Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 52

Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 52
FOSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ZZ UMRÆÐAN Kolviðarhóll - Viðey - Staðsetning á nýjum golfvelli ÞAÐ er alltaf ánægjulegt þegar nýj- ar hugmyndir koma Jram um hvernig megi *em best styðja íþróttafólk borgarinn- ar. Hugmynd um golf- völl í Viðey hefur nú skotið upp kollinum. í stuttu máli snýst um- ræðan um að golf- íþróttin sé svo vinsæl núna að erfitt sé að komast að á þeim völlum sem fyrir eru í nágrenni borgarinnar og efla megi aðdrátt- arafl eyjarinnar með byggingu golfvallar þar. Hugmyndin er að mörgu leyti skemmtileg. Að spila golf í Viðey á fallegu sumarkvöldi hlýtur að vera •fffdislegt fyrir þá sem aðhyllast golfíþróttina. Hætt er þó við að ekki verði allir á eitt sáttir um byggingu golfvallar í Viðey og hann verði ekki aðdráttarafl fyrir aðra en þá sem stunda golf og geti jafnvel orðið til þess að fólk veigri sér við að heimsækja Viðey. Ef Reykjavíkurborg hyggst ráð- ast í byggingu golfvallar, hvernig væri þá að byggja hann við Kolvið- arhól? Reykjavíkurborg hefur átt Kolviðarhólsjörðina frá árinu 1956 l öll þau ár hefur ekkert verið 'gert þar að hálfu borgarinnar. í nágrenni við Kolviðarhól, það er í Hamragili og Sleggjubeinsskarði, hafa skíðadeildir IR og Víkings rekið skíðasvæði í mörg ár og nú síðustu átta árin í samvinnu við íþrótta- og tómstundaráð Reykja- víkur. Skíðasvæðin hafa verið rek- in undir nafninu Hengilssvæðið. A Hengilssvæðinu, sem er miklu stærra en skíðasvæðin gefa til kynna, hefur verið staðið myndar- lega að gerð göngustíga og reistir hafa verið gönguskálar á tveimur stöðum. Svæðið er eitt mest spennandi útivistarsvæði í ná- grenni borgarinnar, en jarðfræði þess og náttúra er stórkostleg. ^ Fyrir nokkrum árum var skíða- íþróttin ein vinsælasta fjölskyldu- íþróttin og mikil uppbygging átti sér stað þegar skíðasvæðið í Blá- fjöllum var tekið í notkun. í Skála- felli hefur verið rekið skíðasvæði um árabil, fyrst á vegum skíða- deildar KR, en nú á vegum Iþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkur og Bláfjallanefndar. Það voru sjálfboðaliðar innan skíða- Auður Björg Sigurjónsdóttir deildanna sem í byrj- un unnu að því að koma upp viðeigandi aðstöðu fyrir skíða- fólk á öllum skíða- svæðum sem nú eru rekin í nágrenni höf- uðborgarinnar. En nú eru öll skíðasvæðin rekin af Bláfjallan- efnd og íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur. Blá- fjallanefnd er skipuð fulltrúum frá tíu sveitarfélögum sem eiga aðild að nefnd- inni. Reykjavíkurborg hefur einn fulltrúa sem jafnframt er formaður nefnd- arinnar en borgar allt að 60% af kostnaði við rekstur og fram- kvæmdir skíðasvæðanna. Nú er svo komið að skíðaíþróttin er ekki eins vinsæl og áður, en Utivistaríþróttir Skíðasvæðin hafa verið látin „drabbast“ niður, segir Auður Björg Sigurjónsdóttir. Það er ekki til fjármagn fyrir eðlilegu viðhaldi mannvirlga. samt eru starfræktar öflugar skíðadeildir og Reykvíkingar eiga marga góða skíðamenn. Engin ein ástæða er fyrir því að skíðaíþróttin er ekki eins vinsæl nú og fyrir fá- einum árum og erfitt að fullyrða um nokkuð í þeim efnum. Hinsveg- ar hafa skíðasvæðin nánast verið látin „drabbast“ niður. Það er ekki til fjármagn fyrir eðlilegu viðhaldi mannvirkja, ekki til að ráða starfs- menn eins og til þarf, ekki til að standa undir eðlilegum öryggis- kröfum, ekki til að endurnýja tæki og tól, ekki til að kaupa búnað til að halda skíðamót, og ekki að til reka snjógerðarvél. Það leikur enginn vafi á að það sem hér er upp talið á stóran þátt í því að dregið hefur úr aðsókn að Hengils- svæðinu, Bláfjöllum og Skálafelli. En nú er lag og nú eru til pen- ingar. Nýtt fjölskyldusport er vin- B A K N A íj. PJÖLSKYLDU LJOSM YNDIR Núpalind 1 Sfmi 564 6440 www.ljosmyndir.net sælt og því rétt að byggja aðstöðu til að hægt sé að stunda það. Byggja skal golfvöll. Hvernig væri þá að byggja golfvöll við Kolviðar- hól þar sem landrými er nóg og lít- il hætta á að ósátt verði um stað- setningu vallarins? Ekkert varp, engar náttúruminjar, engar forn- minjar, ekkert sem verið er að skemma. Of hátt yfir sjávarmáli, kunna einhverjir að segja, en að óathuguðu máli má ætla að snjór sé farinn af Kolviðarhólstúninu um svipað leyti og snjór er farinn af golfvöllum Norðlendinga. Kolvið- arhólsjörðin er að mestu á hrauni. Túnin eru þurr og grasgefin og um þau liðast lækur. Nýta má bygg- ingar sem fyrir eru á svæðinu, bæði geymslur og skála fyrir starf- semi golfvallarins. Bílastæði eru fyrir hendi, rafmagn og meira að segja jarðhiti svo koma mætti upp heitum pottum fyrir þreytta golf- ara eftir að þeir hafa spilað í fersku fjallalofti. Starfsmenn golf- vallarins yrðu ráðnir í heilsárs- störf, á sumrin við golfvöllinn og á veturna við skíðasvæðin. Fjöl- skyldumeðlimir sem spila ekki golf geta farið í gönguferðir um Heng- ilssvæðið eftir fjölbreyttum göngu- leiðum sem þar hafa verið lagðar og merktar af starfsmönnum Orkuveitu Reykjavíkur. Golfvöllur á Kolviðarhóli kæmi til með að styrkja Hengilssvæðið sem útvistarsvæði, en möguleikar á svæðinu eru óþrjótandi allt árið um kring. Ferðaþjónusta sem rek- in er í dag í nágrenni við Kolviðar- hól ætti ekki að verða fyrir neinum truflunum við rekstur golfvallar á Kolviðarhóli. Á veturna er mikið farið með ferðamenn um svæðið á snjósleðum og á sumrin hafa verið farnar skipulagðar hestaferðir um svæðið. I Skíðaskálanum í Hvera- dölum er rekin veitingaþjónusta sem gæti haft hag af golfvelli á Kolviðarhóli. Það er fátt sem mæl- ir gegn því að gera Kolviðarhól og reyndar Hengilssvæðið allt að framtíðarútivistarsvæði sem byði upp á fjölbreytta afþreyingu og þjónustu allan ársins hring. í lokin vil ég benda borgarfull- trúum á að lesa Stefnumótun 2002 í atvinnu- og ferðamálum sem gef- in var út 1997, og Landnýtingar- áætlun borgarjarðanna sem gefin var út í vönduðu riti í júní 1997 og athuga hvort staðsetning golfvall- ar við Kolviðarhól samræmist ekki þeim hugmyndum sem fram koma í þessum skýrslum. Höfundur er áhugamanneskja um skíðaíþróttina og Hengilssvæðið. Hver býður best í veðrið? RÍKISÚTVARPIÐ, útvarp allra lands- manna, er í erfiðri stöðu. Það fær ekki nægilegt fé til að standa undir því hlut- verki sem því er falið með lögum og sætir stöðugu aðkasti af hálfu þeirra sem vilja það feigt. Afnotagjöld- in, sem eru megin- tekjustofn RÚV, hafa árum saman ekki fylgt verðlagsþróun þar sem menntamálaráð- herra treystir sér ekki til að taka á málinu vegna nöldurs eigin flokksmanna. Það er ekki ofsögum sagt að Ríkisútvarpið engist í greipum Sjálfstæðisflokksins. I þessari þröngu fjárhagsstöðu er ekki að undra þótt starfsmenn fjármála- og markaðsdeildar leiti allra hugsanlegra leiða til að auka tekjur RÚV. Þær eru reyndar ekki margar og fyrst og fremst tengdar auglýsingum og kostun dagskrár- RUV Þótt fjárhagurinn sé oft þröngur, segir Kristín Halldórsdóttir, ber ---7-------------------- RUV að halda ákveðinni reisn og forðast að láta markaðsöflin taka völdin. efnis. Um þær hafa spunnist nokkr- ar umræður í útvarpsráði enda flestir þeirrar skoðunar að rétt sé að feta slíkar brautir varlega. Þau vildu selja veðrið Fyrr á þessu ári kom til kasta út- varpsráðs sú hugmynd markaðs- deildar að leita til aðila um kostun veðurfregna í sjónvarpinu eins og tíðkast hefur mánuðum saman hjá Stöð 2. Mörgum þótti þar seilst inn á grátt svæði þar sem í útvarps- lögum er skýrt tekið fram að ekki sé heimilt að afla kostunar við gerð frétta eða fréttatengdra þátta og er hnykkt á því enn frekar í kostunar- reglum Ríkisútvarpsins. Vakti það undrun margra þegar útvarpsrétt- arnefnd sá ekki ástæðu til að gagn- rýna þá ráðstöfun Stöðvar 2 að láta Tal færa landsmönnum veðrið eins og sagt er. Hvað sem því líður hlaut RÚV að taka sjálfstæða ákvörðun í því efni. Svo fór eftir nokkrar umræður í útvarpsráði að gengið var til at- kvæða um þá tillögu formanns út- Kristín Halldórsdóttir - Gœðavara Gjafavdra - malar og kaífistcll. Allir veröílokkar. , 5y6V)ó/)xV\\^- , yr.no, ffeimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. ,n VERSLUNIN Lniigavegi 52, s. 562 4244. I DAG Frá kl. 9-11 ■a imiifiiin.......... Frá kl. 11 -16.30 Laugavegi 126, ofan við Hlemm (gamli Kínamúrinn). P*antanir, matseðill eða tilboð dagsins á netfangi: tomasb@simnet.isSími 561 2929, Fax 561 1110 varpsráðs að kostun veðurfregna yrði heimiluð í sjónvarpi RÚV og var tillagan samþykkt með at- kvæðum fulltrúa Sjálf- stæðisflokks og Sam- fylkingar. Innan tíðar má því allt eins búast við að við fáum veður- fregnir sjónvarpsins í boði Landsvirkjunar eða einhvers annars fyrirtækis sem þarf að bæta ímynd sína. Full- trúar Samfylkingar virðast nú telja sig hafa gengið þessa götu á enda miðað við ný- legar yfirlýsingar í fjölmiðlum. Sérstöðuna ber að rækta Undirrituð, sem er fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í útvarpsráði, greiddi at- kvæði gegn tillögunni ásamt full- trúa Framsóknarflokksins. í fund- argerð þess fundar frá 28. mars sl. segir m.a. svo: „KH lýsti sig and- víga því að Ríkisútvarpið leitaði kostunar veðurfregna. Hugsanlega væri verið að færa í form kostunar tekjur sem annars myndu skila sér í auglýsingum. RÚV hefur ákveðnar skyldur við landsmenn umfram aðra fjölmiðla, það á að veita ákveðna þjónustu og það er skylda stjórnvalda að gera því kleift að veita hana án þess að fyrir- tæki geti keypt sér velvild út á það. í rauninni þarf að endurskoða frá grunni reglur um kostun með sér- stakt hlutverk RÚV í huga og var- ast að eltast um of við stefnu einka- stöðvanna.“ Hér eru að sjálfsögðu dregnar saman í stuttu máli þær ástæður sem ég lagði til grundvallar minni afstöðu. Af sömu ástæðum lýsti ég mig mótfallna þeirri hugmynd sem nú er til athugunar hjá markað- sdeild að skjóta auglýsingum inn í sýningar kvikmynda í sjónvarpi RÚV og ítrekaði um leið að móta þyrfti skýrari stefnu RÚV hvað auglýsingar og kostun varðar. Framhjá því verður ekkert litið að Ríkisútvarpið hefur algjöra sér- stöðu meðal fjölmiðla og þá sér- stöðu ber að tryggja og rækta. RÚV gegnir afar mikilvægu menn- ingarlegu hlutverki og hefur ríkar skyldur gagnvart landsmönnum. Þótt fjárhagurinn sé oft þröngur ber RÚV að halda ákveðinni reisn og forðast að láta markaðsöflin taka völdin. Þau eiga ekki að ráða dag- skrá RÚV, hvorki í útvarpi né sjón- varpi. Höfundur er fulltrúi Vinstrihreyf- ingarinnur - græns framboðs í út- varpsráði. JLfa wmm. tsSll(úhreinsunin gsm 897 3634 Þrif i rimlagluggatjöldum. ÍSFUGL I BAWTIIAI @ ka'rate Karatedeild Fylkis Byijendanámskeiðin eru hafln Stundaskra: Böm byijendun Mán. og Föstud. kl. 18:15 Fullorðnir byrjendun Mán., mið. og Föstud. kl. 19:15 Upplýsingar i síma: 896 3010 eða 567 6467

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.