Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 9 FRÉTTIR Elding komin til L’anse aux Meadows SEGLSKÚTAN Elding kom til Quirpon í grennd við L’Anse aux Meadows á Nýfundnalandi síðdegis á þriðjudag. Leiðangurinn Vínland 2000 hafði þá verið sambandslaus við umheiminn frá því lagt var af stað frá Grænlandi fóstudaginn 20. júh' en um borð er aðeins h'til talstöð sem dregur um tuttugu sjómílur. Siglt var í hæg- um byr og svartaþoku og var nokkuð um stóra ísjaka á stangli við strendur Nýfundnalands. Skipverjamir sex, sem eftir eru í leiðangrinum, munu á laugardag samfagna eyjarskeggjum á Nýfundnalandi við komu víkinga- skipsins íslendings til L’Anse aux Meadows. Daginn eftir afhendir áhöfn Eldingar Debbie Anderson, forstöðumanni víkingasafnsins á staðnum, fjóra áletraða steinhnull- unga við hátíðlega athöfn. Steinar þessir voiu teknir um borð á slóðum víkinga á Hörðalandi í Noregi, úr rústum fornrar víkingabyggðar á Dynrastamesi á Hjaltlandi, úr vík- ingabyggð í Kvivik í Færeyjum, frá Brattahlíð í Grænlandi og frá Eyrar- bakka á Islandi, heimaslóðum Bjama Herjólfssonar sem tahnn er hafa 13 erlendir starfsmenn við ræstingar á Grund Boðið upp á íslenskukennslu ÞRETTÁN erlendir starfsmenn vinna við ræstingar á elliheimilinu Grund og hefur heimilið ákveðið að bjóða upp á íslenskukennslu fyrir þá sem þess þurfa. Að sögn Kristínar V. Ellertsdóttur, ræstingastjóra á Gmnd, fást Islendingar ekki til að vinna þessi störf og hafa þau því verið mönnuð með erlendu vinnu- afli. „Meirihlutinn af fólkinu sem við eram með í vinnu hjá okkur er frá Taílandi, en einnig starfar hjá okkur fólk frá Japan, Kína, Filippseyjum, Sri Lanka, Póllandi og Finnlandi," sagði Kristín í samtali við Morgun- blaðið í gær. Að sögn Kristínar var fyrsta kennslustundin á fimmtudag- inn síðasta. „Allir virtust mjög ánægðir með kennsluna,“ sagði Rristín, en kennt er tvisvar í viku í klukkustund í senn. „Þegar fólk byrjar hér og skilur ekki islensku geta komið upp samskiptaörðugleik- ar, bæði á milli starfsfólks og svo við heimilisfólkið, en þetta kemur hægt og rólega og íslenskukennslan auð- veldar öll samskipti. Þetta er verð- ugt framtak hjá Grand,“ sagði Kristín, en erlendir starfsmenn heimilisins taka sér frí frá störfum til að læra íslensku og fá laun fyrir. Morgunblaðið/Jim Smart Þær Chitrani Kanthi Perena frá Sri Lanka og Alicia Dinquiz Trinidad frá Filippseyjum hafa hafið nám í íslensku á vegum Grundar. Ljósakrónur 'Ssv Bókahillur Borðstofusett / //T \ íkonar UZlnm \ i .uiofnnð ip74- munfr • Urval af borðstofuhúsgögnum Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977. fundið Ameríku fyrir þúsund áram, fyrstur Evrópubúa. Sigling Eldingar hófst í Noregi í vor og var í fyrsta áfanga siglt til ís- lands með viðkomu á Hjaltlandi og í Færeyjum. Frá íslandi var siglt af stað til Grænlands 4. júh. Loka- áfangastaður leiðangursins verður borgin Québec í samnefndu fylki Kan- ada en margir telja að þar hafi verið „Vínland hið góða“ sem Leifur heppni á að hafa nefnt svo fyrir 1000 árum. Þeir sem sigldu Eldingu til Ný- fundnalands frá Grænlandi era Haf- steinn Jóhannsson skipstjóri, Rúnar H. Sigdórsson leiðangursstjóri, Valdemar I. Sigurjónsson, Viktor Sigurðsson, Armann Dan Árnason og Daniel Rpyrvik. Elding er 18,5 m á lengd og er í eigu Hafsteins sem hefur siglt henni um öll heimsins höf frá því hann lauk smíði hennar fyrir tíu árum. Leiðang- urinn Vínland 2000 nýtur engra opin- berra stvrkja en hefur notið velvildar í viðskiptum og stuðnings hjá fyrir- tækjum á Islandi og í Noregi. Jörmundur Ingi Hansen allsherj- argoði er vemdari leiðangursins. Útsalan heldur áfram! Alvarlegt slys í ánni Fáskrúð KARLMAÐUR á sjötugsaldri slasaðist alvarlega þegar hann féll um sex metra ofan í ána Fá- skrúð í Hvammsfirði í Dalasýslu á þriðjudag. Samkvæmt upplýs- ingum frá Landspítalanum í Fossvogi fékk hann áverka á höfði og brjóstholi. Hann er nú í öndunarvél á gjörgæsludeild. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn á slysstaðinn en hann hafði verið við veiðar í ánni við annan mann. Að sögn lögreglunnar í Búðar- dal er líklegt að manninum hafi skrikað fótur. Varð félagi manns- ins þess strax var að maðurinn hafði fallið í ána og hljóp hann til og bjargaði honum í land, upp á háa syllu og þaðan upp á bakka. AFMÆLISTILB í TILEFNI AF 35 AFMÆLI Ol BJÓÐUI SPORTSKOM KRA DAGA SKÓVERSLUN KÓPAV0GS HAMRAB0RG 3 • SIMI 5541754 Þjónusta í 35 ár UTSALAN hefst á morgun Velkomin um borð OF SCANDINAVIA LAUGAVEGI 1, S. 561 7760.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.