Morgunblaðið - 13.02.2000, Side 50
50 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVRKJA
Málverk í Kallistus-katakombu við Appíaveg: táknmynd krafta-
verks (fiskur og brauð) sem jafnframt geymir tákn Krists og
síðustu kvöldmáltíðarinnar.
„Snemm-
kristin listu
1 Gyðingalandi Krists mættust ýmsir
menningarstraumar. Stefán Friðbjarn-
arson staldrar við listina sem mikilvæg-
an þátt í kirkjulegu starfí og þróun.
GYÐINGALAND var á dögum
Krists mettað af utanaðkomandi
menningu, bæði grískri og róm-
verskri. Raunar einnig egypskri.
Gyðingaþjóðin gekk ekki ósnert
úr herleiðingunni í Egyptalandi
á sínum tíma. í Gyðingalandi
Krists mættust því margir
menningarstraumar. Þar
blómstraði ýmiss konar hug-
myndafræði, í bland við gagn-
merkan, djúpstæðan gyðing-
dóminn. Þar fóru athyglisverðar
og forvitnilegar hreyfingar.
Þeirra á meðal vóru Essenar,
sem lærdómsríkt er að lesa sér
tilum.
Kristinn dómur nemur
snemma lönd utan Gyðinga-
lands, fyrst í Sýrlandi og Litlu-
Asíu. En kirkja krists óx ekki
sízt úr grasi á grísku menningar-
svæði. Hún byggði fyrst og
fremst á grískri þýðingu Gamla
testamentisins og Nýja testa-
mentið var skráð á grísku.
Ötul framvarðasveit kristins
dóms sótti og snemma inn í Róm,
höfuðborg hins víðfeðma og vold-
uga Rómaveldis, og hélt þar uppi
öflugu kristniboði, þrátt fyrir
miklar ofsóknir framan af. Kata-
komburnar í Róm komu mjög við
sögu frumkristins starfs í Róm
og nafn þeirra varð eins konar
samheiti á hreyfingum kristins
fólks á þessum tíma annars stað-
ar á Ítalíu, sem og í Norður-Af-
ríku og Litlu-Asíu. Að margra
dómi rekur „snemm-kristin“ list
rætur sínar til katakombanna.
í Listasögu Fjölva 1. bindi
(Fjölvaútgáfan 1975) segir m.a.:
„Píslarvottum var búið heiðurs-
leg í forsal eða sérstökum mann-
gengum klefum. Píslarvætti var
mikilvægt til trúarstyrks, tengt
kraftaverkum og urðu legstaðir
þeirra heilagir bænastaðir. Og
þegar farið var að nota þá til út-
deilingar á kvöldmáltíðarsakra-
menti voru þeir fegraðir með
helgiskríni og altari. Þar yfir á
veggjum og litlum hálíhvelum
birtust fyrstu málverk frum-
kristninnar.“
Kristin frumlist sótti að hluta
til fýrirmyndir í heiðna list, sem
fyrir var, bæði gríska og róm-
verska, þótt hún byggðist fyrst
og fremst á eigin forsendum.
Þannig segir í Listasögu Fjölva,
þegar fjallað er um katakom-
burnar, að kristin list „hafi dreg-
ið dám af táknsæi rómverskrar
listar“, en heiðin tákn vóru síuð
frá og byggt upp víðtækt kristi-
legt táknmyndakerfi.
Á öllum tímum hafa verið
skiptar skoðanir um þýðingu list-
ar, þ.á m. myndlistar, í kirkjum
kristinna. í frumkristni, þegar
kristið fólk var ofsótt í Rómar-
ríki, var táknmyndakerfið tján-
ing, sem kristnir menn skildu
einir. Og síðar, eftir að kristin
trú hlaut stuðning stjórnvalda,
var gagnrýni þröngsýnna á notk-
un myndlistar svarað með gagn-
semi hennar. Þannig kvað Greg-
oríus mikli upp úr með að
„myndsköpun væri mikilvægt út-
breiðslutæki til að miðla hug:
myndum til ólæsrar alþýðu“. í
tilvitnaðri Listasögu segir svo
um þessa ákvörðun Gregoríusar:
„Það var ekki aðeins mikilvægt
fyrir framtíðarþróun kirkjunnar,
heldur varð þessi ákvörðun horn-
steinn vestrænnar listar."
Hvorki meira né minna.
Kristin list hefur auðgað
mannlífið í henni veröld í tvö þús-
und ár: byggingarlist, myndlist
(málverk og höggmyndir), Ijóð-
list, tónverk - að ógleymdri túlk-
andi list, flutningi hljómlistar og
söng. Trúlega hefur mannfólkið
aldrei komizt nær Guði sínum en
í fegurstu listaverkum kynslóð-
anna, meistara hljómlistar,
myndlistar og ritlistar (ljóð,
óbundið mál), - nema ef vera
kynni í hjálparstarfi fómfúsra
einstaklinga eins og móður Ter-
esu.
„Trúin, tilbeiðslan, lotningin
fyrir guðlegum undrum tilver-
unnar hefur tjáð sig í listrænu
látbragði, myndum, söng og
hljómum,“ segir Sigurbjörn
biskup Einarsson á einum stað.
Og á öðrum stað segir hann: „En
ég vil koma því að hér strax, að
list og trú eiga sammerkt í því að
höfða til beinnar reynslu, valda
áhrifum, sem eru áþreifanleg og
sönn þeim, sem lifa þau. Skýring-
ar og skilgreiningar segja þeim
næsta lítið og ekkert hinum, sem
ekki eiga slíka reynslu.“ Og Páll
prófessor Skúlason segir í bók
sinni Pælingar „að listin og trúin
séu tvær meginvíddir mannlegr-
ar tilveru, tvær mikilvægustu
leiðir manna til þess að gefa líf-
inu og hlutunum tilgang, finna
sjálfa sig í heiminum, ólíkar leið-
ir, sem renna saman og ættu að
fara saman í þjóðfélaginu“.
Það var engin tilviljun að tákn-
myndir katakombanna, sem nú
eru skilgreindar sem „snemm-
kristin list“, komu til sögunnar
þegar í frumkristni. Listin var
farvegur tjáningar - þá eins og
nú. Hún skyggir ekki á Krist.
Hún er lofgjörð um hann, farveg-
ur til hans. „Listin og kirkjan
þurfa að njóta einlægrar, fijórr-
ar sambúðar og styðja hvor aðra
í því,“ eins og Sigurbjöm biskup
segir, „að vekja lotningu, spurula
alvöru, glaða, auðmjúka til-
beiðslu frammi fyrir því undri að
vera maður í veröld Guðs.“
ÍDAG
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til fostudags
SKAK
Uinsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik
EINS og glöggir lesendur
fléttuhornsins síðustu daga
hafa tekið eftir var þýski
stórmeistarinn Klaus Bisch-
off ekki í góðu formi á stór-
meistaramótinu í Puelver-
muehle. Hinsvegar gekk
honum töluvert betur á lok-
aða mótinu í Hastings þar
sem hann hafði svart í þess-
ari stöðu gegn enska stór-
meistaranum Murray
Chandler.
36. - f4! 37. Hd3 37. Hxe5
- Hxh3+ 38. Dh2 - Hxh2+
39. Kxh2 - fxe5 með unnu
endatafli á svart. 37. - f3
Hvítur gafst upp enda sókn
andstæðingsins óstöðvandi.
UMRÆÐAN
um katta-
. hreinsun
MER líst ekki á hvert um-
ræðan um kattahreinsun-
ina stefnir. Hér mætast
öfgar. Sjálf er ég einlægur
kattavinur og finnst ekkert
gaman að þessari hreinsun,
en hafa verður í huga að
hún er í raun óhjákvæmi-
leg. Offjölgun katta er orð-
in allt of mikil í borginni og
þeir sem bera ábyrgð á því
eru engir aðrir en kattaeig-
endur. Auðvitað er misjafn
sauður í mörgu fé og það
besta sem hægt væri að
gera væri að herða reglur
um kattahald, til þess að
fólk gerði sér grein fyrir
því að það er ekki hægt að
halda svona áfram. Til þess
að fólk geri sér grein fyrir
þvi að kettir eru lifandi dýr
sem eiga virðingu og um-
önnun skilið sé fólk að fá
sér kött á annað borð. Kött-
ur fer ekki að heiman nema
ástæða sé til. Kattaeigend-
ur ættu að taka höndum
saman og koma sér saman
um að draga úr fjölgun
þessara dýra frekar en að
væla og rífast þegar allt er
komið í óefni.
160982-5359.
Og enn um ketti
ÞAÐ er von að örvænting
hafi gripið kattareigendur
þegar Ijóst er að það hafa
verið heimiliskettir, illa
haldnir, sem hafa valdið
fólki ónæði. Eg vil benda
Sigrúnu, sem skrifar í Vel-
vakanda í dag, föstudag, á
að þar sem hún talar um
skrílslæti ungmenna, að
það sé misjafn sauður í
mörgu fé, eins hjá köttun-
um. En í þessu tilfelli skaut
hún yfir markið, því í þessu
tilfelli er það yfirleitt eldra
fólk sem getur rétt hugsað
um sjálft sig, hvað þá held-
ur ketti annarra, sem vill fá
að vera í friði. Hún kannski
vill, eins og hún bendir á, að
þetta fólk flytji upp í sveit.
En væri ekki þjóðráð fyrir
hana og Illuga að stunda
sér til sports kattarhald
einmitt úti í náttúrunni.
Eina krafa þessa fólks er að
fá að sofa í friði og hafa ekki
ketti í stigagöngum. Mér
finnst sjálfsagt að fólk hafi
ketti ef það hugsar um þá.
Eins vil ég lýsa óánægju
minni með síðastliðið Kast-
ljós þar sem fjórir kattavin-
ir voru saman komnir.
Það einkennilega er að
létt er að taka ketti inn í
húsin en ógerningur að fá
þá út vegna þess að bæjar-
yfirvöld gera fólki erfitt
fýrir með alls kyns hindr-
unum. Þetta fólk hefur ekk-
ert til saka unnið nema að
verða gamalt. Hvað yill
Sigrún gera við það? Ég
hef hingað til haldið að dýr
væru best komin í sveit og
þar eiga dýr heima en það
er kannski eitthvað breytt.
240626-4059.
Þakklæti til bílstjóra
VIÐ vorum nokkur saman í
rútu frá BSÍ á leið eftir
Þrengslavegi sl. föstudag.
Þar sem við vorum á leið
niður brekkuna komum við
að tengivagni sem lá þvers-
um á veginum. Okumaður
rútunnar, sem við vorum í,
gat með snarræði sínu af-
stýrt því að alvarlegt slys
yrði, með því að sveigja rút-
unni útaf veginum þannig
að hún rétt straukst við
tengivagninn. Þarna bjarg-
aði snarræði bílstjórans
öllu. Viljum við farþegarnir
í rútunni senda honum
þakklæti okkar fyrir góðan
akstur og snarræði.
Farþegar.
Þakkir
MIG langar að þakka 111-
uga Jökulssyni fyrir hisp-
urslausa pistla sína á Rás 2,
hann er oft á tíðum óvæg-
inn en réttsýnn og afar góð-
ur penni. Hann er málpípa
margra sem verða varir við
margþætta spillingu og
leikaraskap í þjóðfélaginu
og fáir sem þora að tala af
slíkri hreinskilni og Illugi á
opinberum vettvangi.
Áfram Illugi.
Harpa Karlsdóttir.
Bless - bæ, bæ
ÉG er sammála Lilju
Magnúsdóttur, sem skiáf-
aði nýlega í Velvakanda,
um ofnotkun á sumum
orðatiltækjum og ekki síð-
ur um enskuslettur fullorð-
inna sem böm og unglingar
apa eftir. Það heyrir til
dæmis til undantekninga ef
fólk notar orðið „bless“,
„komdu sæll og blessaður"
eða „vertu sæll og blessað-
ur“. Nú heyrist fólk yfir-
leitt kveðjast með enska
orðinu „bæ“ og em það
bæði foreldrar, leikskóla-
kennarar, menntaskóla-
kennarar og íslenskukenn-
arar sem nota þessa ensku
kveðju í tíma og ótíma.
Meira að segja ömmur og
afar. Er nokkur furða þótt
blessuð börnin taki þetta
upp? Hræðilegt er að vita
hvernig komið er fyrir ís-
lenskri tungu.
Amma.
Tapað/fundið
Nokia GSM-sími
týndist
NOKIA 5110 svartur, með
mynd af sólkerinu á fram-
hlið, týndist sl. sunnudags-
kvöld, líklega við Laugar-
ásbíó. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 551-5560.
Svartur jakki týndist
SÍÐUR, svartur þunnur
jakki, týndist laugardaginn
5. febrúar á Café Amster-
dam. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 698-9079.
Víkverji skrifar...
SKYR er í miklu uppáhaldi hjá
Víkverja. Hann komst að því
norður á Akureyri fyrir löngu að
skyrið frá KEA er alveg sérstaklega
gott; þar er hægt að kaupa þessa
merkilegu afurð „eins og hún kemur
af skepnunni" - það er dásamlegt að
kaupa skyrið nyrðra og hræra það
sjálfur, sykra eftir smekk og þar
fram eftir götunum.
Víkverji gladdist því mjög þegar
KEA-Nettó verslun var opnuð í
Reykjavík á sínum tíma, en hefur
orðið fyrir vonbrigðum vegna þess
að skyrið kemur ekki að norðan
nema einu sinni í viku. Boðið er upp á
skyr í versluninni á fimmtudögum og
klárast oft, eftir því sem Víkverja
skilst á starfsfólki, sama dag eða í
síðasta lagi daginn eftir.
Víkverji veit um marga, ekki síst
burtflutta Akureyringa, sem gera
sér sérstaka ferð í Nettó á fimmtu-
dögum til að næla í nokkrar skyr-
pakkningar, en hefur einnig heyrt -
þrátt fyrir mikla hrifningu með að fá
skyrið - að fólk undrast að varan
skuli ekld koma oftar í verslunina.
Getur verið að ómögulegt sé að
framleiða en gert er í dag? Eða telja
forráðamenn KEA markaðinn mett-
aðan með því framboði á skyri sem
er í dag?
xxx
VÍKVERJI vitnaði um síðustu
helgi í netmiðilinn Deigluna og
getur ekki stillt sig um að fá annan
stuttan pistil lánaðan úr þeim
skemmtilega fjölmiðli. Þar segir:
„Landbúnaðarráðherrann Guðni
Ágústsson sagði í viðtali á Rás 2 í
gær, að niðurgreiðslur ríkisins til
landbúnaðarins væru heilbrigðismál.
Hann hefði miklar áhyggjur af því
ruslfæði sem íslensk börn leggðu sér
til munns og eina leiðin til að bjarga
heilsu þjóðarinnar væri að gera land-
búnaðarvörur úr sveitum landsins
samkeppnishæfar með niðurgreiðsl-
um. Skyldi næsta skrefið í heilbrigð-
isátaki ráðherrans þá vera að af-
nema ofurtolla af innfluttu
grænmeti, svo almúginn hafi ráð á að
leggja sér þessa munaðarvöru til
munns?“
XXX
SALA ríkisjarða hefur mikið verið
í fréttum síðustu mánuði og af-
not eyja í eigu ríkisins, og jafnvel
hugsanlega sala þeirra, hafa verið til
umfjöllunar síðustu daga eftir að
upplýst var um að Björk Guðmunds-
dóttir hefði sýnt því áhuga að nýta
sér Elliðaey á Breiðafirði að ein-
hverju leyti. Forsætisráðherra sagði
meðal annars á Alþingi að hann gæti
vel hugsað sér að Björk fengi að
reisa sér hús á Elliðaey og búa þar
leigulaust í þakklætisskyni fyrir
störf hennar í þágu lands og þjóðar.
Hann tók reyndar fram að Björk
hefði verið gerð grein fyrir því að ef
til þess kæmi að eyjan yrði seld yrði
eignin auglýst þannig að aðrir gætu
boðið í hana.
Víkverja finnst upplagt að fólk
sem gerir ísland frægt í útlandinu
fái svo sem eins og afnot af einni eyju
í verðlaun. En ekki má gleyma þeim
sem gera heimabyggð sína „heims-
fræga“ á íslandi með einhverjum
hætti. Væri til að mynda ekki upp-
lagt að Geirmundur Valtýsson fengi
Málmey? Enginn hefur líklega kom-
ið Skagafirðinum eins vel á framfæri
hérlendis og sveiflukóngurinn.
Bubbi var í fiski fyrir austan og gæti
fengið Papey, Ámi Johnsen Surtsey
og Raggi Bjarna Viðey. Svo er bara
spuming um að finna einhvern lítinn
og nettan sem gæti nýtt sér Kol-
beinsey. Kannski Kristján Jóhanns-
son, hún tilheyrir líklega í „hans“
kjördæmi...
xxx
VÍKVERJI hafði afskaplega
gaman af þáttunum tveimur
um líf og störf Simons hins danska
Spies, ferðaskrifstofukóngs með
meiru, sem var á dagskrá ríkissjón-
varpsins nýverið. Það var gaman að
kynnast sögu þessa kynlega kvists
þótt lífsmáti hans og framkoma þyki
vísast ekki til eftirbreytni. Víkverji
hvetur RÚV til að endursýna þætt-
ina aftur við tækifæri.
xxx
ÁTTARÖÐIN Úr fjötrum þung-
lyndis, sem fjallaði um þann
sjúkdóm eins og nafnið bendir til og
Stöð 2 sýndi íyrir skemmstu, var
einnig ákaflega fróðleg. Það er mat
Víkverja að þættimir geti verið mjög
lærdómsríkir þeim sem glíma við
sjúkdóm af þessu tagi og aðstand-
endur þeirra. Þættimir hafa þegar
verið endursýndir en jafnvel er
ástæða fyrir þá Krókhálsbændur að
til að endursýna þá enn og aftur þeg-
ar tími gefst til. I þessum efnum má
fullyrða að góð vísa sé aldrei of oft
kveðin.