Morgunblaðið - 12.04.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 5%
Afmælissýning Félags
tamningamanna
FÉLAG tamningamanna efnir til
þriggja daga fagsýningar í ReiðhöU-
inni í Víðidal í tilefni af 30 ára afmæli
félagsins. Er þar um að ræða nokkuð
nýstárlegt sýningarform þar sem
bæði er um að ræða hefðbundnar
reiðsýningar í sal hallarinnar og
vörusýningar ýmiskonar í anddyr-
inu. Einnig verða þar fyrirlestrar um
margvísleg efni tengd hestamennsk-
unni.
Ýmsir félagsmenn verða með sýn-
ikennslu í tamningum og þjálfun.
Kveikur frá Miðsitju kemur fram
með afkvæmahópi og Keilh’ frá Mið-
sitju verður sýndur. Þá munu rækt-
unarbú síðustu tveggja ára verða
með sýningum afurða sinna. Er þar
um að ræða Ketilsstaðabúið og
hrossarækt Gunnars og Kristbjargar
FASTAFULLTRÚI íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum í Genf, Bene-
dikt Jónsson sendiherra ávarpaði á
mánudag 56. þing mannréttindar-
áðs Sameinuðu þjóðanna sem nú
stendur yfir í Genf.
„í ávarpinu sem fjallaði um kon-
ur og mannréttindi rifjaði sendi-
herrann upp þær skuldbindingar
sem aðildarríki Sameinuðu þjóð-
anna samþykktu á kvennaráð-
stefnunni sem haldin var í Bejing
árið 1995.
Námskeið í
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir tveimur námskeiðum í
almennri skyndihjálp. Fyrra nám-
skeiðið hefst fimmtudaginn 13.
apríl kl. 19-23 en einnig verður
kennt 17. og 18. apríl. Helgar-
námskeið verður dagana 14., 15.
og 16. apríl. Kennt verður föstu-
dag kl. 19-23, laugardag kl. 13.30-
18 og sunnudag kl. 10.30-14.
Námskeiðin teljast verða 16
kennslustundir. Þátttaka er heimil
öllum 15' ára og eldri. Einnig verð-
ur haldið endurmenntunarnám-
skeið dagana 25. og 27. apríl. Að
lokum þessum námskeiðum fá
menn skírteini sem hægt verður
að fá metin í ýmsum skólum.
Meðal þess sem kennt verður
verður blástursmeðferðin, lífgun
með hjatahnoði, hjálp við bruna,
beinbrotum og blæðingum úr sár-
um. Einnig verður fjallað um
helstu heimaslys þ.m.t. slys á
börnum og forvarnir almennt.
Önnur námskeið, sem eru haldin
hjá Reykjavíkurdeildinni, eru um
sálræna skyndihjálp, slys á börn-
um og það hvernig á að taka á
móti þyrlu á slysstað. Tekið skal
fram að Reykjavikurdeild RKÍ út-
vegar leiðbeinendur til að halda of-
angreind námskeið fyrir þá sem
þess óska.
Aðalfundur
UNIFEM
á Islandi
UNIFEM á íslandi heldur aðalfund
í dag, miðvikudaginn 12. apríl, kl. 17.
Fundurinn verður haldinn á Mann-
hæðinni á Laugavegi 7.
Á dagskrá fundarins eru venjuleg
aðalfundastörf en að þeim loknum
mun dr. Kristín Loftsdóttir mann-
fræðingur segja frá dvöl sinni meðal
WoDaaBe-hirðingja við jaðar Sa-
hara-eyðimerkurinnar.
í Auðsholtshjáleigu. Þá má nefna
frjálsa keppni þar sem knapi fær
frjálsar hendur í takmarkaðan tíma
til að sýna gangtegundir í bland við
ýmsar fimiæfingar og tónlist. Einn
dómari dæmir og gefur eina einkunn.
Fyrsta sýningin verður á fimmtu-
dag en henni lýkur á laugardags-
kvöld. Dagskrá verður sem hér segh’:
Fimmtudaginn 13. apríl verður
móttaka boðsgesta kl. 18 og því næst
verður húsið opnað kl. 19.30 og er
enginn aðgangseyrir. Sýnd 3-4 valin
atriði kvöldsýningai’ og um kl. 20 er
sýnikennsla Eyjólfs ísólfssonar,
tamningameistara í tamningu og
uppbyggingu hests.
Föstudaginn 14. apríl verður húsið
opnaðkl. 19 fyrir kvöldsýningargesti.
Þórir Magnús Lárusson verður með
Líkt og gert var af hálfu ís-
lenskra stjórnvalda á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna í New
York sl. haust ítrekaði fastafull-
trúinn að mannréttindi væru altæk
og því ekki hægt að réttlæta
mannréttindabrot gegn konum
með því að skírskota til trúar-
bragða, venju eða hefða. Vakti
fastafulltrúinn í því sambandi at-
hygli á grófum mannréttindabrot-
um Talíbana gagnvart konum í
Afganistan á grundvelli trúar-
bragða. Konur þar gætu ekki haft
áhrif á eigin örlög.
Sendiherrann harmaði þær
takmarkanir sem konur í sumum
ríkjum heims þurfa að þola á
ferðafrelsi bæði innanlands og ut-
an. Vísaði hann til nýlegrar sam-
antektar Amnesty International
sem dæmi. Hann sagði að aðskiln-
aður kynjanna væri einnig enn við
lýði í sumum ríkjum en aðskilnað-
ur sem slíkur fæli í sér ójafnrétti.
Þessi mannréttindabrot ættu skilið
meiri athygli af hálfu alþjóðasam-
félagsins.
Fastafulltrúinn gerði alþjóða-
væðingu og hraðar tækniframfarir
að umtalsefni og hvernig talið væri
að konur hefðu ekki notið ávaxta
þessa í sama mæli og karlmenn.
Hann sagði að finna yrði leiðir til
sýnikennslu um frumtamingar kl.
19.30 og kl. 20.30 hefst kvöldsýning.
Laugardaginn 15. apríl verður
húsið opnað kl. 12 og er ókeypis að-
gangur. Sýnikennsla Sigurbjörn
Bárðarsonar, tamningameistara
hefst kl. 13 með sýnikennslu um
þjálfun skeiðhests og niðurtöku á
skeið. Kl. 15 verður svo Benedikt
Líndal, tamningameistari með sýni-
kennslu í tamningu. Kl. 16 verður
Þórir Magnús Lárusson með kynn-
ingu á starfi hestamiðstöðvarinnar á
Gauksmýri, kl. 16.30 flytur Benedikt
Líndal, tamningameistari, erindi um
hnakka og kl. 17 verður Reynir Aðal-
steinsson tamningameistari með
sýnikennslu um taumsamband og
töltþjálfun. Kvöldsýning er síðan kl.
20.30.
að nýta þessa þróun til að auka
efnahagsleg og félagsleg réttindi
kvenna. Hann lagði sérstaka
áherslu á menntun í þessu sam-
bandi.
Fastafulltrúinn lagði áherslu á
að mannréttindi kvenna og jafn-
rétti kynjanna væri ekki síður á
ábyrgð karla en kvenna. Hann
skýrði frá fyrirhuguðu frumvarpi
ríkisstjórnar íslands um foreldra-
og fæðingarorlof sem þegar hefur
verið kynnt í íslenskum fjölmiðlum
og ætlað er að stuðla enn frekar að
jafnrétti kynjanna.
I lokin tók fastafulltrúinn tvö
dæmi um framþróun í mannrétt-
indum kvenna. I fyrsta lagi nefndi
hann valfrjálsu bókunina sem sam-
þykkt var síðastliðið haust á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna við al-
þjóðasamninginn um afnám alls
misréttis gegn konum. I öðru lagi
Rómarsamþykktina um alþjóða-
sakadómstólinn sem skilgreinir
meðal annars nauðgun og kynlífs-
þrælkun sem glæpi gegn mann-
kyninu og stríðsglæpi.
íslensk stjórnvöld skoruðu á
önnur ríki að undirrita og vinna að
fullgildingu þessara samþykkta,"
segir í fréttatilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu.
Fundur um
sjávarútvegs-
mál í kjölfar
hæstaréttar-
dóms
FRJÁLSLYNDI flokkurinn
gengst fyrir almennum fundi um
sjávarútvegsmál í kjölfar hæsta-
réttardóms að Borgartúni 6 (Rúg-
brauðsgerð) kl. 20.30 í kvöld.
I fréttatilkynningu segir að
kunnir kvótaandstæðingar flytji
stuttar framsögur, m.a. Markús
Möller hagfræðingur, Guðjón A.
Kristjánsson alþingismaður, Guð-
mundur G. Þórarinsson verkfræð-
ingur, Valdimar Jóhannesson og
Óskar Þór Karlsson frá Samtökum
fiskvinnslu án útgerðar.
Að því loknu verða almennar
umræður. Fundarstjóri verður
Sverrir Hermannsson. Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir.
Fyrirlestur
um streituþol
í plöntum
DR. EINAR Mántylá flytur fyrir-
lestur í kvöld sem hann nefnir: Um
sameindalíffræði sjúkdóms- og
streituþols í plöntum. Fyrirlesturinn
verður haldinn í Odda, stofu 101, og
hefst kl. 20.
,Á síðustu tuttugu árum hefur
þekking manna stóraukist á líffræði
plantna. Plöntusameindalíffræðin
hefur veitt innsýn í sum þeirra
flóknu ferla sem liggja að baki við-
brögðum plantna við sjúkdómsvöld-
um og aðlögun þeirra að breytilegu
umhverfi. Rannsóknir hafá óvænt
leitt í Ijós að ýmsu í sjúkdómsvörn-
um plantna svipar til þess sem gerist
hjá okkur mönnunum við sýkingu.
Flestar norðlægar plöntur sem
eru aðlagaðar aðstæðum í umhverfi
sínu eru færar um að mæta lækkandi
hitastigi með því að auka frostþol
sitt. Þekking manna á ýmsum þátt-
um kuldaherðingar hefur aukist
verulega á undanförnum árum þó að
enn vanti margt í heildarmyndina.
Greint verður frá nýlegum rann-
sóknum sem eru líklegar til þess að
varpa ljósi, í orðsins fyllstu merk-
ingu, á ýmsa þætti streituaðlögunar
plantna sem erfitt hefur verið að
koma auga á,“ segir í fréttatilkynnc'
ingu.
Aðgangur er ókeypis og eru allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
• •
Ossur og
Tryggvi á
Selfossi
ÖSSUR Skarphéðinsson og Tryggvi
Harðarson, formannsefni Samfylk-
ingarinnar, verða á opnum fram-
boðsfundi á Hótel Selfossi, miðvik-
daginn 12. apríl kl. 20.30.
„Frambjóðendur kynna stefnumál
sín, hugmyndir um hinn nýja flokk
sem stofnaður verður formlega í maí,
og framtíðarsýn. Fundarstjóri verð-
ur Björgvin Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri þingflokks Samfylk-
ingarinnar.
Þeir halda sams konar fundi í
hverju kjördæmi vegna formann-
skosningar. Gestir á fundum fram-
bjóðendanna fá tækifæri til að spyrja
um þau mál sem fólki þykir mestu
vai’ða," segir í fréttatilkynningu.
Fundur um ætt-
leiðingar sam-
kynhneigðra á
Islandi
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna
heldur þriðja fund sinn í fundaröð-
inni um jafnréttismál, „Með réttlæti
gegn ranglæti,“ í dag, miðvikudag-
inn 12. apríl, á Sóloni íslandusi kl.
17.30. ^
Framsögumenn á fundinum verða
Guðni Kristinsson, formaður Félags
samkjtnhneigðra stúdenta, Rann-
veig Traustadóttir, dósent við félags-
vísindadeild HI, og Þorgerður Kat-
rín Gunnarsdóttir, alþingismaður og
formaður allsherjamefndar Alþing-
is. Framsögumenn taka þátt í um-
ræðum ásamt þátttakendum í pall-
borði.
Fundarstjóri verður Kristín Pét-
ursdóttir lögfræðingur og eru allir
velkomnir.
Frá nemendasýningu í Borgarleikhdsinu
VORNÁMSKEIÐ HEFST 26. APRÍL NK.
Allir aldurshópar frá 4 ára.
Innritun í síma 553 8360
frákl. 16-18
Félatj islenskra listdansara
Konur og upplýsingasamfélagið "
Ráðstefna á Grand Hótel 14. apríl 2000
Vefsíða: http://www.simnet.is/konur.
Ráðstefnan er öllum opin - Ekkert ráðstefnugjald
Að ráöstefnunni standa: Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagiö,
Jafnréttisráð, Rannsóknarstofa í kvennafræðum, Jafnréttisnefnd Háskóla
íslands, Skýrslutæknifélag íslands, Félag tölvunarfræðinga,
menntamálaráðuneytið, Verkfræðingafélag íslands.
Dagskrá
12.45 Afhending ráðstefnugagna.
13.00 Ávarp - Davíð Oddsson, forsætisráðherra.
13.20 Konur t Islenska upplýsingasamfélaginu.
Guðbjörg Sigurðardóttir, formaður verkefnisstjórnar.
13.40 Information Technology and Gender - Challenges.
Dr. Christina Mörtberg, formaður nets um konur og tækni.
14.10 Tölvumenning íslenskra skóla:
í átt til aukins jafnréttis. Dr. Sólveig Jakobsdóttir, dósent við KHÍ.
14.45 Kaffi.
15.10 Konur I Netheimum - nýr Kfsstíll. Margrét Dóra Ragnarsdóttir,
framleiðslustj. OZ.COM, Kristrún Gunnarsdóttir, forritari og hönnuður
Sagnanets.
15.25 D@merog D@torer - Konur og upplýsingasamf. í Noregi.
Heidi Austlid, starfsmaður norska menntamálaráðuneytisins.
15.45 Sívit - próunarverkefni um konur og upplýsingatækni.
Anna Ólafsdóttir, verkefnisstjóri Menntasmiðju, Akureyri.
16.00 Átak til að fjölga konum í tækni- og raungreinum á háskólastigi
aðgerðir sem auka hlut kvenna í forystustörfum.
Margrét S. Björnsdóttir, framkvæmdastjóri við HÍ.
Rósa Erlingsdóttir, starfsmaður jafnréttisnefndar HÍ. i
Elsa S. Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs.
16.15 Konur og nám í tölvunarfræði.
Dr. Oddur Benediktsson, prófessor við HÍ.
16.30 Störf í upplýsingatækni - Goösögn og veruleiki.
Helga Waage, tölvunarfræðingur OZ.COM.
17.00 Ráðstefnuslit.
Ráðstefnustjóri: Dr. Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur.
____________________________________________________________________J
Trúarbrögð réttlæta
ekki mannréttindabrot