Throat Creme 30 ml. kr. 4.050 og 50 ml. kr. 5.735
Resilience Lift Face and Throat Lotion 50 ml. kr. 5.735.
„Mjólk og mjólkurvörur
eru besti kalkgjafinn í
venjulegu fæði"
Við berum sjálf ábyrgð á okkar fæðuvali og þess vegna
er nauðsynlegt að kunna skil á hollustu og heilbrigðum
matarvenjum.
Fyrstu þrjátíu ár ævinnar eru bein okkar að styrkjast. Til
þess að þau nái fullum styrk þurfum við nóg af kalki
og D-vítamíni. Kalk er burðarefni beinanna og D-vítamín
er nauðsynlegt fyrir kalkbúskap okkar. Skorti þessi
næringarefni eykst hættan á beinþynningu síðar á ævinni.
Það er staðreynd að of margar ungar konur fá minna
af kalki og D-vítamíni en ráðlagt er. Fjölvítamín og lýsi
eru góðir D-vítamíngjafar. Stærstan hluta kalksins fáum
við úr mjólk og mjólkurvörum en margar konur forðast
þær af ótta við að fitna. Það er ástæðulaust, enda eru
léttar mjólkurvörur jafn kalkríkar og aðrar.
„Mjólk“ er samheiti yfir alla drykkjarmjólk, nýmjólk, léttmjólk, undanrennu
og fjörmjólk. Einnig má fó kalk úr öðrum mjólkurvörum, s.s. osti og sýrðum
mjólkurvörum.
Hollusta styrkir bein!
BEINVERND
ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR