Morgunblaðið - 24.09.2000, Side 17

Morgunblaðið - 24.09.2000, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 B 1/ FRÉTTIR Fyrirlestur um meistaraprófs- verkefni NÆSTKOMANDI þriðjudag, 26. september, kl. 13:15 mun Arnór Bergur Kristinsson halda fyrirlestur á vegum rafmagns- og tölvuverk- fræðiskorai’ um rannsóknarverkefni sitt til meistaraprófs við skorina. Verkefnið ber heitið Local Area Aug- mentation System, LAAS, sem er ná- kvæmnisaðflugskerfi fyrir Akureyr- arfiugvöll. Rannsóknarverkefnið fjallar um notkun svonefiids Local Ai'ea Aug- mentation System (LAAS) leiðsöguk- erfis sem byggir á Differential GPS (DGPS) tækni og er ætlað til ná- kvæmnisaðflugsleiðsögu flugvéla við lendingar á flugbrautum. Verkefnið tekur sérlega mið af því hvemig búast má við að LAAS kerfi muni vh'ka við íslenskar aðstæður og þá sérstaklega til leiðsögu við lendingar á flugbraut Olflending tU norðurs) á Akureyrarflugvelli. í fyrirlestrinum mun verða skýrt frá niðurstöðum sem fengust við notkun prófunarkei'fis sem Amór hannaði og er ætlað að hernia sem flesta eiginleika LAAS kerfísins. Flugmálastjórn hefur gert flugpróf- anir með þetta kerfi og má ætla frammistöðu LAAS kerfisins og ná- kvæmni þess út frá þeim niðurstöðum sem kynntar verða. Einnig era skoð- aðir þættir svo sem truflanir á fjar- skiptahluta kerfisins vegna ytri þátta, séraðstæður vegna landslags á Akur- eyri á kerfi af þessu tagi era skoðaðar og kynnt er til sögunnar ný aðflugs- hönnun sem slík LAAS leiðsaga gæti byggt á að flugbraut 01 á Akureyrar- flugvelli, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlesturinn fer fram í stofu V-248 í húsi verkfræði- og raunvís- indadeildar, VR-II, Hjarðarhaga 2-6. Hann er öllum opinn meðan hús- rúmleyfir. Atkvöld hjá Helli á mánudag TAFLFÉLAGIÐ Hellir heldur eitt af sínum mánaðarlegu at- kvöldum mánudaginn 25. sept- ember og hefst mótið kl. 20.00. Atkvöld hafa verið haldin í hveijum mánuði frá september 1995 og er þetta því fimm ára afmæli atkvöldanna. Fyrst verða tefldar 3 hrað- skákir, þar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til að ljúka skákinni, ogsíðan þrjár atskák- ir með tuttugu mínútna um- hugsun. Sigurvegarinn fær verðlaun, mat fyrir tvo frá Pizzahúsinu. Þá verður annar keppandi einn- ig dreginn út af handahófi og fær hann einnig máltíð fyrir tvo. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Þátttökugjald er 300 kr. fyrir félagsmenn (200 fyrir 15 ára og yngri) og 500 kr. fyrir aðra (300 fyrir 15 ára og yngri). Orkudagar á Norðurlandi EFNT verður til Orkudaga á fimm stöðum á Norðurlandi frá 25.-29. september nk. Orkudagar er átaksverkefni sem efnt er til á „köldu svæðunum" með það að markmiði að vekja almenning til umhugsunar um orkusparnað og betri nýtingu orku til húshitunar," eins og segir í fréttatilkynningu. Verkefnið er skipulagt í samstarfi við sveitarstjórn á hverjum stað. Opið hús verður frá kl. 16:00 í félagsheimilum á eftirtöldum stöð- um: Hofsós mánudaginn 25. sept- ember, Skagaströnd þriðjudaginn 26. september, Raufarhöfn mið- vikudaginn 27. september, Þórs- höfn fimmtudaginn 28. september, Vopnafjörður föstudaginn 29. sept- ember. Gestir á Orkudögum geta fengið upplýsingar um eigin orku- notkun og -kostnað og leitað ráða um hvernig þeir geti nýtt orkuna betur til upphitunar. Fulltrúar og sérfræðingar frá framkvæmdanefnd um Orkudaga, frá orkufyrirtækjum og Rann- sóknastofnun byggingariðnaðar- ins sitja fyrir svörum og gefa góð ráð. Fyrirtæki í byggingariðnaði kynna vörur og þjónustu á sýningu í Opnu húsi: BYKO, Húsasmiðjan, íspan, Steinullarverksmiðjan. Fyr- irtæki á hverjum stað verða með sýningar og ýmsar uppákomur. AUGLÝSING VEGNA ÚTGÁFU RAFBRÉFA í KERFI VERÐBRÉFA-SKRÁNINGAR (SLANDS HF. Stjórn X18 hf. The Fashion Group, kt. 600298-2759, Fiskislóð 75, gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 hefur stjórnin tekið ákvörðun um að hlutir í félaginu verði gefnir út með rafrænum hætti í kerfi Verðbréfaskráningar íslands hf. mánudaginn 2. október árið 2000 kl. 9.00 árdegis. Vakin er athygli allra þeirra sem eiga takmörkuð réttindi til hluta í X18 hf. The Fashion Group, svo sem veðréttindi, á að koma réttindunum á framfæri við svokallaðar reikningsstofnanir, þ.e.a.s. banka, sparisjóði eða verðbréfafyrirtæki sem gert hafa aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands, fyrir 2. október næst- komandi. Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar nálgast hluti sína í X18 hf. The Fashion Group sem og arð með því að stofna VS-reikning hjá reikningsstofnum. Hluthöfum verður nánar tilkynnt um þetta bréfleiðis. NÁMSAÐSTOÐ 1 við þá sem vil a ná lengra í • grunnskóla • háskóla • framhaldsskóla • flestar námsgreinar Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19 Nemendabiónustan sf. t-~- Þanabakka 10, Mjódd. Á Fijáls verslun og Fiskifélag fslands efna til opins fundar á Grand hóteli Reykjavíkur mánudaginn 26. september kl. 15.00 - 17.00. Yfirskrift fimdarins er „heimsendir". Flallað verdur um bókina Hið sanna ástand heimsins eftir Danann Bj0m Lomborg. Bjpm mætir á fundinn og heldur fiamsögu ásamt U-yggva Felixsyni, hagfiræðingi og framkvæmdastjóra Landvemdar. Fisldfélagsútgáfan gaf bókina út á dögunum Þrir spyrlar verða á fundinum, þeir Jón G. Hauksson, ritsljóri Fijálsrar verslunar, Stefán Jón Hafstein, framkvæmdastj óri fiölmiðlafyrirtækisins íslands ehf, og Guðmundur Frímannsson, heimspekingur og deildarforseti við Háskólann á Akureyri. Þá munu Jón Bjamason, þingmaður Yrnstri- hreyfingarinnar - græns framboðs, Glúmur Jón Bjömsson efnafræðingur, Ámi Finnsson, framkvæmdastjóri Náttúruvemdarsamtakaíslands, ogAlda Möller matvælafræðingur leggja orð í belg á fundinum. Framkvæmdastjóri Fiskifélags fslands, Pétur Bjamason, setur fundinn. Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar, sem gefur út Frjálsa verslun, verður fundaistjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.