Morgunblaðið - 24.09.2000, Page 8

Morgunblaðið - 24.09.2000, Page 8
8 B SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Ættfræði er snemma getiö í bókmenntum okk- ar íslendinga, því í fyrstu málfræðiritgeró Snorra- Eddu, sem talin erfrá miðri 12. öld, er hún nefnd meöal þess sem þá hefurveriö ritaó á ís- lensku. Ásíóari árum hefur þessi áhugi fariö vaxandi ogfáir munu þeirvera, sem ekki vita eitthvaó um forfeöur sína og -mæóur. Sigurð- ur Ægisson heimsótti ættfræóing á dögunum til þess að forvitnast um hvernig málin stæðu um þessarmundir, ekki hvað síst með tilkomu erföarannsóknafyrir- tækja hér á landi í huga, en þau hafa sem kunn- ugt er tekið ættfræðina í þjónustu sína. Morgunblaöið/Þorkell í salarkynnum ORG. Frá vinstri: Oddur Helgason ættfrædingur, Böövar Bragason. lögreglustjóri og stjórnarmaóur í ORG, Kristján Skúli Sigur- geirsson. lögfræöingur og stjórnarmaöur í ORG. Torfi Jónsson, ættfræðingur og samstarfsmaóur Odds, og Baldur Jónsson íslenskufræóingur. „Við þurfum enga ættfræði- kvótakónga á íslandi“ RG-ættfræðiþjón- usta ehf. er til húsa á Hjarðar- haga 26 í Reykja- vík. Hún er ís- lenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í ættrakningum og söfnun allra þeirra ættfræðigagna sem íslendinga varðar og þar með eru talin gögn um Vestur-íslend- inga. Fyrirtækið í núverandi mynd var stofnað fyrir næstum tveimur árum. Framkvæmdastjóri og aðal- eigandi ORG-ættfræðiþjónustunnar er Oddur Helgason ættfræðingur og fyi-rverandi sjómaður. Hann er gjaman kallaður „Oddur speking- ur“ og hefur lengi fengist við ætt- fræði. „Jú, það er alveg rétt. Ég var al- inn upp hjá afa og ömmu, því faðir minn fórst þegar ég var bam að aldri,“ segir Oddur. „Þegar ókunn- ugt fólk kom í heimsókn var ævin- lega fyrsta spumingin: „Hvema manna ertu?“ Og vegna þess að ég hef gott minni fór ég að safna þessu í kollinn og þar hefur það verið síð- an og við þessar upplýsingar bæst smátt og smátt.“ Ættvísi nauðsynleg fyrrum Oddur fær sér í nefið og heldur svo áfram: „Það verða allir ættfræðingar ein- hvem tímann á ævinni. Ég sá menn í sjónvarpinu um daginn. Þeir vom spurðir að því af hverju ættfræði- áhugi íslendinga stafaði. Sjálfur hafði ég velt þessari spurningu fyrir mér löngu áður, en áttaði mig ekki á svarinu fyrr en ég fór í gamni mínu að lesa Grágás, elstu lögbók íslend- inga. I raun og veru urðu menn á þeim tíma að vita eitthvað um ætt- vísi, því að ef menn skoða Grágás og lesa hana kemur í Ijós, að þetta er með elstu félagsmálapökkum sem skráðir eru. Menn höfðu fram- færsluskyldu í 5. lið. Og í Vígslóða er talað um vígsbætur í 5. lið. Og hvað snerti erfðamál þurftu menn að vita um ættir sfnar. Allt ber þetta því að sama brunni." Oddur segir að það hafi löngum verið áhugaefni og kappsmál ORG- ættfræðiþjónustunnar að koma á tölvutækt form öllum þeim ættar- fróðleik sem mögulegt er að nálgast og gera þannig sem flestum kleift að fá fróðleik um ættir sínar, svo og tengsl sín innbyrðis. „Hingað kemur mikið af fólki til að aðstoða okkur við söfiiun upp- lýsinga og gagna og að auki eru fjöl- margir sem senda okkur slíkt. Við höfum ekki milljónir á bak við okk- ur, eins og sumir, en hér inni er að finna margt sem hvergi er til ann- arsstaðar, s.s. handrit víða að á landinu, sem við höfum fengið send. Það kemur næstum eitthvað hingað hvem einasta dag. Ómetanleg hjálp þessa fólks hefur gert safn ORG að einu yfirgripsmesta ættfræðisafni landsins.“ Þór Magnússon, fyrrverandi þjóðminjavörður og einn af sam- starfsmönnum Odds, segir ættfræð- inga vera hógværasta og kröfu- minnsta fólk sem þekkist. Það taki við því sem að því sé rétt, heimti ekkert og vinni störf sín í þögn. Veigamikil heimildagögn, s.s. prent- aðar bækur um ættfræði, ævisögur og héraðsrit, vanti mjög í handbóka- söfn opinberra safna, og því sé ætt- fræðibókasafn ORG ákaflega mikil- vægt. Menntahroki, sjálfselska og græðgi Oddur bendir á, að allir sem sendi fyrirtækinu gögn séu í raun og veru að vinna saman að ættfræðinni. „Það sem er að eyðileggja ís- lenska ættfræði í dag er mennta- hroki,' sjálfselska og græðgi, því það er auðséð á öllu að menn hafa pass- að sig á því að fara ekki í hinn sanna ættfræðigeira, heldur sniðganga hann alveg en hirða þó öll gögn frá honum. Málið er, að það verður að gera þetta vel, það má ekkert klikka. Það verður að fá hæfasta fólkið til að vinna að þessu, og það er þjóðin sjálf. Það verður m.ö.o. að vinna þetta með fólkinu í landinu og fyrir fólkið í landinu, eins og ég hef sagt áður í blaðaviðtölum. Menn verða að átta sig á því, að þetta snýst ekki um Friðrik Skúlason, mig eða Þorstein Jónsson. Þetta snýst um ættfræði." Tveir ættfræðigrunnar „Og annað er svo hitt,“ heldur Oddur áfram, „að það verða að vera tveir ættfræðigrunnar í landinu, annar erfðafræðilegur og hinn sagn- fræðilegur. Munurinn á þeim er sá, að í þeim erfðafræðilega kemur inn allur blóðskyldleiki en í hinum sagn- fræðilega koma kjörböm á kjörfor- eldra, sem er hin lagalega hlið. Ég er alveg stórefins um það, að erfða- fræðilegi grunnurinn ætti að fara á Netið. Fólk á ekkert að hafa aðgang Morgunblaðið/Jim Smart Atli „rauði“ Úlfsson (870) Jörundur Atlason (905) Otkatla Jörundardóttir (945) Jörundur Þornilsson (980) Snorri Jörundarson (1012) Gils Snorrason (1045) Þórður Gilsson (1075) Sturla Þórðarson (1115) Sighvatur Sturlason (1170) Steinvör Sighvatsdóttir (1210) Sturla Hálfdanarson (1245) Arnfinnur Sturluson (1265) Eyjólfur Arnfinnsson (1290) Þorsteinn Eyjoifsson (1320) Solveig Þorsteínsdóttir (1350) Kristín Björnsdóttir (1374) Björn „ríki“ Þorleifsson (1408) Þóra Björnsdóttir (1430) Helga Guðnadóttir (1470) Ingibjörg „yngri“ Torfadóttir (1500) Ólafur Brandsson (1530) Sesselja Ólafsdóttir (1560) Guðrún Hannesdóttir (1580) Jórunn Guðmundsdóttir (1600) Solveig Vigfusdóttir (1640) Eiríkur Jónsson (1678) Þuríður Eiríksdóttir (1727) Guðlaug Jónsson (1757) Ólöf Guðlaugsdóttir (1793) Sigríður Pétursdóttir (1830) Elín Sigurðardóttir (1865) Guðfinna Jónsdóttir (1902) Jóna Guðrún Ólafsdóttir (1927) Gunnar Marel Eggertsson (1954) Jörundur Úlfsson (900) Þjóðhildur Jörundsdóttir (945) Leifur „heppni' Eiríksson (968) Hér má sjá dæmi um ættrakningu hjá ORG. Rakinn er skyldleiki Gunnars Marels Eggertssonar, byggjanda, eiganda og skipstjóra víkinga- skipsins íslendings, við Leif Eiriksson heppna. í þýska tímaritinu Der Spiegel var Gunnar Marel sagður 28. liður frá Leifi, en það mun vera rangt. Ekki er vitað til að Leifur hafi átt aðra afkomendur en tvo syni, sem engar frekari heimildir eru til um. Úlfur „skjálgi" Högnason (845)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.