Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 6
MORUUNBLAÐIÐ 6 B SUNN UDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 Þegar kerlingin lenti með æti stukku ungarnir að henni. Við fálka- hreiður Fálkinn er einn tígulegasti fugl íslands og var konungsgersemi fyrr á öldum. Daníel Bergmann ljósmyndari fékk leyfí til að fylgjast með valshreiðri norður í landi. FÁLKI eða valur er stór og tígulegur ránfugl með langa, breiða, odddregna vængi og stél, stærsti fugl fálkaættarinnar og var konungsgersemi fyrr á öldum og um tíma í skjaldarmerki Islendinga.“ las ég í Fuglavísi Jóhanns Óla Hilmarssonar þar sem ég sat yfir kaffibolla í ónefndri þjóðvegasjoppu á leiðinni norður. Förinni var heitið í Þingeyjarsýslur sem eru höfuðvígi fálkans og tilgangur ferðarinnar var að dvelja við fálkahreiður til ljósmyndatöku. Eina þekking mín á þessum tiltekna fugli hafði komið úr bókum eins og þeirri sem ég hélt á. Vissulega hafði ég séð þeim bregða fyrir á ferðalögum um landið en þó aldrei í návígi, og þær fáu tilraunir sem ég hafði reynt til að nálgast fálka höfðu reynst árangurslausar þar sem þeir eru varir um sig. Eg vissi að besta von mín til nálgunar væri í grennd við hreiður en til að dvelja í námunda við fálkahreiður þarf sérstakt leyfi frá umhverfis- ráðuneytinu. Eftir að hafa aflað mér þess var því ekkert til fyrirstöðu og ég lagði af stað. Hreiður fundið Þegar norður var komið hitti ég fyrir Ólaf Karl Nielsen, fugla- fræðing hjá Náttúrufræðistofnun, sem er sérfræðingur í fálkum. Hann hafði nýverið ferðast um svæðið, vitjað um hreiður og merkt unga þar sem mögulegt var. Ólafur gaf mér upplýsingar um hreiðurstaði og þó nóg sé af þeim í þessum landshluta voru fá sem komu til greina því fálkinn verpur oftast á mjög óaðgengilegum stöðum, í klettum eða gljúfrum. Eftir nokkrar vangaveltur ákvað ég að reyna við hreidur sem virtist samkvæmt lýsingum Ólafs vera óvenjulega aðgengilegt þar sem nánast var hægt að aka upp að því. Leiðarlýsingarnar voru nákvæmar og það gekk greiðlega að finna staðinn. Ég ók vegar- Hreiðrið var ekki vistlegt um þær mundir sem ungarnir voru orðnir fleygir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.