Morgunblaðið - 12.04.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.04.2000, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Netið - nýtt sérblað með dagskrá NETIÐ er nýtt sérblað sera hefur göngu sína í Morgunblaðinu í dag. Blaðið er samansett af tveimur blöðum, annars vegar umfjöllum um Net- ið og netheima, og hins vegar hefur blaðið að geyma tveggja vikna dag- skrá sjénvarpsstöðvanna og Rásar 1 frá miðvikudegi til þriðjudags. Blaðið kemur út annan hvern miðvikudag. Samkvæmt skoðanakönnunum hafa nú hátt í 70% landsmanna að- gang að Netinu og er þetta hlutfall með því hæsta sem gerist í heimin- um. Með þessari nýju útgáfu vill Morgunblaðið koma til móts við þarfir og áhuga lesenda fyrir þessari nýju veröld. Hægt er að koma ábendingum á framfæri á netfangið netid@mbl.is. Viðræður langt komnar hjá Samiðn VIÐRÆÐUR um nýjan kjarasamn- ing milli fulltrúa Samiðnar og Sam- taka atvinnulífsins hafa gengið vel síðustu daga og stefnt að þvi að nýr samningur geti litið dagsins ljós í vikulokin. Rætt hefur verið um launalið samningsins og samkomulag er um taxtakerfi fyrir iðnnema. I gær átti að ljúka vinnu við ákvæðisvinnu og hvíldartíma. Gert er ráð fyrir að stóra samninganefndin komi saman í dag eða á morgun til að fjalla um þau drög sem liggja fyrir. Þá gerir Samiðn ráð fyrir viðræð- um við fulltrúa Reykjavíkurborgar næstu daga. Ahrif verkfalls, ef til kemur annað kvöld, geta orðið víðtæk í flutningum og samgöngum Verulegar truflanir á mjólkur- og bensíndreifíngu Morgunblaðið/Ásdís Annir voru hjá flutningafyrirtækjunum í gær og voru fyrirsjáanlegar í dag vegna yfirvofandi verkfalls. Morgunblaðið/Ásdís Mikið álag var á söluskrifstofum og fjarsölu Flugleiða þegar farþegar voru að breyta farmiðum sfnum. Komi til verkfalla frá og með morgundeginum þurfa bændur brátt að hella niður mjólk og flutningar á eldsneyti um landið truflast. ✓ Aætlunarflug Flugleiða stöðvast einnig en starfsmenn við virkj- anaframkvæmdir halda ótrauðir áfram. ÁHRIF verkfalls félaga innan Verkamannasambands íslands, sem hefst hugsanlega annað kvöld, geta orðið víðtæk. Þannig mun stöðvast vinnsla og dreifing á mjólk og mjólk- urafurðum, uppihald verður á fisk- vinnslu, dreifing eldsneytis fer úr skorðum og flutningar og millilanda- flug truflast. Innanlandsflug mun þó ekld í uppnámi nema til verkfalls flugvirkja komi næstkomandi mánu- dag. Hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Sel- fossi fengust þær upplýsingar að svo til öll vinnsla myndi stöðvast frá fimmtudagsmorgni, engin mjólk yrði sótt til bænda frá þeim degi og af- greiðsla og dreifing frá búinu myndi stöðvast. Birgir Guðmundsson mjólkurbússtjóri segir að reynt verði að dreifa sem mestu til verslana í dag. Með því gætu legið fyrir tveggja til þriggja daga birgðir. Hann segir mjólkurfræðinga geta unnið lager- vöru í nokkra daga úr því hráefni sem liggi fyrir en slík vinnsla stöðvist fljótlega. Engin mjólk verður sótt til bænda frá fyrsta verkfallsdegi. Mjólk geymist ekki lengur en tvo til fjóra daga hjá bændum þannig að standi verkfall lengur verða þeir að hella niður mjólk. Fljótlega skortur á ferskvöru Guðrún Gísladóttir, deildarstjóri landflutningadeildar Landflutninga- Samskipa, sagði ljóst að flutningar fyrirtækisins myndu lamast allt frá Höfn til Akureyrar. Undantekning væru Vestfirðir þar sem verkfall er ekki boðað þar fyrr en undir lok mánaðarins. Hún sagði mikið af mat- vöru flutt frá Akureyri til Reykjavík- ur og mjög mikið flutt um landið allt. Þrír til fimm bflar fara daglega milli Reykjavíkur og Akureyrar á vegum Landflutninga og sagði Guðrún þær ferðir allar leggjast niður í verkfalli. Landflutningar-Samskip eru með eigin bílaflota, hjá þeim starfa nokkr- ir bflstjórar með eigin bfla í verktöku og nokkur sjálfstæð fyrirtæki, ein- yrkjar eða fyrirtæki með nokkra bíla á sínum snærum. Bflstjórar á bílum Landflutninga eru launþegar og margir í verkalýðsfélögum út um land og verður mest truflun á þeim flota. Verktakarnir geta haldið áfram akstri að sögn Guðrúnar, svo og þeir sem aka eigin bflum en hún sagði ljóst að af um 30 morgunferðum á dag yrðu aðeins farnar 8 til 9 ferðir ef til verkfalls kæmi. Guðrún sagði að ástandið kæmi verst niður á stærstu þéttbýlisstöð- unum, til dæmis Akureyri og Egils- stöðum. Fljótlega yrði skortur á ferskum matvörum enda væri það liðin tíð að verslanir lægju með mikl- ar birgðir. Þær treystu frekar á dag- lega flutninga. Alfreð Þórsson, framkvæmdastjóri Vöruflutningamiðstöðvarinnar, sem rekur flutninganetið Flytjanda, segir ljóst að þjónustan muni riðlast veru- lega en ferðir leggist þó ekki alveg af. Alls sjá 27 aðilar um aksturinn til 80 áfangastaða og allmargir þeirra eru einyrkjar sem aka á eigin bflum. Benedikt Elísson, hjá Flytjanda- Eimskip á Akureyri, sagði að truflun yrði Util á flutningum með bflum en ljóst væri að ekki yrði skipað upp vör- um á Akureyri ef til verkfalls kæmi. Hann sagði fjóra bfla verða í ferðum milli Reykjavíkur og Akureyrar og að helst gæti orðið truflun á heimkeyrslu vegna verkfalls. Miklar annir voru á afgreiðslum flutningafyrirtækjanna í gær og búist er við álagi í dag þar sem marg- ir vilja birgja sig upp áður en til verk- falls kemur. Flutningafyrirtækin verða að hafa komið vörum á áfanga- stað og lokið dreifingu þeirra þar fyr- ir miðnætti komi til verkfalls. Fiskvinnsla og eldsneytis- dreifing truflast Gunnar Larsen, framleiðslustjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyringa, tjáði Morgunblaðinu að hvort sem af verkfalli yrði á morgun eða ekki væri ljóst að eitthvert uppihald yrði á vinnslu. Isfisktogararnir Kaldbakur og Árbakur lönduðu hjá ÚA á mánu- dag og verður lokið við vinnslu afla þeirra í kvöld. Harðbakur landar afla á markað í dag og fara þessi þrjú skip aðeins á veiðar strax aftur ef ekki kemur til verkfalls. Frystitogararnir Svalbakur og Sláttbakur verða hins vegar á veið- um áfram. Gunnar sagði verkfall trufla starfsemi fyrirtækisins og vera því dýrt. Jafnvel þótt ekki komi til verkfalls muni fiskvinnslan stöðv- ast þar til á mánudag er afli berst aft- i ur á land. Verkfall myndi hafa talsverð áhrif á starfsemi olíufélaganna. Hörður Gunnarsson, sem stýrir dreifingunni hjá Olíudreifingu, samstarfsfyrir- tæki Olís og Olíufélagsins, segir að í gær og í dag sé reynt að birgja upp verktaka og aðra sem unnið geta ótr- uflaðir af verkfalli svo og bensín- stöðvar á verkfallssvæðum. Hörður segir dreifingu út um land stöðvast að langmestu leyti, bæði með bílum og skipum. Þá geti einnig orðið nokk- ur truflun á starfi Olíudreifingar á höfuðborgarsvæðinu þar sem nokkr- ir starfsmenn séu búsettir í nágrannabyggðum og félagar i verkalýðsfélögum sem þar muni fara í verkfall. Áætlunarflug milli landa leggst niður Hjá Flugleiðum fengust þær upp- lýsingar að áætlunarferðir til | Evrópu að morgni fimmtudags verði óbreyttar en verkfall flugvirkja er boðað frá kl. 11 fyrir hádegi. Verða því engar síðdegisferðir til Evrópu eða Ameríku en vélamar frá Evrópu fá að snúa til íslands. Símon Pálsson, sölustjóri Flugleiða, sagði að mikið álag hefði verið á síma fjarsölunnai' og söluskrifstofa þegar fólk var að breyta bókuðum farmiðum. Sagði hann að tekist hefði að útvega öllum sæti fyrir verkfall, til landsins eða frá því. Símon sagði að farþegar frá Evrópu sem ætluðu til Bandaríkj- anna eða Kanada myndu ekki koma með vélum félagsins til landsins síð- degis á morgun nema ljóst yrði fyrir brottför ytra hvort til verkfalisins kæmi. Truflanir gætu einnig orðið nokkr- ar á ferðum áætlunarbfla en vinna við virkjanir, t.d. framkvæmdir við Vatnsfellsvirkjun, heldur ótrufluð áfram. FERMINGARGJÖF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.