Morgunblaðið - 27.07.2000, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 27.07.2000, Qupperneq 42
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÁSTA BJÖRNSDÓTTIR + Ásta Björnsdótt- ir fæddist 17. júní 1927 á Víkinga- vatni. Hún lést á heimili sínu 17. júlí sl. Foreldrar hennar voru Björn Gunnars- son skrifstofumaður frá Skógum í Oxar- fírði, f. 2.5. 1903, d. 29.5. 1995, og Ólöf Guðrún Kristjáns- dóttir húsfreyja frá Víkingavatni í Kelduhverfí, f. 12.5. 1892, d. 17.7. 1969. Systir Ástu er Krist- veig Björnsdóttir, f. 29.3. 1926. Hinn 5.6. 1953 giftist Ásta Haraldi Guðjónssyni lækni, f. 29.9. 1929, d. 19.8. 1973. Foreldrar hans voru Guðjón Sæmundsson bygg- ingameistari og Arnheiður Jóns- dóttir húsmæðrakennari. Ásta og Haraldur skildu. Sonur þeirra er Gunnar Haraldsson, f. 21.2. 1958. Gunnar er kvæntur Ásthildi Guðjohn- sen, f. 21.7. 1961. Dætur þeirra eru Gunnhildur Eva, f. 22.9. 1993, og Stef- anía, f. 14.12. 1998. Ásta stundaði nám í Kvennaskóla Reykjavfkur 1940- 1943, í Tónlistar- skóla Reykjavíkur 1943-1945 og í hús- mæðraskólanum í Tárna í Svíþjóð 1947-1948. Hún starfaði hjá Jóhanni Finnssyni tann- lækni 1951-1952 og hjá SÍS í rúm tvö ár. Ásta stundaði nám við Snyrtiskóla Inge Winter í Kaupmannahöfn 1956-1957. Aðalstarfsvettvangur Ástu var í títvegsbanka íslands, síðar íslandsbanka, en þar starfaði hún frá árinu 1959 til 1993. títför Ástu fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Sól Ástu frænku er gengin til viðar. Sól sem skein skært og yljaði öllum sem hana þekktu. Við skyndilegt fráfall hennar leita margar minningar á hugann. Það er sárt að fá ekki einu sinni enn að taka utan um hana og þakka henni fyrir allt það sem hún gerði fyrir okkur öll í fjölskyldunni. Ásta fluttist til Reykjavíkur frá Kópaskeri ellefu ára gömul eftir að hafa verið í tvö og hálft ár í fóstri ásamt systur sinni Krist- veigu. Móðir þeirra lamaðist og hafði verið flutt til Reykjavíkur þar sem fjölskyldan síðan samein- t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐJÓN GUÐMUNDSSON, Nesbala 12, Seltjarnarnesi, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 23. júlí, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu- daginn 28. júlí kl. 13.30. Þeir, sem vilja minnast hans, eru beðnir um að láta heimahlynningu Krabbameinsfélagsins njóta þess. Heimir Hávarðsson, Þuríður Magnúsdóttir, Haraldur Friðjónsson, Magnús Örn Friðjónsson, Elín Árnadóttir, Guðmundur V. Friðjónsson, Þórlaug Sveinsdóttir, Héðinn Friðjónsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR EINARSSON vélstjóri, Kaplaskjólsvegi 51, Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 24. júlí. Útförin auglýst síðar. Helga Markúsdóttir, Einar Ingi Einarsson, Svanhvít Guðjónsdóttir, Guðlaug Eyþórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, DAGNÝ JÓNSDÓTTIR, Hraunbæ 58, Reykjavík, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju föstudaginn 28. júlíkl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Minningarsjóð Heiðar Baldursdóttur, KHÍ, sími 563 3800. Hörður S. Óskarsson, Ómar S. Harðarsson, Ingibjörg Kolbeins, Harpa Harðardóttir, Anna Borg Harðardóttir, Jón Gunnar Grjetarsson, Óskar S. Harðarsson, Arndís Kristleifsdóttir, Jón Hugi S. Harðarson, Elsa J. Björnsdóttir og barnabörn. aðist. Lífið var því ekki auðvelt og mikið á litlar stúlkur lagt. Það átti síðar fyrir Ástu að liggja að að- stoða foreldra sína mikið og hafði hún því ekki alltaf mikinn tíma fyrir sig. Árið 1958 varð hún ein- stæð móðir og fór síðar að vinna í Útvegsbanka Islands við Lækjar- torg. Ásta hafði í miklu að snúast því hún þurfti að koma Gunnari syni sínum á barnaheimilið, vinna, fara í hádeginu heim til móður sinnar og aðstoða hana, rjúka aft- ur í vinnuna og svo framvegis. Hún naut mikillar aðstoðar Krist- jönu eða Diddu frænku en þær leigðu saman og var Didda oft með Gunnar lítinn, t.d. þegar Ásta þurfti að vinna fram eftir. Þetta var oft mikið álag. Við fráfall móð- ur sinnar árið 1969 fluttu Ásta og Gunnar með afa, föður Ástu, í Stigahlíðina og bjó Ásta þar til æviloka. Hún sinnti afa af alúð og fórnfýsi og hugsaði þá ekki alltaf um sínar eigin þarfir. I hið hraða neyslusamfélag nú- tímans vantar fólk eins og Ástu frænku. Hún var með stórt hjarta. Hún var ein sú óeigingjarnasta manneskja sem við þekkjum, örlát og gjafmild. Hún vildi öllum hjálpa og neitaði engum um aðstoð eða greiða. Það þurfti mjög lítið að gera til að gleðja hana. Þakklætið sýndi hún ætíð á sinn elskulega og einlæga hátt. Þegar við komum í heimsókn tók hún alltaf fagnandi á móti okkur með brosi sem alltaf náði til augnanna. Hún var glæsi- leg kona sem fólk tók eftir. Hún hafði mikinn áhuga á tónlist og naut þess að hlusta á falleg, sígild tónverk. Einnig var hún mikil hannyrðakona og liggur margt fallegt eftir hana, t.d. peysur á börnin. Hún var hamhleypa til vinnu og afkastaði meiru en nokk- ur annar þegar við vorum t.d. við þrif og tiltekt í „sumó“ svo ekki sé minnst á ef einhver í fjölskyldunni var að flytja. Þá komu þær systur og fóru eins og stormsveipur um allt. Þeir áttu sko gott sem voru að fá íbúðirnar afhentar. Ásta var frábær fulltrúi fyrir þá kynslóð sem ekki þekkir leti og iðjuleysi. Líf okkar systkinanna er samof- ið lífi Ástu og Gunnars. Þegar aðr- ir sögðu mamma og pabbi sögðum við mamma og Ásta. Ásta var okk- ur sem önnur móðir og Gunnar sem bróðir. Alltaf kom hún fram við okkur eins og sín eigin börn og fjölskyldur okkar nutu alla tíð elsku hennar, umhyggju og gjaf- mildi. í huga barnanna var hún alltaf önnur amma. Þau muna gæluyrðin sem hún notaði eins og „ungi litli“, „kroppur litli“ og „hjartað mitt“. í þeirra huga kem- ur fyrst upp að hún var svo góð, hún var eins og amma. Fastir punktar í lífi fjölskyldunnar á heimili Ástu voru laufabrauðsgerð, jólaboð á jóladag og afmæliskaffi á 17. júní. Minningar um sláturgerð og alla aðra merkisdaga fara um hugann og alltaf er Ásta þar. Börnin spyrja: „Hvar eigum við núna að gera laufabrauð?" Mikill er missir Gunnars og Ást- hildar og dætra þeirra, Gunnhildar Evu og Stefaníu, sem ekki njóta ömmu sinnar lengur. Móðir okkar og Ásta voru mjög tengdar systur og er missir mömmu mikill en öll yljum við okkur við minningar sem ekki verða frá okkur teknar. Elsku Ásta okkar. Takk fyrir allt sem þú hefur verið okkur. Við vitum að þér verður tekið fagnandi hinum megin. Guð blessi minningu Ástu frænku. Björn, Sigríður og Guðrún. Þegar ég fór í vinnuna mánu- dagsmorguninn 17. júlí grunaði mig síst að mamma myndi koma til mín upp úr hádegi og tilkynna mér lát Ástu frænku. „Nei, það getur ekki verið," hugsaði ég, „ekki hún Ásta frænka." Það er svo stutt síðan ég hitti hana hressa og káta á afmælinu hennar. Þá hefði nú engan órað fyrir því að það yrði í síðasta sinn. Það er enn svo óraunverulegt að hugsa til þess að eiga aldrei aftur eftir að koma til hennar í Stiga- hlíðina eða sjá hana koma bros- andi inn um dyrnar hjá okkur í Dúfnahólunum, gefa manni knús og segja „Sæl elskan mín“ eins og hún gerði alltaf þegar við hitt- umst. Ásta var einkasystir föðurömmu minnar og nöfnu. Þær voru ein- staklega nánar. Ásta, sem við köll- uðum alltaf Ástu frænku, hefur verið okkur barnabörnum ömmu sem önnur amma í gegnum árin, enda vorum við öll komin vel á legg þegar Gunnhildur Eva og Stefanía litla fæddust. Á svona stundum er margt sem kemur upp í hugann, enda margs að minnast. Ofarlega í huganum eru laufabrauðsdagarnir sem voru alltaf haldnir í lok nóvember. Þá hittust allir heima hjá Ástu frænku og skáru út heljarinnar býsn af laufabrauði. Einnig var alltaf hist heima hjá Ástu frænku á jóladag í gegnum árin og eru það ógleymanlegar minningar frá upp- vextinum. Með fráfalli Ástu frænku er komið stórt skarð í fjöl- skylduna okkar sem verður aldrei fyllt. Ég sjálf minnist þess sérstak- lega að þegar ég var au-pair í Bandaríkjunum á síðasta ári átti ég til að hringja í Ástu frænku bara til að heyra í henni hljóðið. Hún var alltaf svo ánægð þegar maður hringdi og glöð að fá fréttir af manni. Söknuðurinn er mikill en minningin um yndislega konu mun lifa í hjarta okkar allra um ókomin ár. Guð geymi þig elsku frænka. Kristveig. Elsku besta Ásta frænka. Til- finningum mínum kem ég ekki á neitt blað, en það er svo stutt síð- an við fórum nokkrir ættingjar saman með jarðneskar leifar afa Björns norður að Víkingavatni svo hann gæti hvílt hjá ömmu Guð- rúnu. Ég ók þínum bíl með þér og mömmu.Við tókum smákrók og renndum á Siglufjörð, því önnur ykkar hafði ekki komið þar í ca. hálfa öld.Við skoðuðum einnig Dettifoss frá „hinurn" bakkanum og fleira gerðum við í þeirri ferð. Hver hefði trúað því þá að svo stutt yrði á milli ykkar? Ávallt varstu tilbúin með opna arma þeg- ar ég kom í heimsókn eða þurfti á þér að halda, en það var strax á öðru ári þegar mamma fékk Akur- eyrarveikina og þú bjóst á Tjarn- argötunni. Ég veit ekki í hversu margar vikur ég var þar. Þegar ég svo flutti í Hlíðai-nar þegar Hildur Sóley fæddist og við komum tvö saman í miðjum göngu- eða hjól- reiðatúr við hjá þér, oft án þess að gera boð á undan okkur, varstu alltaf svo elskuleg og góð og vildir gefa okkur það besta sem þú áttir, í tvöfaldri merkingu. Líka þegar fjölmennt var hjá þér í Stigahlíð- inni, sem æði oft var, og einnig upp í „Sumó“ öll árin. Það fyrsta sem kom þó upp í hugann var þeg- ar þú gekkst á röðina (á undan eða eftir mömmu man ég ekki) upp í „Sumó“ og kysstir okkur krakkana góða nótt eftir að amma Guðrún hafði sagt okkur enn eitt ævintýrið eða þjóðsöguna sem við þreytt- umst aldrei á að hlusta á. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, HERBERT A. JÓNSSON, Hafnarbraut 54, Neskaupsstað, sem lést mánudaginn 24. júlí sl., verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju laugardaginn 29. júlí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans, er bent á orgelsjóð Norðfjarðarkirkju. Sigríður Herbertsdóttir, Stefán Þór Herbertsson, Árdís Björg ísleifsdóttir, Tryggvi Þór Herbertsson, Sigurveig Ingvadóttir, Víðir Þór Herbertsson, Ragnhildur Blöndal, barnabörn, barnabarnabörn og systkini. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, LAUFEY GUÐNÝ KRISTINSDÓTTIR, Álfheimum 44, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 25. júlí. Sigríður Einarsdóttir, Birna Einarsdóttir, James Hine, Ellen María Einarsdóttir, Hildur Guðjónsdóttir, Ellen Melkorka Hine. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir, systir og mágkona, NÍNA GUÐRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR innheimtustjóri, Vegghömrum 6, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstu- daginn 28. júlí kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartavernd. Kjartan Reynir Hjaltason, Stella Ósk Hjaltadóttir, Alexander, Aðalsteina Sigurjón K. Níelsen, Gísli Sigurjónsson, Guðmundur P. Sigurjónsson Birgir Sigurjónsson, Ósk Sigurjónsdóttir, Sigurjón S. Níelsen, Linda K. Pálsdóttir, Halldór Gunnlaugsson, Líf og Ágúst Freyr, Elfn Sæmundsdóttir, Jóhanna H. Bjarnadóttir, Þóra B. Ágústsdóttir, Laufey Sigurðardóttir, Stefán Ö. Magnússon, Helga Hillers.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.