Morgunblaðið - 12.04.2000, Side 2

Morgunblaðið - 12.04.2000, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Starfshdpur á vegum samgönguráðherra um verðmæti Pósts og síma Eigið fé vanmetið um 3,8 milljarða við hlutafélagavæðingn STARFSHÓPUR á vegum samgöngu- ráðuneytásins telur að eigið fé Pósts og síma hf. samkvæmt stofnefiiahags- reikningi hafi verið vanmetið um 3,8 milljarða króna og rétt sé að færa hækkunina sem viðskiptavild í árs- reikning fyrirtækisins fyrir árið 1999. Samkvæmt stofnefnahagsreikningi Pósts og síma hf. 1. janúar 1997 var eigið fé fyrirtækisins 11,3 milljarðar. Við endurmat starfshópsins á grund- velli svokallaðrar núvirðisaðferðar við mat á raunvirði fyrirtækisins í stað eignarmatsaðferðar, sem upphaflega var beitt, komst hópurinn að þeirri niðurstöðu að hækka beri þessa tölu um 3,8 milljarða króna í 15,1 milljarð. I fréttatilkynningu samgönguráðu- neytisins kemur fram að starfshópur- inn tejji að matsverðið sé það mikið yfir hreinu verðmæti samkvæmt stofnefnahagsreikningi að nauðsyn- legt sé að gera breytingar á reikning- um félagsins. Að höfðu samráði við ríkisendur- skoðanda hefur stjóm Landssímans verið falið að taka fullt tillit til niður- stöðu matsnefndarinnar og færa þær breytingar í ársreikning Landssíma Islands hf. fyrir árið 1999 sem við- skiptavild. A móti hækkun eigna verður færð skuld við ríkissjóð að við- bættum vöxtum og verðbótum frá 1. janúar 1997. Lést í slysi á Grundar- tanga UNGI maðurinn sem lést þeg- ar hann varð undir vörubifreið á Grundartanga síðastliðinn mánudag hét Karl Kristinn Kristjánsson, 21 árs að aldri, til heimilis á Kirkjubraut 5, Akra- nesi. Hann var fæddur 17. febr- úar 1979 og var ókvæntur og bamlaus. Umræddan starfshóp skipaði sam- gönguráðherra 1. nóvember sl. til að framkvæma nýtt mat á verðmæti Pósts og síma. Hópinn skipuðu Heim- ir Haraldsson endurskoðandi, for- maður, Hjörleifur Pálsson endur- skoðandi og Skarphéðinn Berg Steinarsson viðskiptafræðingur. Lög- fræðilegur ráðgjafi starfshópsins var Baldur Guðlaugsson, hrl. Hópurinn var skipaður í kjölfar niðurstöðu nefndar sem ráðherra skipaði til að fjalla um niðurstöður Samkeppnisráðs í máli vegna kæra Tals vegna GSM-þjónustu Landssím- ans. Sú nefnd taldi rétt að endurmeta stofnefnahagsreikninginn á grand- velli núvirðisaðferðar en ekki eignar- matsaðferð eins og notuð var í upp- hafi. Lagt fyrir ríkisstjórn í gær Skýrsla starfshópsins, sem skipað- ur var til að annast endurmatið, var lögð fyrir ríkisstjóm í gær. í greinargerð starfshópsins kemur fram að hann hafi aflað upplýsinga hjá þeim er stýrðu formbreytingu Pósts og síma á sínum tima, og auk þess notað erlendar upplýsingar, fyrst og fremst frá Noregi. „Það hef- ur nokkuð háð starfshópnum að áætl- unargerð stofnunarinnar var ekki ít- arleg á þessum tíma og langtímaáætlanir ekki fyrirliggj- andi,“ segir í samantekt starfshóps- ins. „Núvirt sjóðstreymi áranna 1997- 2006 var metið og sett fram. í for- sendum þess mats var gert ráð fyrir að samkeppni myndi koma til, fýrst og fremst í millilandasímtölum og farsímaþjónustu. Um þróun símavið- skipta að öðra leyti var gert ráð fyrir að markaðurinn myndi stækka sam- fara aukinni samkeppni og lækkun verðs. Gert var ráð fyrir að pósthluti fyrirtækisins myndi verða rekinn með lítilsháttar hagnaði, sem var nokkur breyting frá því sem hafði verið fram til þess tíma. FJÖGUR ungmenni, tveir piltar og tvær stúlkur, hafa verið úr- skurðuð í gæsluvarðhald eftir að tollgæslan á Keflavíkurflugvelli fann 1,5 kg af amfetamíni i fóram þeirra sl. sunnudag. Fólkið var að koma frá Amster- dam og fannst efnið við leit í far- angri og á líkömum þess. Fíkni- efnadeild lögreglunnar í Reykjavík Við mat á ávöxtunarkröfu var litið til þeirra aðstæðna sem ríktu þá á inn- lendum fjármagnsmarkaði og þeirra forsendna sem vora notaðar við sams konar mat á símafyrirtækjum í öðrum löndum. Starfshópurinn taldi hæfi- legt að miða við 14,2% ávöxtunar- kröfu á eigið fé. Miðað við þær forsendur og með þeim fyrirvörum sem hér hafa verið rakin fæst út að samkvæmt núvirð- ingu á áætluðu sjóðstreymi hafi heild- arverðmæti eigna félagsins verið 20,4 milljarðar kr. í árslok 1996, markaðs- verðmæti langtímaskulda 6,6 millj- arðar kr. og virði eigin fjár 13,8 millj- arðar kr. miðað við sjóðstreymi rekstrar. Þar að auki kemur til verð- mæti viðbótareigna sem ekki tilheyra almennum rekstri að fjárhæð 1,3 mill- jarðar kr. þannig að heildarverðmæti eigin fjár er alls 15,1 milljarður kr. Til samanburðar voru heildareignir sam- kvæmt stofhefnahagsreikningi 1. jan- úar 1997 metnar á 18,1 milljarð kr., langtímaskuldir vora 6,8 milljarðar kr. og eigið fé var 11,3 milljarðar kr. Við þennan samanburð era skamm- tímaskuldir dregnar frá hreinum veltufjánnunum til að fá sambærilega framsetningu fjárhæða.“ Mikil áhrif ávöxtunarkröfii Þá segir að ef forsenda um ávöxt- unarkröfu eigin fjár sé hækkuð um 0,8%, úr 14,2% í 15%, lækki markaðs- verðmæti eigin fjár um 867 m.kr. Ef ávöxtunarkrafa sé hins vegar lækkuð úr 14,2% í 13% eða um 1,2% hækki markaðsverðmætið um 1.440 m.kr. „Ef áætlað sjóðstreymi er aukið um 5%, miðað við óbreytta ávöxtunar- kröfu, hækkar markaðsverðmæti eig- in fjár um 707 m.kr., ef það er lækkað um sama hlutfall lækkar verðmætið um 706 m.kr. Ef miðað er við 10% frá- vik í sjóðstreymi til hækkunar eða lækkunar er bilið milli hæsta og lægsta gildis 2.827 m.kr.,“ segir í sam- antektinni. hefur tekið við rannsókn málsins og hafa þrjú ungmennanna verið úrskurðuð í gæsluvarðhald í tvær vikur en önnur stúlkan í eina viku. í frétt frá tollgæslunni á Kefla- víkurflugvelli kemur fram að sölu- verðmæti efnisins á götunni gæti numið 10-30 milljónum króna eftir styrkleika en efnarannsókn er ekki lokið. Fjögur í haldi vegna amfetamínsmygls Ljósmynd/Örvar Atli Þorgeirsson Postulinsleiðin er erfið ísklifurleið og víða erfitt að finna góða festu fyr- ir ísskrúfur eins og þá sem er tengd við tvo öryggislása neðan við vinstri fót klifrarans. Ný klifurleið farin á Suðurtind Á tindi Suðurtinds í Hrútsfjallstindum. I baksýn ber Hvannadalshnúk, hæsta tind Is- lands, við himin og Tindaborgin, eða Kirkj- an, er á miðri mynd. ÞRIR fjallgöngumenn úr íslenska alpaklúbbnum, þeir Einar Rúnar Sig- urðsson, Ivar Finnboga- son og Örvar Þorgeirs- son, fóru nýja og erfiða ísklifurleið fyrstir manna upp á Suðurtind í um 1850 metra hæð í Hrúts- fjallstindum í Öræfajökli í byrjun aprflmánaðar. Leiðin hefur hlotið nafn- ið Postulínsleiðin og dregur nafn sitt af þunn- um og ótryggum ís, sem var á köflum jafn- viðkvæmur og postulín. Leiðin sem jþeir félag- ar fóru segir Örvar að sé erfiðasta leiðin upp á stakan tind í Öræfa- jökli. Erfiðari ísklifurleiðir hafa þó verið farnar neðar í jöklinum án þess að þær endi uppi á fjallst indi eins og í þessu tilviki. Þeir félagar voru tvo daga að klífa Suðurtind eftir suðurhlíð Hrútsfjallstinda og gistu á fjallinu eina nótt. Leiðin er um 1300 metra löng og felur í sér svokallað 5.+ gráðu ísklifur, sem er það al- erfiðasta sem þekkist meðal klifr- ara. Auk þess voru ísaðar brekkur varhugaverðar að ógleymdri hættu sem stafaði af grjóthruni. „Það hafði rignt mjög mikið á fjallinu rétt áður en við hófum upp- gönguna sem gerði það að verkum að brekkan sem við gengum upp var flughál og leyfði engin feil- spor,“ sagði Örvar. Á leiðinni var víða þunnur fs sem erfitt var að nota sem örugga festu fyrir ístryggingar, þ.e. ísskrúfur sem öryggislína klifrara er tengd við þegar bratti er mikill. „Við þurftum líka að varast grjót sem kom hrynjandi niður hlíðina og hafði næstum valdið slysi í eitt skiptið. Þá sluppum við undan því að verða fyrir um 5 kg steini sem kom eins og elding niður hlíðina og þaut rétt ofan við hjálrninn minn. Ég varaði félaga mína við sem voru fyrir neðan mig og Einar sneri sér við en steinninn skall í ísöxi hans svo hún beyglaðist og skemmdist," sagði Örvar. Tindinum náðu þeir félagar skömmu eftir hádegi sunnudaginn 2. aprfl og sigu í öryggislínu niður af fjallinu eftir hinni hefðbundnu leið sem farin er á Hrútsfjallstinda. Hgi m ZJ ^J í VERINU i dag er m.a. fjallað um kolmunnaveiðar ís- lendinga og áhrif gengishækkana á afurðaverð sjáv- arafurða. Eins er fjallað um öryggismál og sagt frá ráðstefnu um samkeppnishæfni í sjávarútvegi. Haukar sendu íslandsmeistarana í sumarfrí /C2 íslensku strákarnir bestir á Norð- urlöndum /C1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.