Morgunblaðið - 12.04.2000, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.04.2000, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Stnalahundurinn Kátur og eigandi hans, Ragnar Jóhannsson á Kverná í Grundarfirði ásamt Ieið- beinendunum Kristni Jóhanns- syni, Arnari Þór Stefánssyni og Auði Yngvadóttur. Morgunblaðið/Daníel Hansen Smalahundar leita að kindum í fönn Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Sr. Sigurður Rúnar Ragn- arsson við atlaristöfluna sem talin er vera frá því um 1700. Eyja- og Miklaholtshreppi.- Átta smalahundar voru á dögunum þjálfaðir í að leita að kindum í fónn. Þjálfunin var haldin á vegum Snæ- fellsness- og Hnappadalsdeildar Smalahundafélags Vesturlands. Síðasta laugardagsmorgun mættu átta bændur með smala- hunda sína að Hofsstöðum í Eyja- og Miklaholtshreppi og nutu að- stoðar leiðbeinenda frá Björgunar- hundasveit fslands. Eru þeir með vel þjálfaða hunda til að leita að fólki í fónn og með mikla reynslu í að þjálfa hunda í því. Þeir voru nú að miðla af sinni reynslu og heim- færa hana upp á smalahunda að leita að kindum í fönn. Að sögn Arnars Þórs Stefánsson- ar, formanns Björgunarhundasveit- ar Islands, mun þetta vera í fyrsta skipti sem svona námskeið er hald- ið hér á landi. Eftir reynslu helgar- innar sýnist honum þetta gefast vel, hundamir hafi strax sýnt mikinn áhuga og nú þurfi bara að þjálfa þá áfram. Hundamir em þjálfaðir þannig að kindur, í sérstökum búr- um, eru grafnar í fönn og eiga hundarair síðan að finna þær og grafa upp. Sumir hundanna fara strax í að grafa þegar þeir finna kind en aðrir leggjast á staðinn því þeir vita að þeir mega ekki bíta kindina. Nýlega var stofnuð Snæfellsness- og Hnappadalsdeild Smalahundafé- lags Vesturlands. Formaður henn- ar er Eggert Kjartansson á Hofs- stöðum og sagði hann að mikill áhugi væri á notkun smalahunda í héraðinu. Fjarfundur lög- reglumanna um Schengen Stykkishólmi - Hópur lögreglu- manna mætti í Grunnskólann í Grundarfirði þriðjudaginn 4. aprfl sl. Þar voru mættir allir lögreglu- menn á Snæfellsnesi, lögreglustjór- inn á Snæfellsnesi, staðgengill hans og fulltrúi. Þeir voru ekki kallaðir til að stilla til friðar í skólanum, heldur var erindi þeirra að setjast á skóla- bekk. Þar var að hefjast fjarfundur á vegum Lögregluskóla rfldsins sem fjallaði um Schengen-sáttmálann og helstu atriði samkomulagsins sem snúa að löggæslu. Fundinum var sjónvarpað með fjarfundarbúnaði á nokkra staði utan höfuðborgarsvæð- isins. Með þessari nýju tækni spar- ast tími, fé og fyrirhöfn því þeir sem búa úti á landi þurfa ekki að koma akandi eða fljúgandi til Reykjavíkur til að sækja fræðslu, heldur geta fengið hana í sinni heimabyggð. A fundinum voru kynnt atriði sem löggæslustéttir verða að kunna skil á til jafns við kollega í öðrum lönd- um á Schengen-svæðinu. Fyrirles- arar voru þeir Jóhann Benedikts- son, lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli, Jóhann Jó- hannsson hjá Utlendingaeftirlitinu og Smári Sigurðsson, deildarstjóri alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra. Að erindum loknum hófust umræð- ur og fyrirspumir þátttakenda svo voru staddir samtímis á 7 stöðum á landinu. Að sögn Ólafs Kr. Ólafs- sonar tókst þessi fyrsti fjarfundur mjög vel og sagði hann að þessi tækni mundi styrkja mjög íbúa landsbyggðarinnar til að sækja sér menntun. Hann vonast til að Lög- regluskóli ríkisins haldi áfram á þessari braut og bjóði löggæslu- mönnum á landsbyggðinni upp á endurmenntun og fróðleik varðandi störf þeirra. Morgunblaðið/Gunnlaugur Amason Þessi fríði hópur löggæslumanna á Snæfellsnesi sótti fræðslufund um Schengen sáttmálann. Fyrirlestramir voru í Reykjavík, en þátttakend- ur staddir á nokkrum stöðum úti á landi. Þetta er hægt þar sem fundin- um var sjónvarpað með fjarfundarbúnaði. Fjölmenni á kristni- tökuhátíð í Nes- kaupstað Neskaupstað - Fjölmenni sótti kristnitökuhátíðina í Neskaupstað sem haldin var helgina 1. og 2. apríl. Hátíðin hófst með sunnu- dagaskóla sem um hundrað manns, bæði börn og fullorðn- ir, sótti. Húsfyllir var á hátíð- arguðsþjónustu í Norðfjarð- arkirkju þar sem sr. Svavar Stefánsson, fyrrverandi sókn- arprestur Norðfirðinga, predikaði. Að lokinni hátíðar- guðsþjónustu var haldið í Eg- ilsbúð þar sem gestir þáðu kaffiveitingar og nutu meðal annars tónlistar sem nemend- ur í Tónlistarskólanum fluttu. Hátíðin tókst mjög vel Að sögn sr. Sigurðar Rún- ars Ragnarssonar sóknar- prests tókst hátíðin mjög vel og var vel sótt. Þá má geta þess að á meðal margra góðra gjafa sem kirkjunni hafa bor- ist nýlega er altaristafla sem var í kirkjunni á meðan hún stóð á Skorrastað. Það voru hjónin Úlfur Ragnarsson og Asta Guðvarðardóttir í Reykjavík sem gáfu kirkjunni altaristöfluna en hún er talin vera frá því um árið 1700. ST/PÍ iwiiilii VI JJ Ljósmynd/Gunnar Vigfússon Forsetinn afhenti ungmennunum tíu hvatningarverðlaun á samkomu í íþróttahúsinu á Hellu, í lok opinberrar heimsóknar í Rangárvallarsýslu. Ungmenni í Rangárvallasýslu fá hvatningarverðlaun forseta Islands í LOK opinberrar heimsóknar sinnar í Rangár- vallasýslu afhenti Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti íslands, 10 ungmennum úr sýslunni viður- kenninguna „Hvatning forseta Islands til ungra íslendinga11. Forsetinn afhenti viðurkenninguna á hátíðarsamkomu í íþróttahúsinu á Hellu á föstu- dagskvöld. Verðlaunin hlutu: Anna Pála Sverrisdóttir, Skógum, Austur-Eyjafjöllum, nemandi í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Hún hefur sýnt góðan árangur í námi og var meðal annars í liði MH sem keppti til úrslita í Gettu betur. Hún hefur einnig fengið margvíslegar viðurkenningar fyrir smásög- ur og ljóð. Ástþór Guðfinnsson, Hvolsvelli, sem hefur náð góðum árangri í námi þrátt fyrir að hafa átt við vanheilsu að stríða. Hann þykir hafa sýnt mikla einbeitni, bjartsýni og kjark við erfiðar aðstæður og reynst öðrum góður félagi. Björgvin Reynir Helgason, Lambhaga, Rangár- völlum, sem hefur sýnt afbragðs árangur í skák og er skólameistari, kjördæmameistari og sýslu- meistari, auk þess sem hann þykir bæði góður og háttvís nemandi. Björk Grétarsdóttir, Hellu, sem hefur sýnt góð- an árangur í námi og íþróttum. Hún hefur einnig stundað tónlistamám, verið virk í leikfélaginu og þykir sýna háttvísi í allri framgöngu. Elísabet Pariarca, Sunnuhvoli, Hvolhreppi, sem hefur unnið marga sigra í frjálsum íþróttum og glímu og er nú Islandsmeistari í glímu í sínum ald- ursflokki. Hún stundar einnig nám í fiðluleik og tekur virkan þátt í félagslífi skólans. Guðni Rúnar Logason, Neðri-Dal, Vestur-Eyja- fjallahreppi. Hann hefur sýnt einbeitni og stað- festu þrátt fyrir mikil veikindi. Hann gekk í gegn- um mikla hjartaaðgerð en tekur nú fullan þátt í íþróttum með félögum sínum. Helga Sæmundsdóttir, Bjólu, Djúpárhreppi, sem þykir háttvís og prúður nemandi, æfir íþróttir af kappi og stundar nám í hljóðfæraleik. Hún hef- ur náð góðum árangri í námi og þykir hafa mikla leikhæfileika sem hún hefur meðal annars sýnt á skólaskemmtun. Katla Gísladóttir, Leirubakka, Landi, sem hef- ur sýnt góðan árangur í námi og tónlistarnámi. Hún hefur reynst félögum sínum hjálpsöm og hef- ur einnig náð góðum árangri í hestamennsku. Ragnhildur Sveinbjamardóttir, Stórumörk, Vestur-Eyjafjöllum, sem hefur náð afburða árangri í íþróttum. Hún þykir fjölhæf íþrótta- manneskja og hefur tekið virkan þátt í því að byggja upp íþrótta- og tómstundastarf í heima- byggð sinni. Hún hefur einnig tekið þátt í kórstarfi og reynst skipulögð og traust námsmanneskja. Sigþór Ámason, Hvolsvelli, formaður nemenda- ráðs Hvolsskóla. Hann hefur sýnt forystuhæfi- leika í félagsmálum auk þess sem hann þykir kappsfullur námsmaður. Hann tekur einnig virk- an þátt í íþróttum og stundar tónlistarnám.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.