Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JULI2000 UMRÆÐAN Á aldamótaári Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi I DÖGUN nýrrar aldar er margt sem leitar á hugann. Minningar um liðna tíð sem er um garð gengin. Umhverfi líðandi stundar og óræð- ar gátur um það, sem menn þykjast sjá handan hinna miklu tímamóta. Staða lands og þjóðar, byggð og búseta, framtíðarhorfur. í Morgunblaðinu á næstsíðasta degi gamla ársins voru sagðar fréttir af íbúum landsins og birt kort um íbúafjölda einstakra svæða 1999 og þróun frá 1989. Þar segir: „Á þeim tíma hefur fjölgun einungis orðið í Eyjafirði, Austur-Skafta- fellssýslu, Árnessýslu og á Suður- nesjum, auk höfuðborgarsvæðisins, þar sem fjölgunin er mest bæði hlutfallslega og í tölum. Fólksfækk- un er hins vegar mest á Vestfjörð- um, í Dölum og á sunnanverðum Austfjörðum." Augljóst má því vera að fólks- straumurinn á höfuðborgarsvæðið er mjög þungur nú um sinn. Hefur svo raunar lengi verið. Það er ekki uppörvandi fyrir byggðir landsins að sjá á eftir fólkinu suður. En ekki verður hjá því komist að veita þessu athygli. Stöðug fækkun í einni byggð er uggvænleg og erfið þeim sem eftir verða og reyna að hamla gegn þróuninni og snúa vörn í sókn. Þegar fylgst er með fólksfjölda á ákveðnu svæði er ekki sama við hvaða ár er miðað, eða frá hvaða I - Förum varlega með rafmagnið - vangá veldur slysum Tíu ráð um rafmagnið 1. Munið eftir að slökkva á eldavélinni strax eftir notkun. 2. Takið raftæki úr sambandi þegar þau eru ekki í notkun. 3. Látið skipta strax um skemmdan rafbúnað. 4. Setjið aldrei sterkari peru í lampa en hann er gerður fyrir. 5. Hendið gömlum rafbúnaði sem er farinn að láta á sjá. 6. Reynið ekki að gera það sem aðeins fagmenn ættu að gera. 7. Prófið lekastraumsrofann nokkrum sinnum á ári. 8. Gætið þess að raftæki sem eiga að vera jarðtengd séu það. 9. Varist að staðsetja Ijós of nálægt brennanlegu efni. 10. Gefið gaum að merkingum raftækja. Þú berð ábyrgð á ástandi þess rafbúnaðar sem er á þínu heimili. Ef þú hefur minnsta grun um að eitthvað sé athugavert skaltu leita hjálpar hjá löggiltum rafverktaka I______ LOGGILDINGARSTOFA Rafmagnsöryggisdeild sjónarhóli er horft. Sé greinin í Mbl., sem vitn- að er í hér að framan, lesin áfram segir svo í beinu framhaldi: „Jafn- framt kemur fram, að ef íbúaþróun síðustu fimm ára er borin saman við fimm árin þar á undan er ástandið nú verra á öllum landsvæðum landsbyggðarinnar nema á Akranesi og í Dalasýslu." (Leturbr. mín.) Þannig er þá umhorfs þegar litið er til baka yfir síðustu áratogin fram að því aldamótaári, sem nú rennur fram og í rauninni ber hæst allra tímamóta á vegferð þeirra sem nú lifa. Segja má að allar byggðir landsins utan Byggdaþróun Ráðamenn þjóðarinnar, segir Friðjón Þórðarson, hafa ærnu hlutverki að gegna og að mörgu að hyggja í byggðamálum. Stór-Reykjavíkursvæðisins eigi í vök að verjast. Snemma í febrúar bárust fréttir í Mbl. frá eftirlitsnefnd með fjármál- um sveitarfélaga. Þar er greint frá því að fjárhagsstaða sjö sveitarfé- laga sé alvarleg og fjármál þeirra virðist stefna í verulegt óefni. Auk þess hafi verið gerðar alvarlegar at- hugasemdir við fjárhagsstöðu tólf annarra sveitarfélaga. Það vekur Friðjón Þórðarson athygli að í þessufn hópi er lítið um fá- mennar jaðarbyggð- ir, sem svo eru kall- aðar, heldur öflugar og blómlegar byggð- ir, sem enginn skyldi ætla að stæðu hölíum fæti eða þyrftu að glíma við sérstök vandamál. Af framansögðu er deginum ljósara, að ráðamenn þjóðarinn- ar hafa ærnu hlut- verki að gegna og að mörgu að hyggja í byggðamálum. Það eitt að sitja á suðvesturhorni lands- ins og láta fara vel um sig dugar ekki þegar á heildina er litið. En efling byggðar í landinu getur kost- að allmikið fé. Þá kemur upp í hug- ann að margir hafa á orði að íslend- ingar séu nú komnir í hóp tíu ríkustu þjóða í heimi. Það ætti að teljast nokkuð gott. Á e.t.v. að keppa um fyrsta sætið, þ.e. að verða allra ríkasta þjóð í veröld- inni? Það er að sjálfsögðu meginmál að standa í skilum, greiða skuldir sín- ar og stuðla að jöfnuði þegnanna og hagsæld. En keppni um peninga og ríkidæmi, auðhyggja ein og sér, er varla mikils virði. „Svá er auður sem augabragð. Hann er valtastur vina.“ Sveitarfélög landsins eiga flest við svipuð vandamál að glíma og sömu hagsmuna að gæta. Hlutverk þeirra er margþætt og mikilvægt. Um hag þeirra og horfur almennt og í einstökum málum hafa margar skýrslur verið skráðar seint og snemma. Sé enn minnst á Dala- byggð, sem ekki lenti þó í hópi þeirra nítján sveitarfélaga, sem að framan getur, skal nefnd skýrsla A að rjúfa friðhelgi Hallormsstaðar? Hallormsstaður hef- ur löngum þótt með fegurstu stöðum á ís- landi og á þessari öld hefur hann orðið eins konar ígUdi þjóðgarðs. Senn verða hundrað ár liðin frá því staðurinn varð þjóðjörð, falin Skógrækt ríkisins til vörslu ogumsjár. Síðan hefur Hallormsstaða- skógur verið eitt helsta djásn skógræktar- manna sem leiða þang- að innlenda og erlenda menn til að sýna þeim Hjörleifur mátt íslenskrar mold- Guttormsson ar. Á sumrum nýtur fjöldi ferðamanna skjóls í þessum reit, gengur um skóginn og ferðast Virkjanir Til að kóróna sköpunar- verk stóriðjustefnunn- ar, segir Hjörleifur Guttormsson, er fyrir- hugað að skipta um lit og lögun Lagarfljóts. um Fljótsdalshérað, „...er ángar ljúft við Fljótsins dreymnu ró...“ svo vitn- að sé til alþekkts kvæðis Halldórs Kiljans Laxness. En ekki er allt sem sýnist. Um þessar mundir eru opinberar stofn- anir og fyrirtæki studd af valds- mönnum að undirbúa herför að þess- um unaðsreit. Forráðamenn Landsvirkjunar ætla að leggja raflínur af stærstu gerð yfir Hallormsstaðaháls og hengja þær upp í möstur allt að 37 metra há. Verði þessir gálgar reistir mun þá bera við himin ofan skógar til stórkostlegra lýta á umhverfi. Skipu- lagsstofnun hefur þeg- ar lagt blessun sína yfir þessi áform en um- hverfisráðherra á þess kost að gera þau aftur- ræk. En þetta þykir ekki nóg að gert. Vegagerð ríkisins undirbýr nú braut fyrir þungaflutn- inga vegna Kára- hnjúkavirlg'unar aust- an Lagarfljóts um Hallormsstaðaskóg. Henni fylgir ný brú yfir Jökulsá í Fljótsdal skammt inn af botni Lag- arfljóts. Þessi kostur hefur verið val- inn þótt endurbygging Lagarfljóts- brúar sé á dagskrá og auðvelt væri ef vilji er til staðar að Ijúka þeirri brúargerð í tæka tíð miðað við virkj- anaáform svo og vegi með bundnu slitlagi inn Fell norðan Fljóts að virkjunarsvæði. Með fyrirliggjandi áformum er hins vegar verið að sól- unda almannafé og jafnframt er margföldum umferðarþunga að þarflausu beint gegnum Hallorms- staðaskóg. Til að kóróna sköpunarverk stór- iðjustefnunnar er síðan fyrirhugað að skipta um lit og lögun Lagarfljóts með því að veita í það Jökulsá á Dal. Undan Hallormsstað er Fljótið breiðast og töfrar þess mestir. Hvaðan kemur mönnum vald til að stórspilla helgum reit eins og Hall- ormsstaðaskógi? Er íslensk þjóð svo aum í allri sinni velsæld að hún uni slíku óátalið? Höfundur er fyrrverandi alþingismaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.