Morgunblaðið - 12.04.2000, Síða 30

Morgunblaðið - 12.04.2000, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ AP Maður les dagblað við vegg sem er hulinn veggspjöldum sem gagnrýna Alberto Fujimori, forseta Perú. En á spjöldunum má sjá áletranir á borð við „Ólöglegur frambjóðandi", „Hungur 2000“ og „Svik 2000“. Ekki eru all- ir íbúar Perú sáttir við að Fujimori virðist ætla að fara með sigur af hólmi í forsetakosningunum sem fram fóru í landinu um helgina. Fujimori Perúforseta vantar lítið í 50% Margar vísbendingar um kosningasvik ima. AP, AFP. C 7 ÁSAKANIR um svik voru á margra vörum í Perú í gasr en þá var staðan þannig í talningu atkvæða í forseta- kosningunum á sunnudag, að Alber- to Fujimori forseta vantaði aðeins brot úr prósentustigi til að fá 50% at- kvæða. Nái hann því kemur ekki til annarrar umferðar. „Ríkisstjómin vai- búin að leggja á ráðin um þetta allt saman frá upp- hafi og kosningarnar voru bara leiksýning," sagði Carolina Herrera, kennari í Lima, og Alejandro Toledo, helsti andstæðingur Fujimoris, sagðist ekki mundu samþykkja úr- slitin hver sem þau yrðu. Perúskir embættismenn sögðu í gær að er rúmur helmingur atkvæða hefði verið talinn, hefði Fujimori fengið 49,6% atkvæða en Toledo 40,6%. Útgönguspár og mat óháðra eftirlitsmanna sýndu hins vegar að Toledo myndi sigra. Endanlegar töl- ur verða líklega ekki tilbúnar fyrr en í vikulok. Margvíslegar ásakanir Yfirvöld í Perú eru sökuð um að hafa látið falsa meira en eina milljón undirskrifta til stuðnings Fujimori fyrir kosningar og hefur bandaríska utanríkisráðuneytið krafist rann- sóknar á því máli. Stjómarandstað- an hefur auk þess sakað Fujimori og herlögregluna um að hleypa upp fundum hennar; að greiða blöðum og tímaritum fyrir að birta alls konar óhróður um andstæðingana og banna þeim aðgang að útvarpi og sjónvarpi. Þá segja alþjóðlegir eftir- litsmenn, að Fujimori hafi notað al- mannafé til að afla sér stuðnings. Eftirlitsmennimir segja einnig að þeir hafí séð atkvæðaseðla sem búið var að útfylla fyrirfram með nafni Fujimoris. Þótt margt bendi til að brögð hafi verið í tafli nýtur Fujimori augljós- lega enn mikils stuðnings meðal Perúmanna, ekki síst í afskekktum sveitum þar sem hann hefur beitt sér fyrir byggingu skóla og heilsugæslu- stöðva. Þá er honum einnig þakkað fyrir að uppræta að mestu skæruliða Skínandi stígs, hreyfingar maóista, og óðaverðbólguna og efnahagsöng- þveitið á níunda áratugnum. Irving dæmdur gyðinga- hatari og nazistavinur London. Morgunblaðið. BREZKI sagnfræðingurinn David Irving var í gær úrskurðaður af- neitari Helfararinnar, gyðingahat- ari og kynþáttahatari og sagður vera nazistavinur, sem hefði falsað söguna málstað þeirra til fram- dráttar. Dómarinn meinaði Irving að áfrýja niðurstöðunum en hann hafði reyndar sjálfur sagt, að hann myndi ekki áfrýja, færi svo að hann tapaði málinu. Irving, sem flutti mál sitt sjálf- ur, höfðaði meiðyrðamál á hendur bandaríska rithöfundinum Debor- ah Lipstadt og Penguin-útgáfufyr- irtækinu og sakaði þau um að dreifa þeim rógi um sig, að hann væri einn ákveðnasti Helfarar af- neitari sem uppi væri. Réttarhöldin hafa staðið í um þrjá mán- uði og vakið mikla athygli, réttarsalurinn jafnan þétt skipaður. I málaferl- unum lýsti Irving þeim skoðunum sínum, að þótt margir gyðingar hefðu fallið í heimsstyrjöldinni síðari, þá væri útilokað að nazistar hefðu myrt þá í milljónavís í gasklefum og ekkert benti til þess, að Hitler eða nán- ustu samstarfsmenn hans hefðu staðið á bak við skipulagðar gyð- ingaofsóknir. Um útrýmingarbúð- irnar í Auschwitz sagði hann, að þær væru síðari tíma tilbúningur. A móti honum var vitnað til um- mæla hans í ræðu og riti og dregn- ar fram sannanir fyrir Helför gyð- inga. Skorinorður dómari Til þess var tekið í gær hversu skorinorður dómarinn var þegar hann las upp dóminn og lýsti Irv- ing tæpitungulaust. Iving sagði fyrir réttarhöldin, að hann hefði neyðst út í þau, þar sem fullyrð- ingar Lipstadt hefðu valdið því, að menn sneru unnvörpum við honum bakinu sem fyrirlesara og bókar- höfundi. Óhætt er að fullyrða, að hann hafi ekki riðið feitum hesti frá málaferlunum hvað varðar breytingar á þessu. Þegar Irving mætti til réttarins í gærmorgun kom til uppþots fyrir utan dómshúsið og var hent í hann eggjum. Eggjablettunum nær hann efalaust úr fötunum, en þá bletti, sem féllu á hann sjálfan við málaferlin og niðurstöðu þeirra, situr hann uppi með. Almennur félagsfundur verður haldinn í golfskálanum í Leiru, í kvöld, miðvikudágskvöldið 12. apríl, kl. 20.00. Dagskrá: 1. Tillögur stjórnar um nýframkvæmdir árin 2000-2002. 2. Kynning á EGA-forgjöfinni sem tók gildi 1. janúar sl. 3. Önnur mál. Stjórn Golfklúbbs Suðurnesja. David Irving Rússneska þingið ræðir afvopnun- arsamning Moskvu. AP, AFP. SAMÞYKKT var á rússneska þing- inu í gær að taka til umræðu í vik- unni START II samninginn um fækkun kjarnorkuvopna en umfjöll- un um hann hefur dregist á langinn árum saman, meðal annars vegna andstöðu kommúnista. Nýkjörinn forseti, Vladímír Pútín, hvatti fyrir skömmu til þess að þingið tæki samninginn á dagskrá. Umræðurnar eiga að hefjast á föstudag og spáðu þingmenn því að þær yrðu ekki langvinnar. Komm- únistar hafa nú ekki lengur meiri- hluta í neðri deildinni, dúmunni, ásamt harðlínu-þjóðernissinnum en í sameiningu gátu hóparnir tveir stöðvað afgreiðslu málsins. Verði START II að veruleika mun kjarnaoddum í vopnabúrum Bandaríkjanna og Rússlands verða fækkað um helming þannig að hvor aðili eigi 3.000-3.500 odda. And- stæðingar samningsins í Rússlandi fullyrða að varnir landsins myndu veikjast og ítrekaði Gennadí Zjúg- anov, leiðtogi kommúnista, and- stöðu sína í gær. Þjóðernissinninn Vladímír Zhírinovskí spáði því að margir myndu greiða atkvæði með samningnum til að hlýðnast flokks- leiðtogum sínum. Þessir þingmenn gerðu sér ekki grein fyrir því hve söguleg mistök þeir væru að gera. Viðhald á vopnabúrinu er á hinn bóginn dýrt, talið að það kosti Rússa um 8% af öllum ríkisútgjöld- um. Segja stuðningsmenn samn- ingsins að margar af langdrægum kjarnorkuflaugum Rússa séu þegar orðnar of gamlar og muni því hvort sem er verða að eyða þeim. „Rússland er í reynd að afvopn- ast einhliða svo að START II snýst því um afvopnun í Bandaríkjun- um,“ sagði Dmítrí Rogozín, formað- ur alþjóðamálanefndar dúmunnar. Pútín átti fund með þingleiðtog- um í gær til að reyna að tryggja að samingurinn rynni hljóðalítið í gegn. Igor Ivanov utanríkisráð- herra mun fara í heimsókn til Was- hington í lok apríl og vonar ríkis- stjórnin að þá verði samþykkt í höfn. Pútín forseti er væntanlegur í heimsókn til Bretlands á sunnudag til viðræðna við Tony Blair forsæt- isráðherra en ekki er ljóst hvort hann mun fá áheyrn hjá Elísabetu drottningu. Eiginkona Pútíns, Ljú- dmíla, mun fara með eiginmanni sínum en Blair-hjónin hittu Pútín í Sankti Pétursborg í mars. Mótmæli við Capitol Hill HÓPUR mótmælenda safnast hér saman á tröppum bandarfska þing- hússins við Capitol Hill 1 Washing- ton í gær til að vekja athygli á skuld- um þriðjaheimsríkja. En þeir telja að efnaðri þjóðir heims eigi að gefa þeim fátækari upp skuldir. Efnt var til mótmælanna í tilefni af því að fjármálaráðherrar ríkja heims safn- ast saman í Washington þessa dag- ana fyrir vorfundi Alþjóðabankans og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Stjórnarseta hjá Harrods kostar Wardle þingsæti London. Morgunbladið. BREZKIR íhaldsmenn náðu ekki upp í nefið á sér af gremju yfir háttemi Charles Wardles, fyrrum innanríkis- ráðherra, sem þáði boð Mohammeds Fayeds um stjómarstöðu hjá Harrods með 120 þúsund pund í árslaun. Svo sterk urðu viðbrögðin í kjördæmi War- dles að hann hefur nú tilkynnt að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri sem frambjóðandi flokksins í næstu kosningum. Margir íhaldsmenn líta á Fayed sem einn helzta fjanda flokksins til langrar tíðar. Charles Wardle hefur setið á þingi síðan 1983 og það kom í hans hlut sem innanríkisráðherra að hafna fyrstu beiðni Fayeds um brezkan ríkisborgararétt. Hann hef- ur nú skipt algjörlega um skoðun á Fayed og gengið til samstarfs við hann, sem kostar það að hann hættir stjórnmálaþátttöku. Hannvarreynd- ar endurvalinn frambjóðandi flokks- ins í janúar sl. í Battle- og Bexhill- kjördæmi, en þegar uppvíst varð um samband hans og Fayeds olli það svo mikilli gremju kjósenda hans, að und- irbúningur var hafinn að kosningum til þess að koma honum frá. Wardle varð þá fyrri til og tilkynnti bréflega að hann gæfi ekki kost á sér sem frambjóðandi flokksins. The Daily Telegraph birti á dögun- um skopmynd af Wardle, þar sem hann stakk sér til sunds í Harrods- umslag fullt af 50 punda seðlum. Wardle segist hafa rætt þessa mynd við Fayed og möguleikana á meið- yrðamáli vegna birtingar hennar og að Fayed hafi lofað að greiða þann kostnað sem Wardle kynni að hafa af málaferlunum. Hann hefur sagt í samtali við The Sunday Times að þau málaferli muni teygja anga sína víða inn í íhalds- flokkinn og m.a. muni þá ýmislegt frá stjórnartíð Margaret Thatcher verða dregið fram í dagsljósið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.