Morgunblaðið - 13.02.2000, Síða 38

Morgunblaðið - 13.02.2000, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Ágústa Sumar- liðadóttir fæddist í Stykkishólmi 12. október 1920. Hún lóst á Landspitalan- um 5. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Sumar- liði Einarsson, f. 25.2. 1889, d. 18.9. 1972,. og Guðrún Randalm Sigurðar- dóttir, f. 12.7. 1880, d. 28.1. 1952. Al- systkini Ágústu voru rnu og eru tvö þeirra enn á Iffi; Lárus, f. 2.11.1914, og Salvör, f. 10.11.1923. Ágústa átti einnig 12 hálfsystkini. Ágústa giftist Sigurði Helgasyni árið 1939 (f. 29.4. 1913, d. 19.3.1998) en þau skildu árið 1951. Saman eignuðust þau átta börn og eru sex þeirra á lffi: 1) Sveinfríður, f. 18.11. 1939, gift Helga J. Hálf- dánarsyni, f. 19.7. 1927. Þau búa á Valshamri í Borgar- byggð og eiga þijú börn á lffi. 2) Sigurlín Jóna Margrét, f. 11.5. 1943, gift Hirti Ágústi Magnússyni, f. 4.8. 1939, búsett í Reykja- vík og eiga þau tvö börn. 3) Ingibjörg, f. 21.5. 1944, gift Hall- grími Þór Hallgríms- syni, f. 8.4. 1944, bús- ett í Mosfellsbæ. Þau eiga þijú böm. 4) Guð- rún, f. 6.11. 1945, gift Daníel G. Óskarssyni, f. 24.2. 1948, búsett í Kópavogi. Þau eiga tvö börn. 5) Siguijón, f. 17.6. 1947, kvæntur Ósk Axelsdóttur, f. 20.11. 1954. Þau em búsett f Kópavogi og eiga tvo syni á Iffi. Siguijón á eina dótt- ur frá fyrra hjónabandi. Hann var kvæntur Hrönn Antonsdóttur, f. 18.7. 1950, en þau skildu. 6) Ólafur Emil, f. 14.12. 1950, kvæntur Vig- dísi Þorsteinsdóttur, f. 12.4. 1957. Þau em búsett í Borgarnesi og eiga einn son á lffi. Ágústa var í sambúð með Alex- ander Sigurbergssyni, f. 20.7. 1913, d. 20.8. 1988. Þau eignuðust þijú börn, en dóttir þeirra, María, f. 8.9.1953, er á lffi. Maður hennar er Jón Bjömsson, f. 7.9. 1941. Þau em búsett í Reykjavík. María var áður gift Stefáni Líndal Gíslasyni, sem nú er látinn. Þau eignuðust tvo syni. Þar áður var María gift Þór Hreiðarssyni, f. 3.12.1950, og eign- uðust þau einn son. Árið 1974 giftist Ágústa Odd- geiri Sveinssyni sem nú er látinn, en þau skildu eftir átta ára hjóna- band. Síðustu árin var Ágústa sam- vistum við Ríkarð Ingibergsson, trésmið í Reykjavík. Ágústa vann verkakvennastörf lengst af, hjá Sláturfélagi Suður- Iands, hjá Breiðholti hf. og síðast hjá Verkamannabústöðum Reykja- víkur. Hún bjó mestan hluta ævi sinnar í Reykjavík. Ágústa verður jarðsungin frá Háteigskirkju á morgun, mánu- daginn 14. febrúar, og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í Borgarneskirkjugarði. ÁGÚSTA S UMARLIÐADÓTTIR Elsku amma. Það er skrítið til þess að hugsa, að fyrir aðeins örfáum dögum komum við Guðni Valur til þín og þú passað- ^r hann fyrir mig í smástund. En honum þótti alltaf gaman að koma til langömmu því þar var alltaf til eitt- hvað gott í munninn. Ekki óraði mig fyrir því að þetta yrði síðasta heim- sóknin okkar til þín. Þú sem varst svo hress og varst að reka á eftir mér að koma með slitna ullarsokka til þín, því þú ætlaðir að pijóna aftur neðan á stroffíð. Ullarsokkamir þín- ir voru mjög vinsælir hjá krökkun- um mínum, enda var ekki farið í stíg- vél nema að vera í ullarsokkum frá Gústu langömmu. Prjónaskapurinn *var ekki það eina sem þú tókst þér fyrir hendur, íbúðin fékk sinn skerf af framtaksseminni, allt tekið í gegn, Erfisdrykkjur Vdtbi9ohú/ið GAPi-mn Dalshraun 13 S. 555 4477* 555 4424 málað og flísalagt í hólf og gólf með dyggri aðstoð Rikka. Og ef ekki var verið að taka allt í gegn heima, voruð þið Rikki í bústaðnum, ykkar sælu- reit. Eg minnist þess sem bam, þegar þú komst til okkar á Valshamar, en þangað komstu oft í fríum, að við sátum saman í eldhúsinu í gamla bænum, ég á brúna tréstólnum og þú við hliðina á mér. Þar kenndir þú mér að prjóna vettlinga og þarna urðu til í eldhúsinu brúnir gamvettl- ingar. Síðar minnist ég þess, er þú bauðst mér með í ferðalag. Ofsalega var það gaman, ég hafði aldrei farið í ferðalag áður og ég geymi margar skemmtilegar minningar úr þeirri ferð og þeim stundum sem við áttum saman. Elsku amma, í hjartanu lifir minn- ingin um þig. Hafdís. Okkur langar til að minnast elsku Gústu ömmu og langömmu í nokkr- um orðum. Hún kvaddi mjög skyndi- lega, því hún hafði verið heilsu- hraust mestan hluta ævi sinnar og lést aðeins tveimur sólarhringum eftir að hún veiktist. Gústa amma var lítil, snaggaraleg og kvik kona, sem sá um sig. Hún var vinnusöm alla ævi og vann erfið störf til sveita á sínum yngri árum, í mötuneyti og við þrif á íbúðum fram að sjötugu. Alltaf var Gústa amma boðin og búin að rétta hjálparhönd. Hún gætti bamabama og barnabarnabarna þegar þörf var á og naut þess alltaf að hafa fólkið sitt í kringum sig. Hún tók slátur á haustin fyrir sjálfa sig og fleiri ef þörf krafði og bakaði þynnstu pönnukökur sem ég hef smakkað. Þær síðustu sem hún færði fjöl- skyldunni í jólaboði vora 80 talsins og þótti henni ekki mikið. Amma hafði aldrei úr miklum fjármunum að spila. En um leið og hún eignaðist eitthvað, var hún tilbúin að gefa öðr- um. Mér er sérstaklega minnisstætt hve stóra fermingargjöf hún færði mér, því fyrir 30 áram gaf hún mér svefnsófa, sem gegnir enn sínu hlut- verki. Margir í fjölskyldunni leituðu til ömmu þegar svo bar undir, því hún var mjög bóngóð. En að sama skapi bað hún ekki oft um aðstoð. Hún var vön að sjá um sig og gerði það til hinstu stundar. Það var fyrir 16 áram að ég kynntist þér fyrst. Þá hafði ég reyndar hitt þig áður og skrítnar til- viljanir í lífi okkar tengdust. Það er með eindæmum hvað þú varst alltaf jákvæð og þrautseig í gegnum lífið, því lffið þitt var ekki dans á rósum. En þrátt fyrir það þótti þér gaman að lifa. Aldrei að gefast upp. Þessi 16 ár sem við höfum þekkst hefur þú alltaf verið yndislega góð við mig, Valdísi, dóttur Halla, börnin okkar Halla, þau Jóhönnu Sveinu og Helga Elí, og börnin mín, Sigga Svein og Öddu Rut, sem þú gekkst í lang- ömmustað af mikilli hlýju og elsku. Þau skipti sem þú dvaldir á Vals- hamri hjá Sveinu og Helga, tengda- foreldram mínum, komst þú alltaf yfir í Háhól til okkar og við áttum gott spjall saman. Eins gleymum við aldrei þegar þú hjálpaðir okkur og hélst heimili í Háhóli með Halla og passaðir litlu krakkana í vikutíma fyrir átta áram, þegar ég var í skóla í Reykjavík. Börnin muna ennþá eft- ir því og þeim leið vel með þér. Gústa amma skipti oft um hús- næði og leigði íbúðir víða í Reykja- vík. Eins og stormsveipur fór hún að mála íbúðirnar sem hún bjó í, gerði hreint og snurfusaði í kringum sig. Sjálf eignaðist hún ekki íbúð fyrr en hún var komin nálægt sjötugu. Ári seinna brá hún sér til Mallorka með vinkonum sínum og í sömu ferð var Ríkarður Ingibergsson, sem fimm áram síðar varð ástvinur hennar og félagi, þá orðinn ekkjumaður. A þessum fimm áram sem þau hafa verið samvistum, hafa þau byggt sér fallegt sumarhús á Þing- völlum. Það hefur verið dásamlegt að fylgjast með áhuganum hjá þessu lífsglaða fólki, hún komin fast að átt- ræðu og hann farinn að nálgast ní- rætt. Þau hafa notið þess undanfarin sumur að hlú að bústaðnum sínum og umhverfi hans og áttu margar góðar stundir á Þingvöllum. Rikki er lærður trésmiður, en hann er líka listamaður sem sker listaverk út í tré og ber bústaðurinn þeirra þess glöggt merki. Gústa amma sýndi okkur stolt nokkra muni, þ.á.m. ask og kistil, dýrgripi sem Rikki skar út og færði henni að gjöf. Fjölskyldan er þakk- lát fyrir það hve Gústa amma var i i Persónuleg, athliða útfararþjónusta. Svem'r Otsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sótarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ OSWALDS SÍMI 551 3485 ÞJÓNUSTA ALI.AN SÓl.ARHRINGINN m>\i snu ii >ii • iiii ni-\K| uik Láá D/ti'/t) Ijigt-r ()htfnr ('tj/irttrstj. ( tfitr/irstj. (’tf/tr/trstj. I IKKISIT \ INM'S rOi A EYVINDAR ÁRNASONAR , ;/v 1899 niTimr.nn: -a r - rn. ,n, ,-n- r -„n-r-x-T T r- - MAGNÚS FRIÐRIKSSON + Magnús Friðriksson fæddist í Reykjavík 26. júlí 1924. Hann lést 5. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Neskirkju 17. janúar. Því era takmörk sett hvað hægt er að framkvæma á mannsævinni og í raun furðu stuttur tími sem við höfum til þess að sinna þeim málum sem okkur era hugleikin án þess að teljast til skylduverka. Flestir eiga sér tiltölulega fá áhugamál og verja jafnvel öllum sínum frítíma í eitt og sama áhugamálið. Sumir era hins vegar þannig gerðir að þeir hafa áhuga á öllu mögulegu og era sífellt í leit að nýjum þekkingarsviðum. Þannig maður var pabbi. Ekki það að hann hefði mikinn fritíma, en þann sem hann hafði notaði hann, enda framkvæmdamaður að upp- lagi. Með ótrúlegri þolinmæði og vísindalegri nákvæmni nálgaðist hann viðfangsefnin, stundum of hægt fyrir mitt takmarkaða athygl- isspan en þó öragglega og oftar en ekki af einhverjum óútskýranlegum innblæstri. Eins og það væri allt lagt undir í hvert skipti. Ljósmynd- un, framköllun, kvikmyndun, teikn- un, málun, efnafræði, tónlist, bók- menntir, flug, bflar og íþróttir. Allt áhugamál á einhverju æviskeiði eða ævilangt. Jarðfræði, náttúrafræði og íslensk náttúra í öllum sínum fjölbreytileik vora þó hans yndi. Þótt við feðgamir færam mismun- andi leiðir hvað vinnulag varðaði, gekk samvinnan furðuvel. Hann íhugull, natinn en stórvirkur, ég fljótfærari og óþolinmóðari. Senni- lega höfum við þegar öllu er á botn- inn hvolft bætt hvom annan upp. Þau verk sem við sameinuðumst einkum um á seinni árum voru bif- reiðaviðgerðir. Þótt slík iðja komi sumum mönnum nánast í stað trúarbragðaiðkunar, var því ekki al- veg þannig háttað með okkur. Við lágum undir bflum, aðallega mínum misræktai'legu ökutækjum, af nauð- syn, ekki okkur til upplyftingar. Samt sem áður var þetta alveg sér- stök reynsla fyrir mig að vinna með honum enda verkin ekki unnin með neinni ólund eða asa, heldur af ná- kvæmni og eilífðaráhuga á viðfangs- efninu. Þarna sat ég við fótskör meistarans og jafnvel þó svo að ég þættist viss um að ég væri að gera rétt, beið ég alltaf eftir samþykki frá honum áður en farið var út í varasamar aðgerðir. Ekki var losuð sú ró að ekki væri hugað að hugsan- legum afleiðingum út í æsar og ef það gerðist að ég missti þolinmæð- ina var það nánast víst að vandræði væra framundan í viðgerðinni og engum um að kenna nema mér sjálfum. Mér er einkum minnisstæð stór- aðgerð sem við fórum í fyrir nokkr- um áram á einu af mínum fyrrver- andi farartækjum. Það sem er sérstætt við þessa viðgerð er að hún var framkvæmd á nýársdag af öllum dögum. Þetta þótti það eftirtektar- vert að til er ljósmynd af verknaðin- um. Tvenn pör af vinnugölluðum fótum skagandi undan bfldraslu. í kuldanæðingi, mestmegnis liggjandi á lítt geðslegu malbikinu eyddum við þessum fyrsta degi ársins, sam- stilltir í því að ljúka verkinu meðan einhverrar dagsbirtu nyti. Og nátt- úrlega var það hann sem hafði framkvæðið, dró mig fram úr rúm- inu, án allra átaka þó, bara með því að klæða sig í vinnugallann og fara út. Ég gat ekki látið það um mig spyrjast að ég sendi föður minn, þá mann um sjötugt, einan út að gera við minn bfl og það á hátíðisdegi. Ég elti hann því út í nepjuna til þess að upplifa enn eina kennslustundina. Leifur M. ujulJús bat ui WuáMi Utfararstofan annast meginhluta allra útfara ú höfuðborgarsvæðinu. Þar starfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu. Alúðleg þjónusta sem byggir á langri reynslu b*AR.s> '-"r Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf. ^ j UocfnrhlíX 9_Fnccwnai — ^ími RM 19AA — u/umj urfnrnctnfn nnm Vesturhlíð 2-Fossvogi-Sími 551 1266-www.utfarastofa.com taAvSr hamingjusöm síðustu árin í góðum félagsskap með góðum vini. Yndis- leg efri ár sem þeim Rikka hlotnuð- ust saman. Kæri Rikki. Við vottum þér inni- lega samúð okkar en þökkum þér jafnframt fyrir umhyggjusemi og hlýju þína í garð Gústu ömmu. Við vitum að samvera ykkar var henni ljúf og mikilvæg. Það er ómetanlegt að eiga góða vini og félaga, ekki síst þegar árin færast yfir. Missir þinn er mikill. Við kveðjum þig, elsku amma, með söknuði en eram þakklát fyrir að þú þurftir ekki að þjást og varst ánægð síðustu árin. Við hefðum kos- ið að stundirnar með þér hefðu verið fleiri og þið Rikki ættuð enn nokkur sumur saman á Þingvöllum, en það ræður enginn sínum næturstað. Hinsta kveðja með orðum sem Helgi Elí skrifaði til þín, Gústa mín, til langömmu frá sér og systkinum sínum, þeim Sigga Sveini, Oddu Rut, Valdísi Brynju og Jóhönnu Sveinu. Amma, nú ferð þú frá okkur til himna, við sjáum þig ekki aftur í þessu lffi. Guð er hjá þér og þér mun líða vel. Við hugsum vel til þín og biðjum fyrir þér. Þú ert í huga og hjarta mér. Drottinn Guð blessi þig. Takk fyrir allt, elsku Gústa, amma og langamma. Hálfdán Helgason, Mar- grét Jóhannsdóttir, Sig- urður Sveinn, Ástbjörg Rut, Valdís Brynja, Jóhanna Sveina og Helgi Elí, Háhóli, Borgarbyggð. Amma mín, þú varst alltaf svo góð við mig. Þú sást alltaf til þess að mér liði vel. Ég man mjög vel eftir því þegar ég kom hvem laugardags- morgun til þín með pabba. Þá fékk pabbi kaffi og ég fékk að horfa á sjónvarpið á meðan. Oft á jólunum komu ég og foreldrar mínir að heim- sækja þig og fengum við þá heitt súkkulaði og kleinurnar þínar. í hvert sinn sem við fóram frá þér sagði ég „sjáumst í glugganum" og þar veifaðir þú okkur alltaf. Það var svo skrítið með þig að þú þurftir allt- af að vera að gera eitthvað og settist aldrei niður. Þú gast allt sem þú ætl- aðir þér, t.d. klifraðir þú upp á stól til að mála og það vora engin vand- ræði að taka strætó eða fara í búðina þótt veðrið væri vont. Elsku amma mín, Guð veri með þér og ég veit að þú ert alltaf með okkur. Sjáumst í glugganum. Bjarki. Elsku amma mín, nú ertu farin frá okkur. Mig langar til að kveðja þig í síðasta sinn. Gústa amma, eins og við kölluðum þig, þú kvaddir þennan heim svo fljótt að ég á erfitt með að trúa því. Amma, þú svo hress og átt- ir eftir að gera svo margt en svona er lífið, einhvern tíma endar þetta og annað líf tekur við. Við, þú og ég, áttum margar góðar stundir saman. Ég man svo vel þeg- ar ég fór til þín á Brú í pössun, alltaf beiðst þú með kleinur og mjólk fyrir mig, litla strákinn. Það var mikil gleði þegar þú eignaðist þína fyrstu íbúð í Stigahlíðinni fyrir nokkram áram. Þegar ég renndi upp að beiðst þú alltaf í glugganum með bros á vör og kleinurnar mínar tilbúnar. Við vorum góðir vinir, sátum oft lengi yfir kaffibolla og röbbuðum mikið saman um heima og geima. Ekki er langt síðan ég keyrði þig í bankann þinn til þess að borga reikningana þína, á tilsettum tíma eins og þér var einni lagið. Og skruppum við sem oft áður í matvörubúðina og löbbuðum eins og ástfangið par og tíndum í körfuna. Aldrei baðst þú um eitt eða neitt, varst alltaf svo þakklát fyrir allt sem ég gerði með þér - fyrir þig - og talaðir um það í langan tíma á eftir. Þú hafðir mikið að gera allt þitt líf, bæði með bömin þín og í vinnu. Þú varst alltaf að gera eitthvað, svo sjálfstæð. Þegar ég kom til þín í heimsókn varst þú ýmist komin upp í stiga að mála loftið með pensli, skúra, sauma eða dytta að. Þú áttir marga drauma og rættust þeir síð-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.