Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ . 40 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 MINNINGAR ARNI JÓNSSON + Árni Jónsson, bifvélavirki og kennari, fæddist á Kópaskeri 11. sept- ember 1938. Hann lést á heimili sínu í Iteykjavík 6. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Árbæjarkirkju 11. febrúar. v Enn er höggvið skarð í vmahópinn. Sunnudaginn 6. febr- úar var Ami Jónsson, frá Melum á Kópaskeri, kallaður til starfa á öðru sviði en við skiljum og leikum á. Foreldrar hans áttu heima á Melum, en við á Sandhólum. Fá- menni var í þessu litla þorpi þegar ég fyrst man. En þessu hafa þær Kristj- ana, móðir Áma, og Margrét, móðir mín, veitt athygli og gerðu sitt til úr- bóta. Hrekkjastrákar, sem vildu stríða okkur, kölluðu til okkar á all- löngu færi. „Mamma þín er alltaf ólétt.“ Okkur leiddist þessi dára- skapur, en létum sem vind um eyru þjóta. Sú venja skapaðist, að þegar önnur hvor þeirra lá á sæng vom börn hennar send til dvalar til þeirr- ar sem vel var á fótum. Var þá oft talsverður glaumur í stóram bama- hóp. Þegar Kaupfélag N-Þingeyinga var stofnað voru aðalstarfsmenn afar okkar Áma. Bjöm, afi minn, annaðist skrifstofuhald o.fl., en Ámi og synir hans um uppskipanir (á bátum) og vora ekki loppnir í höndum, allir lagnir, fima sterkir og ekki vantaði kjarkinn. K.N.Þ. spjaraði sig líka vel á meðan þessir menn störfuðu þar. Ámi gamli Ingimundarson var aldrei iðjulaus. T.d. lagði hann út frá fjör- unni silunganet og einnig veiddi hann rauðmaga. En allan þann feng gaf hann þorpsbúum o.fl., ýmist glænýj- an eða reyktan. Hann var góður mað- ur en alltaf fátækiu-. Jón faðir Árna heitins var eitt mesta prúðmenni sem ég hef kynnst og Kristjana móðir hans góð, rausnarleg og ágætlega músikölsk. Ég er það miklu eldri en Arni að ég man þegar hann fæddist. Ég var tæpum átta áram eldri. Ég man vel eftir tággrönnum dreng með ljós- hrokkið hár, sem varla sýndist geta orðið jafnmikið heljarmenni og frændur hans. En þetta breyttist, * eins og flest annað. Þegar Ami hafði tekið út sinn frumþroska var hann orðinn bæði stór og sterkur, en geð- gæðin og umburðarlyndið var það sama. Gullnu lokkamir hurfu að öaúðskom v/ Possvo^sUl^kjMga^ð Símii 554 0500 Blómastofa Friðfinmi Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, símí 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. mestu og eftir stóð höfðinginn Ami sjálfur með heiðblá svikalaus augu og glettna gaman- semi sem engan særði. Ámi var ekki sérstak- lega mikið fyrir skraf, en segði hann eitthvað mátti treysta því. Ef hann vildi gat hann af munni fram haldið óað- fínnanlegar ræður, en gerði of lítið af því. Hann var afbragðs kennari og af einlægni og lítillæti beitti hann sjálfan sig fullt eins miklum aga og nemendurna. Hann var alvöramaður án depurðar. Á gleðistundum var hann hrókur alls fagnaðar. Sagði skemmtilega og ró- lega frá ýmsu sem var til gamans. Mjög góður söngmaður og laðaði aðra með sér. Hann lést langt um aldur fram, en hafði þó á rúmum 60 áram reist sér minnisvarða, sem alltaf munu óbrotnir standa í huga þeirra, sem vora svo lánsamir að kynnast honum. Ég álít að hann hafi verið gæfumaður í lífi sínu, sem varð styttra en nokk- um óraði fyrir. Þó held ég að gæfa hans hafi verið mest þegar hann kvæntist eftirlifandi konu sinni, en hún er einstök fyrir vit og hlýju og börnin eru bæði glæsileg og dugleg. Helst hefði þurft að skrifa um hann bók. Ég er þakklátur gæfunni fyrir þær stundir, sem okkur leyfðist að eiga samleið. Jónu, bömum og bamabömum votta ég og fjölskylda mín dýpstu samúð. Ámi á öragglega vísa góða heimkomu þar sem hann knýr dyra. Bjöm Þórhallsson og íjölskylda. Ámi Jónsson landvörður er látinn. Það var bara í síðustu viku sem ég frétti að Árni gengi ekki heill til skógar og nú nokkrum dögum seinna kemur fréttin af ótímabæra andláti góðs félaga sem reiðarslag. Við hitt- umst síðast á haustfundi landvarða- félagsins í september og síst af öllu granaði mig aðþað yrði síðasta skipt- ið sem ég hitti Áma. Ami starfaði sem landvörður í tíu ár, fyrst í Herðubreiðarfriðlandi og Öskju en svo um árabil í þjóðgarðin- um í Jökulsárgljúfram. Hann var virkur í starfi Landvarðafélags ís- lands, var formaður þess árin 1994- 1996 og sinnti auk þess fjölda ann- arra trúnaðarstarfa fyrir félagið síð- ustu tíu árin. Ámi var ötull baráttumaður fyrir hagsmunum landvarða, landvörslu og náttúru- vemd almennt. íslensk náttúra var honum hjartfólgin og henni lagði hann lið sitt í baráttunni við oft skammsýna ráðamenn. Við félagar Áma úr landvarða- félaginu eigum margar góðar minn- ingar um hann sem ylja nú á sorgar- stundu. Fyrst og fremst minnumst við hans sem þess góða félaga sem hann var jafnt í leik sem starfi. Glað- lyndi Áma og léttleiki gerðu að það var gott að vera nálægt honum hvort sem var í argaþrasi hagsmunabarátt- unnar eða á skemmtisamkomum fél- agsins og oft áratuga aldursmunur varð að engu þegar Ámi var annars vegar. Að leiðarlokum þökkum við fyrir að hafa notið krafta og félagsskapar Árna síðasta áratuginn. Elsku Jóna, þér og þínum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Ama Jónssonar. Fyrir hönd Landvarðafélags Is- lands Glóey Finnsdóttir. Fyrstu kynni okkar af Ama Jóns- syni vora í gegnum Gufunesradíó fyrir réttum áratug. Þá voram við að þreyta framraun okkar í landvörslu og gegndum húsfreyjustörfum í Sig- urðarskála í Kverkfjöllum. Ami var landvörður í Herðubreiðarfriðlandi ásamt Kára Kristjánssyni þetta sum- ar. Samtöl okkar gegnum Gufuna á hlustunartíma vora oft á tíðum há- punktur dagsins í rysjóttri tíð og héldu þeir félagar oftar en ekki uppi móralnum hjá okkur með sínum sér- staka húmor. Síðar áttum við eftir að hittast flest sumur í landvörslu í Jökulsár- gljúfram og í störfum tengdum Landvarðafélagi íslands. Það var ómetanlegt að fá að starfa með Ama í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfram. Hann átti traustar rætur í Keldu- hverfi og Öxarfirði og lagði sig fram um að setja okkur aðkomufólkið inn í staðhætti og mannlíf. Hann kunni ótal sögur af sveitungum sínum og miðlaði þeim með þeirri hlýju og góð- látlegu kímni sem einkenndi hann. Auk þessa var Árni góður vinnufélagi og kunni ýmislegt fyrir sér. Önnur okkar á eftir að minnast handleiðslu hans við sokkaprjón um ókomin ár. Með Áma kynntumst við konu hans, Jónu Óladóttur, en þau hjónin hafa bæði unnið við landvörslu eftir að hafa komið bömum sínum á legg. Það var hvorki að finna að þau vfluðu fyrir sér hið þrönga og nána sambýli sem einkennir sumardvalarstaði landvarða né að þau settu fyrir sig þann galgopaskap sem oft einkenndi sambúð óharðnaðs æskulýðsins, nema síður væri. En þó svo að þau hafi blandast hópnum á jafnræðis- grandvelli, fór ekki hjá því þegar á reyndi að þau væra okkur hinum nauðsynleg kjölfesta. Það sem stendur þó upp úr þegar hugsað er til kynna okkar af Árna er hið nána samband þeirra hjóna. Kærleikurinn og hlýjan sem ein- kenndu samskipti þeirra vora okkur dýrmætt veganesti og fyrirmynd á tímum sem virðast oft einkennast af stífni og umburðarleysi manna á miili. Það er gæfa okkar að hafa feng- ið að kynnast slíku fólki. Með Áma er genginn einstakur fé- lagi. Við sendum Jónu og fjölskyld- unni allri okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Ólöf Ýrr Atladóttir, Ruth Magnúsdóttir. Ami Jónsson sem nú er kvaddur, helgaði u.þ.b. helming starfsævi sinnar fagnámskennslu í framhalds- skóla. Hann starfaði fyrst sem bif- vélavirki hér í Reykjavík í rúmlega tuttugu ár en var ráðinn til kennslu við Iðnskólann í Reykjavík árið 1978. Á þessum tíma hafði orðið mikil breyting í fagnámi bifvélavirkja og var um þetta leyti einnig að verða í námi bifreiðasmiða. Áður hafði verklegi hluti námsins að mestu farið fram á verkstæðum undir handleiðslu iðnmeistara en fluttist nú að stórum hluta inn í iðn- fræðsluskóla þar sem áður hafði nær eingöngu farið fram fagbóklegur hluti námsins. Til starfa í Iðnskólanum í Reykja- vík kom nokkur hópur bíliðnamanna ★★ Höfum ákveðinn kaupanda ★★ að rað-,par- eða einbýlishúsi í vesturbæ Kópavogs. Verð allt að 25 milljónir. Upplýsingar veiti Bogi Pétursson í síma 699-3444 og starfsfólk Valhallar. ★★ Höfum fjársterkan kaupanda ★★ að 4-6 herb. íbúð í Fossvogi og nágrenni. Upplýsingar veitir Bárður H. Tryggvason í síma 896-5221 og starfsfólk Valhallar. Valhöll fasteignasala s. 588-4477. Opið í dag frá 12-14. til að sinna þessari kennslu og störf- uðu flestir þeirra áfram við skólann allt þar til kennsla í bfliðnum var lögð niður við þann skóla og flutt í nýjan fjölbrautaskóla, Borgarholtsskólann í Grafarvogi, haustið 1996. Ámi var einn þriggja bfliðnakennara úr Iðn- skólanum í Reykjavík sem fluttu með bfliðnakennslunni í þennan nýja skóla og kom það m.a. í hans hlut að móta námið í iðngrein sinni með þeim nýja hætti sem þar var tekinn upp. Árna var sérlega lagið að umgang- ast fólk, ekki síst unglinga, með hlýju viðmóti, trausti og næmu auga fyrir því kímiiegaí tilverunni. Hann sóttist ekki eftir að hafa sig í frammi, en þrátt fyrir það varð hann deildar- stjóri sinnar greinar við skólann og sinnti því af sömu natni og öðra sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var ætið til taks ef á þurfti að halda í rétt- indamálum samstarfsmanna eða nemenda. Arni var mikill unnandi ís- lenskrar náttúru, var hafsjór fróð- leiks um landið, setti sig aldrei úr færi til ferðalaga eða útivistar og starfaði raunar nokkur hin síðari ár sem landvörður í sumarleyfum sín- um. Allra mannkosta Ama nutum við samkennarar hans og það kom því sem reiðarslag þegar hann veiktist í byrjun skóla nú eftir áramótin og átti ekki afturkvæmt til starfa. Áma er sárt saknað bæði af okkur samstarfs- mönnum og nemendum okkar við skólann. Missir fjölskyldu hans er þó mestur. Við kennarar og starfsmenn Bifreiðadeildar Borgarholtsskóla vottum Jónu, sonum þeirra og fjöl- skyldum, samúð okkar og biðjum þeim Guðs blessunar í raunum þeirra. Samstarfsmenn. EYSTEINN JÓHANNSSON + Eysteinn Jó- hannsson, fyrr- verandi flokksstjóri hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, fæddist í Skógum á Fells- strönd 23. janúar 1917. Hann lést á heimili sínu 5. febr- úar siðastliðinn. For- eldrar hans voru Jó- hann Jónasson bóndi í Skógum og kona hans, Margrét Júlí- ana Sigmundsdóttir. Útför Eysteins fer fram frá Fossvogs- kirkju á morgun, mánudaginn 14. febrúar, og hefst athöfnin klukk- an 13.30. Frændi minn, nú sannaðist sem oft áður, að ekki skal geymt til morguns það sem hægt er að gera í dag. Ég átti eftir að fræðast mikið af þér um ættfræði og sögu forfeðra okkar sem þið Áskell, bróðir þinn, vorað búnir að safna saman. Merkilegast þótti mér að þið röktuð ættina eftir kven- legg, en það finnst mér vera mjög í ykkar anda að fara þá leið sem ör- uggust er. Ekki granaði mig þegar við hittumst fyrir nokkram dögum að það væri okkar síðasti fundur, eins og þú hefðir ef til vill orðað það, þá á hver sitt skapadægur. Eysteinn var næst- yngstur 11 systkina. Hann ólst því upp á mannmörgu heimili og lærði snemma að vinna eins og þá var títt. Hann var í Reykholts- skóla vetuma 1934 til ’35 og aftur 1936 til ’37. Síðan í Bændaskólan- um á Hólum í eitt ár og hálft ár firá 1939 til ’41. Þess á milli vann hann tii að greiða náms- kostnað. Eftir skóla- nám vann hann við ým- is sveitastörf og verkamannavinnu. Um tíma stundaði hann sjómennsku, en 1955 réðst hann til Rafmagns- veitu Reykjavíkur þar sem hann starfaði óslitið um 30 ár, síðast sem flokksstjóri. Eysteinn var góðum gáfum gædd- ur, minnugur og fróður. Á unglings- áram kom ég oft á heimili hans og Guðbjargar systur hans. Þá kynntist ég Eysteini fyrst og áttaði mig á því hve fróður hann var og hafði mótaðar skoðanir á mörgum málum. Margt mátti af honum læra. Frændi góður, ég veit að lofrolla hefði ekki verið þér að skapi. Þrátt fyrir það vil ég segja að ég sé á bak góðum og vönduðum dreng. Grétar Sæmundsson. SIGRIÐUR ANDRÉSDÓTTIR + Sigríður Andrés- dóttir fæddist á Hamri í Múlasveit í Austur-Barðastrand- arsýslu 22. febrúar 1929. Hún lést af slysförum 30. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Kópavogskirkju 7. febrúar. Það var einkennileg tilfinning sem læstist um mig við að heyra í fréttum að góð vin- kona hefði látist af slysföram. Það er einhvern veginn þannig að mað- ur er aldrei viðbúinn því að ein- hver nákominn eða góður vinur hverfi héðan. En Sigga er lögð af stað í þá ferð sem bíður okkar allra. Kynni okkar Siggu hófust við stofnun Klúbbs 44, félags eigin- kvenna pípulagningamanna, fyrir 24 árum. Sigga hefur verið einn af máttarstólpum klúbbsins frá upp- hafi, setið í stjórn og tekið þátt í starfinu af krafti. Það er víst að margar okkar klúbbfélaganna eig- um eftir að sakna hinna óvæntu og skemmtilegu tilsvara hennar í ýmsum málum sem rædd hafa ver- ið á fundum okkar. Þær era líka margar góðar minningarnar úr vorferðalögunum okkar, hópurinn einhvers staðar úti í náttúrunni að borða nesti og gantast, við flestar kappklæddar, en Sigga á stutterma- bol brosandi út að eyrum að skora á okk- ur í kapphlaup eða í stórfiskaleik. Við komumst fljótt að því að við áttum sameiginlegan bakgr- unn, Sigga af Múlan- esinu og ég ættuð úr Flatey. Breiðafjörðurinn tengdi okkur þeim böndum sem allir þekkja sem þar hafa alist upp eða dvalist um lengri eða skemmri tíma. Skrifuð á blað verður hún væmin bænin sem ég bið þér. En geymd í hugskoti slípast hún eins og perla í skel - við hverja hugsun, sem hvarflar til þín. (Hrafn A Harðarson.) Kæra vinkona, við félagar þínir í Klúbb 44 kveðjum þig og þökkum samferðina og biðjum Guð að styrkja Þóri, börnin ykkar og fjöl- skyldu. Hanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.