Morgunblaðið - 13.02.2000, Page 64
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNI1,103REYKJAVÍK, SÍMlS691100, SÍMBRÉFS691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RHSTJtSMBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTII
SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Tafír á millilandaflugi vegna óveðurs og innanlandsflug'ið takmarkað
Um 300 manns sváfu í Leifsstöð
UM 300 manns sváfu í Leifsstöð á
£ >Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt, en
miklar tafir hafa orðið á millilanda-
flugi vegna óveðurs á Suðvestur-
landi. Farþegar hafa átt í erfiðleik-
um með að komast um
Reykjanesbraut en umferð um hana
stöðvaðist um tíma.
Þegar óveðrið skall á í fyrradag
var ákveðið að beina sjö vélum Flug-
leiða til Glasgow. Rúmlega 900 far-
þegar voru í vélunum og gistu þeir á
hótelum í borginni um nóttina. Tvær
vélanna fóru til Ameríku í gærmorg-
un, en fimm vélar lentu í Keflavík.
70-80 bflar yfírgefnir
á Reykjanesbraut
Umferð um Reykjanesbraut gekk
hægt fyrir sig í gærmorgun eftir að
Urautin var opnuð á ný fyrir umferð,
sem stöðvaðist um tlma í kjölfar
stórhríðarinnar síðdegis á föstudag.
Tugir yfirgefinna bifreiða voru í
vegköntum í gærmorgun eftir óveð-
ursnóttina og var talsverður skaf-
renningur og hálka á Reykjanes-
brautinni. Lögregla og björgunar-
sveitarmenn aðstoðuðu ökumenn
sem lentu í vandræðum og leystu
minniháttar umferðarhnúta sem
mynduðust við Kúagerði, Strandar-
heiði og víðar. Samhliða umferðar-
•ítjórnun lögreglunnar unnu snjó-
mokstursmenn á stórvirkum
tækjum sínum við að ýta burtu sköfl-
um og þurfti að stöðva umferð með
hléum sums staðar á Reykjanes-
brautinni til að veita svigrúm fyrir
moksturinn.
Nokkru fyrir hádegið tókst einnig
að koma á flugumferð um Keflavík-
urflugvöll og losnaði þá óðum um
stíflu sem myndast hafði er hundruð
Morgunblaðið/Þorkell
Hundruð manna lentu í erfíðleikum á Reykjanesbraut og þar voru tugir bfla yfirgefnir í fyrrinótt.
veðurtepptra farþega neyddust til að
veija nóttinni í Leifsstöð aðfaranótt
laugardags. Að sögn Guðrúnar Eddu
Jóhannsdóttur, aðstoðarstöðvar-
stjóra í Leifsstöð, gekk á ýmsu hjá
farþegum við að komast til og frá
flugvellinum í gær. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni í Keflavík
voru 70-80 bílar yfirgefnir á braut-
inni snemma í morgun og töfðu þeir
snjómokstur. Farþegar, sem komu
til landsins í gærmorgun, voru beðn-
ir að bíða á flugvellinum meðan verið
var að greiða fyrir umferð um braut-
ina.
Flugið að komast í samt lag
Guðrún Edda kvaðst telja að flest-
um hefði tekist að ná flugi í gær, en
nokkurra klukkutíma tafir urðu á
brottför flestra flugvéla.
Um 300 farþegar biðu eftir fari í
Leifsstöð í fyrrakvöld þegar flugvöll-
urinn lokaðist. Þeir létu fyrirberast á
stólum og bekkjum í flugstöðinni um
nóttina.
Guðrún Edda sagði Ijóst að margir
farþegar hefðu orðið fyrir óþægind-
um vegna veðursins. Fólk hefði þó
almennt tekið töfunum með skiln-
ingi. Hún sagðist gera sér vonir um
að millilandaflug yrði að mestu sam-
kvæmt áætlun í dag ef veður versn-
aði ekki á ný.
Innanlandsflug lá niðri framan af
degi í gær og ekki var útlit fyrir flug
á norðaustur- og austurhluta lands-
ins.
Um 1.400
gena-
fyrirtæki
í heim-
inum
UM 1.400 fyrirtæki, sem
stunda rannsóknir á genum,
eru nú starfandi í heiminum.
Enn sem komið er hafa þessi
fyrirtæki aðeins skapað um 50
framleiðsluvörur sem settar
hafa verið á markað.
Tekist hefur með vissu að
greina fáein gen sem valda
sjúkdómum. Enn sem komið er
hefur mönnum hins vegar
gengið illa að hagnýta þessa
þekkingu til að lækna sjúk-
dóma. Aftur á móti hefur tekist
með framleiðsluaðferðum líf-
tækninnar að framleiða lyf.
Tvö rannsóknafyrirtæki í líf-
tækni eru starfandi hérlendis.
Dvergvaxnar insúlín-
verksmiðjur
Þannig hefur t.d. tekist að
„bæta“ sýkla með mannagen-
um sem leitt hefur til þess að til
hafa orðið dvergvaxnar insúlín-
verksmiðjur sem framleiða
insúlín fyrir fólk sem þjáist af
sykursýki. Því er spáð að árið
2010 verði framleidd lyf með
aðferðum líftækninnar fyrir
4.500 milljarða króna. Svarar
það til helmings af árlegri sölu
allra lyfjafyrirtækja heimsins.
■ Genín/24
Stjórnir Læknafélags íslands og Læknafélags Reykjavíkur telja þörf
á skýrari stefnu í sameiningu stóru sjúkrahúsanna
Stefna ber að bygg-
ingu nýs sjúkrahúss
Fluga herjar
á gulrætur
AF þeim tíu skaðvöldum á plöntum
sem herjað hafa á flóru landsins á
síðustu árum hafa a.m.k. fimm bor-
ist til landsins með innfluttum plönt-
um. Þetta eru kartöfluhnúðormur,
kartöfluhringrot, blómkögur-
vængja, gangafluga og kanarímöl-
ur. Lfldegft er að kartöflumyglan og
gulrótarflugan hafi einnig borist
með plöntum til landsins.
Tekist hefur að halda kartöflu-
myglu niðri í sjö ár hér á landi, en í
fyrra barst hún til landsins á ný með
útsæðiskartöflum. Gúrkumjöls-
sveppur béirst fyrst til landsins
haustið 1998 og fannst í fyrra í 5
gróðurstöðvum. Gulrótarflugan
greindist fyrst hér á landi fyrir
þremur árum og er hún vandamál á
■feöfuðborgarsvæðinu. Plöntueftirlit
RALA hefur hvatt til þess að gul-
rætur verði ekki ræktaðar á höfuð-
borgarsvæðinu nema undir plast-
dúk.
STJÓRNIR Læknafélags íslands og
Læknafélags Reykjavíkur hafa sent
frá sér sameiginlega yfirlýsingu um
málefni Landspítalans og Sjúkra-
húss Reykjavíkur, þar sem fram
kemur sú skoðun að nauðsynlegt sé
að mörkuð verði opinber stefna í
sameiningarferli þessara spítala,
sem nú þegar sé í gangi. Þá telja
stjómir læknafélaganna að núver-
andi húsnæði spítalanna sé óhentugt
til sjúkrahússreksturs og að stefna
beri að byggingu nýs sjúkrahúss
sem rúmi starfsemi Landspítalans
og Sjúkrahúss Reykjavíkur.
I yfirlýsingunni kemur fram að
með breytingum á yfirstjórn stóru
sjúkrahúsanna í Reykjavík með ein-
um forstjóra og fyrirætlunum um
eina framkvæmdastjórn hafi verið
stigin skref til aukinnar samvinnu
og/eða sameiningar þeirra. Ólafur
Þór Ævarsson, formaður Læknafé-
lags Reykjavíkur, segir að tilgan-
gurinn með yfirlýsingunni sé að fá
skýrari umræðu um það samruna-
ferli sem nú er í gangi, og að tekist
verði á um stefnumarkandi mál á
faglegan og akademískan hátt.
„Það er aðalatriðið. Sjálfum finnst
mér það skynsamleg afstaða að
stefna beri að byggingu nýs sjúkra-
húss, en ég hugsa að menn hafi innan
okkar raða skiptar skoðanir á því
hvað sé skynsamlegt að gera einmitt
núna. En nú er stefnan sú að það er
samruni í gangi og við höfum ekki
nóg húsnæði í dag. Mér finnst miklu
skynsamlegra að við gerum þetta
myndarlega og faglega. Það er erfitt
eins og spítalarnir eru núna. í mín-
um huga erum við að tala um
myndarlegan hátækni-háskólaspít-
ala sem stendur undir kröfum."
Sinna þarf þörfum rannsókna
og stoðdeilda í meiri mæli
Sigurbjörn Sveinsson, formaður
Læknafélags íslands, segir að taka
þurfi ákvörðun um framtíðarstefnu
sjúkrahúsanna á allra næstu árum.
Þá hljóti að koma til álita og af-
greiðslu hvort byggja eigi nýtt
sjúkrahús. Sérstaklega með tilliti til
þess að þarfimar séu breyttar.
„Það er öllum ljóst að þær fram-
farir sem orðið hafa í læknisfræði og
eru fyrirsjáanlegar voru ekki inni í
myndinni þegar þessi sjúkrahús
voru hönnuð. Aherslan er meiri á að-
stöðu til meðferðar, aðgerða og
rannsókna og að hafa legutímann
sem skemmstan. Það leiðir til þess
að það þarf að sinna þörfum rann-
sókna og stoðdeilda í meiri mæli
heldur en gert hefur verið og er
kannski yfirleitt hægt í þessu hús-
næði.
Við erum að tala um sérhæft há-
tæknisjúkrahús, þar sem fjárfest-
ingar eru miklar og dýrar, til þess að
við stöndum jafnfætis öðrum þjóð-
um. Við erum í samkeppni við aðrar
þjóðir og viljum halda í horfinu. Það
er erfitt og með þessu móti sem við
erum að tala um verður það hugsan-
lega hægt að mestu leyti.“
Breið samstaða lækna um
efni yfírlýsingarinnar
Þá kemur fram í yfirlýsingunni að
flytja þurfi verkefni frá sjúkrahús-
unum til læknastöðva og heilsu-
gæslustöðva eða læknastofa og
tengja þá starfsemi sjúkrahúsunum
á þann hátt að nýta megi frekar til
kennslu og rannsókna. Sigurbjörn
segir að í dag séu læknar á einka-
stofum í vaxandi mæli að fást við að-
gerðir sem áður voru framkvæmdar
á sjúkrahúsum og hann segir að
æskilegt sé að ýtt verði undir þessa
þróun og álagið á sjúkrahúsunum
minnkað.
Að sögn Sigurbjöms eru stjómir
læknafélaganna einhuga um þessa
yfirlýsingu, en málið sé eigi að síður
búið að vera nokkuð erfitt í fæðingu.
Aðalfundur Læknafélagsins náði
ekki niðurstöðu sl. haust um þetta
mál. Það er síðan búið að leita álits
mjög margra og kanna baklandið,
þannig að ég held að það sé mjög
breið samstaða núna um efni yfir-
lýsingarinnar."
t t
Heimilisbankini t opnar útibú
isnrn HetmlIIsbanklnn á netlnu IWAPI hJM Notendur Heímilisbanka geta nú stundaö banka- 1 viöskiptl sln hvar sem er hvenaer sem er með WA I farslma jMHMH @BÚNAÐARBANKINN Trumtwfomki