Morgunblaðið - 12.04.2000, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 12.04.2000, Qupperneq 6
6 MIÐVTKUDAGUR 12. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Iðnó og LR bítast um þrj ár leikkonur í IÐNÓ og Borgarleikhúsinu eru auglýstar sýningar á leikritunum Stjömur á morgunhimni og Kysstu mig Kata á sama tíma næstkomandi sunnudagskvöld en ljóst er að ekki getur orðið af þeim báðum á auglýstum tíma, þar sem þijár leik- konur taka þátt í þeim báðum. í samningi tveggja leikkvenn- anna, þeirra Jóhönnu Vigdísar Arn- ardóttur og Eddu Bjargar Eyjólfs- dóttur, við Iðnó er kveðið á um forgang, sem þýðir að séu þær í öðr- um verkefnum verði þau að vfkja á sýningarkvöldum á Stjörnum á morgunhimni hjá Iðnó. Þriðja leik- konan sem leikur í báðum sýningum er Sigrún Edda Bjömsdóttir, sem er fastráðin hjá Leikfélagi Reykja- víkur, sem hefur því forgang að henni. Bætt inn aukasýningn í Borgarleikhúsinu Magnús Geir Þórðarson, leikhús- stjóri Iðnó og leikstjóri sýningar- innar Stjörnur á morgunhimni, seg- ir málið tengjast valdabaráttu og því að Þórhildur lætur brátt af störfum í Borgarleikhúsinu, sem Ið- nó flækist óbeint inn í. „Við fmmsýndum um jólin leikr- itið Stjömur á morgunhimni, sem hefur fengið afbragðsdóma og gengið mjög vel. Síðastliðið haust samdi ég við alla Ieikarana í þeirri sýningu um forgang, sem kallað er, nema við Sigrúnu Eddu, sem er fa- stráðin við Borgarleikhúsið. Þegar Þórhildur Þorleifsdóttir, Ieikhús- stjóri í Borgarleikhúsinu, sem jafn- framt leikstýrir Kysstu mig Kata, byijar að undirbúa sýninguna, býð- ur hún hlutverk tveimur leikkonum sem leika hjá mér í Stjörnum á morgunhimni. Eg gef grænt ljós á það, en að sjálfsögðu með þeim fyr- irvara að við höfum forgang, eins og kveðið var á um í samningi okk- ar við þær. Svo er Kata fmmsýnd og við aðlögum okkar sýningartíma að sýningum Borgarleikhússins. Þetta er auðvitað eitt af þeim vandamálum sem litlu sjálfstæðu leikhúsin standa alltaf frammi fyr- ir,“ segir hann. „Fyrir um hálfum mánuði er orð- ið uppselt á sýningu hjá okkur á Stjörnum á morgunhimni sunnu- daginn 16. apríl. Nokkmm dögum síðar fáum við upphringingu frá Borgarleikhúsinu, þar sem okkur er tjáð að þau ætli að bæta inn auka- sýningu á Kysstu mig Kata þetta sama kvöld. Ég hef samband við Þórhildi og bendi henni á að leikkonurnar séu uppteknar og geti ekki leikið hjá henni þetta kvöld. Hún heldur hins vegar áfram að selja á sýninguna og nú er svo komið að þennan dag eru auglýstar sýning- ar á Stjörnum á morgunhimni og Kysstu mig Kata, í báðum leikhúsun- um á sama tíma, með sömu leikkon- um. En það er al- veg ljóst að ekki getur orðið af báð- um sýningunum á þessum tíma. Hætt að snúast um listina Ég hef reynt að fá Þórhildi til að semja og hef lýst mig reiðubúinn til að gefa mjög mikið eftir en hún hef- ur alfarið hafnað öllum samningum. Svo gerist það um daginn að Þór- hildur hefur samband við leikkon- umar tvær sem era í stærstu hlut- verkunum hjá henni, Jóhönnu Vigdísi og Eddu Björgu, og segir þeim að hún ætli að æfa inn nýjar leikkonur í hlutverkin þeirra fyrir þessa sýningu. Þar sem þetta mun augljóslega bitna á sýningunni hafði ég samband við Þórhildi og spurði hvort við ættum ekki frekar að semja þannig að ég myndi losa Jóhönnu Vigdísi, sem er stjaraan í sýningunni hennar. k móti myndi Þórhildur losa Sigrúnu Eddu, sem Ieikur algert aukahlutverk í Kötu en aðalhlutverk í Stjörnum, og þá myndi hún losna við að æfa inn í stærsta hlutverkið - en þessu hafn- ar hún alfarið. Það sem eftir stend- ur er að Þórhildur er tilbúin að losa alla út úr sýningunni nema Sigrúnu Eddu, sem er í minnsta hlutverkinu, bara til þess að stöðva sýningar á Stjörnum á morgunhimni. Mér finnsl þetta vera valdníðsla hjá leikhússljóra sem er í forsvari fyrir opinbert leikhús sem er með hátt í 200 milljónir króna í árlega styrki. Hún er að notaþetta vald sitt til þess að drepa niður sýningu í litlu sjálfstæðu leikhúsi úti í bæ. Þetta er hætt að snúast um listina og þetta er hætt að snúast um nokkra skynsemi - þetta er bara persónulegt valdatafl hjá Þórhildi. Við í Iðnó höfum sýnt mjög mikinn samningsvilja en alltaf komið að lokuðum dyrum. Hér eru gríðarleg- ir fjárhagslegir hagsmunir í húfi og ekki síður listrænir. Ég skil ekki hvaða Iistamannshjarta er tilbúið að fóma listaverkinu sínu með því að henda út tveimur aðalleikkonun- um,“ segir Magnús Geir. Eftir að hafa ítrekað komið að lokuðum dyrum hjá leikhússtjóran- um kveðst hann hafa vísað málinu Morgunblaðið/Jón Svavarsson Úr Kysstu mig Kata í Borgarleikhúsinu. Ekkí villast Fjölbreytt úrval korta í kortadeild Eymundsson LANDMÆUNGAR . ÍSLANDS Morgunblaðið/Sverrir Úr Stjörnum á morgun- himni í Iðnó. til leikhúsráðs. „Leikhúsráð fól Þór- hildi að finna lausn á málinu en hún virðist hins vegar enn hunsa tilmæli leikhúsráðs,“ segir hann. „Ekki mitt mál að þær gæti sín ekki“ Málið horfir öðru vísi við Þórhildi Þorleifsdóttur, sem kveðst ætla að halda því til streitu að hafa sýningu á Kysstu mig Kata á sunnudags- kvöldið. Þegar hún er spurð hvort það breyti engu að þær Jóhanna Vigdís og Edda Björg séu með for- gangssamning hjá Iðnó, segir hún: „Þær eru Iíka með þannig samn- ing hjá okkur. Þó að þær séu laus- ráðnar eru þær báðar búnar að þiggja laun hér frá því æfingar hóf- ust í janúar, samkvæmt samningum Leikfélags Reykjavíkur, og það er auðvitað alveg afdráttarlaust. Þó að það sé ekki orðað þannig hjá okkur að LR hafi forgang þá stendur að sýningar megi vera þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga, föstu- daga, laugardaga og sunnudaga." Er Þórhildur með öðrum orðum að segja að leikkonumar tvær hafi samið af sér? „Já, því miður gerðu þær það. En ég er ekki að halda því fram að það hafi verið ásetningur þeirra að skrifa undir tvo samninga sem stangast á, heldur að það hafi verið gert að vanhugsuðu máli,“ segir hún. „Þetta hefur aldrei kom- ið upp áður og maður hefur ekki einu sinni ímyndunarafl til að láta sér detta þetta í hug - að þær taki þegjandi og hljóðalaust hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur með samning í gildi annars staðar," heldur Þórhildur áfram. Aðspurð hvort hún hyggist æfa upp tvær nýjar leikkonur í hlutverk þeirra Jóhönnu Vigdísar Ofj Eddu Bjargar segir Þórhildur: „Eg verð auðvitað að grípa til einhverra ráð- stafana - en það næst ekki fyrir sunnudaginn." Uppselt eða ekki uppselt? Hún segir það ekki rétt, sem Magnús Geir heldur fram, að löngu sé uppselt á sýninguna í Iðnó nk. sunnudagskvöld. „Hann er búinn að hafa fjölda tækifæra til að bakka með þessa sýningu, sem var bókstaflega ekkert selt á. Ég lét kannaþað mál. Ég fékk fyrirtæki úti í bæ til að leita eftir tilboði á þessa sýningu, og þá var hægt að fá 75 miða. Þetta var fyrir viku,“ segir Þórhildur, sem segir hins vegar löngu uppselt á sýninguna á Kysstu mig Kata á sunnudagskvöld. Hún segist hafa boðið Magnúsi Geir og félögum hjá Leikfélagi ís- lands að hliðra til „þannig að við færðum okkar sýningu aftar og þeir sína framar - en það þiggur hann ekki. Enginn, hvorki hann né aðrir, deilir um forgangsrétt Leikfélags Reykjavíkur að Sigrúnu Eddu, svo eftir stendur það að hann getur ekki haft sýningu á Stjömum á morgunhimni án hennar. Og ég get náttúrlega hvenær sem er upphafið þann samning og bannað henni að leika hjá Leikfélagi Islands - ef ég kærði mig um að fara út í það. Vegnaþess að leikarar hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur mega ekki leika annars staðar nema með leyfi Ieik- hússtjóra. En ef Leikfélag Islands ímyndar sér, eins og það hefur látið í veðri vaka, að ég sé að þessu til þess að selja fótinn fyrir þeirra starfsemi, þá vil ég bara benda á að tvær fast- ráðnar ieikkonur hjá Leikfélagi Reykjavíkur hafa fengið leyfi til að starfa hjá Leikfélagi Islands, auk þess sem flestar sýningar Leikfé- lags Islands era reknar að stærstum hluta til með leikurum frá annað- hvort Þjóðlcikhúsinu eða Leikfélagi Reykjavíkur. „Ég sé í blöðunum í dag að Magn- ús Geir heldur áfram, nú er hann farinn að auglýsa sýningar á kvöld- um sem við erum fyrir löngu búin að setja á sýningarskrá hjá okkur og uppselt er á,“ segir Þórhildur. Seint í gærkvöldi sagði Þórhildur að hún gerði sér vonir um að lausn fyndist á þessu dcilumáli í dag. Fiskvinnsla í fullum gangi á Seyðisfirði Seyðisfírði. Morgunblaðið. MIKIL og stöðug vinna hefur verið í fiskvinnsluhúsi Skag- strendings/Dvergasteins á Seyðisílrði síðan á fimmtudag- inn síðastliðinn. Eins og kom fram í fréttum Morgunblaðsins um mánaðamótin síðustu hafði öllu starfsfólki í sjálfri vinnsl- unni verið sagt upp kauptrygg- ingu vegna hráefnisskorts sem varð þegar togarinn Gullver varð fyrir alvarlegri bilun. Stjórnendum fyrirtækis- ins tókst að úvega hráefni á mörkuðum nú fyrir helgi. Lok- ið hefur verið við viðgerð á Gullveri og kom hann til hafn- ar í gær með 118 tonn af fiski, þorski, ufsa, ýsu og karfa. Af þeim afla fara um 75 tonn til vinnslu hjá Skagstrendingi/ Dvergasteini þannig að unnið er í húsinu frá klukkan sex að morgni til klukkan 17. Utigangs- lömb í Hreppum Syðra-Langholti. Morgunblaðið. ÞRJÚ lömb fundust á laugar- daginn í landi Skáldabúða í Gnúpverjahreppi og voru ótrúlega vel á sig komin eftir þennan harða og grimma vet- ur. Trúlega hafa lömbin haldið sig á barði eða landi þar sem snjó hefur ekki fest lengi. Tvö þeirra voru frá Laxárdal en eitt frá Stóru-Háeyri á Eyr- arbakka. Einnig fundust hræ af tveimur lömbum sem trú- lega hafa lent undir fönn. Safnahúsið verði Gróf- arhúsið BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt tillögu byggingarnefnd- ar Tryggvagötu 15 um að húsið, sem mun hýsa aðalbækistöð Borgarbókasafns, Borgar- skjalasafns og Ljósmyndasafn Reykjavíkur, heiti Grófarhúsið. I tillögunni segir að með þessu heiti sé haldið til haga örnefninu Gróf en víkin við bryggjuna, þar sem húsið stendur, hafi borið það nafn. Með því að gefa húsinu þetta nafn fáist einnig samhljómur við heiti næsta húss, Hafnar- hússins, sem hýsi aðra menn- ingarstofnun. Athugasemdir við hvala- tegundir á lista CITES Evniundsson Kringlunni • sími: 533 1130 • fax: 533 1131 EIÐUR Guðnason sendiherra flutti í gær ávarp fyrir íslands hönd á 11. þingi aðildarríkja CITES, samnings- ins um alþjóðlega verslun með dýr og plöntur í útrýmingarhættu, sem nú fer fram í Nairobi. Island gerðist aðili að samningnum í byrjun apríl og tek- ur nú í fyrsta sinn þátt í þingi aðildar- ríkjanna sem fullgödur aðili. Eiður sagði í ávarpinu að íslend- ingar gerðu athugasemdir við ýmsar tegundir sjávarspendýra innan lög- sögu landsins, sem eru skráðar í við- auka við samninginn sem tegundir í útrýmingarhættu. Viðurkenndar vís- indalegar rannsóknir hefðu hins veg- ar leitt í ljós að umræddar tegundir væru ekki í neinni hættu. Fjöldi hvalastofna er á lista í við- auka við samninginn þai' sem taldar eru upp tegundir í útrýmingarhættu, þar á meðal langreyður, sandreyður og hrefna sem íslendingar veiddu áð- ur en hvalveiðum var hætt fyrir tæp- um áratug. Norðmenn hafa á undan- fömum þingum CITES lagt til að tveir hrefnustofnar í Norður-Atlan- tshafi verði teknir af listanum og sett- ir á annan lista yfir dýr sem heimilt er að versla með afurðir af. Tillaga Norðmanna var samþykkt með 57 at- kvæðum gegn 51 á síðasta fundi en náði ekki fram að ganga þar sem % hluta atkvæða þarf. Þá vilja Japanir að hrefnustofnar í Suðurhöfum verði teknir af listanum. Reuters-fréttastofan hefur eftir Willem Wijnstekers, framkvæmda- stjóra CITES, að ólíklegt sé að hval- veiðiþjóðimar tvær fái vilja sínum framgengt í Nairobi. Þær hafi snúið sér til CITES þar sem þeim hafi mis- tekist að fá Alþjóðahvalveiðiráðið til að fallast á veiðar á hrefnu. CITES verði hins vegar að taka ákvarðanir sem samræmist ákvörðunum hval- veiðiráðsins „Þar sem [þjóðimarj hafa ekki náð markmiðum sínum inn- an Alþjóðahvalveiðiráðsins eru þær nú að reyna að beita CITES til þess. En CITES getur ekki tekið fyrsta skrefið varðandi hvali,“ er haft eftir Wijnstekers. Eiðm- áréttaði í ávarpi sínu að vís- indalegar ástæður verði að liggja að baki ákvörðunum um að setja ein- stakar dýi'a- og plöntutegundir í við- auka samningsins. Jafnframt verði lögð áhersla á að starf samningsins beinist að þeim tegundum dýra og plantna sem vísindalegar niðurstöður sýni að séu í útrýmingarhættu og sem sé ógnað af alþjóðlegum viðskiptum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.