Morgunblaðið - 24.09.2000, Qupperneq 13
12 B SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 B 13
Björk bregður a leik í kynningarmynd vegna Myrkradansarans.
"m/F" IKMYND
K Lars Von Triers,
jBB Dancer in the
mSjd&L Dark eða Myrkra-
dansarinn eins og
& hún nefnist á ís-
lensku, var opnun-
aaJHkar armynd kvik-
myndahátíðarinnar í New York sem
hófst á föstudaginn. Björk
Guðmundsdóttir sem bæði lék aðal-
hlutverkið í myndinni og samdi tónlist
myndarinnar, Selmasongs, var í New
York þegar myndin var kynnt þar
fyrir fjölmiðlum og gagnrýnendum á
miðvikudag. Björk hefur dvalið mikið
í New York undanfarna mánuði en
hún vinnur að gerð nýrrar plötu þar
sem mun væntanlega líta dagsins ljós
næsta vor.
Björk segir að það sé ekkert eitt
sem skýri hvers vegna New York
varð fyrir valinu þegar hún ákvað að
vinna að plötunni þar en ekki á ís-
landi eða London líkt og fyrri plötur.
„Stundum ákveður maður íyrir-
fram alla hluti en þrátt fyrir það vilja
hlutimir fara öðruvísi heldur en mað-
ur áætlar. Pað er eins og hlutimir
læðist aftan að manni og maður gerir
eitthvað allt annað án þess að hafa
nokkurn tíma ætlað sér að þeir fæm á
þennan veg. Hjá mér virðist þetta
gerast á sjö ára fresti. Að hlutirnir
taka aðra stefnu en ég hef ætlað mér.
Fyrir sjö áram gerði ég Debut eftir
að hafa hætt í Sykurmolunum. Sjö ár-
um fyrr hafði ég hætt í Kuklinu og
Sykurmolarnir urðu að veraleika
ásamt Smekkleysu og öllu sem því
fylgdi. Sjö áram þar á undan átti ég
að gera aðra barnaplötu en breytti al-
gjörlega um og fór í pönkhljómsveit.
Það er þetta með mig og sjö árin. Nú
er ég í New York í stað þess að vera
heima á Islandi eða í London og er að
vinna með öðram tónlistarmönnum
en ég vann hinar plötumar með.“
Tími til að breyta til
Að sögn Bjarkar er það ekkert
skrýtið að hún hafi söðlað um nú því
þrátt fyrir að henni h'ði mjög vel í
London og hún hafi unnið þar með
frábæru fólki og eignast yndislega
vini þá hafi verið kominn tími til að
gera eitthvað nýtt. „Þegar ég fór að
vinna við myndina fóra samstarfs-
menn mínir í London að gera aðra
hluti enda vann ég við myndina í þrjú
ár. Eftir að gerð hennar lauk var ég í
níu mánuði á íslandi að ná áttum, sem
var frábært þar sem ég hafði til dæm-
is ekki upplifað árstíðaskiptin á ís-
landi frá því að ég var unghngur. Ég
var orðin ákveðin í að setjast að á ís-
landi og vinna við gerð tónlistar með
tölvu enda hélt ég að ævintýra-
neistinn væri slokknaður. En þegar
ég var orðin úthvíld eftir myndina
fékk ég fiðringinn á ný. Ég hugsaði
með sjálfri mér; kannski að það sé eitt
ævintýri eftir. Hvert framhaldið verð-
ur veit ég ekki og hvort ég verð að
upplifa ævintýri langt fram eftir aldri
veit ég ekki en ég er ákveðin í því að á
síðari hluta ævinnar verð ég á íslandi
enda er ég íslendingur í húð og hár,“
segir Björk.
Þrátt fyrir að hún vinni mikið með
nýju fólki núna er það alltaf sami
kjaminn sem vinnur með henni og
sumir hafa unnið með henni allt frá
því að hún var unglingur. „Ég hef
hins vegar lært svo margt um ævina
að ég get orðið gert svo marga hluti
ER ÞJANI
sjálf og það er mjög gott enda miklu
auðveldara heldur en ef ég er að
reyna að ráðskast með fólk.“
Sögursem sœrðu
Björk hélt sig fjarri kastljósi fjöl-
miðlanna þau þijú ár sem hún vann að
Myrkradansaranum og þá níu mánuði
sem hún var á íslandi eftir að vinn-
unni við hana lauk. Á þeim tíma
gengu miklar sögur um samstarfserf-
iðleika Bjarkar og leikstjóra og fram-
leiðanda myndarinnar, Lars Von Tri-
ers.
Björk segir að þessar sögur hafi
haft mikil áhrif á hana til að byrja
með. „Þegar ég tjáði mig ekki við fjöl-
miðla þá níu mánuði sem liðu frá gerð
myndarinnar og þangað til ég var
búin að jafna mig fóra hræðilegar
sögur af stað um mig og samstarf mitt
við Lars Von Trier. Það var svo margt
ósatt sagt og það særði mig virkilega.
Að vísu endaði það með því að ég gat
gert grín að þessu enda ekki hægt
annað þegar sögurnar voru orðnar
þannig að ég átti að hafa borðað fötin
mín og annað í þeim dúr.“
- En hveijir koma sögum sem
þessum af stað?
„Myndin er dýrasta mynd sem gerð
hefur verið á Norðurlöndum og ég
held að þeir sem fjármögnuðu hana
að einhveiju leyti hafi hreinlega farið
á taugum þegar ég tilkynnti að ég
myndi ekki tjá mig um myndina eða
veita viðtöl. Ég held að þeir hafi stað-
ið á bak við ýmsar af þessum hræði-
legu sögum sem sagðar vora og birt-
ust í ómerkilegum fjölmiðlum. Þetta
var mjög leiðinlegt meðal annars
vegna þess að þetta snerist ekki bara
um mig og Lars heldur lögðu um eitt
hundrað manns líf og sál í þessa mynd
sem allt í einu snerist um einhvem
sápuóperakýting.
Ég hef aldrei verið manneskja sem
velti mér upp úr svona hlutum og þá
sér í lagi ekki fjölmiðlum. Ég tel að
fjölmiðlar séu ekki rétti vettvangur-
inn fyrir skítugan þvott. Þegar maður
er með einhvern skítugan þvott þvær
maður hann sjálfur en ekki í fjölmiðl-
um. Við Lars útkljáðum okkar ágrein-
ingsmál jafnóðum og þau komu upp
og ég viðurkenni að við eram óskap-
lega ólíkir einstaklingar og með ólíkar
skoðanir. En við eram bæði mjög
hrein og bein og kláram okkar mál
þegar vandamálin koma upp en ekki á
þann hátt sem ýjað hefur verið að í
sumum fjölmiðlum."
Eins oggott íslenskt
sveitaheimili
Björk segir að þrátt fyrir að hafa
unnið myrkranna á milli þegar gerð
myndarinnar stóð yfir þá hafi hún
aldrei litið á það sem vinnu enda hafi
hún verið að gera eitthvað sem henni
fannst skemmtilegt. Eins hafi hún
notið þess að hafa Sindra son sinn
ásamt vinum þeirra beggja hjá sér.
„Fimm vinir hans vora hjá okkur allt
sumarið og mjög margir vinir okkar
líka. Við voram um tuttugu í heimili
þannig að þetta var eins og gott ís-
lenskt sveitaheimili þar sem vinna og
leikur blönduðust saman. Það gaf mér
mjög mikið að hafa svona marga sem
mér þykir vænt um nálægt mér á
meðan ég vann að myndinni og það
var virkilega notalegt að hlusta á
hlátrarsköllin frá þeim á meðan ég
vann við tónlistina á kvöldin eftir að
hafa verið í tökum yfir daginn.“
Sindri býr núna á íslandi hjá pabba
sínum og gengur í íslenskan skóla en í
sumar hefur hann verið mjög mikið
hjá Björk. Að sögn Bjarkar tóku hún
og Þór, faðir Sindra, þá ákvörðun að
hann myndi vera á Islandi í vetur.
„Það er ekki hægt að hugsa sér betri
aðstæður fyrir ungling heldur en að
alast upp í Reykjavík auk þess sem
það er mjög gott fyrir strák á hans
aldri, en hann er 14 ára, að vera með
pabba sínum. Þegar ég hugsa um það
eftir á þá hef ég verið mjög heppin að
njóta þeirra forréttinda að hafa son
minn alltaf hjá mér í stað þess að
þurfa að senda hann mjög ungan til
dagmömmu í allt að átta tíma á dag
líkt og margir foreldrar þurfa að
gera. Þegar ég var í Sykurmolunum
var hann hluti af hópnum og það þótti
alltaf sjálfsagt mál.“
Allt öðruvísi en samt
eðlilegt framhald
Björk segir að kynningartöminni
út af Myrkradansaranum Ijúki i októ-
ber en hún hefur staðið allt frá Kvik-
myndahátíðinni í Cannes fyrr á þessu
ári. Þá ætlar Björk að einbeita sér að
nýju plötunni sem hún er að vinna að.
Björk segir að hún sé öðravísi en fyrri
plötur og jafnvel ólík Selmasongs
þrátt fyrir að hún sé eðlilegt framhald
af henni.
Hún segir að það sé allt öðruvísi að
gera kvikmyndatónlist en aðra tón-
list. Hún segir að hins vegar hafi hún
verið tilbúin að stíga það skref þegar
vinnan við Myrkradansarann hófst.
„Ég var búin að gera þrjár plötur
um mig sjálfa og mínar tilfinningar og
þetta var orðið ágætt. Að horfa sífellt
í spegil og tjá sig um sjálfan sig og
sínar tilfinningar. Það var gott að
byggja utan um tilfinningar einhvers
annars en manns sjálfs og í raun var
þetta ákveðið frelsi því þá gat ég
fengið mikla útrás tónlistarlega séð.
Að geta komið með alls konar hug-
myndir og hugdettur sem ekki þurftu
að byggjast á einhverju sem ég upp-
lifði sjálf.
Það er líka gaman að gefa sig á ekk-
ert ósvipaðan hátt og ég gerði þegar
ég var í Kuklinu og Sykurmolunum
þegar ég vann með hóp. Textarnir hjá
Sykurmolunum og Kuklinu vora
aldrei um mig og Einar heldur vora
þeir miklu meira um okkur sem hóp.
Ég upplifði mjög svipaða tilfinningu
þegar ég vann að tónlistinni í mynd-
inni og það var mjög góð tilfinning,“
segir Björk.
Úr Selmu yfir í Björk á ný
Tónlistin í myndinni er mjög ein-
læg og sársauki Selmu skín alls stað-
ar í gegn. Björk segist þakka fyrir að
hafa aldrei þurft að upplifa jafnmikla
sorg og Selma. „Það var nóg að hafa
fyrst lesið handritið og reynt að skilja
Selmu og skilað hennar tilfinningum í
tónlistinni í heilt ár. Og síðan að fara
inn í Selmu og vera hún í sinni geð-
veiki þar sem hún, Selma, samþykkir
að vera tekin af lífi. I lok myndarinnar
er Selma í raun og vera enn að bjarga
hlutunum en er samt sem áður dáin
sjálf. Hún fórnaði sér fyrir málstað,
eins harðneslqulegt og það er. Ég er í
raun fyrst núna að átta mig á því að í
marga mánuði á eftir hafði ég gengið í
gegnum það að deyja. Ég hafði dáið.
Það er mjög skrýtið að kynnast slíkri
þjáningu en samt sem áður hefur ekk-
ert komið fyrir mann sjálfan. Ekkert
áþreifanlegt heldur er einungis verið
að gera kvikmynd. Eitthvað sem á að
teljast til skemmtanaiðnaðarins. Það
tók mig töluverðan tíma að átta mig á
því. Og að gera það upp við sig hvort
það er réttlætanlegt að búa til þján-
ingu úr lausu lofti þegar maður hefur
það bara alveg ágætt í sínu lífi.
En það var ekkert öðruvisi með
myndina og annað sem ég geri. Ég vil
gera hlutina vel. Stundum er það
spurning um hvort maður gengur of
langt í þeim efnum. Enda sagði leik-
stjórinn mér við tökurnar að ég væri
að ganga allt of langt og að ég þyrf^
ekki að taka þetta svona alvarlega.
En ég er bara svona gerð. Hvort sem
það er gott eða slæmt og ég er alveg
til í að standa með sjálfri mér í því. Ég
var því ekki að leika í einhverri bíó-
mynd. Þetta gerðist í raunveraleikan-
um hjá mér.“
Björk segir að hún sé tónlistarmað-
ur, ekki leikkona, og ekki sé hægt að
bera þessi tvö hlutverk saman. „Þeg-
ar þú leikur í kvikmynd þá hoppar þú
inn í annan heim og síðan þarftu að
hoppa heim aftur. Þú getur bara
hoppað til baka og látið eins og ekkert
hafi gerst en ég er bara ekki þanrýg,
Það er sennilega skýringin á því
hversu langan tíma það tók mig að
losna úr hlutverkinu því ég þurfti að
vaxa út úr Selmu á náttúralegan hátt.
Breyta hverri frumu úr Selmufrumu í
Bjarkarframu. Jafnframt að upplifa
það, eins og ég geri í dag, að ég hafi
lært af þessu. Þetta hafi ekki verið til
einskis. Að þetta hafi verið óskaplega
verðmætt þó svo að manni hafi fund-
ist þetta allt alltof sárt til þess að vera
þess virði fyrir einhverja bíómynd.
Mér finnst mjög skrítið að þegar ég
hitti hina leikarana úr myndinni í dag
þá eru þeir kannski búnir að gera
fjórar myndir frá þvi að tökum á
Myrkradansaranum lauk. Þeir kunna
þetta og þetta er þeirra starf. Ég er
tónlistarmaður en ekki leikari. Það ei
frábært að hafa þennan hæfileika að
geta gengið inn í eitthvert hlutverk og
skipt síðan út úr því aftur en þetta er
eitt af því sem gerir góða leikara að
góðum leikuram.“
Myrkradansarinn
var undantekning
Björk segist ekki telja að hún eigi
nokkurn tíma eftir að leika í kvik-
mynd framar en hún hefur fengið
mjög mörg tilboð um kvikmyndaleik
bæði fyrir og eftir gerð Myrkra-
dansarans. „Eg hef fengið allskonar
tilboð um kvikmyndahlutverk og
meðal annars stór Hollywood-hlut-
verk áður en Myrkradansarinn kom
til sögunnar. Ég var hins vegar svo
heppin að fá að leika í Glerbroti á sín-
um tíma og í mynd þegar ég var tví-
tug þannig að ég vissi að þetta ætti
ekki við mig. Þessi ákvörðun um að
leika ekki framar í kvikmynd kemur
ekki út af þvi hversu erfið myndin var
heldur gerði ég undantekningu með
því að leika í henni þar sem hún var
svo heillandi. Ég er hins vegar mjög
upp með mér yfir þeim tilboðum sem
ég er að fá en málið er að ég þekki mig
betur en þetta fólk og ég gæti ekki
gert þetta mörgum sinnum á ári. Þáð
er til fólk sem hefur leikhæfileika í sér
en ég vil einbeita mér að tónlistinni
enda margt sem ég á eftir að læra
þar. Hver veit nema ég verði enn að
upplifa mín ævintýri í tónlistinni um
sextugt. Já, hvers vegna ekki?“ segir
Björk Guðmundsdóttir.
NGIN ÞESS VIRÐI?
Morgunblaöið/Asdís
. Sfw t
Björk ásanit Cather
ine Deneuve, David
Morse og Joel Grey
á blaðamannafundi
i New York.