Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.09.2000, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MANNLÍFSSTRAUMAR MATARLIST// Jvar er sólin ? Með sól í sinni HAUSTIÐ er nú gengið í garð og sumarið hefur kvatt enn einu sinni. Flestir íslendingar kveðja sumarið með talsverðri eftirsjá og um þá tilfmningu vitna margir sönglagatextar, t.d. eftirfarandi lína úr laginu Söknuður, sem Vil- hjálmur Vilhjálmsson söng svo fallega: „Ég hai-ma það, en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt.“ Það er ekkert skrýtið að menn sjái eftir sumrinu, sérstaklega þeg- ar það hefur verið eins gott og hlýtt ________ og það sem nú hef- ur runnið sitt skeið. íslensku sumrin eru stutt, en þau eru óviðjafnanleg og maður nýtur þeirra einmitt þess vegna út í yztu æs- eftir Álfheiði Hönnu ar, vegna þess mað- Friðriksdóttur ur veit að senn er það á enda. Margir fá seint nóg af sólinni og sækja á sólarstrendur eftir meiri birtu og yl en okkar ástkæra yl- hýra getur boðið upp á jafn vel við „bestu“ aðstæður. Þetta er mjög skiljanlegt af mörgum ástæðum. Hiti, sól og raki fara mjög vel í vöðva og því er gott fyrir þá sem þjást af gigt að dvelja í heitara loftslagi en því sem hér ríkir. Eins er maður gjarnan sáttari við kuidann og nepjuna eftir að hafa fengið almennilega „upphit- un“ áður. Öll meiriháttar átök krefj- ast upphitunar og stundum er ís- lenska sumarið e.t.v. ekki nægileg upphitun fyrir baslið í vetrarhörk- unni. í sólríkum löndum er verðlagið á hinum ýmsu vörum oft margfalt lægra en hér tíðkast og þ.á m. hinna c-vítamínríku ávaxta. Við þörfnumst þeirra hins vegar í raun meira hér á landi í sólarleysinu og í raun væri „rökréttara" a.m.k. út frá næringar- fræðilegu sjónarmiði að verðlaginu væri öfugt farið, eða að við sætum í það minnsta við sama borð og flestar aðrar þjóðir. Ég ætla þó ekki að fara að tuða mikið um verðlag þótt mér ofbjóði gersamlega og verði þung- lynd oft á tíðum þegar mér verður lit- ið á kílóverð á jafn hversdagslegum afurðum og t.d. ýsu, rófum og tómöt- um. Þar sem ég bjó í Brussel í einn vetur get ég ekki stillt mig um að hrósa Belgum fyrir verðlag. Fólk lætur ekki bjóða sér hvað sem er í því landi, það sýnir aðhald. Það sýna t.d. skýrt mótmælaaðgerðir undanfarið gegn hækkuðu olíuverði sem og í Frakklandi og víðar í Evrópu. Það birtist einnig saman- burðarkönnun í sjónvarpsfréttum nú ekki alls fyrir löngu þar sem teknar höfðu verið sömu vörutegundir í stór- mörkuðum í ýmsum löndum, þ.á m. íslandi og Belgíu og belgísku vörurn- ar voru hvorki meira né minna en helmingi ódýrari í heildina. Oft eru þær meira en helmingi ódýrari, t.d. man ég eftir osti sem ég keypti oft og nú er farinn að fást í ónefndri verslun hér á landi. Úti kostaði hann um 80 kr., en hér kostar hann 300 kr. Pottur með ferskum kryddjurtum kostar um 70 kr. úti en um 300 kr. hér. Það er ekkert skrýtið að maður verði svona léttpirraður stundum á ástandinu. En vöruverð stjórnast af mörgum þáttum, sem ég ætla nú ekki að fara út í hér, en ég vona að sem flestir hafi lesið frábæra grein í Morgunblaðinu sunnudaginn 17. september sem nefndist „I viðjum vanans" og fjallar m.a. um sinnuleysi íslendinga gagnvart hækkunum á neysluvörum. Aftur að sólinni. Hvað getum við gert til að gera líf okkar „sólríkara" yfir vetrarmánuðina? Eins og ég sagði áðan er c-vítamín okkur afar nauðsynlegt í myrkrinu og kuldanum og það fáum við t.d. úr grænmeti og ávöxtum. Yfir vetramánuðina er því mjög mikilvægt að borða nóg af slíku hráefni. Vín hefur gjarnan verið nefnt „sól á flöskum" og þá á ég við borðvín. Að mínu mati hefur það góð áhrif á sál og líkama að fá sér eitt vínglas af góðu rauðvíni með matn- um, þetta styðja hinar miklu rauð- vínsrannsóknir sem gerða hafa verið undanfarið, sem sýna óyggjandi fram á góð áhrif tannins í rauðvíni á hjarta- og æðakerfið. Hreyfing er náttúrlega lífsnauðsynleg á hvaða árstíma sem er og vatnsdrykkja létt- ir lund og eykur þrótt. Útivera er hressandi í nánast hvaða veðri sem er og hlýju má finna í sundstöðum bæjarins þótt 10 vindstig séu. Uppskriftin er að sólríkri súpu, við skulum láta ódýrri liggja milli hluta. Uppskrift fyrir 4 4 bollar qldinkjöt úr canalaoupe- melónu _________1 msk. sítrónusafi_____ % bolli hrein jógúrt ___________1 Isk, hunang________ 2 msk. rifin engiferrót nokkur fersk myntulouf (mó sleppa) Blandið saman í matvinnsluvél melónum og sítrónusafa. Hellið í stóra skál og blandið jógúrt og hun- angi saman við. Kreistið safann úr engiferrótinni í gegnum fínt sigti eða klút út í súpuna. Kælið. Hrærið í súp- unni áður en henni er hellt í fjórar skálar. Skreytið með ferskri myntu. í tilefni alþjóðiega hjartadagsins sem er í dag vilja Landssamtök hjartasjúklinga minna á tilvist sfna, en innan þeirra vébanda eru um 3.400 félagsmenn. Eigum til ókeypis dreifingar ágæta bæklinga, t.a.m. bæklinginn „Eru ljón í veginum" sem fjallar um gildi hreyfingar fyrir hjarta- og æðakerfið. Ennfremur minnum við á minningarsjóð okkar. Eigum saman góðan hjartadag. I ! LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA Landsamtök hjartasjúklinga eru opin öllum. Hægt er að skrá sig í samtökin alla virka daga milli kl. 9 og 17. Aðalskrifstofan ertil húsa að Suðurgötu 10, 101 Reykjavík. Símar 552 5744 og 562 5744. Netfang hjarta@sibs.is TJEKNE/Terðurýaó hagkvæmt og umhverfisvœnt? Risastjörnukíkir í Suður-Evrópu. Að rœkta plast NÚ kunna menn að reka upp stór augu er þeir sjá fyrirsögnina. En hún er rétt. Aðeins er það spurning hvað beint það verður gert. Mönnum verður svo við að þeir hugsa sem svo að líffræðilegri tækni séu engin takmörk sett leng- ur. Þetta er að verða gerlegt, alveg beinlínis, þannig að plast myndist í rækt- aðri jurt, svo sem korntegund, eða miður beint, þannig að bakteríur verði látnar ummjmda næringarefni sem plantan hefur myndað, svo sem sykur. En bakterían með vísindaheitinu ralstonia eutropha breytir plöntusykri beint í plastefni. Það fer eftir hagkvæmninni hvor leiðin verður valin og tím- inn leiðir það í ljós. Sem stendur eru ýmsir erfiðleikar á ferlinu, ekld grund- vallarlega séð heldur af því að ýmis stig þess krefjast of mikillar orku, meiri en þeirrar sem fer til þess að framleiða plast úr olíu og öðrum lífrænum efn- um samkvæmt hinni hefðbundnu leið. Hugsum okkur akur hveitis eða maís. Sé t.d. um hveiti að ræða slær kornbóndinn það og þreskir á venjulegan hátt, hirðir sitt venju- lega kom með svip- aðri, eða e.t.v. ein- hveiju minni, hveitiuppskeru en fyrir daga plastsins en nógri til þess að það borgar sig að láta plöntuna skila af sér bæði plasti úr hálminum og korni úr axinu á hefðbundinn veg. Einkum eru það bandarísku fyrir- tækin Cargill og Dow Chemical sem hafa fengist við rannsóknir þessa ferlis. En einnig er um að ræða nokkur önnur. Það er sem stendur verið að byggja tilraunaverksmiðju í komræktarríkinu Nebraska. En Cargill og Dow Chemical eru alls ekki ein um þetta heldur hafa unnið hvað lengst að tækninni og eiga e.t.v. skemmst í land. Vitaskuld er ekki mikið látið uppi þar eð margt úr ferl- inu á að varðveita sem framleiðslu- leyndarmál. Erfiðleikarnir em ekki yfirstignir sem stendur og líklega nokkuð í að svo sé. Umhverfisávinn- ingur tengdur vinnsluferlinu er lítill, sé svo að orkan til framleiðslunnar sé enn meiri en við hefðbundna plastframleiðslu úr olíu og jafnvel er svo að olía fer í sjálft vinnsluferlið. Þeirri olíu er hins vegar ekki brennt svo að hún veldur ekki gróðurhúsa- áhrifum og svo er annað og meira sem gerir þessa framleiðslu eftir- sóknarverða séð frá umhverfissjón- armiði. Það er að plastefni framleidd með „grasafræðilegu aðferðinni" brotna miklu auðveldar niður en hin vanalegu plastefni. Og sífellt er verið áð vinna að orkumálinu í framleiðslu- ferlinu. Helst er fyrisjáanlegt að það verði yfirstigið með því að nota líf- fræðilega orku, e.t.v. einmitt hins rotnandi hálms, þess hluta hans sem ummyndast ekki í plastefni. Eða sé hálmur úr kornræktinni einfaldlega brenndur til orkugjafar, eykur hann ekki við gróðurhúsaáhrifin af þeirri einföldu ástæðu að árið eftir yrði sama magn ræktað á ökmnum og að- eins yrði lítil árssveifla koltvíildis- magns af þessum sökum. En ekki yrði aukning í lengdina. Og talsmenn Cargill og Dow halda fram að orku- þörfin til framleiðslunnar fari ört minnkandi. Ekki ætti að vera langt fram til þess að fyrsta svokallaða „græna“ plastið verði á markaðnum, einkum í formi umbúða. En plast nú á dögum er notað í umbúðir meira en nokkur annað. Það plast þessarar gerðar sem er þegar komið á markað krefst minni steinolíu í framleiðslu en venjulegt plast en krefst hins vegar meiri orku. Verið er að vinna að þeirri lausn sem reynist einföld og reynist ekki meng- andi eins og segir hér að framan, að brenna þeim öðrum jurtahlutum sem verða til við framleiðsluna. Og það veldur sem sé augljóslega ekki koltvíildismengun í lengdina. eftir Egil Egilsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.