Morgunblaðið - 12.04.2000, Qupperneq 64
Drögum næst
25. apríl
>
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Heimavörn
SECURITAS
Sími: 580 7000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Reynt til þraut-
ar að afstýra
verkföllum
SÁTTAFUNDIR í deilum atvinnu-
rekenda við flugvirkja annars vegar
og landsbyggðarfélög Verkamanna-
samband Islands og Landssamband
iðnverkafólks hins vegar stóðu fram
á nótt fyrir luktum dyrum í húsa-
kynnum ríkissáttasemjara. Forystu-
menn beggja vegna borðsins sögðu í
samtali við Morgunblaðið í gærkvöld
að reynt væri til þrautar að ná sam-
komulagi og forystumaður innan
VMSÍ taldi nokkrar líkur á því um
miðnætti að takast mætti að leysa
®**fieiluna áður en til verkfalls kæmi.
Fyrr um kvöldið hafði Heiyar Gunn-
arsson, varaforseti VMSI, sagt að
hann væri orðinn svartsýnni á samn-
inga en hann var við upphaf fundar í
morgun.
„Það er ljóst að það er að draga að
niðurstöðu og samninganefndimar
leggja mikið á sig og liggja yfir því að
ná saman áður en til verkfalls kem-
ur,“ sagði forystumaður innan raða
atvinnurekenda í gærkvöldi.
„I hvorugt málið er komin niður-
4,1*___________________________
Kolmunni inn-
an landhelgi
TOGSKIPIÐ Beitir NK landaði í
Neskaupstað í gær fyrsta kolmunn-
anum sem veiðist innan íslensku lög-
sögunnar á þessu ári en skipið fékk
aflann, um 500 tonn, í svokölluðum
Rósagarði, djúpt austur af landinu.
Kolmunni fæst vanalega ekki inn-
an íslensku lögsögunnar svo
snemma árs og hafa önnur íslensk
kolmunnaskip þannig verið að veið-
um djúpt suður af Færeyjum síð-
ustu vikur. Þar hefur heldur dregið
"’ur afla að undanförnu.
■ Fékk kolmunna/Bl
staða en ég met stöðuna þannig að
þessi vinna eigi enn möguleika. Við
erum að vinna í þessu eins og við get-
um og það verður að koma í ljós hver
niðurstaðan verður,“ sagði Ari
Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, og vísaði þá til beggja
deilnanna.
Um flugvirkjadeiluna sagði hann
að viðræður stæðu sleitulaust en
kvaðst ekki vilja ræða stöðuna í smá-
atriðum. Emil Eyjólfsson, formaður
samninganefndar flugvirkja, gaf ekki
kost á samtali í gærkvöld.
Hervar Gunnarsson, varaforseti
VMSÍ, sagði í samtali um klukkan
átta í gærkvöldi að deilan væri á úr-
slitastigi og viðræður snerust um
launaliði, upphæðir greiðslna at-
vinnurekenda vegna slysatrygginga
og gildistíma samnings.
„Ég verð að viðurkenna að á þess-
ari stundu er ég heldur svartsýnni en
þegar ég mætti til fundar í morgun,"
sagði Hervar, aðspurður hvort hann
væri svartsýnni eða bjartsýnni en við
upphaf fundar í gærmorgun.
Eindreginn vilji,
segir sáttasemjari
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöld að haldið yrði áfram með
fundi í báðum deilunum fram á nótt.
Hann sagðist aðspurður ekki telja
ástæðu til að huga að miðlunartillögu
og sagði að menn stunduðu sáttatil-
raunir og miðlun án slíkrar tillögu.
„Með því að halda áfram fundum er í
alvöru verið að reyna að ná þessu
saman, hvort sem það gengur eða
ekki. En það er eindreginn vilji allra
aðila að vinna að málinu,“ sagði hann.
Um mat á stöðunni sagði Þórir að
fundum yrði lengi haldið áfram og
hann vildi ekki meta líkur á að saman
næðist. „Húsinu hefur verið lokað og
menn verða þar inni og fara ekki út í
FBA selur 625 þusund
hluti í deCODE
HLUTHÖFUM Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins verður boðið að kaupa
eignarhlut bankans í deCODE genet-
ics Inc, móðurfélagi íslenskrar erfða-
greiningar, þegar bréf félagsins
verða skráð á Nasdaq.
Um 625 þúsund hluti er að ræða og
-^er bókfært verð hlutabréfa FBA í
deCODE nú um 15 dollarar hver
hlutur en söluverð verður það útboðs-
gengi sem boðið verður þegar skrán-
ing fer fram á Nasdaq. Líklegt er því
að umtalsverður söluhagnaður
myndist þegar bankinn selur bréf sín.
Að sögn Bjarna Armannssonar,
forstjóra FBA, er ekki upplýst
hversu miklu FBA heldur eftir í
deCODE af samkeppnisástæðum.
FBA keypti ásamt fleiri innlendum
aðilum helmingshlut upphaflegra
áhættufjárfesta í deCODE síðastliðið
sumar. Var tilgangur kaupanna að
færa umtalsverðan hlut bréfanna í
hendur íslendinga.
■ Stefnir i/25
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT
Maestro
Morgunblaðið/Jim Smart
Starfsfólk söluskrifstofa og fjarsölu Flugleiða átti annríkt í gær. Fjöldi
farþega vildi breytingar á farseðlum vegna yfírvofandi verkfalls.
bráð,“ sagði ríkissáttasemjari á ell-
efta tímanum.
Fallið frá skilmálum farseðla
Takist ekki samningar hefst verk-
fall flestra aðildarfélaga VMSÍ og
Landssambands iðnverkafólks á mið-
nætti í kvöld og verkfall flugvirkja í
millilandaflugi Flugleiða fer að hafa
áhrif um hádegi á morgun. Vegna yf-
irvofandi verkfalls hafa Flugleiðir
fallið frá skilmálum í farseðlum um
ákveðna ferðadaga og bent handhöf-
um farseðla á að hafa samband við
söluskrifstofur og fjarsölu félagsins
til að fá upplýsingar og breyta far-
miðum ef unnt er. Einar Sigurðsson,
framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi að töluvert hefði verið um
fyrirspumir til félagsins frá farþeg-
um. Frá og með deginum í dag og þar
til deilan leysist verður fjarsala fé-
lagsins opin allan sólarhringinn.
■ Verulegar truf lanir/4
Hannes
Hlífar einn
í efsta sæti
HANNES Hlífar Stefánsson
gerði sér lítið fyrir og vann ör-
uggan sigur á Ivan Sokolov í
sjöundu umferð Opna Reykja-
víkurskákmótsins. Á sama tíma
gerðu þeir Nigel Short og
Victor Korchnoi jafntefli, en
þessir þrír skákmenn voru efst-
ir og jafnir eftir sjöttu umferð í
fyrradag.
Hannes Hlífar hefur því tek-
ið forystuna á mótinu með 6
vinninga eftir 7 umferðir. í átt-
undu og næstsíðustu umferð
mótsins mætir Hannes síðan
Korchnoi, en sú umferð verður
tefld í dag.
í 2.-4. sæti á mótinu eru
Short, Korchnoi og hinn 14 ára
kínverski stórmeistari, Xi-
angzhi Bu, með 514 vinning, en
Bu sigraði Larry Christiansen í
gær. Timman og Firmian gerðu
jafntefli í gær, en þeir eru í 5-
10. sæti með 5 vinninga ásamt
Ehlvest, sem vann McShane,
og þeim Wojtkiewicz og Miles,
sem gerðu jafntefli, og Gris-
chuk, sem vann Martinez.
■ Skák/54
Morgunblaðið/Kristján
Borgarafundur um fíkniefnanotkun ungmenna, sem haldinn var í gærkvöld á Akureyri, var vel sóttur.
Afengisdrykkja og fíkniefnanotkun ungmenna
til umræðu á borgarafundi á Akureyri
Sterkari fíkniefni
ráðandi á markaðnum
Á FJÖGURRA ára tímabili, frá 1996
til 1999, hafa 385 manns verið hand-
teknir og kærðir vegna fíkniefnamála
á Akureyri en handtökum hefur fjölg-
að mjög á tímabilinu. Þetta kom fram
í máli Daníels Snorrasonar, lögreglu-
fulltrúa á rannsóknardeild lög-
reglunnar á Akureyri, á velsóttum
borgarafundi sem framhaldsskólam-
ir á Akureyri efndu til i Gryfjunni, sal
Verkmenntaskólans á Ákureyri, í
gærkvöld.
Miklar umræður hafa verið á Akur-
eyri síðustu vikur um áfengisdrykkju
og fíkniefnanotkun ungmenna. Fund-
urinn markaði upphaf að samstilltu
átaki framhaldsskólanna, ýmissa
stofnana, fyrirtækja og fleiri til að
stemma stigu við vaxandi fíkniefna-
neyslu.
I máli Daníels kom fram að árið
1996 hafi 59 verið handteknir og
kærðir vegna fíkniefnamála; þeir
voru 56 ári síðar, 90 árið 1998 en á síð-
asta ári varð mikil aukning þegar 180
manns voru handteknir og kærðir á
Akureyri vegna fíkniefnamála.
Daníel sagði að hald væri lagt á æ
meira magn fíkniefna og notkun
harðari efna færi ört vaxandi. Fyrir
nokkrum árum hefði eingöngu verið
hass á markaðnum en nú væri það
eingöngu yngsti aldurshópurinn sem
notaði það. Sterkari efni væru alls-
ráðandi á markaðnum nú.
Sólveig Pétursdóttir dómsmálai'áð-
herra ávarpaði fundinn og kom fram í
máli hennar að á næstunni verður
ráðið í tímabundna stöðu forvarna-
fulltrúa og mun hann hafa aðsetur hjá
embætti sýslumannsins á Akureyri.
Hlutverk hans verður að auka og efla
forvarnastarf. Þessu starfi er komið á
fót að frumkvæði Akureyrarkirkju og
Knattspymufélags Akureyrar, KA.
Ríkisstjómin hefur samþykkt að
leggja fram hálfa milljón króna vegna
þessa verkefnis og þá munu dóms-
málaráðuneyti og fjármálaráðuneyti
einnig leggja þessu framtaki lið með
fjárframlagi.