Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000
--------------------------
FOLKI FRETTUM
MOFtGUNBLAÐIÐ
Ný breiðskífa væntanleg frá Oasis
-Oasis í góðum gír
EFTIR alllanga hvfld, barneignir,
mannabreytingar og endurhæfíngu
er ein vinsælasta sveit síðustu ára
Oasis ioksins komin á fullt að nýju.
Fyrsta smáskífan í hartnær þrjú
ár með nýju efni frá sveitinni leit
dagsins ijós á dögunum og er spáð
að hún fari rakleiðis á topp lista yf-
ir mest seldu lögin í Bretlandi.
Skífan er gefin undir merkjum
„Big Brother“, nýjum armi Sony-
samsteypunnar semer í eigu þeirra
Gallagher-bræðra. Ástæða þess að
'ekki var gefið út fyrir Creation eins
og áður er brotthvarf fyrrverandi
eiganda þess Alans McGees, sem á
sínum tíma uppgötvaði sveitina og
stýrði í átt að frægð og frama. Noei
lét hafa það eftir sér að hann gæti
hvorki hugsað sér að gefa áfram út
fyrir McGee-laust Creation né ris-
ann Sony og því hefði þrautalend-
ingin orðið að stofna nýtt fyrirtæki.
Það hefði hvort eð er alltaf verið
draumur hjá sér að stofna út-
gáfufyrirtæki í anda Apple sem
átrúnaðargoðin Bítlarnir stofnuðu
á hátindi frægðar sinnar.
Aðaliag nýjustu smáskffu Oasis
er „Go Let It Out“ og hefur það
Hin nýja uppstilling Oasis, frá vinstri: Gem Archer, Alan White, Liam
Gallagher, Noel Gallagher og Andy Bell.
þegar fengið að hljóma á öldum Noel Gallagher að stela frá öðrum.
ljósvakans í nokkrar vikur. Menn Þótt ótrúlegt megi virðast er þó
eru svo sem ekkert allt of upprifnir ekki rætt um Bítlana bresku í því
og hafa margir haft á orði að enn sé sambandi heldur ástmög breskra
Vorönn 2
m Stutt
m m _ og
tolvu
Nr. Heiti Kennslust. Dagsetning Tími Verð
465 Windows 12 15. - 17. febrúar 13:00 - 16:00 14.000
466 Excelgrunnur 12 22. - 24. febrúar. 13:00 -16:00 14.000
467 Word grunnur 12 29. - 2. mars 13:00 -16:00 14.000
468 Internetið 12 7. - 9. mars 13:00 -16:00 14.000
469 Access grunnur 12 14. - 16. mars 13:00 - 16:00 14.000
470 Vefsíðugerð grunnur 12 21. - 23. mars 13:00 -16:00 14.000
471 Excel millistig 12 28. • 30. mars 13:00 - 16:00 14.000
472 Word millistig 12 4. - 6. apríl 13:00 - 16:00 14.000
473 Vefsíðugerð framhald 12 11. -13. apríl 13:00 - 16:00 14.000
474 Access millistig 12 18. - 20. apríl 13:00 -16:00 14.000
475 Excel framhald 12 25. - 27. apríl 13:00 - 16:00 14.000
476 Word framhald 12 2. - 4. maí 13:00 - 16:00 14.000
477 Windows 12 9. -11. maí 13:00 - 16:00 14.000
478 Word grunnur 12 16. -18. maí 13:00 -16:00 14.000
479 Excel grunnur 12 23. - 25. maí 13:00 -16:00 14.000
mmm
og síminn er 588 5810
Innritun
stendur yfir
VIÐSKIPTA- OG
TÖLVUSKÓLINN
Faxafen 10 (Framtíðin) • 108 Reykjavík
Sími 588 5810 • Bréfasími 588 5822
framtid@vt.is
www.i#t„is
tónlistarblaða og sjálfra tónlistar-
manna, skosku sveitina The Beta
Band. Forsprakki þeirrar sveitar
hefur reyndar látið hafa eftir sér að
honum líki alls ekki sú samlíking og
sveitarmenn kæri sig kollótta um
þau mærðarorð sem Noel keppist
við að látu um þá falla í fjölmiðlum.
Fjórða breiðskífa Oasis kemur
síðan út 28. febrúar og mun bera
nafnið „Standing on the Shoulder
of Giants" en það er tilvitnun í Sir
Isaac Newton, sem jafnframt er
grafin á hliðar tveggja punda
myntpeningsins breska.
Fyrstu viðbrögð við gripnum eru
æði misjöfn. Sumir hafa haldið því
fram að hann marki endalok vin-
sælda Oasis og sýni glöggt að tími
þeirra sé liðinn. Hið virta breska
tónlistartímarit Q gefur breiðskíf-
unni hins vegar fína dóma; fjórar
stjörnur af fimm mögulegum. I
gagnrýni sem fylgir stjörnugjöfinni
segir m.a. að sveitin hafi loksins
náð áttum á ný eftir að hafa villst
alvarlega af leið á siðustu plötunni
„Be Here Now“. Nýja platan sé
bæði heilsteyptari og agaðri. Enn-
fremur þykir hún endurspegla þær
breyttu aðstæður sem bræðumir
lifa nú við, innihaldi glögglega tón-
list sem flutt sé af moldríkum rokk-
stjörnum. Þeir séu með öðmm orð-
um hættir að rembast við að halda í
hinn gamla ungæðishátt, hroka og
reiði sem einkenndi tónlistina er
þeir voru einn ungir og streðandi
fyrir lífsviðurværinu heima í Man-
chester.
Aftur í hljóðver sem fyrst
I kjölfar útkomu breiðskifunnar
mun Oasis síðan halda í viðeigandi
heimsreisu en hin nýja uppstilling
sveitarinnar mun hleypa spilirunu
af stokkunum á föstudag í beinni
útsendingu fyrir hinn gamalgróna
„Top of the Pops“-sjónvarpsþátt.
í nýlegu viðtali í nme.com, vef-
miðli tónlistartímaritsins kunna,
sagðist Noel vera afar spenntur
fyrir því að spila í hinni nýju útgáfu
af sveitinni og fullyrti að tilkoma
bassaleikarans Andys Bells og
gítaristans Gems Archers þétti
sveitina til mun og lyfti henni á
mun hærra plan. Ennfremur upp-
lýsti Noel að þeir félagar gætu vart
beðið eftir því að loka sig á ný inni í
hljóðveri til þess að taka upp næstu
breiðskfiu en á henni myndu allir
leggja sitt af mörkum tO tónlistar-
stefnu og lagasmiða en hingað til
hefur sú deild alfarið tilheyrt hon-
um.
Vinsældalisti þar sem
þú hefur áhrif!
Vertu með í valinu!
©
SKJÁR EINN
mbl.is
Listinn er valinn á mbl.is
Listinn er óformleg vinsældakönnun
og byggist á vali gesta mbl.is.