Morgunblaðið - 12.04.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 29
Kristilegir demókratar í Þýzkalandi upplitsdjarfír við lok flokksþingsins
Blásið til sóknar gegn
ríkisstiórn Schröders
Berlfn. Morgunblaðið.
Angela Merkel, nýr formaður CDU, tekur við búningi fótboltaliðsins
Baycrn Miinchen úr hendi Edmund Stoiber, formanns CSU, á flokks-
þingi kristilegra demókrata í Essen í gær.
vöxtur
ÍESB
SPÁÐ er 3,4% hagvexti í
Evrópusambandsríkjunum til
jafnaðar á þessu ári og 3,1% á
næsta ári. Er það nokkru meiri
vöxtur en gert var ráð fyrir sl.
haust. Mestur verður vöxturinn
á Irlandi, 7,5%, en minnstur í
Danmörku, 2%. Verðbólga
verðui-1,8% á þessu ári og 1,7%
á því næsta. Þá er gert ráð fyrir,
að fjárlagahallinn fari úr 0,6%
til jafnaðar á síðasta ári í 0,4% á
þessu og í 0,3% 2001. Búist er
við að fjárlagahallinn verði
mestur í Austurríki, 2%, en fjár-
lagaafgangur mestur í Finn-
landi, 5%. Atvinnuleysi í
Evrópusambandinu öllu var
9,2% á síðasta ái’i, verður lík-
lega 8,5% á þessu ári og 7,9% á
því næsta.
Sektaðir fyrir
ofbeldisefni
FIMM búlgarskir fréttastjórar
og blaðamenn hafa verið sekt-
aðir og hótað brottrekstri fyrir
að sýna myndband um grimmd-
arverk í Tsjetsjníu í aðalfrétta-
tíma sjónvarpsins 3. apríl sl. Á
myndbandinu sjást tsjetsjnesk-
ir skæruliðar skera ungan,
rússneskan hermann á háls og
hálshöggva síðan. Sýndu rúss-
nesk yfirvöld fulltrúum í Evróp-
uráðinu myndbandið áður en
þeir samþykktu að svipta Rússa
atkvæðisrétti vegna Tsjetsjníu-
stríðsins. Samkvæmt búlgörsk-
um lögum má aðeins sýna mjög
ofbeldisfullt myndefni seint að
kvöldi en þetta var sýnt korteri
eftir að barnatíma lauk.
Vilja fá
greiðslu
fyrir gasið
RÚSSNESKIR og úkraínskir
embættismenn eru sammála um
að Ukraínustjórn skuldi Rússum
nima 100 milljarða ísl. kr. íyrir
gas og eru þá ótaldir tæpir sex
milljarðar í sekt íyrir greiðslu-
drátt. Er þetta erfitt mál í sam-
skiptum rílqanna enda Rússár
farnir að ókyrrast. Búist er við
að Vladímír Pútín, nýkjörinn for-
seti Rússlands, muni ganga
harðar eftir greiðslum en gert
hefúr verið. Auk þessa saka
Rússar Ukraínumenn um að
stela gasi úr leiðslunum sem
hggja um Úkraínu frá Rússlandi.
Sirkusljón
drápu dreng
FIMM ljón drápu og átu sex
ára gamlan dreng að mörgum
ásjáandi í borginni Recife í
Brazilíu sl. sunnudag. Gerðist
þetta á sýningu Vostok-sirkuss-
ins en í hléi fór maður nokkur
með son sinn að ljónabúrinu.
Eitt Ijónanna náði að krækja í
drenginn og draga hann á milli
rimlanna inn í búrið. Þar beit
það í höfuð drengsins, hristi
hann til og komu þá hin ljónin
aðvífandi. Ekki'tókst að ná líki
drengsins fyrr en eftir fjórar
klukkustundir en þá höfðu fjög-
ur ljónanna verið skotin. Brazi-
lískir embættismenn segja sirk-
usinn hafa brotið öryggisreglur
með því að leyfa fólki að fara að
ljónabúrinu, en haft er eftir
sirkusstarfsmanni, sem ekki
vildi láta nafns síns getið, að
ljónin hefðu ekki verið fóðruð
frá því sl. fimmtudag.
EFTIR að hafa endumýjað forystu-
sveit sína á flokksþingi í Essen blésu í
gær Kristilegir demóki'atar í Þýzkal-
andi til sóknar gegn ríkisstjóm jafn-
aðarmanna og græningja. Hinn ný-
kjörni ílokksleiðtogi Angela Merkel
kallaði úr ræðustólnum við lok þings-
ins til hinna tæplega 1000 viðstöddu
þingfulltrúa: „Við viljum beijast, við
eram komin aftur!“ Hvatti hún
flokkssystkin sín til að leggjast nú á
eitt til að tryggja CDU góðan árang-
ur í kosningum sem framundan em,
m.a. í Nordrhein-Westfalen.
Friedrich Merz, formaður þing-
flokks systurflokkanna CDU og CSU
á Sambandsþinginu í Berlín, sagði að
„hlífðartími" ríkisstjómarinnar væri
liðinn. Merz sagði að eftir flokksþing-
ið breyttist margt fyrir Gerhard
Schröder kanzlara. „Nú verður rætt
um kjama málanna, herra Schröder,"
sagði hann og uppskar mikið lófatak.
Sakaði Merz Schröder um vanhæfi á
sviði stefnumótunar í efnahagsmál-
um. Það yrði að „fjarlægja“ hina
„rauð-grænu“ ríkisstjóm í næstu
kosningum, eftir rúm tvö ár.
Stoiber segir CSU
styðja Merkel
Og Edmund Stoiber, formaður
CSU og forsætisráðherra Bæjara-
lands, tók í sama streng. „Við höfum
alla möguleika á að binda enda á
þetta „rauð-græna“ millispil, bara ef
við viljum,“ sagði hann.
Færeyjar
Áhrif
kvikasilf-
urs á náms-
getu barna
rannsökuð
Þórshöfn. Morgunblaðið.
BANDARÍSKA heilbrigðisstofnun-
in (NIH) gi’eiðir að stórum hluta
kostnað vegna alþjóðlegrar rann-
sóknar á áhrifum kvikasilfursmeng-
unar á námshæfni barna í Færeyj-
um.
Rannsóknin er þriðji og síðasti
hluti rannsóknarverkefnis sem hófst
árið 1986. Þá voru áhrif kvikasilfurs
á nýfædd börn könnuð en þriðji hluti
rannsóknarinnar mun kanna stöðu
sömu barna nú, fjórtán árum síðar.
Lengi hefur verið talið að kvika-
silfur, sem meðal annars er að finna
í ýmsum matvælum, hafi neikvæð
áhrif á námshæfíleika fólks. Páll
Weihe, yfirlæknir og umsjónai-mað-
ur rannsóknarverkefnisins í Fær-
eyjum, segir að rannsóknir gefi til-
efni til að ætla að jafnvel mjög lítið
magn kvikasilfurs geti haft umtals-
verð áhrif á námsgetu barna. Hann
segir að magn kvikasilfurs í blóði
barna, allt niður í hlutfallið tíu á
móti milljón, geti haft slæm áhrif á
þau.
Getur leitt til
endurskoðunar
Samkvæmt núgildandi reglum Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
(WHO) er hlutfallið 10-20 á móti
milljón talið óskaðlegt. „Ef sá rann-
sóknarhluti sem nú er að fara í gang
gefur sömu vísbendingar og fyrri
hlutar verkefnisins, mun það leiða
til þess að endurskoða þarf alþjóð-
legar reglur um magn kvikasilfurs í
m.a. matvælum," segir Weihe.
Gert er ráð fyrir að niðurstöður
rannsóknarinnar verði Ijósar á
sumri komanda.
Með tilliti til fyrirvara sem íhalds-
samir liðsmenn CSU lýstu er fyrst
kom til tals að Merkel yrði formanns-
efni CDU vakti athygli að Stoiber
lýsti því yfii' að hún gæti reitt sig á
stuðning CSU við uppbyggingar-
starfið sem framundan væri. Aðeins
með því að vera einhuga og samstiga
gætu kristilegu flokkarnir „aftur gert
hina borgaralegu miðju að sterkasta
stjórnmálaaflinu í Þýzkalandi".
Kreppan sem tækifæri
Samþykkt var á flokksþinginu
„Essen-ályktunin“, stefnumótandi
samþykkt um flokksstarfið framund-
an. Er þar einna þyngst áherzla lögð
á skatta- og menntunarmál. Um
leynireikningahneykslið segir í álykt-
uninni, að brot á lögum um stjóm-
málaflokka og gegn gmndvallamegl-
um um innanflokkslýðræði CDU hafi
„skekið flokkinn inn að beini“. Nú
verði CDU að líta á kreppuna sem
tækifæri til endurnýjunar. Með því
skapi hann sér sóknarfæri.
Ályktunin var samþykkt mót-
atkvæðalaust, en Merkel var einn að-
alhöfunda hennar. Frekari sam-
þykktir um stefnu í einstökum
málaflokkum verða teknar fyrir á
aukaflokksþingi í haust. Gunda Röst-
el, talsmaður græningja, gagnrýndi
að þrátt fyrir forystuskiptin væri
stefna hins endurnýjaða CDU enn
með öllu óljós. Guido Westerwelle,
framkvæmdastjóri Frjálsra demó-
krata, FDP, vakti einnig athygli á því
að innihaldsleg endumýjun væri ekki
enn orðin áþreifanleg hjá CDU.
Merkel lagði í lokaávai’pi sínu, áður
en þjóðsöngurinn var sunginn eins og
hefð er fyrir á CDU-þingum, áherzlu
á að þetta væri „flokksþing nýs upp-
hafs“. í því fælust tækifæri, en þó
ekki sízt það að mikil vinna væri
framundan. Fyrir næstkomandi mán-
uði gilti: „Við megum ekki unna okk-
ur hvíldar, við ætlum okkur mikið, við
verðum að beijast," meðal annars til
að ti’yggja CDÚ sigur í kosningum til
þings Nordrhein-Westfalens, hins-
fjölmennasta sambandslandanna 16,
þar sem jafnaðarmenn hafa verið
með tögl og.hagldir undanfarin 35 ár.
Ríldshref f markflokknm
Utboð miðvikudagmn 12. apríl
í dag kl. 14:00 fer fram útboð á ríkisbréfum hjá Lánasýslu ríkisins.
I boði verður eftirfarandi markflokkur :
Flokkur
Núverandi Aætlað bámark
Gjalddagi Lánstími staða* tekinna tilboða
RB03-1010/KO
lO.okt. 2003
3,58 ár
9.189
500,-
Sölufyrirkomulag:
Ríldsbréf verða seld með tilboðsfyrirkomulagi.
Öllum er heimilt að bjóða í rílásbréf að því
tilskyldu að lágmarksfjárhæð tilboðsins sé ekki
lægri en 20 miUjónir. Öðrum aðilum en
bönkum, sparisjóðum, fjárfestingalánasjóðum,
verðbréfafyrirtækjum, verðbréfasjóðum,
lífeyrissjóðum og tryggingafélögum er heimilt að
*Milljónir króna
gera tilboð í meðalverð samþykktra tilboða að
lágmarki 500.000 krónur. Öll tilboð í ríkisbréf
þurfa að hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl.
14:00 í dag, miðvikudaginn 12. apríl 2000.
Útboðsskilmálar, önnur tilboðsgögn og allar
nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu
ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma S62 4070.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfísgau 6, 2. hæð • Sírai: 562 4070 • Fax: 562 6068
www.lanasysla.is • utbod@lanasysla.is