Morgunblaðið - 13.02.2000, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 43
Stjórnir LÍ og LR telja að stefna beri að byggingu
nýs sjúkrahúss í Reykjavík
Skipting stjórnunar lækninga
og hjúkrunar verði afnumin
STJÓRNIR Læknafélags íslands
(LÍ) og Læknafélags Reykjavíkur
(LR) hafa samþykkt eftirfarandi
yfirlýsingu um málefni Landspítala
og Sjúkrahúss Reykjavíkur:
Inngangur
Með breytingum á yfirstjórn
stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík,
Landspítala og Sjúkrahúss Reykja-
víkur og með einum forstjóra og
fyrirætlunum um eina fram-
kvæmdastjórn hafa verið stigin
skref til aukinnar samvinnu og/eða
sameiningar þeirra. Samhliða
þessu hefur farið fram umræða um
kosti þess að byggja nýtt sjúkrahús
eða koma starfsemi framtíðarinnar
fyrir í þeim byggingum, sem fyrir
eru. Sú umræða er skemmra á veg
komin.
I.
Ymis rök hníga til þess, að þjóðin
geti ekki staðið undir nema einu vel
búnu hátæknisjúkrahúsi. Ofan-
greind skref má nýta sem áfanga
til að mæta þeirri kröfu. Við aukna
samvinnu og/eða sameiningu, þarf
að huga að breytingum á innra
skipulagi þessara stofnana/stofnun-
ar til þess að framtíð þjónustunnar
verði vel borgið. I því sambandi
þarf m.a. að huga að yfirstjórn heil-
brigðismála, skiptingu valds á
sjúkradeildum, fyrirkomulagi
bráðrar þjónustu og tímasettrar
þjónustu, mismunandi rekstrar-
formum innan sjúkrahússins og
kjarasamningum. Koma þarf í veg
fyrir faglega stöðnun og einokun á
sameinuðu hátæknisjúkrahúsi m.a.
með tímabundnum ráðningum
æðstu stjórnenda sjúkradeilda.
Nýta þarf þetta tækifæri til að fella
hið nýja sjúkrahús að nútímalegum
hugmyndum um hinn akademíska
þátt í rekstri þess með því að efla
tengslin við Háskóla Islands, þann-
ig að það þjóni landsmönnum sem
kennslu- og rannsóknastofnun
jafnt sem sjúkrahús í fremstu röð.
II.
Það er skoðun stjórna LÍ og LR,
að núverandi húsnæði Sjúkrahúss
Reykjavíkur og Landspítala sé
óhentugt til sjúkrahússrekstrar.
Núverandi húsnæði er hannað með
höfuðáherzlu á legudeildir og fellur
illa að nútíma sjúkrahússrekstri,
sem gerir ráð fyrir allt annarri
samsetningu verkefna og tækja-
búnaðar en þær byggingar, sem
hannaðar voru fyrir mannsaldri
eða tveim. Þrengt er að stoðdeild-
um og rannsóknastarfsemi, lítið
svigrúm er fyrir sérhæfða göngu-
deildarstarfsemi og bráðaþjónusta
á undir högg að sækja. Starfsað-
staða lækna er víða bágborin. Tölu-
verð byggingarþörf er á báðum
stöðum og byggingaframkvæmdir í
gangi.
Stjórnir LÍ og LR telja nauðsyn-
legt, að mörkuð verði opinber
stefna í þessum málum. Stjórnirnar
taka undir orð heilbrigðismálaráð-
herra á aðalfundi LÍ haustið 1999
og telja, að í framtíðinni eigi að
byggja eitt sjúkrahús, sem rúmi
núverandi starfsemi Sjúkrahúss
Reykjavíkur og Landspítala. Við
núverandi aðstæður má efna til
margvíslegrar samvinnu sjúkra-
húsanna, en endanleg markmið
sameiningar nást ekki nema undir
einu þaki. Lykilatriði er, að breið
pólitísk samstaða stjórnmálamanna
og fagaðila náist um framangreint
markmið og leiðir að því.
III.
Samrunaferli er erfitt fyrir stór-
ar stofnanir af þessu tagi og þróun
í samstarfi farsælli en bylting.
Ymsar vísbendingar utan úr heimi
eru um, að sameining stórra heil-
brigðisstofnana hafi mistekizt eða
lítilli hagræðingu skilað nema í
framkvæmdastjórn. Til að skila
árangri þurfa markmið sameining-
ar að vera skýr bæði starfsfólki og
sjúklingum. Treysta þarf sjálfstæði
einstakra sviða einnar stofnunar,
þannig að forðast megi óhagræði of
mikillar miðstýringar. Tryggja
þarf, að sjúklingar eigi val um
lækna og meðferðarúrræði.
Stjórnir Læknafélags íslands og
Læknafélags Reykjavíkur hvetja
stjórnvöld til að grípa ekki til
neinna þeirra aðgerða í máli þessu,
sem líklegar eru til að valda aftur-
för eða ólgu og sundurþykkju með-
al þeirra, er málið varðar mest.
IV.
Stjórnir LÍ og LR setja fram eft-
irfarandi meginatriði, sem þær
telja að vinna beri að:
1. Stefna ber að byggingu nýs
sjúkrahúss, sem rúmi starf-
semi LSP og SHR.
2. Sérstakar ráðstafanir verði
viðhafðar til að fyrirbyggja
faglega einokun og stöðnun.
3. Allar ákvarðanir um aukna
samvinnu og/eða sameiningu
deilda verði teknar í fullu sam-
ráði og í sátt við starfsfólk.
4. Við skipan yfirstjórnar sjúkra-
hússins þarf að gæta faglegra
sjónarmiða í meira mæli en nú
er gert og efla þarf áhrif
starfsfólks innan hennar.
5. Afnema þarf með lagabreyt-
ingu tvískiptingu faglegrar
stjórnunar á milli lækninga og
hjúkrunar og árétta forræði
lækna á faglegri yfirstjórn
deilda.
6. Koma á í veg fyrir, að sveiflur
í bráðaþjónustu raski tíma-
settri þjónustu.
7. Fela á öðrum sjúkrahúsum
ákveðin verkefni og nýta þau
betur til kennslu og þjálfunar.
8. Flytja þarf verkefni frá
sjúkrahúsum til læknastöðva
og heilsugæslustöðva eða
læknastofa og tengja þessa
starfsemi jafnframt sjúkrahúsi
á þann hátt, að upplýsinga-
streymi sé tryggt og nýta megi
þennan þátt frekar til kennslu
og rannsókna.
#
FASTEIGNA
Síbumúla 11,2. hœb • 108 Reykjavík
Sími: 575 8500 • Fax: 575 8505
Veffang: www.fastmidl.is
Netfang: sverrir@fastmidi.is
OPIÐ HÚS FRÁ KL. 14.00-16.00.
FÍFULIND 13 í KÓP.
Opið hús hjá Ingvari og Evu sem
munu taka á móti áhugasömum
kaupendum. Þetta er 110 fm íbúð á
2. hæð með sérinngangi. íbúðin
skiptist í stofu með suðursvölum,
fallegt eldhús, þrjú góð svefnherb,
flísalagt baðherb. í hólf og gólf.
Þvottaherb. í íbúð. Áhv. 6,5 m. hús-
bréf. Verð12,5m.
Skrifstofuhús 3.200 fm
Á besta stað nálægt miðborg Reykjavíkur. 3 hæðir og kjallari.
Sjávarútsýni af hæðunum. Næg bílastæði. Til afhendingar á
næstu mánuðum.
Skrifstofu- og verslunarhúsnæði
Höfum til sölu heilar húseignir að stærð frá 600 til 1.800 fm á góð-
um stöðum í borginni. Leitið frekari upplýsinga hjá undirrituðum.
Lagerhúsnæði í Garðabæ
5.000 fm til sölu
Til sölu og afhendingar fljótlega tæplega 5.000 fm glæsilegt og
fullfrágengið framleiðslu- og lagerhúsnæði. Mikil lofthæð. Bygg-
ingarréttur fyrir viðbyggingu. Selst í einu lagi eða hlutum.
Iðnaðarhúsnæði
734 fm til sölu
Úrvals húsnæði. Sérhannað fyrir framleiðslufyrirtæki. Á 1. hæð er
380 fm salur með mikilli lofthæð og 2 innkeyrsludyrum og 107 fm
skrifstofuhúsnæði. f kjallara er 246 fm lagerrými með góðum inn-
keyrsludyrum. Áætlaður byggingarréttur fyrir u.þ.b. 300 fm.
Hagstætt verð og skilmálar.
Verkstæðishúsnæði óskast
Leitum eftir 500-1.000 fm vönduðu húsnæði fyrir góðan kaup-
anda. Æskileg staðsetning er austurborg Reykjavíkur eða Ártúns-
höfði. Afhending helst innan 3ja mánaða. Staðgreiðsla kaupverðs.
Iðnaðarhúsnæði óskast
500-700 fm húsnæði á jarðhæð með góðri lofthæð óskast
miðsvæðis í Reykjavík, t.d. í Ármúlahverfi eða nágrenni fyrir
þjónustufyrirtæki. Afhending samkomulag.
Vagn Jónsson ehf.
Fasteignasala, Skúlagötu 30, sími 561 4433.
Opið hús
Tómasarhagi 38
Til sýnis miili kl. 14.00 og 16.00 í dag
um 80 fm 3ja herb. íbúð í kjallara.
Sérinngangur og -hiti. Frábær staðsetning.
Fasteignasalan Eignanaust,
Vitastíg 12, sími 551 8000.
YALlfS FÁSTEIGMASALA
ffie>wfcÍ!*«rííItuír«»-R;íi 6/2 »..5ió>5-U1522 ífa5&S UIU8;-
Valgeir Kristinsson hrl., lögg. fasteigna- og skipasali
Kristján Axelsson sölumaður,
Kristján Þórir Hauksson sölumaður
Grenibera.
Þetta glæsilega 210 m2
hús ásamt 50 m2 bílskúr
er nú til sölu hjá Val-
húsum. Húsið er stað-
sett í lokaðri götu í Set-
bergslandinu. Bílskúrn-
um hefur verið breytt í
2ja til 3ja herb íbúð,
húsið sjálft er með fjór-
um svefnherbergjum og er allt hið glæsilegasta með parketi og flísum á gólf-
um og vönduðum innréttingum. Út frá stofu er fallegur flísalagður sólskáli, í stofu
er fallegur arinn. Þessa eign er vert að skoða. Uppl. gefur Kristján Þ .
Hauksson i sima 696-1122 um helgina og 565-1122 eftir helgi.
FLUÐIR - SUMARPARADIS Vorum að fá í sölu 6 ný raðhús á
frábærum stað á Flúðum. Húsin eru steinsteypt og skilast fullbúin að utan en
tilb. til innréttinga að innan, eða lengra komin eftir frekara samkomulagi í vor.
Heitt vatn, stutt í þjónustu, sundlaug o.fl. Verð frá 7,6 millj. Allar nánari uppl. á
skrifstofu.
ASPARFELL - LAUS. Vel skipulögð 2ja herbergja íb.á 2. hæð í lyftuhúsi
með góðum suðursvölum. Þvohús á hæðinni. Hús og sameign í góðu ástandi.
Áhv. 2,8 m. Ekkert greiðslumat. Verð 5,5 millj. LAUS STRAX. 9619
GRETTISGATA - LAUS Rúmgóð 2-3ja herb. ósamþykkt ibúð í kj. með
sérinngangi. Stærð 62 fm. Verð 5,5 millj. fb. snýr frá götu. Mjög góð staðsetn-
ing. I_AUS STRAX. 9876
SNORRABRAUT Góð og mikið endurnýjuð 2-3ja herbergja íb. í kjallara
með sérinngangi í þríbýli. Gler, gluggar, rafmagn og ofnakerfi endurnýjaðA,/ (
Húsið í góðu ástandi. Áhv. 3,4 m.Verð 6,5 millj. 9885
UTHLIÐ Vorum að fá í sölu einstaklingsibúð á 2. hæð í 6-íbúða húsi. Áhv.
2,5 m. Verð 4,9 millj. Frábær staðsetning. Hús i góðu ástandi. 9890
REYKÁS - ÚTSÝNI Rúmgóð 2ja herb. ib. á 1. hæð í litlu fjölb. með suð-
ursv. og aðgengi niður í garð. Nýl. innréttingar. Stærð 68,7 fm. Hús ný málað
og sameign í góðu ástandi. Verð 7,9 millj. 9870
GRANASKJOL Mjög góð 2ja herb. ib. í kj. með sérinngangi í tvíbýli.
(búðin er talsvert fiiikið endumýjuð. Flísar og parket. Hús í góðu ástandi. Verð
7,9 millj. 9719
VEGHÚS - BÍLSK. Rúmgóð 3ja herb. endaíb. á 2. hæð í litlu fjölb. ásamt
bílskúr. Parket. Þvhús í íbúð. Góð stofa með svölum. Baðherb. allt flísalagt.
Hús og sameign mjög góð. Verð 11,5 millj. 9841
HAMRABORG - ÚTSÝNI 3ja herb. í. á 5. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði
í bílsk. Tvö svefnherb. Stærð 70 fmt Þvottahús á hæðinni. Fallegt útsýni. Áhv.
4,2 m. Laus í apríl. 09877
VALLARÁS - LAUS Vorum að fá í sölu fallega innréttaða 3ja herb. íb. á
3. hæð í lyftuhúsi með fallegu útsýni af suðvestursv. Góðar innréttingar. Björti<
og góð íbúð. Stærð 83 fm LAUS STRAX. 9860
ÁLFHEIMAR Björt og góð 4ra herbergja endafbúð á 1. hæð í góðu fjölbýli.
3 svefnherbergi. Parket. (búðin snýr að fjölskyldugarðinum. Hús og sameign í
góðu ástandi. Verð 9,6 millj. 9875
EFSTASUND - BILSK. Rúmgóð efri sérhæð og ris í tvíbýli ásamt góð-
um bílskúr. Endurnýjað eldhús. Góðar stofur. Rúmgóð herb. Tvennar svalir.
Eignin er mikið endurnýjuð og bíður uppá mikla möguleika. Stærð 150 fm + 54
fm bílsk. Verð 16,3 millj. Allar nánari uppl. á skrifstofu.
EFSTASUND Einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúrsplötu. Húsið
þarfnast endurnýjunar við. Stór lóð. Tilboð óskast. 9883
SPÍTALASTÍGUR - LAUST Vorum að fá í sölu lítið sérbýli á tveimur
hæðum með sérinngangi 2 herbergi og stofa. Stærð 55 fm. Verð 5,9 millj. Laust
strax. 9889
BREIÐAS - GBÆ. Gott og vel staðsett einbýlishús, hæð og ris ásamt
tvöf. bílskúr og góðum gróðurskálum. 4-5 herbergi. Góðar stofur, Húsið er i
góðu ástandi og stendur á fallegri gróskumikilli stórri lóð innst í botnlanga. Hiti í
stéttum. ATH: Skipti á minni eign mögul. 9886
VIÐARRIMI - ÚTSÝNI Mjög fallegt einbýlishús á einni hæð ásamt innb.
tvöf. bílsk. Húsið stendur á hornlóð. 3 svefnherb. Góðar stofur. Parket og flísar.
Vandaðar innr. Stærð 176 fm Verð 19,5 millj. 9882
ASAR - ARBÆR Vandað og gott einbýlishús á tveimur hæðum með
innb. bílsk. Mögul. á að hafa séríb. á jarðhæð. 4 herbergi. Góðar stofur. Parket
og flísar. Fallegur garður, skjólvegggir. ATH: Skipti á minni eign mögul. 9884
HAUKALIND - KÓP. Nýtt raðhús á tveimur hæðum með innb. bílskúr. 4
svefnherb. og aukarými á neðri hæð. Stærð ca 200 fm. Húsin skilast fullbúin að
utan og tilb. til innréttinga að innan. Frábær staðsetning, útsýni. Teikn. á skrifst.
Verð 15,5 millj. 9701
ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST
Erum að leita fyrir fjársterkan og traustan aðila að skrifstofuhúsnæði eða góðu
þjónusturými miðsvæðis í Rvik. Stærð ca 200-400 fm. LEIGA EÐA KAUP. Allar
nánari uppl. á skrifstofu.
OPIÐ í DAG SUNNUDAG FRÁ KL. 12-14.
Sími 533 4040 Fax 588 8366
Armúla 21
DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali.