Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JÚLI2000 45
---------------------^
MINNINGAR
stuðningsmann. Með Byþóri er
genginn merkur maður, áhugamað-
ur um marga hluti, starfssamur og
ötull. Ég bið góðan Guð að blessa
minningu hans og varða för hans inn
í ríki eilífðarinnar. Eftirlifandi ást-
vinum hans sendum við Auður hug-
heilar samúðarkveðjur. Hugir okkar
Auðar munu í dag, eins og svo oft,
dvelja í kirkjunni í Neskaupstað þar
sem Eyþór verður kvaddur hinstu
kveðju.
Svavar Stefánsson.
Elsku langafi. Við söknum þín öll
rosalega mikið. Við vonum og vitum
eiginlega að þér líður vel hjá guði.
Takk fyrir allar góðu stundirnar.
Hvíl í friði.
Þín langafabörn,
Inga Þórey, Víkingur,
Marteinn Þór.
• Fleiri minningargreinar
um Eyþór Þórðarson bíðabirt-
ingar og munu birtast íblaðinu
næstu daga.
INGIBJORG
G UÐMUNDSDÓTTIR
+ Ingibjörg Guð-
mundsdótlir
fæddist á Gufuá í
Borgarhreppi 6.
febníar 1916. Hún
lést á hjúkrunar-
heimilinu Víðinesi
14. júlí siðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Borgar-
neskirkju 21. júlí.
Amma kvaddi þenn-
an heim hinn 14. þessa
mánaðar og þó hennar
verði sárt saknað átti
hún hvfldina skilið.
Hún var búin að vera mjög veik
undir það síðasta sem hljóta að vera
mikil viðbrigði fyrir eins erna konu
og hún var. Mér þykir mjög vænt
um hana ömmu og ná minningar um
samveru með henni til minna fyrstu
æskuminninga.Það var
ávallt hátíð að fara að
heimsækja hana og afa
á Kjartansgötuna og
borða vöpplur, leika
sér í búinu og á stofu-
gólfinu með stóru bíl-
ana hans Ragga
frænda. Eftir að afi dó
fluttist hún fljótlega út
á Seltjarnarnes í sama
hús og við bjuggum í.
Því varð ég þeirrar
gæfu aðnjótandi að al-
ast upp í nánum sam-
skiptum við hana og
hefur það mótað mig á
ýmsan hátt. Það var svo margt sem
hún kenndi mér. Hún kenndi mér
að tefla og tefldum við reglulega og
spiluðum marías. Hún sagði mér
frá því þegar hún var ungpg kenndi
mér að meta kveðskap. Ég var nú
aldrei lipur í kveðskapnum og man
ég eftir nokkrum skiptum sem ég
fékk að styðjast við ljóðabækur til
að verjast því að hún kveddi mig í
kútinn. En það hafði ekkert upp á
sig því hún kunni ógrynnin öli af
kvæðum.
Stakan óðum tapar tryggó
týnast Ijóðavinir.
Auðga þjóð við íslandsbyggð
aðrir gróðurhlynir.
Þvi er hljótt í þjóðarsál
þangað sóttu eldinn,
sem að þróttugt sagnamál
sungu drótt á kveldin.
Vermt að ami bragarbáls
best má vamað fínna,
geyma þjarnann móðurmáls
í munni bama sinna.
(María Bjamadóttir.)
Ég þakka þér fyrir allar stund-
irnar sem við áttum saman amma
mín. Þær eru mér ómetanlegar
minningar sem munu ávallt lifa með
mér.
Rúnar.
Formáli minn-
ingargreina „
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útfór hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
Hjó Mör^unbi^ðinu urn 800
blw&hísr/jr <j hof uÖborcj«irMv.>;öimj
Ahugavert
sölustarf
Miklir tekjumöguleikar
Viö auglýsum eftir duglegu og áræðnu
fólki, bæði á höfuðborgarsvæðinu og
landsbyggðinni, í tímabundið söluverk-
efni. Um er að ræða spennandi og líflegt
starf með miklum tekjumöguleikum.
Verkefnið hefst í byrjun ágúst og stendur
í 8—14 vikur.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi bíl
til umráða.
Umsóknum, með helstu upplýsingum um
aldur, menntun og starfsreynslu, skal skila
til íslenskra fyrirtækja, Seljavegi 2, 101
Reykjavík, merktum: „Sala ÍF 2001", fyr-
ir 31. júlí. Áður en sala hefst sækja vænt-
anlegir sölumenn námskeið til kynningar
á verkefninu. Allar nánari upplýsingar
veitir Unnur Hjartardóttir í síma 515 5630.
f
www.isTenskf.is islenskf@isrenskf.is
G LY S I IM
SMITH & NORLAND
Rafeindavirki
Smith og Norland vill ráða rafeindavirkja til
starfa í tæknideild fyrirtækisins sem fyrst.
Starfið felur í sér sölu og þjónustu á síma- og
tölvubúnaði sem og öðrum veikstraumsbúnaði,
samskipti við erlenda aðila og markaðssetningu.
Umsækjandi þarf að hafa gott vald á ensku.
Leitað er að röskum einstaklingi með góða
tækniþekkingu og áhuga á þjónustu, viðskiptum og
mannlegum samskiptum.
Um er að ræða gott framtíðarstarf í notalegu umhverfi
hjá traustu og virtu fyrirtæki sem selur gæðavörur.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi eru vinsamlega
beðnir að senda okkur eiginhandarumsókn með
upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf fyrir
föstudaginn 4. ágúst. Farið verður með allar um-
sóknir og fyrirspurnir sem algjört trúnaðarmál. Ef
þörf er nánari upplýsinga vinsamlega sendið tölvupóst
á sminor@sminor.is.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000
www.sminor.is
Café List
Vegna mikilla anna og stækkunar staðarins ósk-
um við eftir að ráða aðstoðarfólk í sal, uppvask
og á bar. Upplýsingar veitir Guðmundur Sig-
bergsson, veitingastjóri, á staðnum fimmtudag
og föstudag frá kl. 14 til 16 eða í síma 861 3182.
Urðarholt i ■ iit (I)oif*ihba • hni 566 61« • fax 566 6308
Bakarasveinn
nemi
Óskum eftir að ráða duglegan og metn-
aðarfullan bakarasvein. Við leitum eftir
aðila sem hefur áhuga á handverkinu
eins og það gerist best. Þorir þú?
Getum einnig bætt við okkur nema í
bakaralistinni. Upplýsingar gefur Hafliði
í símum 566 6145 og 696 0959.
Háseti
Vanan háseta vantará 250 lesta beitingarvéla-
bát. Upplýsingar í síma 450 2100.
Oddi hf.,
PatralrcfirAi
flTOÍMMUaUBLVSIMBflR
E
sendist á augl@mbl.is