Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.07.2000, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/BFH Fornleifafræðingar að störfum á Hofsstöðum. F ornleifagröftur á Hofsstöðum Mývatnssveit - Sumarskóli Forn- leifastofnunar Islands er nú kominn til starfa á Hofsstöðum, þar sem á næstu vikum fer fram þjálfun og kennsla í norrænni fornleifafræði fyrir erlenda nemendur, líkt og gerst hefur á hverju sumri nú á undanförnum árum. Að þessu sinni er grafið í aðal- skálatóftina stóru, einnig í fornan kirkjugarð sem þar er skammt frá. Jafnframt þessu er unnið að upp- greftri á litlum skála í Sveigakoti skammt sunnan Grænavatns. Sam- tals vinna að þessum rannsóknum 28 manns og er meirihluti þeirra er- lendur. Hópurinn verður í sveitinni við rannsóknir fram til 20. ágúst. Djassað í Deig'lunni TRÍÓ Björns Thoroddsen, með kanadíska trompetleikaranum Richard Gilles, leikur á Tuborgdjassi nr. 5 á „heitum íimmtudegi" í Deigl- unni í kvöld. Tónleikamir hefjast kl. 21:30. Auk Bjöms og Richards leik- ur bassaleikarinn góðkunni Jón Rafnsson. Á efnisskránni eru þekkt síung djasslög og em amerískir söngvar í meirihluta, en þó kemur Richard með nokkur lög sjálfur. Djasstrompetleikarinn dr. Richard Gilles er prófessor í tromp- etleik við Manitoba-háskóla í Winni- peg og aðalstjórnandi djasshljóm- sveitar skólans. Hann hefur notið mikillar viðurkenningar og leikur reglulega með hljómsveitinni Brass Encounter og Stórsveit Rons Paleys. Þess má geta að hann er af íslensku bergi brotinn, því þrjú af öfum hans og ömmum voru íslensk. Björn Thoroddsen gítarleikari hefur verið í röð framámanna í ís- lensku djasslífi síðan í lok áttunda áratugarins. Hann hefur leikið inn á sex einkaplötur og diska. Bjöm hef- ur leikið með mörgum erlendum tónlistarmönnum, m.a. Niels Henn- ing Órsted-Pedersen. Jón Rafnsson kontrabassaleikari er klassískt menntaður með rætur í poppi og rokktónlist. Hann hefur spilað með fjölda innlendra og er- lendra tónlistarmanna. Hann starf- aði um árabil sem kennari við Tón- listarskólann á Akureyri og var einn helsti drifkraftur Jazzklúbbs Akur- eyrar. Aðgangur á tónleikana er ókeypis og er fólki bent á að koma tímanlega til að ná í sæti. Akureyrarbær auglýsir Um sölutjöld og söluvagna Bæjarráð hefur samþykkt, samkvæmt 8. grein reglna um útimarkaði og sölutjöid á Akureyri, að taka frá alla sölureiti sem ekki eru í fastri útleigu á göngugötunni í Hafnarstræti og á Ráðhústorgi dagana 3. ágúst til og með 7. ágúst nk. Jafn- framt er Miðbæjarsamtökunum heimilað að ráðstafa sölureitum til einstakra söluaðila og fella þá þar með undir skipulag verslunar- mannahelgarinnar 2000. Byggingafulltrúi Akureyrar. Norrænir bændur skoða eyfirsk fjós ÞING norrænna nautgriparækt- enda og áhugamanna um naut- griparæktun, NÖK, hefur staðið yfir á Akureyri síðastliðna daga. Þinggestir hafa þó ekki eingöngu setið á rökstólum og hlýtt á talað mál úr pontu, heldur hafa þeir einnig sinnt félagslegu hliðinni. Flestir ráðstefnugestir taka með sér maka og börn og í gær var far- ið í skoðunarferð um eyfirsk fjós. Fólki var skipt í þrjá hópa, fór einn út á Árskógsströnd og í Svarfaðar- dalinn, annar hópurinn í Þórisstaði og Laufás en sá þriðji fór í Eyja- fjarðarsveitina og heimsótti m.a. Sigurgeir Hreinsson, foimann Búnaðarsambands Eyjafjarðar, og fjölskyldu hans á Hríshóli. Á Hríshóli skoðuðu gestir fjósið í krók og kima og þáðu síðan léttar kaffiveitingar, snæddu m.a. hinar séríslensku kleinur. Sigurgeir sagði að sér fyndist einn mikilvægasti þáttur þingSins vera að hitta aðra bændur, spjalla við þá og mynda tengsl. „Það er ekki nóg að hlusta bara á fyrirlestra, það er svo mikil- vægt að hittast og spjalla, það gef- ur miklu meira,“ sagði Sigurgeir. Morgunblaðið/Kristján Norrænir kúabændur heimsóttu Sigurgeir Hreinsson og fjölskyldu hans að Hríshóli. Eftir skoðunarferð um fjósið var boðið upp á kaffi og kleinur og gerðu gestirnir því góð skil. Sjúkraflutningamenn á Akureyri hafa farið í 106 sjúkraflug á árinu Fleiri sjúkraflug í ár en allt árið í fyrra SJÚKRAFLUTNINGAMENN frá Slökkviliði Akureyrar hafa haft í nógu að snúast við sjúkraflug á ár- inu. Það sem af er árinu hafa þeir farið í 106 sjúkraflug sem eru fleiri sjúkraflug en allt árið í fyrra, að sögn Birgis Finnssonar vara- slökkvistjóra Slökkviliðs Akureyr- ar. Af þessum 106 sjúkraflugum ársins eru sjö þeirra á milli landa en að auki tvo flug innanlands á Grænlandi en í þeim tilfellum var Flugfélag íslands beðið um aðstoð vegna sjúkraflugs og var sjúkra- flutningamaður frá Akureyri með í för. „Það hefur verið mikið um sjúkraflug að undanförnu og ný- lega voru þrjú slík flug sama dag- inn og eina vikuna voru samtals 11 sjúkraflug. í nokkrum tilfellum hefur komið upp sú staða að tvö sjúkraflug hafa verið í gangi á sama tíma,“ sagði Birgir en lang- flest flugin eru með Flugfélagi Is- lands en nokkur með Mýflugi. Birgir sagði að flestir hafi verið fluttir með sjúkraflugi þegar rútu- slysið varð við Hólsselskíl á Fjöll- um á dögunum. Þá fóru fjórir sjúkraflutningamenn frá Akureyri ásamt lækni frá Heilsugæslustöð- inni með Twin Otter-vél Flugfélags íslands til Grímsstaða. Fjórir slas- aðir voru fluttir með vélinni til Reykjavíkur og fóru tveir sjúkra- flutningamenn frá Akureyri, einn frá Reykjavík og hjúkrunarfræð- ingur úr Mývatnssveit með vélinni suður. Gott samstarf milli aðila Birgir sagði Slökkvilið Akureyr- ar hafa verið með mikinn viðbúnað vegna slyssins á Hólsfjöllum og fóru alls 10 sjúkraflutningamenn á staðinn á tveimur sjúkrabílum og í flugvélinni. Auk þeirra var svo við- bótarmannskapur á slökkvistöð ef á þyrfti að halda í bænum, m.a. til BJÖRN Þór Ólafsson frá Ólafsfirði tók sig til og hjólaði vítt og breitt í gær til að safna fjártnunum fyrir skiðadeild Leifturs í Ólafsfirði, en Björn hefur verið viðriðinn skíða- íþróttina lengur en elstu menn muna. Þegar Morgunblaðið hitti á kapp- ann í gær var hann kominn inn að að taka á móti slösuðum við þyrlu- pallinn á FSA. „Sjúkraflutningamenn á Akur- eyri eru mjög ánægðir með þá ákvörðun ríkisvaldsins að miðstöð sjúkraflutninga verði á Akureyri. Samstarf milli starfsmanna liðsins, starfsmanna á Akureyrarflugvelli og flugmanna er mjög gott og allir leggja sig fram við að sinna sjúkra- fluginu af metnaði, þannig að hægt sé að bregðast fljótt og vel við þeg- ar beiðni um sjúkraflug berst. Kjarnaskógi og engan bilbug á hon- um finna. Þess má geta að Björn Þór er 59 ára gamall en hraðinn á honum við hjólreiðarnar var slíkur að erfitt var að festa hann á filmu. Björn Þór reiknaði með að verða kominn til ÓlafsQarðar um kl. 19 í gærkvöldi og vera þá búinn að leggja að baki um 130 kflómetra. Morgunblaðið/Kristján Björn Þór Ólafsson hjólar framhjá afleggjaranum upp í Kjarnaskóg og sem leið liggur fram í Eyjafjarðarsveit. Kraftmikill hjólreiðamaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.