Morgunblaðið - 13.02.2000, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ur einu í annað
Frá Sofusi Berthelsen:
ÍSLENSK fiskveiðilöggjöf nær út
að 200 mílum, og er viðurkennd af
öllum þjóðum og líka fyrir sitt
ágæti, þetta vita allar þjóðir og ís-
lendingar, nema forsætisráðherra,
því hann segir að verði Vatneyrar-
málið að veruleika, muni erlend
fiskiskip fylla fiskimið landsins og
þurrka upp allan fisk á stuttum
tíma.
Veit hann ekki að fiskilögsagan
er viðurkennd og vernduð fyrir
öðrum þjóðum sem þær virða.
Hverja er forsætisráðherra að
hræða, eða öllu heldur hverja er
hann að reyna að vernda. Er-
lendar þjóðir eru afar hrifnar af
kvótakerfinu okkar til að vernda
fiskimiðin, en vita ekki hvað þau
eru hræðilega ranglát í fram-
kvæmd. Að nokkrum fjársterkum
skuli hafa verið gefinn kvótinn, og
það sem merkilegra er að fjár-
sterkir einstaklingar sem eiga
hvorki útgerð né fiskvinnslu skuli
eiga stóran hluta kvótans til að
braska með og leigja með okur-
verði. Er forsætisráðherra að
reyna að verja þessa aðila?
Það er merkilegt, að það virðist
vera að stór hluti láglaunafólks
styðji þessa ríkisstjórn, þó hún
reyni að halda niðri launum og
skattpíni fólk sem lifir varla af
launum sínum. Kannski kýs fólk af
gömlum vana eða af því að pabbi
og mamma gerðu það, eða kannski
finnst því það vera sjálfstætt fólk
þó allt sjálfstæði vanti. Og hvernig
er það með ellilífeyrisþega, kjósa
þeir Sjálfstæðisflokkinn af því þeir
hafa alltaf gert það, þó þeir viti að
ríkisstjórnin haldi niðri lífsmögu-
leikum með minni og minni tekjum
og skattpíningi miðað við kaup-
hækkun forsætisráðherra. Ef
þetta fólk færi að kjósa sér í hag
þá mundi Bubbi kóngur sitja lágt.
Hinsvegar ef ríkisstjórnin verður
vinsæl meðal þjóðarinnar, á hún að
kalla inn allan kvóta sem gefinn
var og eins hvaða kvóta sem er.
Þetta á að gera strax, ekki að taka
tíu ár, eins og kom fram í sjón-
varpi nýlega. Kvótaeigendur munu
vissulega verða fyrir miklu tjóni að
missa þessar gjafir sem þeir áttu
engan rétt á, en þjóðin hefur orðið
fyrir meira tjóni af þeirra völdum.
Kvótanum á svo að úthluta til
byggðarlaga eftir þörfum og
ástæðum og óseljanlegur, annars
færi allt í sama farið.Kvótann eiga
síðan byggðirnar að leigja með
sanngjörnu verði innan síns samfé-
lags, ekki útfyrir. Hinsvegar mega
þau leigja utanaðkomandi bátum
ef þeir leggja aflann upp í viðkom-
andi byggðarlagi.
Þá úr einu í annað.
Margir hafa veitt þáttum Stef-
áns Jóns Hafstein verðskuldaða
athygli sem voru stór merkilegir.
Sérstaklega veitti ég athygli sam-
tali hans við fólk sem hafði í huga
að flytja suður á Reykjavíkur-
svæðið frá góðum eignum og ágæt-
is atvinnu. Er það að sækjast eftir
skemmtanalífinu hér syðra? Nei,
það er að koma sínum börnum til
betri menntunarmöguleika, það
vill að sín börn eigi betra líf en það
sjálft og þegar börnin hafa fengið
þá menntun sem fáanleg er, reyna
þau að fá vinnu í samræmi við sína
menntun hér á landi, þá einhvers
staðar úti í heimi. Það vantar alls
staðar menntað fólk. Það fer ekki
aftur heim í fyrrverandi byggðar-
lag norður til að vinna í fiski eða
austur á land til þess að vinna í
eiturspúandi álveri. Til stendur að
eyða hundruðum milljarða til að
sökkva undir vatn stórum hluta
lands, einni af okkar ágætustu
perlum. Til hvers? Jú, til að
byggja álver svo 400-500 manns
fái atvinnu. Er ekki hægt að eyða
þessum milljörðum á hagstæðari
og heilbrigðari hátt til að veita
þessu fólki atvinnu. En ef af álver-
inu yrði þá yrði það fólk sem byrj-
aði að vinna þar orðið ellilífeyris-
þegar eftir 30-40 ár. Hverjir
tækju þá við? Ekki unga fólkið
sem fór suður til að mennta sig.
Það yrði að flytja inn erlent fólk til
að taka við. Og er álverð félli niður
það mikið að álverinu yrði lokað,
þá yrði ríkisstjórnin að sjá þessu
fólki fyrir atvinnuleysisbótum sem
það á rétt á þó erlent sé. Mér er
nú stór spurning, hvað margir ára-
tugir munu líða þar til afkomendur
víkinganna verður orðin minni-
hlutaþjóð í eigin landi?
Efalaust finnst forsætisráðherra
þessi skrif mín algjört bull, það er
hans mál, en hvað finnst þjóðinni.
SOFUS BERTHELSEN, eldri,
Hafnarfirði.
Hef opnað lögfræðistofu
Alhliða lögfræðiþjónusta við
einstaklinga og fyrirtæki
Inriheimtuþjónusta - eignaumsýsla - erfðskrár -
skipti dánarbúa - skaðabótamál - grenndarréttar-
og umhverfismengunarmál - kaupmálar -
hjónaskilnaðarmál - bamavemdarmál.
Aðstoð við einstaklinga og lögaðila,
sem em undir gjaldþrotaskiptum.
Nauðasamningar. Skattframtöl fyrir einstaklinga,
skattkæmr og önnur aðstoð á sviði skattamála.
Verjenda- og réttargæslustörf.
Þuríður Halldórsdóttír hdl., Hverfisgötu 105,
101 Reykjavík, s. 551 7280 og 696 0646,
fax 5517271, netfang turidurkh@islandia.is
LOTUS NOTES
liönnun og forritun
( A p |r 1 i t «i ( i o ii D e velo |) m e n t )
Þátttakendur:
Námskeiöið er ætlað öllum sem þekkja og hafa notað Lotus Notes.
Mcirkmið:
Að nemendur geti, að námskeiði loknu, hannað og sett upp einföld
Notes kerfi með Domino Designer (rel.5).
Itinihdld:
Á námskeiðinu verður m.a. tekið fyrir:
• Form og svæði (fíelds).
• Sjónarhom (views) og möppur (folders).
• Aðgerðir (actions) og fjölvar (agents).
• Formúlur (Notes fomiula language).
• Aðgangsstjórnun (access control).
Námskeiðið er 56 klst. og Hefst 18. fellTÚar ll k.
Uppl>>singcir og innritrm í sima 544 4500
Kennarinn á námskeiðinu er
með alþjóðleg kemisluréttihdi
frá Lotus “Certified Lotus
Instructor”
ntv
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
Hótshrauni 2 - 220 Hafnarfiröi - Stml: 555 4980 - Fax: 555 4981
Hliöasmára 9- 200 Kópavogi- Sfmi: 544 4500 - Fax: 544 4501
Tölvupóstfang: skoll@ntv.is - Heimasfða: www.ntv.is
SÓL OG SUMAR í STORKINUM
Rowanblaðið er komið
Nýtt garn nýir litir
STORKURINN
göHwJeítöwm
Laugavegi 59, sfmi 551 8258