Morgunblaðið - 27.07.2000, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 27.07.2000, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 2000 MINNINGAR MORGUNB LAÐIÐ + Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, INGIMUNDUR INGIMUNDARSON frá Svanshóli, verður jarðsunginn frá Hólmavíkurkirkju laug- ardaginn 29. júlí kl. 14.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Styrktarsjóð Kaldrananeskirkju (Búnaðarbanki íslands, Hólmavík, reikningsnr. 0316-03-280601). Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ingibjörg Sigvaldadóttir og synir. Elskulegur bróðir minn og faðir okkar, ALFREÐ HARALDSSON frá Neskaupstað, lést fimmtudaginn 13. júlí síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þakkir séu færðar til starfsmanna Byrgisins og Krossgötumanna. Guð blessi starf þeirra. Fyrir hönd aðstandenda, Bjarney Sigurðardóttir og dætur hins látna. + Móðir okkar og tengdamóðir, ÓLA GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR, Barónsstíg 78, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 28. júlí kl. 13.30. Margrét Halldórsdóttir, Axel Jónsson, Bergljót Halldórsdóttir, Leifur ísleifsson, Ásdís Halldórsdóttir, Kristján Eyjólfsson. + Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu samúð og vinarhug við andlát og útför systur okkar, MÖRTU SIGRÍÐAR JÓNASDÓTTUR frá Efri-Kvíhólma, Austurvegi 33, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima á Selfossi. Systkini hinnar látnu. + Okkar innilegustu þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BALDURS BRYNJARS ÞÓRISSONAR, Tjaldanesi 13, Garðabæ. Erla Bech Eiríksdóttir, Hrafnhildur Baldursdóttir, Hörður Magnússon, Þórir Baldursson, Auður Guðmundsdóttir, Óskar Baldursson, Þórhalla Steinþórsdóttir og afabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, GUÐRÚNAR KRISTÍNAR HJARTARDÓTTUR ' frá Hlíðarenda, Bárðardal. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki A-deildar Dvalarheimilisins Hlíðar, Akureyri. Karen Ó. Hannesdóttir, Ólafur Olgeirsson, Aldís R. Hannesdóttir, Kristján F. Júlíusson, Sigrún B. Hannesdóttir, Jónas Karlesson, barnabörn og barnabarnabörn. + Eyþór Þórðar- son kennari fæddist 20. júlí 1901 á Kleppjárnsstöðum í Hróarstungu á Héraði. Hann lést á Fjór ðungssj úkr a- húsinu í Neskaup- stað hinn 20. júlí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Þórður Bjarnason, vinnu- maður á Geirastöð- um og Sólveig Jóns- dóttir, vinnukona á Kleppjárnsstöðum. Eyþór var hjá föður si'num og aldraðri systur hans en missti föður sinn er hann var á fjórða ári. Eftir það var hann al- inn upp hjá Sigurrósu Eyjólfs- dóttur en þau voru bræðrabörn. Var hann siðan á hennar vegum fram að fermingu, Iengst af á Hrærekslæk í Hróarstungu. Eyþór kvæntist Ingibjörgu Sig- urðardóttur frá Stuðlum í Norð- firði vorið 1943. Þau áttu heimili á Stekkjargötu 3 í Neskaupstað alla sína búskapartíð. Ingibjörg var ekkja og átti tvö böm en sam- an eignuðust þau Eyþór þrjár dætur. Foreldrar Ingibjargar voru Pálína Þorleifsdóttir frá Skálateigi í Norðfirði og Sigurður Finnbogason frá Eyri í Reyðar- firði. Börn Eyþórs og Ingibjargar eru: Hallbjörg Eyþórsdóttir, af- greiðslustjóri hjá Islandspósti, gift Stefáni Pálmasyni rafveitu- stjóra. Þau eru búsett í Neskaup- stað og eiga þrjú börn og sjö barnabörn; Elínborg Eyþórsdótt- ir, gjaldkeri hjá íslandspósti, gift Sigfúsi Guðmundssyni, umboðs- manni Flugfélags Islands og Flugleiða. Þau eru búsett í Nes- kaupstað og eiga tvö börn og sex barnabörn; Eygerður Sigrún en hún lést á öðru aldursári. Áður átti Ingibjörg tvö börn: Ólína Þor- leifsdóttir, búsett í Reykjavík, eiginmaður hennar var Björgvin Jónsson fram- kvæmdastjóri, hann er látinn. Þau eiga sex börn, átján barna- börn og sjö barna- barnabörn; Þorleifur Þorleifsson skipstjóri, kvæntur Ellen Ólafs- dóttur. Þau eru bús- ett í Þorlákshöfn og eiga þijú börn og þrjú barnabörn. Eyþór fluttist að heiman strax eftir fermingu og var vinnumaður á ýmsum bæjum á Héraði í nokkur ár. Haustið 1921 fór hann í Alþýðuskólann á Eiðum og var þar í tvo vetur. Hann lauk kenn- araprófi frá Kennaraskóla ís- lands vorið 1925. Einnig sótti hann nokkur námskeið í garð- yrkju og kennslu á sumrin. Hann vann við byggingarvinnu í Hafn- arfirði og við upp- og útskipun við togara þar á sumrin og var mat- sveinn á sfldarbát frá Siglufirði í eitt sumar. Farkennari var hann í Norðfjarðarhreppi í átta vetur og árið 1933 tók hann að sér að sjá um byggingu skólahúss að Kirkjumel. Hann var settur kenn- ari við Nesskóla haustið 1933 og gegndi því starfi með nokkrum hléum vegna annarra starfa þar til hann sagði því lausu árið 1968 fyrir aldurs sakir. Hann kenndi þó við Nesskóla sem stundakenn- ari til ársins 1972. Hann kenndi einnig við Gagnfræðaskólann og Iðnskólann í Neskaupstað og á stýrimannanámskeiðum sem haldin voru í bænum. Hann var settur skólastjóri Nesskóla í fjög- ur ár. Eyþór var fyrsti bæjarstjóri (1936-1938) í Neskaupstað sem kjörinn var af bæjarstjórn en áð- ur hafði það starf fylgt embætti bæjarfógeta. Eftir að hann fluttist til Neskaupstaðar var sumar- vinna hans einkum fólgin í garð- rækt og skógrækt. Hann skipu- lagði og annaðist gerð lóða og garða s.s. skrúðgarðs í Neskaup- stað, lóðar sundlaugarinnar, kirkjugarðs, Ióðar bæjarfógeta- bústaðar og prestsbústaðar, lóðar Alþýðuskólans á Eiðum og skrúð- garðs á Eskifirði. Hann sat í sókn- arnefnd Neskaupstaðar í 43 ár og var gjaldkeri hennar. Því starfi fylgdi umsjón með kirkjuhúsi, kirkjugörðum, greftrun o.fl. Ey- þór var hringjari og meðhjálpari við Norðfjarðarkirkju og safnað- arfulltrúi til margra ára. Hann sat í bæjarstjórn Neskaupstaðar í 24 ár og einnig í fjölda nefnda kosnum af bæjarstjórn. Hann var fasteignamatsmaður og sátta- maður til fjölda ára. Árið 1958 stofnaði hann útgerðarfélagið Gletting hf. ásamt konu og börn- um og var stjórnarformaður og aðalbókari þess í tíu ár þar til fé- lagið var flutt til Þorlákshafnar. Umboðsmaður fyrir Almennar tryggingar var hann í mörg ár og gjaldkeri Skógræktarfélags Nes- kaupstaðar í þijátíu ár. Hann sat í stjórnum Sparisjóðs Norðfjarðar, Kaupfélagsins Fram, Sjúkrasam- lags Neskaupstaðar og Búnaðar- félags Neskaupstaðar. Hann gegndi formennsku í stjórn Kf. Fram, stjórn Búnaðarfélags Nes- kaupstaðar, útmælingarnefndar Neseignar, áfengisvarnarnefndar og sáttanefndar. Hann var endur- skoðandi Dráttarbrautarinnar hf. í þrjátíu ár og endurskoðandi bæjarreikninga í 20 ár eftir að hann hætti í bæjarstjórn. Einnig sá hann um framkvæmdastjórn, bókhald og reikningsskil ýmissa smærri fyrirtækja í bænum. Eyþór hlaut nokkrar viður- kenningar fyrir unnin störf, m.a. úr sjóði Kristjáns konungs IX fyr- ir ræktunarstörf, ágrafinn silfur- bikar frá Skógræktarfélagi ís- lands og riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf að skólamálum og félagsmálum. Þá var Eyþór ævifélagi í Hinu ís- lenska garðyrlqufélagi, Skóg- ræktarfélagi Austurlands og Hinu islenska biblíufélagi. Útför Eyþórs fer fram frá Norðfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. EYÞÓR ÞÓRÐARSON í dag verður kvaddur frá Norð- fjarðarkirkju góður vinur, Eyþór Þórðarson. Hann vantaði nákvæm- lega eitt ár til að fylla 100 árin. Fjórðung þess tíma þekktumst við því það var sumarið 1976 sem leiðir okkar Eyþórs lágu fyrst saman. Hann var gjaldkeri sóknarnefndar í Neskaupstað árið sem ég gerðist þar sóknarprestur. Eftir Eyþór liggja mörg verk, sýnileg sem ósýnileg. Strax við fyrstu kynni fann maður að Eyþór var gætinn í fjármálum og vildi kunna fótum sín- um forráð á því sviði. Hann vildi að fjárhag Norðfjarðarkirkju yrði ekki stefnt í neina tvísýnu og gætni og aðhalds yrði gætt í hvívetna. Ekki voru allir sammála honum hversu langt ætti að ganga í þessu en Ey- þóri varð trauðla hnikað og af mikl- um þunga varði hann sannfæringu sína. Þótti sumum kollegum mínum og fyrirrennurum Eyþór stundum full aðhaldssamur hvað þetta varð- aði. Eyþór gegndi störfum gjald- kera Norðfjarðarkirkju í áratugi og fórst það vel úr hendi. Hann inn- heimti sóknargjöld áður fyrr sjálfur og voru til margar sögur um þessar innheimtuferðir hans, sumar spaugilegar. Þegar söfnuðurinn réðst í byggingu safnaðarheimilis á níunda áratugnum nutum við þess þá að fjármálastjórn Eyþórs hafði orðið til þess að söfnuðurinn átti talsvert handbært fé sem hjálpaði okkur að fara af stað. Slíkt var ekki algengt í þá daga. Ég man að Ey- þóri þótti það mikill heiður þegar ég bað hann að taka fyrstu skóflu- stunguna að þeirri byggingu og hann var einlægur stuðningsmaður þess góða verkefnis alla tíð. Eyþór kom víða við í starfsemi kirkjunnar. Hann var um árabil umsjónarmaður kirkjugarðsins. Ég bað hann líka að byggja upp og ann- ast hluta af lóðinni kringum safnað- arheimilið. Það allt gerði hann af sinni alkunnu smekkvísi og áhuga á garðrækt sem hann var þekktur fyrir í Neskaupstað. Bera mörg svæði þar handbragð hans og þá helst skemmtigarðurinn í miðbæn- um sem hann vann við en kvenfé- lagið Nanna átti frumkvæði að gerð hans á sínum tíma. Þá gerði hann að mestu frumvinnuna við lóð prest- setursins þar eystra og var okkur hjónum besti ráðgjafi í garðyrkj- unni þar. Áhugi Eyþórs í garð kirkju sinn- ar beindist ekki bara að hinum ytri ramma. Hann var sjálfur einlægur trúmaður, sótti kirkju nær hvern helgan dag ásamt sinni góðu konu, Ingibjörgu, meðan hennar naut við en hún lést í lok níunda áratugarins. Eyþór sótti einnig um langan tíma félagsstarf aldraðra sem kirkjan rak með öðrum í safnaðarheimilinu. Nú síðari árin dvaldi Eyþór á elli- deild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, vel á sig kominn lengst af líkamlega og andlega. Helst var að sjóndepra hrjáði hann síðustu árin. Það var gott að vitja hans þar þegar ég heimsótti Nes- kaupstað undanfarin ár. Hann var ótrúlega minnugur og sagði skemmtilega frá með þetta sérstaka bros og kímni sem hann bjó yfir. Eyþór kom víða við í lífí sínu og spor hans lágu víða í Neskaupstað. Hann var bæjarfulltrúi og bæjar- stjóri um tíma, sat í ýmsum ráðum og nefndum. Hann var kennari að lífsstarfi en vann jafnframt ýmsa aukavinnu við bókhald og uppgjör og þar var allt nákvæmlega og sam- viskusamlega unnið eins og hans var von og vísa. Eyþór var skap- mikill og kappsamur og lét ógjarn- an hlut sinn. Því voru honum ekki allir alltaf sammála og fannst hann stundum óþai-flega einsýnn og þver. En hann stóð við sitt og var ógjarn- an haggað. Ég veit að mörgum sem erfitt áttu reyndist hann vel og ekki fóru þeir eiginleikar hans hátt. Ég minnist margra ánægju- stunda með Eyþóri. Við spjölluðum mikið saman, spiluðum bridge auk starfa okkar beggja við kirkjuna. Mér reyndist Eyþór ráðagóður og hollur vinur. Kannski var það vegna þess að við áttum ólíkt skap en kunnum að virða hvor annan. Báðir áttum við metnað fyrir hönd kirkjustarfsins og þar fann ég að ég átti í Eyþóri eins og öðrum dyggan Þegar andlát ber að höndum Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan iy ^ T sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja / UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.