Morgunblaðið - 12.04.2000, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 25
VIÐSKIPTI
Stefnir í mjög góða
afkomu hjá FBA
FJÁRFESTINGARBANKI at-
vinnulífsins sendi í gær frá sér til-
kynningu til Verðbréfaþings Islands
þar sem fram kemur að það stefni í
umtalsvert betri afkomu FBA á 1.
ársfjórðungi en áætlanir gerðu ráð
fyrir. Óendurskoðað árshlutaupp-
gjör FBA fyrir fyrstu þrjá mánuði
ársins 2000 verður birt 2. maí næst-
komandi.
í rekstraráætlun bankans fyrir
yfirstandandi rekstrarár var gert
ráð fyrir að heildarhagnaður ársins
fyrir skatta yrði um 1.763 milljónir
króna. í tlkynningunni segir að
rekstur bankans á fyrsta ársfjórð-
ungi hafi gengið umtalsvert betur
en gert var ráð fyrir í rekstaráætl-
uninni og útlit sé fyrir að afkomutöl-
ur fyrsta ársfjórðungs muni endur-
spegla það mjög vel. Bent er á að
tekjur félagsins séu háðar ytra um-
hverfi og sveiflur í ytri skilyrðum
geti valdið snöggum breytingum á
afkomu bankans, bæði jákvæðum og
neikvæðum.
í samtali við Morgunblaðið segir
Bjarni Ármannsson, forstjóri FBA,
að útlit fyrir aukinn hagnað sé hag-
felldu ytra umhverfi að þakka, auk
þess uppbyggingarstarfs sem staðið
hefur yfir innan FBA undanfarið og
sé nú að skila sér í nýjum afurðum
og meiri tekjumyndun.
Hluthöfum bodin bréf bankans
i deCode genetics
Síðastliðið sumar keypti FBA
ásamt fleiri innlendum aðilum helm-
ingshlut upphaflegra áhættufjár-
festa í deCode genetics Inc, móður-
félagi íslenskrar erfðagreiningar.
Var tilgangur kaupanna að færa
umtalsverðan hlut bréfanna í hend-
ur íslendinga, en einnig átti bank-
inn fyrir eignarhlut í félaginu. Á
fundi stjórnar FBA 3. febrúar sl.
Hluthöfum verður
boðið að kaupa bréf
FBAí deCode
Genetics Inc. í
tengslum við skrán-
ingu á Nasdaq
var ákveðið að stefna að því að selja
eignarhlut FBA í deCode, og í af-
komuviðvörun bankans kemur fram
að salan muni fara þannig fram að
hluthöfum FBA gefist kostur á að
kaupa hlutabréf bankans í félaginu.
Hluthöfum FBA mun standa til
boða að kaupa hlutabréfin í sam-
ræmi við eignarhlut sinn í bankan-
um, samhliða skráningu hlutabréfa
deCode á Nasdaq og er þá bankinn
laus við markaðsáhættu sína af
bréfunum.
Bjarni Ármannsson, forstjóri
FBÁ, segir í samtali við Morgun-
blaðið að bankinn sé ekki á neinn
hátt að draga sig út úr áhættustar-
fsemi með þessari ákvörðun og
ákvörðunin beri ekki vott um að
FBA hafi misst trúna á deCode.
„Það er hlutverk fjárfestingarbanka
að kaupa og selja verðbréf. Við kom-
um inn í félög í ákveðnum tilgangi
og förum út úr þeim samhliða skrán-
ingu ámarkað," segir Bjarni. „Það
má segja að verið sé að ljúka ferlinu
núna með því að koma 625.000 hlut-
um í deCode í dreifða eign hjá hlut-
höfum FBA.“ Að sögn Bjarna er
ekki upplýst hversu miklu FBA
heldur eftir í deCode, af samkeppn-
isástæðum. Bjarni á von á því að
hluthafar taki tilboðinu vel, enda sé
um góðan fjárfestingarkost að ræða.
Bókfært verð hlutabréfa bankans
í deCode er nú um $15 hver hlutur,
en söluverð verður það útboðsgengi
sem boðið verður þegar skráning
fer fram á Nasdaq. Líklegt er því að
umtalsverður söluhagnaður mynd-
ist þegar bankinn selur bréf sín, en
um er að ræða 625.000 hluti í
deCode genetics Inc. Fyrir hverjar
10.240 krónur sem hluthafi á að
nafnverði í FBA, býðst honum að
kaupa einn hlut af hlutabréfum í
deCode. Þeim sem eiga minna en
10.240 krónur að nafnverði í FBA
mun bjóðast að kaupa einn hlut. Við
söluna verður miðað við hluthafa-
skrá bankans eins og hún var í dags-
lok 10. apríl síðastliðins.
Starfsmönnum bankans einnig
boðinn eignarhiutur
Verði þátttaka hluthafa FBA al-
menn gæti hluthöfum í deCode
fjölgað um rúmlega fjögur þúsund,
og samhliða sölu til hluthafa verður
starfsmönnum FBA einnig boðið að
kaupa eignarhlut í deCode. Að sögn
Bjarna er unnið að útfærslu þeirrar
sölu.
Tilboðið um sölu hlutabréfanna er
með fyrirvara um að bankaráð FBA
telji útboðsverð hlutabréfa deCode
samhliða skráningu á Nasdaq vera
viðunandi. Hluthafar munu fá send-
ar nánari upplýsingar um tilboð um
kaup á hlutabréfum í deCode og til-
boðseyðublöð samhliða greiðslu
arðs, en stefnt er að greiðslu arðs
undir lok aprílmánaðar.
Loks kemur fram í afkomuviðvör-
un FBA að bankinn hafi selt eignar-
hlut sinn í fasteigninni að Ármúla
13a, sem verið hafa höfuðstöðvar
bankans. Hagnaður af sölu fasteign-
arinnar er um 77 milljónir króna og
tekjufærist á öðrum fjórðungi þessa
árs. Að sögn Bjarna er afhendingar-
tíminn rúmur. Stefnt er að því að
starfsemi Islandsbanka-FBA verði
á Kirkjusandi í framtíðinni.
40% seld í Króla verkfræðistofu
TALENTA-Hátækni, dótturfélag
FBA, og Landssími íslands hafa
keypt samtals 40% hlutabréfa í upp-
lýsingatæknifyrirtækinu Króla
verkfræðistofu ehf., í kjölfar hluta-
fjáraukningar í félaginu. Meðal ann-
arra helstu hluthafa eru stofnandi fé-
lagsins, Kristján Óli Hjaltason,
Gunnar Ólafsson sölustjóri og Sig-
urður Hjalti Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri.
í fréttatilkynningu kemur fram’að
Króli verkfræðistofa starfar við upp-
lýsingatækni með áherslu á lausnir
íyrir fyrirtæki sem þurfa að fram-
lengja upplýsingakerfi sín þangað
sem verkefnin kreíjast. Félagið er
leiðandi á íslenskum markaði á sviði
handtölvutækni, þráðlausra net-
kerfa, strikamerkjatækni og teng-
ingar vörustjórnunar og upplýsinga-
kerfa. Nokkrir af helstu
viðskiptavinum félagsins hafa þegar
fjárfest í aukinni tæknivæðingu á
vörudreifingu sinni, þeirra á meðal
eni Aðföng, dreifingarmiðstöð
Baugs, Pharmaco, Olís, ÁTVR og
Penninn.
Meðal annarra lausna og markaða
sem Króli verkfræðistofa vinnur að
með innlendum samstarfsaðilum eru
handtölvuvæðing eignaeftirlits og
þjónustuverkefna, sem síðar á árinu
tengjast upplýsingakerfum með
WAP, innleiðing strikamerkjatækni
hjá opinberum stofnunum, miða-
prentun og sjálfvirk álíming í fram-
leiðslu, bakvinnsla verslana, samruni
símkerfa og þráðlausra netkerfa,
tenging strikamerkjatækni við net-
verslun og sjáifvirk ski'áning í
heilsugæslu.
Meðal innlendra samstarfsaðila
eru Nýherji, Strengur, Landsteinar,
TölvuMyndir, Þróun og Ax hugbún-
aðarhús. Samstarfsaðilar um þróun
lófatölvuhugbúnaðar eru Fakta,
Strengur og Handtölvur.
Auk þess að vera dreifingaraðili
þekktra vörumerkja á sviði miða-
prentunar og álímingar er Króli
verkfræðistofa viðurkenndur söluað-
ili Symbol Technologies, Inc. á Is-
landi. Symbol er leiðandi framleið-
andi strikamerkjalesara og
þráðlausra og net-tengdra hand-
tölvulausna um allan heim.
v
Líttu
befur út
í dag er kynning á Nupo-
$ létt súpum í Lyf & heilsu
Domus Medica og
Hraunbergi.
20% afsiáttur af
Nupo-létt vörumíöllum
i apótekum Lyf & heilsu.
Lyf&heilsa
Austurver • Domus Medica • Kringlan • Mjódd • Fjarðarkaup • Glassibær • Háteigsvegur • Hraunberg
Kringlan 3. hæð • Methagi • Hveragerði • Kjami - Seifossi • Hafnarstræti - Akireyri • Hrisáurckjr - Akureyri
QUELLE. FERÐAFELAGAR
Kr. 7.990, ” (einnig seldar sér)
3 Trolly-töskur. Dráttarhandf. útdregib.
Mörg vönduö hólf. Vandaöar og sterkar
Kr. 6.990, - (einnig seldar sér) 3 töskur saman:
Vandaöar og sterkar. Dráttarlykkja. Styrkt horn. Mikiö af
aukahólfum. Á hjólum. Axlataska meö organizer hólfi.
Kr. 1.090,-
Falleg handtaska, létt og
þœgileg meö góöum hólfum
Kr. 890,-
SHOPPER bœjartaska sem
hefur slegiö í gegn.
QUELLE
mUHDÁlffilí
mmi, S: 564 2000