Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Inga Bjarnason leikstjóri hefur virkilega fengið að finna fyrir því hvað það þýðir að ganga í gegnum mögur ár. Þau eru nú orðin sex og segist hún því eiga eitt eftir. En það er enga uppgjöf aó heyra á henni og hér segir hún Súsónnu Svavarsdóttur frá harkalegri lífsreynslu sinni á síðustu árum og þeirri framtíð sem hún er nú þegar byrjuð að byggja upp. ÍAÐ er á erfiðleikatímum sem styrkur hvers ein- k staklings verður ekki |i aðeins mælanlegur, f heldur blátt áfram sýnilegur. Það hefur hver sinn drösul að draga, segir máltækið en minnist hins vegar ekki á að sá drösull getur spymt við fótum af svo miklum þunga á stuttum tíma að nánast ógerlegt er að komast skrefið með hann eftir það. Þetta hefur leikstjórinn Inga Bjamason fengið að reyna í gegnum makamissi og baráttu við krabba- mein og hefði kannski ekki komið á óvart að finna hana volandi af sjálfs- meðaumkvun einhvers staðar úti í þjóðfélagshorninu. En, ónei. Það hefur aldrei verið hennar stíll. Það er í nógu að snúast hjá Ingu þessa dagana. Hún er kom- in í skólarekstur; það er að segja hún hefur komið á laggirnar fomámi fyr- ir leiklistarskóla sem hún rekur ásamt Jóni Viðari Jónssyni, auk þess sem hún er aftur komin í leikstjóm eftir nokkurt hlé og fleira er á döf- inni. Og það er eins og ekkert mark- vert hafi gerst, því Inga er lítið breytt. Hefur að vísu öðlast meiri kyrrð og íhygli en skopskynið er ennþá mest áberandi þátturinn í fari hennar, ekki síst hæfileikinn til að gera grín að sjálfri sér. En hvers vegna fomám fyrir leiklistarskóla? „Það er forskóli í öllum listgrein- um nema leiklist,“ svarar Inga. „Þegar maður fer að hugsa um það hveijir komast inn í leiklistarskól- ann hér, þá eru það aðallega böm leikhúsfólks sem hafa leikið sem böm og unglingar, auk krakka sem hafa leikið hjá áhugaleikfélögum úti á landi. Þau hafa jafnvel fengið að leika stór hlutverk undir handleiðslu reyndra leikstjóra. Síðan er eitthvað um að krakkar sem hafa tekið þátt í leiklistarstarf- semi framhaldsskólanna komist inn. Aðrir hafa engan vettvang til þess að kynnast þessari listgrein og búa sig undir inntökupróf í leiklistarskóla. Ég var að hlusta á geisladiska með Maríu Callas vegna þess að ég er að fara að setja upp útvarpsleikrit þar sem tónlist með henni kemur mikið við sögu og í þeirri útgáfu af tónlist hennar sem ég hef undir höndum er vitnað í viðtöl við hana þar sem hún talar um það hvað grunnurinn skipt- ir miklu máli þegar að listum kemur. Og þegar við lítum í kringum okkur sjáum við að það þýðir ekkert að sækja um nám í Myndlistar- og handíðaskólanum nema hafa lokið forskólanámi. Það segir sig sjálft að það kemur enginn sem fullsköpuð stjama inn í leiklistamám, fremur en annað listnám. Önnur ástæðan fyrir því að við fór- um af stað með þetta fomám er sú að okkur Jóni Viðari finnst að fólk sem hefur ást á leikhúsi eigi að fá tæki- færi til þess að kynnast listgreininni innan frá. Það hafa allir gott af því að sjá að þetta er ekki eitthvað sem ger- ist af sjálfu sér. Ég hef mikið stundað kennslu í gegnum tíðina, bæði hér heima og nóg að vera erlendis, meðal annars kenndi ég raddbeitingu við háskólann í Cardiff í þijú ár og hér heima hef ég kennt framsögn. Ég hef líka sett upp áhugaleiksýningar úti á landi, en þar verður leikstjórinn að kenna hvert skref og ég hef alltaf haft mikla ánægju af því að opna fólki dyr að þessum heimi.“ Rifrildi örvar hugsun Eins og margt þekkt fólk hafa þau Inga og Jón Viðar staðlaða ímynd úti í samfélaginu. Inga hefur verið opin og ófeimin við að tjá sig um allt milli himins og jarðar en Jón hefur verið kyrrari og aðeins haft skoðun á því sem hann er ráðinn til að hafa skoð- un á - með þeim furðulegu afleiðing- um að vera álitinn fúllyndur. Það liggur því beinast við að spyrja Ingu hvemig þeim Jóni gangi að vinna saman þegar þau hafa svo ólíkt skap- lyndi. „Þeir sem álíta Jón fúllyndan eða grimman þekkja hann ekki og þessi ímynd er algerlega á skjön við vera- leikann. Hann er gull af manni og óhemju klár á sínu sviði. Ég held að við Jón græðum mikið á því að vinna saman. Ég kann margt sem hann kann ekki og hann kann margt sem ég kann ekki. Við blöndum saman „intellektúal" hugsun og tækni, er- um sammála um margt og ósammála um ýmislegt. Við rífumst mikið og nemendur okkar rífast við okkur og hver við annan - sem er mjög hollt vegna þess að það örvar þá til að hugsa, mynda sér eigin sýn og láta ekki segja sér hvað þeim á að finn- ast. Þegar við Jón Viðar fóram að vinna saman kom það okkur á óvart hvað við virkuðum vel sarnan," segir Inga og bætir við af sinni eðlislægu kímni, „þótt við væram ekkert alltaf kurteis hvort við annað.“ Inga og Jón Viðar héldu fyrsta forskólanámskeiðið síðastliðið vor. Það námskeið var tilraun til að bjóða upp á forskóla í leiklist, í sex tíma á viku í tíu vikur, og segir Inga að þau hafi aðallega einbeitt sér að verkum Jóhanns Siguijónssonar á því námskeiði. „En núna höfum við hugsað okkur að á fyrstu önninni verði 50 tímar. Hún hefst 4. október og henni lýkur 9. desember. Við höf- um líka fengið Helgu Jónsdóttur, leikkonu og leikstjóra, til liðs við okkur. Við Helga höfum unnið mikið saman og það er mikill fengur að því að fá svo góða leikkonu til liðs við okkur. Hún lék Andrómökku í Tróju- dætram Evripídesar í þýðingu Helga Hálfdanarsonar sem ég setti á svið fyrir fjóram árum. Helga er því alvön að fást við slíkan texta, sem kemur sér vel, því við leggjum mikla áherslu á textameðferð á námskeiðinu." Textameðferö ábótavant hjá ungum lelkurum Hvers vegna? „Það er eitt sem fer sífellt meira í taugarnar á mér í leikhúsinu hér. Ég hélt að ég væri farin að tapa heyrn og lét heymarmæla mig vegna þess að ég heyri orðið svo illa í ungum leikuram almennt. Samkvæmt heyrnarmælingunni er allt í lagi með eyran á mér en það er staðreynd að framsögn hefur hrakað í leiklistar- kennslunni hér. Mér finnst þetta svipað því að maður heyri ekki í flautunni eða óbóinu í sinfónísku verki. Þegar maður missir út heilu kaflana í klassískum verkum hlýtur maður að spyrja hvers vegna sé ver- ið að hafa texta. Mér finnst tónlist og leiklist vera mjög skyldar listgreinar og ég get lofað þér því að það myndi enginn sætta sig við þessa meinsemd í öðram listgreinum. Það myndi eng- inn sætta sig við einn fjórða af mál- verki, eða að fá aðeins að heyra ann- an hvern tón í tónverki. Ég er alin upp í svokallaðri Grot- owski-tækni sem gengur út á það að nota röddina og líkamann sem eitt hljóðfæri. Hann spurði hvað væri nauðsynlegt í leikhúsi þegar búið væri að fjarlægja alla umgjörð. Svar- ið er: leikarinn - sem er að þjóna höf- undinum en ekki sjálfum sér. Það er ekki nóg að hafa vald á líkamanum. Leikari verður líka að hafa vald yfir röddinni. Ef hann notar orð verða þau að skiljast. Það kemur því af sjálfu sér að áherslan hjá okkur er á framsögn. Síðan lesum við leikrit og „analýser- um“ þau. Áherslan er líka að kenna nemendum að flytja ljóð svo og rétta öndun. Við föram með nemendurna í leikhús og þeir þurfa að skrifa gagn- rýni og standa fyrir máli sínu.“ Hvað era margir nemendur á hverju námskeiði og era einhver ald- urstakmörk? „Á hveiju námskeiði era í hæsta lagi tólf nemendur og þeim er síðan skipt upp í tvo sex manna hópa. Við tökum ekki inn Ég 1 ' I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.