Morgunblaðið - 27.07.2000, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
-
FRÉTTIR
Flestir telja reglur
fullnægjandi
f FRAMHALDI af skýrslu Fjármála-
eftirlitsins (FME) um skoðun á fjár-
vörslu Kaupþings hf., sem birt var
hér í blaðinu í gær ásamt athuga-
semdum Kaupþings hf., leitaði Morg-
unblaðið álits forsvarsmanna fjár-
málafyrirtækja á því hvort skýrslan
gæfi tilefni til þess að frekari og ná-
kvæmari reglur verði settar um
vinnubrögð og starfshætti fjármála-
fyrirtækja en gert er ráð fýrir í
drögum FME að nýjum verklags-
reglum.
Eins og fram hefur komið safnaði
Kaupþing áskriftum (kennitölum) til
að kaupa í útboði FBA hf. fyrir eigin
reikning hinn 12. nóvember 1998.
Óskað var eftir skoðun manna á því
hvort frásögn skýrslunnar af at-
burðarásinni innan Kaupþings þenn-
an dag sé vísbending um að aðskiln-
aður ólíkrar starfsemi þar scm
hagsmunir geta rekist á, þ.e. Kína-
múrar, sé ekki eins skýr í starfsemi
Qármálafyrirtæfga og nauðsynlegt
er. Loks var leitað eftir áliti á því
hvemig túlka bæri 15. grein laga
númer 13 frá 1996 um verðbréfavið-
skipti, þar sem reynt er að tryggja
hagsmuni viðskiptamanna gagnvart
fyrirtæki í verðbréfaþjónustu. I um-
ræddri grein kemur m.a. fram að
verðbréfafyrirtæki skuli kappkosta
að gæta fyUstu óhlutdrægni gagnvart
viðskiptamönnum sfhum og gæta
þess að þeir njóti jafnræðis um upp-
lýsingar, verð og önnur viðskiptakjör
í verðbréfaviðskiptum. Sérstaklega
var innt álits á því hvenær fjármála-
fyrirtæki teldist hafa brotið þessa
lagareglu þegar upp komi álitamál
þar sem hagsmunir viðskiptavina og
Qármálafyrirtækisins vegna eigin
fjárfestinga kunni að stangast á.
Sævar Helgason, framkvæmdast j óri Islenskra verðbréfa
Leita hefði átt álits
Fjármálaeftirlits
nú þegar flest þessara fyrirtækja
hafa leyst húsnæðisvanda sinn og
þróun upplýsingahugbúnaðar fyrir
íslensk fjármálafyrirtæki er lokið.
Sævar segir um þriðju spurning-
una að 15. greinin segi skýrt og skil-
merkilega að hagsmunir viðskipta-
vinarins séu ávallt hafðir að
leiðarljósi. „Um leið og sú hugsun
breytist þá hefur viðkomandi fyrir-
tæki brotið regluna. Hins vegar er
alltaf mjög erfitt að segja hvenær
fyrirtæki hefur brotið regluna.
Varðandi Kaupþingsmálið sérstak-
lega tel ég að leita hefði mátt álits
Fjármálaeftirlits á viðkomandi við-
skiptum með bréf í FBA eða þá að
ræða við einstaka fjárvörsluþega því
sjóðsstjóra mátti vera ljóst að tals-
verð eftirspurn yrði eftir bréfunum
á eftirmarkaði eftir að aðstoðar-
framkvæmdastjóri sendi út bréf
sitt.“
„HVAÐ fyrstu spum-
inguna varðar þá tel ég
svo ekki vera,“ segir
Sævar Helgason, fram-
kvæmdastjóri Is-
lenskra verðbréfa.
„Reglurnar eru nokk-
uð ítarlegar og í sam-
ræmi við það sem best
gæti verið. Komi hins
vegar upp vafamál tel
ég að fjármálafyrir-
tækjum beri að leita
umsagnar Fjármála-
eftirlits. Þessi umræða
skaðar fjármálafyrir-
tækin verulega og því
tel ég að þau leiki sér
ekki að því að finna grá svæði til að
starfa á.“
Sævar segir að hvað aðra spurn-
inguna varðar hafi þessum aðskiln-
aði ekki verið nægilega vel fylgt eft-
ir hjá flestum
fyrirtækjum. Hann
segir að það stafi fyrst
og fremst af því að
markaðurinn sé mjög
ungur og hraður vöxt-
ur hefur átt sér stað
undanfarin ár sem hafi
sett mörg fyrirtæki í
húsnæðisvanda.
„Vegna örs vaxtar og
smæðar margra fyrir-
tækja hafa þau ekki
komið því við að hólfa
deildirnar nægilega vel
niður eins og þeim ber
samkvæmt leiðbein-
ingum. Þó tel ég að í
flestum tilfellum hafi fyrirtæki farið
eftir þeim reglum sem um þetta
gilda og trúnaðarupplýsingar berast
ekki milli sviða. Ég á von á því að
þessi mál komist í fastari skorður
Sævar Helgason
Þóroddur Ari Þóroddsson,
forstjóri Burnham International á Islandi
Þórður Magnússon
stjórnarformaður Gildingar
Kínamúrarnir
brugðust ekki
ÞÓRODDUR Ari Þóroddsson, for-
stjóri Burnham Intemational á Is-
landi, telur ekki tilefni til að settar
verði nákvæmari verklagsreglur en
gert er ráð fyrir í drögum Fjármála-
eftirlits. „Það eru miklar framfarir
að fá þessar verklagsreglur. Það er
svo bara spumingin hvernig þeim
verður framfylgt. Skýrslan gefur að
mínu mati ekki tilefni til þess að
þær verði ítarlegri. Það verður líka
að hafa í huga að hún kemur löngu
eftir að atburðirnir gerðust. Á þeim
tíma voru reglur afskaplega óljós-
ar.“
Ekki telur Þóroddur að frásögnin
af atburðarásinni innan Kaupþings í
nóvember 1998 gefi tilefni til að ætla
að aðskilnaður ólíkrar starfsemi,
þar sem hætta er á hagsmuna-
árekstrum, sé ekki nógu skýr. Allur
fjármálamarkaðurinn hafi verið á
fleygiferð umrædda nóvemberdaga
og fleiri fjármálafyrirtæki en Kaup-
þing hagnast á kaupum og sölu
hlutabréfa í Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins.
„Ef maður lítur á atburðarásina
eins og hún kemur fram í skýrslunni
þá er kannski tortryggilegt að
Kaupþing fór af stað sem ein heild.
En að sama skapi var markaðurinn
allur að fara af stað þessa daga. Það
vora önnur fjármálafyrirtæki sem
vora byrjuð að safna í sína sjóði og
byrjuð að safna kennitölum. Ef
Kaupþing hefði verið í einrúmi þá
hefði maður kannski getað haldið
því fram að Kinamúramir hefðu
brugðist. En þar sem markaðurinn
var allur að þessu finnst mér ekki að
það hafi gerst. Ekki í þessu einstaka
máli. Því það var fullt af ástæðum
fyrir því að sjóðstjórar hjá Kaup-
þingi hefðu átt að byrja að kaupa
þessi bréf.“
Þóroddur Ari telur að meta verði
15. grein laga nr. 13 frá 1996 eftir
hverju einstöku máli. „Maður veit
aldrei fyrirfram hvaða aðstæður
koma upp. Það er t.d. alls ekki ljóst
miðað við frásögn skýrslunnar hvort
Kaupþing var óhlutdrægt eða ekki.
Það er verið að gagnrýna Kaup-
þing fyrir að hafa keypt í leyfisleysi
og fyrir að hafa grætt meira en fjár-
vörsluþegar þeirra og þar af leið-
andi ekki skilið eftir nógu mikinn
hagnað hjá sínum skjólstæðingum.
En spurningin er hvort þeir hafi
ekki einmitt komið rétt fram við
sína skjólstæðinga með því að kaupa
þessi bréf. Ég held að menn ættu að
fara varlega í að fordæma Kaupþing
nú tveimur árum eftir atburðina.
Ekki má gleyma að þeir voru
brautryðjendur á þessu sviði og
störfuðu á mjög óijósum lagagrund-
velli.“
Styrmir Þór Bragason, forstöðumaður
markaðsviðskipta Búnaðarbankans verðbrófa
Drög Fjármálaeftir-
lits fullnægjandi
STYRMIR Þór Bragason, for-
stöðumaður markaðsviðskipta
Búnaðarbankans verðbréfa sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
teldi drög Fjármálaeftirlitsins það
ítarleg að skýrslan um skoðun á
fjárvörslu Kaupþings gefi ekki til-
efni til að þau verði ítarlegri.
„Drögin eru það ítarleg enda gerð
í kjölfar þessara atburða og fleiri
þannig að þau ættu að vera full-
nægjandi."
Styrmir sagði enn fremur að
hann teldi að í flestum tilfellum
væri aðskiinaður ólíkrar starfsemi
nokkuð skýr.
„Ég tel að þar sem ég þekki til,
hér í Búnaðabankanum, sem og í
öðrum fjármálastofnunum að að-
skilnaður sé mjög skýr svona í
flestum tilfellum. Ég tel að menn
séu að vinna eftir settum reglum
og séu fyrst og fremst að hugsa
um hag viðskiptavina sinna. Varð-
andi skýrslu Fjármálaeftirlits um
viðskipti Kaupþings við fjárvörslu-
þega sína tel ég Fjármálaeftirlitið
fullfært um að dæma um það sem
gerðist í þessu tilfelli, þeir hafa öll
gögn og ég tel þá í bestu stöðu til
að dæma þetta einstaka tilfelli."
Styrmir sagði að hann teldi í
skýrslunni ekki endilega fundið að
aðskilnaði ólíkrar starfsemi.
„Menn geta náttúrulega sent
tölvupóst þó að þeir séu í sinni
deildinni hvor. En síðan er það
alltaf spurningin hvaða samskipti
eru fyrir utan það.“
Styrmir sagði vandkvæðum
bundið að skera endanlega úr um
túlkun 15. greinar laga nr. 13 frá
1996. „Þetta eru svo margbreyti-
leg dæmi sem geta komið upp
þannig að í rauninni er ómögulegt
að negla niður endanlega túlkun.
Ef koma upp álitamál, eins og í
þessu tilfelli, verður að koma til
hlutlaus aðili sem tekur að sér að
skoða málið. Þá kemur til kasta
Fjármálaeftirlitsins sem er þessi
hlutlausi aðili. Þess vegna tel ég
ekkert óeðlilegt að þessi skýrsla
hafi verið gefin út af Fjármálaeft-
irlitinu.
Það fór nákvæmlega ofan í þau
álitamál sem komu upp enda í
stakk búið að meta aðstöðuna og
gefa réttu niðurstöðuna. En ég tel
að menn séu í langflestum tilfell-
um að eiga viðskipti á grundvelli
eðlilegra viðskiptahátta og í sam-
ræmi við iög og reglur.“
Nauðsynlegt að
Fjármálaeftirlit-
ið setji reglur
ÞÓRÐUR Magnús-
son, stjórnarformaður
Gildingar, segir um
fyrstu spurninguna að
nauðsynlegt sé að
þessar reglur séu
mjög skýrar og ná-
kvæmar. „í grand-
vallaratriðum líst mér
mjög vel á að komnar
séu reglur eins og
þær sem Fjármálaeft-
irlitið hefur lagt drög
að og koma fram í
þessari skýrslu. Ég
tel að það sé bráð-
nauðsynlegt að Fjár-
málaeftirlitið komi
fram með reglur eins
og þarna um ræðir og þetta er
mjög þarft innlegg, “ segir Þórður.
Sumt í reglunum gengur
lengra en þörf er á
„Reyndar er sumt í reglunum
sem gengur lengra heldur en þörf
er á, eins og fram hefur komið í
umræðu að undanförnu en ég tel
að sú umræða sé til góðs.
Mikið starf hefur
verið unnið innan fjár-
málafyrirtækjanna,
sem og á milli þeirra,
um setningu á skýrum
verklagsreglum. Það
er nauðsynlegt að
fj ármálafyrirtækin
komi að þeirri vinnu
sem í hönd fer í kjöl-
far skýrslunnar sem
nú liggur fyrir.“
Hvað aðra spurn-
inguna varðar segist
Þórður ekki treysta
sér til að segja til um
hvort svo sé. „Ég
treysti mér ekki til að
tjá mig nokkuð um
það en ég dreg í efa að svo sé. Það
er sjálfsagt að reyna að draga upp
eins skýra verkaskiptingu eins og
hægt er í sama fyrirtæki. Það þarf
að draga upp þennan svokallaða
Kínamúr og sjá til þess að hann sé
sem allra skýrastur," segir Þórð-
ur.
Þórður kaus að svara ekki
þriðju spurningunni.
Þórður
Magnússon
Sigurður Atli Jónsson,
forstjóri Landsbrófa
Lög og verklags-
reglur eru skýrar
SIGURÐUR Atli Jóns-
son, forstjóri Lands-
bréfa, segir að lög og
verklagsreglur gildi um
starfsemi fjármálafyr-
irtækja.
Eflaust sé það mats-
atriði hvenær reglur
um óhlutdrægni eru
brotnar en lögin séu
hins vegar skýr og
verklagsreglur hafi
Sigurður Atli
Jdnsson
verið við lýði til fjölda
ára þótt nú standi til
að setja nýjar verk-
lagsreglur.
Sigurður Atli sagði
að skýrsla Fjármála-
eftirlitsins varðaði
samkeppnisaðila
Landsbréfa og fannst
honum ekki við hæfi
að tjá sig frekar um
málið.