Morgunblaðið - 12.04.2000, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 12.04.2000, Qupperneq 36
3>6 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Hárrétt hugsun Þeir uppskera hneykslun ogskelfingu, sjaldan annað hjá eigin félögum og í augnatilliti keppinauta skín þórðargleðin yfir ófórum og klofningi hinum megin. r> SÁ SEM fer á fótbolta- leik í Frostaskjólinu, er barinn og berfættur Vesturbæingur og hef- ur verið skráður í KR daginn eftir skírnina hefur auð- vitað aðeins eitt til málanna að leggja þegar hugað ef liðið er að berjast við til dæmis IBV. „Eyja- menn, þið eigið leikinn!“ Það er að segja ef hann hefur dottið á höfuðið og meitt sig tals- vert. Engu skiptir þótt hann hafi orðið fyrir hugljómun, ílnnist að gamla liðið sitt leiki verri fótbolta en beljur á svelli og Eyjamenn ættu að hreppa alla titla sem hægt er að veita þeim. Hér er það lið- sandinn sem er í húfi en ekki ein- hver sanngirni gagnvart and- UIAUADE stæðingum VIUHUKr eðakaltmatá Fuj, j77Á7. færni manna í 5rr*" i-íS' , Ekki ímnst mér það endilega vera merki um ósjálfstæði þótt maður vilji vera í hluti af einhverjum afmörkuðum hóp sem aðgreinir sig frá öðrum mannverum. Fótboltaliði eða saumaklúbb. Það sem gerir sér- hvert okkar að sjálfstæðri og ein- stakri veru er vitundin um að sumt eigum við sameiginlegt með öllum en annað með hóp sem get- ur verið lítill eða stór. Þetta er hvorki gott né slæmt, aðeins stað- reynd. En jafnframt er í þessu fólgin sprengihætta sem birtist í stríði og annarri fólsku þegar einhverj- um tekst að sannfæra nógu marga um að „hinir“ séu fúlmenni sem muni klekkja á okkur ef þeir fái til þess tækifæri. Þess vegna sé viss- ara að gera út af við þá í tæka tíð. Leitin að óvini til að sameinast gegn er hafin. Eg get ekki gert að því að oft dáist ég mikið í laumi að þeim sem þora að segja það sem er alveg bannað í þeirra liði og jafnvel öllu samfélaginu. Þeim sem eru yfir- leitt með allar réttu skoðanirnar, fara með réttan trefil á völlinn, kunna sig en gefa samt hópnum sínum öðru hverju langt nef. Þeir uppskera hneykslun og skelfingu, sjaldan annað hjá eigin félögum og í augnatilliti keppinauta skín þórðargleðin yfir óförum og klofn- ingi hinum megin. Hópkenndin getur leitt okkur afvega. Ef við stöglumst á því að hér sé allt best, íslendingar allra þjóða sterkastir, fegurstir gáfað- astir er stutt í þá hugsun að svo góða súpu megi ekki skemma með því að hella út í hana einhverjum framandi, erlendum jurtum. Eða hvað? Þannig hætta hrópin á vellinum stundum að vera eins og hver ann- ar saklaus leikur, bráðnauðsyn- legt framhald af bernskunni. Þau eru þá orðin grimmdaröskur þeirra sem hafa hætt að reyna að finna jafnvægi milli þess annars vegar að finna til meiri samkennd- ar með einum hóp en öðrum og hins vegar að hata þá sem eru fyr- ir utan. Og undirmálsfólk öðlast von um að geta fengið útrás fyrir vanmetakenndina með því að níð- ast á einhverjum sem stingur í stúf við umhverfið. Hvítum hrafni til að flæma burt. En það eru ekki bara slíkir þursar sem þurfa að gæta sín á hjarðhvötinni. Þeir sem þruma gegn misrétti kynþátta, kvennakúgun og fá- tæktargildrum í þriðja heiminum hafa í sjálfu sér rétt fyrir sér í því sem mestu skiptir. Sumar skoðan- ir eru óalandi og óferjandi, ef kyn- þáttahatur er skoðun frekar en ósjálfráð viðbrögð í mænu fremur en heila er það ágætis dæmi. Eng- inn heilvita maður veltir því fyrir sér hvort það eigi rétt á sér. En alls kyns rétthugsun er á hinn bóginn að verða allt of fyrirferðar- mikil á Vesturlöndum, í fjölmið- lum og í háskólum. Bókmenntum sem ekki samræmast tíðaranda er miskunnarlaust breytt til að þóknast þeim harðsnúna herra. Umhverfissjónarmið fá menn til að breyta leikriti eftir Brecht. í Bandan'kjunum skálda menn upp afreksmenn með svart hörund til að jafna hallann í sögukennslu þar sem flestar hetjurnar eru af aug- ljósum ástæðum hvítar. Lætin sem urðu í Evrópusam- bandinu vegna Haiders og flokks hans í Austurríki eru sennilega eitt skýrasta dæmið um mátt gagnrýnislausrar rétthugsunar á seinni árum. Leiðtogar for- ystuþjóða álfunnar gengu ber- serksgang til að sýna hvað þeir staðráðnir í að kæfa allan nasisma í fæðingu. Fyrir nokkrum árum voru ítalskir ný-fasistar í sam- steypustjórn og engum fannst það tiltökumál. Hvað eru það annað en fordómar og hræsni að segja að að það sem var í lagi á Italíu sé allt að því glæpsamlegt í landi þar sem fólk talar þýsku? En vandinn er sá að allt of margir upplýstir jafnaðannenn í Evrópu þorðu ekki annað en taka þátt í kórsöngnum. Þeir voru log- andi hræddir við að viðurkenna eigin breyskleika, horfast í augu við að ríkisstjórnir undir forystu þeirra hafa sums staðar gengið hart fram í að stugga við innflutn- ingi fólks frá öðrum löndum. Lög- in og reglugerðirnar eru ekki með orðalagi Haiders og annarra póli- tískra himpigimpa sem róa á mið lýðskrums og útlendingahaturs. En framkvæmdin hefur breyst. Þannig hafa Danir á undan- fömum árum gerbreytt um stefnu og snúa umsvifalaust við ferða- löngum úr þriðja heiminum ef tal- ið er að þeir séu að reyna að kom- ast inn í landið án leyfis. Áður var horft í gegnum fingur. Roskinn lögreglumaður á Suður-Jótlandi hætti nýlega störfum vegna þess að honum mislíkaði harkan sem honum var fyrirskipað að sýna í starfi sínu. Honum fannst stefnan ómannúðleg. Ekki langar mig til að sanna að ég sé sjálfstæður í hugsun og mik- ið á móti allri pólitískri rétthugs- un með því að leggja til að konan haldi sig undir eldavélinni eða hvernig einn af ráðherrunum okk- ar nú orðaði þetta. Og heldur ekki að byrja að fjasa um ímyndaða yf- irburði hins íslenska kyns fram yfir aðra mannastofna, rétt eins og verið sé að fjalla um holdanaut. En rétta svarið við vondum skoð- unum og fordómum er ekki ein- göngu að benda ásakandi á þá sem mæla fyrir ósómanum heldur ekki síður að horfa í eigin barm. Atvik í menninguimi Geir Svansson Hjálmar Sveinsson Kristján B. Jónasson BÆKUR F r æ ð i r i t ATVIK Þijár bækur: Tengt við tímann: Tíu sneiðmyndir frá aldarlokum, Lista- verkið á tímum fjöldaframleiðslu sinnar eftir Walter Benjamin og Frá eftirmynd til eyðimerkur eftir Jean Baudrillard. Bjartur og Reykjavíkurakademían, Reykjavík 2000.104 bls., 87 bls. og 93 bls. RÖÐ fræðilegra rita á vegum Bjarts og Reykjavíkurakademíunnar hefur litið dagsins ljós en hún nefnist „Atvik“. Ritröðin lendir með nokkr- um þunga í íslenskum fræðaheimi því útgefin eru þrjú Atvik á einu bretti. Hér eru á ferðinni smárit, um hund- rað síður hvert, en hið fyrsta er ólíkt hinum tveimui' að því leyti að um safn ritgerða eftir íslenska höfunda er að ræða en Atvik tvö og þrjú saman- standa af þýðingum á erlendu fræði- efni. Tengt við tímann Ritröðin er greind í fjóra megin- flokka með atviksorðunum „nú“, „þannig“, „þá“ og „þegar“. Fyrsta At- viksbókin, „Tengt við tímann: Tíu sneiðmyndir frá aldarlokum", fellur í núið enda segir ritstjóri þess, Krist- ján B. Jónasson, í inngangsspjalli sínu að ritið sé „safn tíu texta þar sem tíu manns reyna að finna taug milli sín og samtímans." Þetta er gert með ólíkum hætti, en bilið frá firæði- greinum til óformlegra hugleiðinga og endurminninga er spannað. í greininni „Þegar ég uppgötvaði að ég er sæborg" lýsir Ulfhildur Dagsdóttir ferlinu sem leiddi upp- götvunina í titlinum í Ijós, en „sæborg“ er þýðing hennar á enska orðinu „cyborg", sem merkir lífrænt vélmenni. Um er að ræða líflega og skemmtilega grein þar sem víða er farið. Leikið er á mörkum fræðilegrar orðræðu og óformlegrar hugleiðingar og Úlfhildur sannar á nýjan leik að hún er landsins kátasti íbúi hins póst- módemíska ástands. Handan mark- anna liggur grein Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur, „Taka til í herberginu sínu - Samtíminn og ég“, en þar fjall- ar hún um merkinguna í smáhlutun- um sem fólk safnar í kringum sig í líf- inu. Þegai' rótað er í þeim fer vitundin á flakk og finnur sér hæli í hug- myndasögunni. Greinar Hjálmars Sveinssonar og Eiríks Guðmundssonai' eru í formi dagbókarbrota og lýsa báðar ákveð; inni fiiringu frá heimaslóðunum. í ,jVð koma heim“ lýsir Hjálmar tilfinn- ingunni við að stíga aftur á Islands- grund eftir mai'gra ára fjaiveru en Eiríkur segir frá því hvemig hann ákvað einn góðan veðurdag að upplifa hið klassíska sagnastef „að vitja upp- mna síns“ og keyrir því í óðagoti til æskuslóðanna á Vestfjörðum. Island er skoðað úr nálægð og fjarlægð í þessum greinum og margt framand- gert á eftirtektarverðan hátt. Grein Andra Snæs Magnasonar, „Úthverfið mitt - Árbæjarhverfi" gæti verið holl lesning fyrir þá sem halda að utan við póstnúmer 101 blasi við auðnin tóm. Eins og fram kemur í inngangsspjalli ritstjóra era úthverfi Reykjavíkur hvert um sig fjölmenn- ari en stærsta sveitarfélagið utan höf- uðborgarsvæðisins, Akureyri, og því kannski tími til kominn að eðli og sögu úthverfisins sé gaumur gefinn. Við þessa gi'ein skapar framlag Auð- ar Jónsdóttur, „Upplausn í aldarlok", ákveðið mótvægi, en þar er mynd bragðið upp af sumarstemmningu í hjarta borgarinnar og ættu allar mið- bæjarrottur að kannast við lýsinguna. Greinin er á köflum bráðfýndin og í raun afar glögg mannlífslýsing. Hermann Stefánsson ritar fræði- legustu grein bókarinnar, „Geðsmun- ir“, en þar fjallar hann um þá hefð ís- lenskrar sagnaritunar sem gerir „einkennilegt fólk“ að viðfangsefni sínu. Hermann vai'par fram þeiiri hugmynd að í framandleika sínum sé þetta fólk „aldarspegill afbrigðanna“, að eitthvað í fari hinna ógæfusömu furðufúgla „feli í sér möguleikann á kvikum og óróum heimi“. Þetta er þó aðeins einn þráður af nokkram í áhugaverðri grein. ,JÍ-kynslóðin og endalok sögunnar" eftir Armann Jak obsson er af dálítið öðram toga en einkennist sömuleiðis af skemmtileg- um og framlegum fræðitökum. Þar veltir Armann fyiir sér meintu „sögu- leysi“ hinnar svokölluðu X-kynslóðar (en það er hugtak sem nokkuð er á reiki en á rætur að rekja til kanadíska rithöfundarins Douglas Coupland) og því hvort staðhæfingar um skerta söguvitund hennar eigi við rök að styðjast. Markaðs- og neysluþjóðfélagið er viðfang Kristjáns B. Jónassonar og Jóns Karls Helgasonar en eftirfar- andi setning í blaðafrétt: „Almenn- ingur eyðir um efni fram þrátt fyrir vamaðarorð forsætisráðherra“ er kveikjan að grein Kristjáns „Hvað varðar mig um þjóðarhag“, en þar er fjallað um áróðurskennd orðræðu- kerfi sem halda úrsérgengnum hug- myndum á lífi. „Narkissus á hjólinu" eftir Jón Karl er skondinn sambræð- ingur heimspekilegrar og hagfræði- legrar hugleiðingar um tísku- og íþróttafyrirbærið „spinning" sem tröllreið íslenskum líkamsræktar- stöðvum fyrir nokkram áium. En þótt greinarnar séu ólíkar eiga þær ákveðna tortryggni í garð neyslu- þjóðfélagsins sameiginlega ásamt því að klæða alvarlegar hugleiðingar hnyttnum og jafnvel fyndnum bún- ingi. Textarnh’ í Tengt við tímann eiga samkvæmt ritstjóra að vera „vopn til daglegs bráks, verkfæri til að nota hér og nú til að skilja umhverfi sitt, breyta því og umskapa". Þetta er metnaðarfullt markmið en hið til- raunakennda rit veldur ætlunarverki sínu. Greinamar beina athygli les- andans að Islandi dagsins í dag; sum- ar vekja mann til umhugsunar en aðr- ar era hrein skemmtilesning. Þótt þær séu ólíkai' finna þær sér allar ákveðinn snertiflöt við íslenskan veraleika og saman skapa þær marg- lita heild. Bláa blómið í landi tækninnar Önnur Atviksbókin er þýðing á þremur greinum eftir þýska hugsuð- inn og bókmenntafræðinginn Walter Benjamin, „Höfundurinn sem fram- leiðandi", „Saga Ijósmyndunar í stuttu máli“ og „Listaverldð á tímum fjöldaframleiðslu sinnar“. Ritstjóri er Hjálmar Sveinsson og þýðir hann Sögu Ijósmyndunar en hinar tvær greinarnar, sem þýddar era af Árna Oskarssyni og Örnólfi Thorssyni, hafa verið gefnar út áður en birtast hér í endurskoðaðri þýðingu. Walter Benjamin er gjai'nan nefndur í sömu andrá og Theodor Adorno og Max Horkheimer enda tengdust þefr allh' hinni þekktu fé- lagsfræðirannsóknarstofnun sem að- setur hafði í Frankfurt (Institut fúr Sozialforschung) og kennd er við þá borg. Starfsemi stofnunarinnar flutt- ist til New York þegar nasistar kom- ust til valda í Þýskalandi árið 1933 en sjálfur lést Benjamin árið 1940 á flótta undan nasistum við landamæri Frakklands og Spánar. Þótt greinamar séu allar áhuga- verðar verður sú síðastnefnda, Lista- verkið á tímum fjöldaframleiðslu sinnar, að teljast mikilvægust enda reynst lykilverk þegar að menningar- fræðilegum rannsóknum kemur. Rit- stjóri tekur einmitt fram í inngangi sínum að greinin hafi verið „óþrjót- andi brannur fyrir alla þá sem hafa gert sér far um að skilja hvemig tæknilegar nýjungar geta ekki aðeins breytt listaverkinu í eðli sínu, heldm- líka skynjun okkar og hugsunarhætti Vika bókarinnar Miðvikudagur Borgarbókasafnið, Bústaðasafn Leikhúsið Tíu fingur sýnir Sólar- sögur kl. 10. Borgarbókasafnið, Sólheimum Elín Ebba Gunnarsdóttir og Ágúst Borgþór Sverrisson lesa frumsamdar smásögur. Þorvaldur Már Guðmundsson leikur á klass- ískan gítar. Kl. 17. Mál og menning I tilefni af viku bókarinnar verður m.a. lögð sérstök áhersla á spennu- sögur og mun starfsfólk Máls og menningar á Laugavegi setja á svið sína eigin spennusögu í gluggaút- stillingu verslunarinnar. Dularfull- ur glæpur er framinn og vísbend- ingar sem leiða til lausnar ráðgátunnar birtast í búðargluggan- um til 14. apríl. Gestum og gangandi er boðið að spreyta sig á rannsókn málsins og verður dregið úr réttum lausnum föstudaginn 14. apríl, en sá sem afhjúpar glæpamanninn fær veglega bókagjöf að launum. Borgarbókasafn Steinunn Sigurðardóttir rithöfun- dur hefur skrifað upphaf smásögu á heimasíðu safnsins, www.borgar- bokasafn.is. Gestir era hvattir til að botna söguna. Hið íslenska glæpafélag Aðalfundur félagsins verður kl. 20.30 á leyndum stað. Auk venju- legra aðalfundarstarfa verður flutt erindið: Raðsaga - keðjusaga. Bók- menntafræðileg hugtök í umræðu um afþreyingarsögur. Gerðuberg Upplestur af snældum. Bókasafn Kópavogs I sögustund fyrir 3-6 ára verða lesnar spennusögur fyrir börn kl. 10 og kl. 14. Sögustundir fyrir þennan aldursflokk eru alla miðvikudaga frá október til maí kl. 10 og 14. Höfði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri afhendir Barnabóka- verðlaun Reykjavíkur 2000 í Höfða kl. 20.30 í dag. Verðlaunin eru veitt fyrir frumsamið verk og þýðingu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.