Morgunblaðið - 22.08.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐ JUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 13
Eldur í Hafnarfírði
FRÉTTIR
Aðflug að Reykj avíkur flugvelli
ELDUR kom upp aðfaranótt laugar-
dagsins í skúr áföstum Reykdals-
verksmiðjunni sem staðið hefur auð
um nokkuð skeið. Skúrinn hefur ver-
ið notaður sem spónageymsla. Að
sögn lögreglu var líklega um
íkveikju að ræða. Tveir bflar frá
slökkviliði voru sendir á staðinn.
Greiðlega gekk að ráða niðurlögum
eldsins, sem ekki var umfangsmikill
þó töluverður reykur hafi fylgt hon-
um. Miklar skemmdir urðu á
geymslunni en unnt var að bjarga
húsinu sjálfu.
MORGUNBLADINU hefur borist
eftirfarandi frá Þorgeiri Pálssyni
flugmálastjóra:
„í tilefni af fyrirspurn Óla Hilm-
ars Jónssonar í Morgunblaðinu (Vel-
vakanda) hinn 11. ágúst sl. og vegna
annarrar umfjöllunar um aðdrag-
anda flugslyssins á Reykjavíkurflug-
velli 7. ágúst síðastliðinn er rétt að
eftirfarandi komi fram:
1. Umrædd flugvél var í sjónað-
flugi að suðurflugbraut flugvallarins.
Samkvæmt þeim reglum, sem um
slíkt flug gilda, ákveður flugumferð-
arstjórinn í hvaða röð flugvélum er
beint inn til lendingar og veitir þeim
leiðbeiningar um hvernig haga skuli
aðfluginu. Flugmaðurinn ber hins-
vegar ábyrgð á því að halda hæfi-
legri fjarlægð frá flugvél, sem er á
undan honum á leið til lendingar.
Hann fær síðan sérstaka lendingar-
heimild frá flugturni.
2. Þegar hægfleyg flugvél fylgir á
eftir hraðfleygari vél dregur sundur
með þeim. I umræddu tilviki var því
bilið á milli flugvélanna heldur að
aukast í aðfluginu, þótt það nægði
ekki til að síðari flugvélin gæti lent
óhindrað.
3. Engar aðstæður voru fyrir
hendi í aðfluginu, sem kölluðu á að
aðskilnaði milli flugvélanna væri
haldið í lágmarki, enda gaf flugturn-
inn engin slík fyrirmæli.
4. Algengt er að hætta verði við
lendingu vegna hindrunar á flug-
braut eða vegna þess, að veðurskií-
yrði eru ekki nægilega hagstæð til
lendingar. Flugmenn eru því ætíð
undir það búnir og vanir að fást við
slíkar aðstæður.
Samkvæmt athugun flugumferð-
arsviðs Flugmálastjórnar var stjórn
umferðar við flugvöllinn hið afdrifa-
ríka kvöld 7. ágúst að öllu leyti með
eðlilegum hætti. Rannsókn slyssins
er hinsvegar í höndum rannsóknar-
nefndar flugslysa sem hefur síðasta
orðið um alla þætti þess. Almennt
fjallar Flugmálastjórn ekki um or-
sakir eða aðdraganda flugslysa fyrr
en niðurstaða rannsóknar liggur fyr-
ir nema ekki verði hjá því komist.“
Reiðtygjum stolið
LÖGREGLAN í Hafnarfirði óskar
eftir vísbendingum vegna þjófnaðar
á reiðtygjum og fleiru úr hesthúsi við
Blesavelli 7. ágúst sl. Fimm hnökk-
um var stolið og voru tveir þeirra
barnahnakkar með handfangi, þá
voru tveir hnakkanna brúnir, annar
merktur „Grödz“ og hinn „Þorvalds-
hnakkur" og loks var stolið svörtum
hnakki merktum „Hrafn“. Einnig
var ýmsu lauslegu stolið, s.s. dýnum,
úlpu, borvél, reiðstígvélum, gjörðum
og reiðhjálmum. Andvirði þýfisins er
um 800-900 þúsund krónur.
Oruggur með sig
Renault Megane er öruggasti bíllinn í sínum stærðarflokki
samkvæmt öryggisprófunum NACP
Renault Mégane Berline
17.130,-
á mánuði*
Verð frá 1.398.000,- 5 dyra - 5 gíra - 1400cc - 4 loftpúðar - abs-
fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar
Renault Mégane Classic
19.556,-
/ / N* ác *
a manuor
Verð frá 1.598.000,- 5 dyra - 5 gíra - 1600cc - 4 loftpúðar - abs
- fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar
Renault Mégane Break
19.920,-
á mánuði*
Verð frá 1.628.000,- 5 dyra - 5 gíra - 1600cc - 4 loftpúðar - abs -
fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar
*meðalútborgun á mánuði miðað við 25% útborgun (t.d. notaðan bíl) og afganginn á 84 mánuðum.
Grjóiliúls 1
Sími 5751200
Söludeild 575 1220
Komdu og prófaðu þann sem hentar þér
%
RENAULT