Morgunblaðið - 13.02.2000, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 55
MYNDBÖND
I leit að
drauma-
prinsinum
Sýndarkynferði
(Virtual Scxuulity)
Gamanmjnd
★★
Framleiðendur: Christopher Figg.
Leikstjóri: Nick Hurran. Handrit:
Nick Fisher. Byggt á sögu Chloe
Rayban. Aðalhlutverk: Laura
Fraser, Rupert Penry-Jones, Luke
De Lagey og Kieran O’Brien. (93
mín.) Bretland. Skífan, febrúar
2000. Öllum leyfð.
ÞESSI breska unglingamynd er
byggð á bók eftir Chloe Rayban sem
seldist vel í Bretlandi og hefur m.a.
verið þýdd á ís-
lensku undir nafn-
inu Spegill - speg-
ill. Þar segir frá
unglingsstúlkunni
Justine (Laura
Fraser) sem leitar
logandi ljósi að
draumaprinsinum
og slysast til að búa
til einn slíkan þeg-
ar hún kemst í spánnýja sýndarveru-
leikatölvu. Vandinn er sá að prinsinn
(Rupert Penry-Jones) er afrit af
henni sjálfri og hún þannig orðin
bæði strákur og stelpa.
Myndin er byggð á frumlegri hug-
mynd og hleypir af stað skemmtileg-
um kynjaruglingi sem að mörgu leyti
miðar að því að sanna eða afsanna
ýmsar hugmyndir um mismun kynj-
anna. Þegar Justine kemst í karl-
mannslíkama áttar hún sig á hlutum
varðandi stráka sem hún hafði ekki
gert sér grein fyrir áður. Það besta
er e.t.v. að draumaprinsinn er ekki
það eina sem skiptir máli og kannski
er ímynd hans aðeins ósk um eigin
fullkomnun. Sjálf söguframvindan er
hins vegar í meðallagi góð og fyndn-
in missir oft marks. Upphafskaflinn
er t.d. sérlega óáhugaverður og er
það í raun ekki fyrr en draumaprins-
inn dularfulli er kynntur til sögunnar
sem myndin nær sér á strik. Það er
ekki síst vegna þess að þar er
skemmtilegur leikari á ferð sem
stendur sig einkar vel í hlutverki
stelpu sem nýkomin er í strákalík-
ama en hefur ekki almennilega áttað
sig á því. Sýndarkynferði er sæmileg
afþreying sem mistekst að vinna
nógu vel með ágætar hugmyndir
sem búa henni að baki.
Heiða Jóhannsdóttir
Sumarbæklingurinn
New York
Baltimore
Washington
Boston
Orlando
Minneapolis
Jamaica
Kúba
Bahama
Kýpur
Sri Lanka
Thailand
Bali
Maldiveyjar
Krít
Barcelona
London
Kaupmannahöfn
Munchen
Dusseldorf
~ Hamborg
2 Prag
1 París
>■
Sitges
Mallorca
Albufeira
Benidorm
er kominn út!
Komdu og fáðu eintak. Opið milli
kl. 13:00 og 16:00 sunnudaginn
13. febrúar.
Líttu við hjá okkur og kynntu þér
fjölbreytt úrval spennandi
ferðamöguleika á hagstæðu verði.
REYKJA Y/KlJfí
Aðalstræti 9
Sími: 552 3200
Fax: 552 9935 Netfang: ferd@ferd.is
www.ferd.is
Tölvur og tækni á Netinu
yí§> mbl.is