Morgunblaðið - 29.09.2000, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ólympíumót fatlaðra í Sydney í Ástraliu
Morgunblaðið/Jim Smart
Bjarki Birgisson, Kristín Rós Hákonardóttir og Pálmar Guðmundsson við æfíngar í Kópavogi í vikunni.
/
Islensku keppendurnir farnir utan
ÍSLENSKU keppendumir á Ólymp-
íumóti fatlaðra héldu til Ástralíu í
gær þar sem þeir munu dvelja í æf-
ingabúðum fram að mótinu sem
hefst þann 18. október nk. Að þessu
sinni verða íslenskir keppendur á
mótinu sex, Kristín Rós Hákonar-
dóttir, Pálmar Guðmundsson,
Bjarki Birgisson og Gunnar Örn Ól-
afsson keppa öll í sundi en Geir
Sverrisson og Einar Trausti Sveins-
son keppa í frjálsum íþróttum. Ólaf-
ur Magnússon, framkvæmdastjóri
Iþróttasambands fatlaðra, sagði
mikinn í hug í keppendum og góðan
anda ríkja í hópnum sem fór áleiðis
til Ástralíu í gær.
Ólympíumót fatlaðra var haldið í
fyrsta skipti árið 1960 og hefur
stöðugt vaxið að umfangi síðan. Á
Ólympíumótið í Sydney er búist við
4000 keppendum frá 125 löndum en
keppt verður í 18 íþróttagreinum.
fslenskir keppendur hafa jafnan
staðið sig vel og er skemmst að
minnast glæsilegs árangurs á Ól-
ympíumótinu í Atlanta árið 1996.
Samherji hf. áformar sjókvíaeldi
Sex þúsund
tonna eldisstöð
á Reyðarfirði
SAMHERJI hf. á Akureyri áfonnar
að hefja sjókvíaeldi á laxi í Reyðar-
firði, eftir því sem fram kemur í hér-
aðsfréttablaðinu Austurlandi. Ætl-
unin er að framleiða um 6.000 tonn af
eldisfiski á ári og nýta íslenskan
stofn af norskum uppruna við eldið.
Fyrú-hugað er að eldiskvíum verði
komið fyrir í norðanverðum Reyðar-
firði eða á svæðinu utanvert frá
Stóru-Breiðuvík inn að Hvammi.
Gert er ráð fyrir að kvíarnar verði
staðsettar 100-300 metra frá landi
þar sem sjávardýpi er um 50 metrar.
Aðstæður á Reyðarfirði eru taldar
heppilegar til eldis. Fjörðurinn er
djúpur, skjólsæll og lítil ölduhæð auk
þess sem engar miklar laxveiðiár eru
við Reyðarfjörð eða Eskifjörð og
reyndar engar slíkar ár í næstu
fjörðum.
Smálaxar komi frá
innlendri laxeldisstöð
Gert er ráð fyrir að smálaxar sem
notaðir verða í eldið komi frá inn-
lendri laxeldisstöð, íslandslaxi hf. í
Grindavík eða Silfurstjörnunni hf. í
Öxarfirði. Áformað er að slátrun á
eldisfiskinum muni fara fram í fisk-
vinnsluhúsnæði Samherja á Eski-
firði en einnig kemur til álita að
slátrun fari fram í fiskvinnsluhús-
næði á Reyðarfirði. Fiskurinn mun
verða fluttur lifandi frá eldiskvíun-
um til sláturaðstöðunnar.
Hæstiréttur úrskurðar í máli oddvita Vestur-Landeyjahrepps
Dómur í héraði ómerktur
því játning lá ekki fyrir
Fundað vegna útboðs
á rekstri Herjólfs
Annar
fundur á
mánudag
VEGAMALASTJÓRI fundaði í gær
með fulltrúum stjómar Herjólfs hf.,
bæjarstjórnar Vestmannaeyja og
Árna Johnsen þingmanni vegna ósk-
ar stjómar Herjólfs hf. um aðgang
að gögnum Vegagerðarinnar sem
stuðst var við í útreikningi kostnað-
aráætlunar í útboði á ferjusiglingum.
Magnús Jónasson, framkvæmda-
stjóri Herjólfs hf., sagði í gær að
vegagerðin hefði lagt fram hluta af
þeim gögnum sem um var beðið en
það væri mat fulltrúanna frá Eyjum
að þau væru ekki nægilega greinar-
góð. Var ákveðið að funda aftur
vegna þessa máls á mánudaginn.
HÆSTIRÉTTUR hefur ómerkt
héraðsdóm í máli Eggerts Haukdals,
fyrrverandi oddvita Vestur-Land-
eyjahrepps, og vísað málinu heim í
hérað til löglegrar meðferðar.
Hæstiréttur segir að framburður
Eggerts fyrir dómi hafi ekki verið
með þeim hætti, að héraðsdómari
hafi með réttu mátt líta svo á, að fyr-
ir lægi skýlaus játning á sakargift-
um í skilningi laga um meðferð opin-
berra mála. Því hafi ekki verið
lagaskilyrði til þess að taka málið til
dóms sem játningarmál án frekari
gagnaöflunar. Héraðsdómur dæmdi
Eggert í 6 mánaða skilorðsbundið
fangelsi í mars sl., en hann hafði
greitt hreppnum fjárhæðir sem
ákært var fyrir áður en lögreglu-
rannsókn hófst.
Eggerti voru gefin að sök umboðs-
svik fyrir að gefa út rúmlega einnar
milljónar króna skuldabréf í nafni
hreppsins með sjálfskuldarábyrgð
sinni og tveggja annarra hrepps-
nefndarmanna og eignfæra þá fjár-
hæð á viðskiptareikning á nafni jarð-
arinnar Eystra-Fíflholts. Lánsfénu
hafi hann varið að meginhluta til
greiðslu á skuldabréfi, sem verið
hafi rekstri hreppsins óviðkomandi.
I síðari lið ákæru var hann ákærð-
ur fyrir fjárdrátt með því að hafa
dregið sér af fjármunum hreppsins
samtals tæpar 1,2 milljónir, annars
vegar með því að millifæra upphæðir
á rekstur hreppsins sem útgjöld
vegna ábyrgðar, heimildarlaust og
án vitundar hreppsnefndar, og hins
vegar látið færa fé til inneignar á
viðskiptareikning sinn sem hafði
verið gjaldfært hjá sveitarsjóði sem
kostnaður vegna vegagerðar í
hreppnum, án reikninga að baki
þeirri færslu.
Neitaði flestu
fyrir dómi
í dómi Hæstaréttar kemur fram
að fyrir héraðsdómi kannaðist Egg-
ert við að hafa gefið út skuldabréfið,
sem hann hefði greitt upp. Hann
hafnaði hins vegar orðinu umboðs-
svik og ákæru vegna þessa. Hann
hafnaði einnig fyrri hluta ákærunnar
um fjárdrátt og sagði að sér hefði
ekki verið kunnugt um þann færslu-
máta sem þar er tilgreindur fyrr en
rannsókn málsins fór fram. Hann
játaði síðari hluta ákærunnar um
fjárdrátt.
Hæstiréttur segir að skýringar
Eggerts fyrir dómi og ummæli hans
um tilteknar athafnir hans gefi ekki
tilefni til að ætla, að hann hafi játað
að þær hafi verið saknæmar og gerð-
ar í auðgunarskyni.
Af hálfu Eggerts voru fyrir
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra telur heppilegt að færa
starfsemi Rannsóknarnefndar sjó-
slysa að verulegu eða öllu leyti út á
land. Hann segir verkefni nefndar-
innar af þeim toga að henta ætti vel
starfsemi utan höfuðborgarsvæðis-
ins.
„Það hafa tekið gildi ný lög um
rannsóknir sjóslysa og með þeim
hefur í raun verið tekin upp ný að-
ferðafræði, lík þeirri sem beitt er við
rannsóknir flugslysa," sagði Sturla
við Morgunblaðið.
Hann segir að gert sé ráð fyrir að
Hæstarétti bornar brigður á hæfi
héraðsdómara til að fara með málið,
þar sem eiginkona dómarans hafí
verið framkvæmdastjóri KPMG
Lögmanna ehf. Allt hlutaféð í því fé-
lagi var í eigu KPMG Endurskoð-
unar hf., sem l'ét hreppsnefnd Vest-
ur-Landeyjahrepps í té þá
endurskoðunarskýrslu, er lögreglu-
rannsókn og dómsmeðferð málsins
byggðist á. Hæstiréttur segir rétt að
héraðsdómari taki afstöðu til þessa
áður en leyst verður efnislega úr
málinu að nýju.
umfang Rannsóknarnefndarinnar
muni aukast, hún hafi haft einn fast-
an starfsmann til þessa í Reykjavík
en Ijóst sé að fleiri verði ráðnir til
hennar á næstunni.
„Þessi mál eru í vinnslu núna og
engin ákvörðun hefur verið tekin um
staðsetningu," bætir ráðherrann við,
en nefnir að ákvörðun þurfi að liggja
íyrir innan skamms tíma.
Haraldur Blöndal hrl. hefur verið
formaður Rannsóknarnefndarinnar
um árabil, en nýr formaður nefndar-
innar er Ingi Tryggvason, lögfræð-
ingur í Borgarnesi.
Auðlesið
efni
í MORGUNBLAÐINU í dag
hefur göngu sína nýr þáttur
sem heitir Auðlesið efni.
Þama munu birtast fréttir
líðandi stundar í sérstökum
búningi og eru ætlaðar öllum
þeim sem eiga erfitt með lest-
ur. Þátturinn verður í Dag-
legu lífi á fóstudögum. Fyrsti
þátturinn birtist á baksíðu
Daglegs lífs (8D) og er það
von Morgunblaðsins að þess-
ari tilraun verði vel tekið.
a«yHajaaa
Vala Ro&adðttlr 6 wrðlaunapalll é ólympluletkunum
Kom, sá
ogsigraði
Forseta-
kosnlngarí
Júgóslavíu
Dansarl í
myrkrlnu
frumsýnd
Velslugestur
gómaðl þjóf
Norrænar
stöðvar
á brelð-
bandlð
Rannsóknarnefnd sjóslysa
Heppilegl að færa
starfsemina út á land
Sérblöð í dag
BIOBLAÐIÐ
Á FÖSTUDÖGUM
#«##••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Sigurður Örn valinn í landsliðs-
hópinn i knattspyrnu/Bl
••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Nýliðarnir lögðu meistarana
í körfuboltanum/B2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is