Morgunblaðið - 24.09.2000, Page 5

Morgunblaðið - 24.09.2000, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 B 5 Jacques Chirac Asakanir um mis- beitingu að handan París. AFP, Reuters. JACQUES Chirac Frakklandsfor- seti sætti í vikunni ásökunum um misbeitingu valds er afrit af játn- ingum Jean-Claude Mery, sem eitt sinn gegndi valdastöðu í flokki Gaullista (RPR) - flokki Chiracs, var birt í fimmtudags- og föstudagsblaði Le Monde. I játningum sem teknar voru upp á myndband árið 1996 útskýrh’ Mery, sem nú er látinn, hvernig hann hafí staðið fyrir ólöglegri fjáröflun fyrir RPR á níunda ára- tugnum, er Chirac gegndi embætti borgarstjóra Parísar. Greinir Mery m.a. frá því hvern- ig byggingarleyfi í París hafi verið veitt gegn fjárgjöfum til flokksins og segir Mery þessa fjáröflunar- leið hafa verið tilkomna vegna fyr- irskipana frá Chirac sjálfum. Að sögn Le Monde lýsir Mery á myndbandinu til að mynda fundi sínum og Chiracs árið 1986, er Chirac gegndi embætti forsætis- ráðherra. Voru Michael Roussin, samstarfsmanni Chiracs, þar af- hentar fimm milljónir franka, eða rúmar 50 milljónir króna, í viður- vist Chiracs. „Forsætisráðherrann sat á móti mér ... Við ræddum um hver hefði gefið féð, hvers vegna og hvað við hefðum gert,“ hefur Le Monde eft- ir Mery. „Þennan dag lagði ég fimm milljónir franka á borð Roussins í viðurvist Chiracs." Ásakanirnar eru þær alvarleg- ustu sem Chirac hefur sætt, en áð- ur hefur verið gefið í skyn að for- setinn hafí gerst sekur um fjár- glæfrastarfsemi. Chirac neitaði aífarið ásökunum Le Monde á fimmtudag og sakaði hann póli- tíska andstæðinga sína um að eiga hlut að máli. „Fyrst koma þeir á kreik sögum um að ég sé heilsuveill - með öðr- um orðum að ég sé ófær um að sinna starfi mínu - og nú kemur þessi ótrúlega saga. Jafnvel rógur verður að hafa sín takmörk," sagði Chirac í viðtali við franska sjónvarpsstöð. Lítri á hundraðið? Hamborg. AFP. VOLKSWAGEN, stærsti bfla- framleiðandi Evrópu, stefnir að því að hefja framleiðslu á næstu þremur árum á bfl sem eyðir aðeins lítra af bensíni á hundr- að kflómetrum. Þetta kemur fram í viðtali við stjórnarformann fyrirtækisins, Ferdinand Piech, í þýska viku- ritinu Stern. Volkswagen hefur þegar haf- ið sölu á nýjum bíl, Lupo, sem getur ekið 100 kflómetra á að- eins þremur lítrum af bensíni. Piech kveðst vera viss um að hann geti einnig ekið bíl sem eyði aðeins einum lítra á hundraðið áður en hann lætur af stjórnarformennsku árið 2003. Hátt bensínverð er helsta ástæða þess að dregið hefur úr sölu á bflum í heiminum, að sögn Piech. Hann segir að hver verðhækkun síðustu 18 mánuði hafi orðið til þess að bflaeftir- spurnin hafi minnkað. ERLENT Árþúsundahvelfingm í Lundúnum Hugsanlega rifín HUGANLEGT er að hin umdeilda árþúsundahvelfing í Lundúnum verði rifin í byrjun næsta árs eftir að japanski fjárfestingabankinn Nom- ura féll frá kauptilboði sínu þar sem ekki hefðu verið veittai- fullnægjandi upplýsingar um reksturinn. Bankinn hugðist koma upp skemmtigarði í hvelfingunni og hafði boðið 105 milljónir punda, eða jafn- virði 12,3 milljarða íslenskra króna, í bygginguna. Breska stjórnin er mjög áfram um að hvelfingin standi um ókomin ár á Greenwich-nesi og hyggst taka upp viðræður að nýju við fyrirtækið Legacy, sem hefur lagt til að hvelfingin verði gerð að hátækni- legri viðskiptamiðstöð. Stjórnvöld hafa þó falið stofnun í eigu ríkisins, sem fer með eignarhald á landinu sem hvelfingin stendur á, að kanna hvernig það yrði nýtt með hagkvæm- ustum hætti. Því kann að fara svo að árþúsundahvelfingin, sem var byggð til að standa í að minnsta kosti 25 ár, verði rifin niður um áramótin. Árþúsundahvelfingin og öll vand- ræðin í kringum hana hafa reynst stjórninni þungur baggi. Ekkert var sparað til við byggingu hennar sem kostaði 800 milljónir punda eða um 94 milljarða íslenskra króna. Valda vatns- orkuver gróður- húsaáhrifum? Toronto. Morgunblaðið. NÝLEG rannsókn bendir til þess að vatnsorkuver, sem jafnan hafa verið talin umhverfisvæn orkulind, spúi gífurlegu magni gróðurhúsaloftteg- unda út í andrúmsloftið, að því er fram kemur í frétt kanadíska blaðs- ins The Globe and Mail. I ritgerð um niðurstöður rann- sóknarinnar, sem birtist í septem- berhefti vísindaritsins BioScience, segir að 18% alls ónáttúrulegs met- ans í heiminum komi úr miðlunarlón- um, og 4% af ónáttúrulegum kol- tvísýringi, en bæði þessi efni auka á hækkun hitastigs í andrúmsloftinu. Sérhönnuð vatnsglös Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18 HÁRLOS Það er óþarfi - fáðu hjálp Þumalína, Pósthússtræti 13 á mann í tvíbýli í 2 nætur á Forte Posthouse Kensington (í okt.) á mann í tvíbýli í 2 nætur á Forte Posthouse Kensington (í nóv.-mars) á mann í tvíbýli í 2 nætur á Millennium Britannia Mayfair (okt.-mars) Hafið samband við söluskrifstofur Flugleiða eða Fjarsöludeild Flugleiða í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 8-20, laugard. frá kl. 9-17 og á sunnudögum frá kl. 10 - 16.) * Innifalið: Flug, gisting, morgunverður og flugvallarskattar. London Þessi tilboð eru í gildi frá I. okt til 31. mars. París frá 41.675 kr.* á mann í tvíbýli í 3 nætur á Home Plazza Basstille (í okt.) frá 37.805 kr.* á mann í tvíbýli í 3 nætur á Home Plazza Basstille (í nóv.-mars) Glasgow frá 28.875 kr.* á mann í tvíbýli í 2 nætur á Forte Posthouse Glasgow (okt.-mars) Wlesbaden frá 36.255 kr.* á mann í tvíbýli í 3 nætur á Hotel Ibis Wiesbaden (okt.-mars) Halifax frá 36.225 kr * á mann í tvíbýli í 4 nætur á The Lord Nelson Hotel (okt.-mars) 1 t i lJ ÍCELANDAIR www icelandair is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.