Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 21
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar eiga
að vera komin í gagnið eftir rúmt ár og munu þau greiða mjög fyrir um-
ferð eftir Reykjanesbrautinni.
Morgunblaðið/Þorkell
Um Reykjanesbraut norðan Arnamesvegar fara um 21 þúsund bflar á
sólarhring og verður jafnan talsverð töf á mótum Nýbýlavegar og við
Breiðholtsbraut.
Mjög aukin umferð
vegna Smáralindar
VEGNA mikillar uppbyggingar í
Kópavogi sem verið hefur og verður á
næstu misserum, bæði í íbúðabygg-
ingum og atvinnuhúsnæði, er fyrir-
sjáanleg stóraukin umferð umþessi
nýju svæði. Mest umsvif eru í Smár-
anum sem dregur til sín umferð úr
öllum áttum; umferð sem kemur
væntanlega um Reykjanesbraut,
Amamesveg frá H afnai'fj arðarvegi
og síðan Fífuhvammsveg.
Þórarinn Hjaltason, bæjarverk-
fræðingur í Kópavogi, segir að eins
og staðan sé í dag sé útlit fyrir að
uppbygging þjóðvega í nágrenni
Smárans nái ekki að haldast nógu
mikið í hendur við þá umferð sem trú-
lega muni leita í Smáralind þegar
opnað verður þar næsta haust. Sam-
kvæmt vegaáætlun verður nauðsyn-
legustu umbótum í nágrenninu ekki
lokið fyrr en árið 2004 þannig að verði
þeim ekki flýtt er hætt við að umferð-
arhnútar geti myndast á þessu svæði.
12-18 þúsund bílar
vegna Smáralindar
Við Smáralind verða 3.000 bíla-
stæði og segir Mrarinn að reiknað sé
með að 0,7 til 1 bíll komi á slík stæði á
klukkutíma. Þetta geti þýtt 6-9 þús-
und bflar á þremur klukkustundum
síðdegis sem yrði hrein viðbót við þá
umferð sem fyrir er. Þessir bflar
þurfa einnig að komast burt þannig
að í raun er verið að tala um 12-18
þúsund bfla umferð vegna Smára-
lindar.
Flöskuhálsinn í umferðinni í aust-
urhluta Kópavogs segir Þórarinn að
sé á Reykjanesbrautinni við Nýbýla-
veg og Breiðholtsbraut. Tafir þar
muni lagast þegar mislægu gatna-
mótin verða komin í gagnið þar eftir
rúmt ár. Þórarinn segir brýnt í fram-
haldi af því að ráðast í ýmsar fleiri
endurbætur á Reykjanesbraut og
bendir m.a. á gerð mislægra gatna-
móta við Arnamesveg og breikkun
brautarinnai’. Hann segir að sú
aukna umferð sem leiti í Smáralind
komi að einhveiju leyti frá Reykjavík
um Hafnarfjarðarveg og Arnames-
veg og því þurfi að auka afköstin á
Amameshæðinni, helst með breikk-
un götunnar allt að Reykjanesbraut
og þar með brúarinnar yfir Hafnar-
fjarðarveg. Önnur verkefni sem ráð-
ast þarf í segir Þórarinn vera gerð
slaufu fyrir hægri beygju af Hafnar-
fjarðarvegi inn á Nýbýlaveg. Það
kallar á að gatnamótunm við Skelja-
brekku og Dalbrekku verði breytt og
gerð ný gatnamót austar á Nýbýla-
vegi og er þetta því talsvert mikil
framkvæmd. Hún er á vegáætlun á
næsta ári. Þá segir bæjarverkfræð-
ingurinn einnig nauðsynlegt að gera
einhverjar ráðstafanir á Nýbýlaveg-
inum sjálfum í því skyni að auka um-
ferðaröryggi þar. Um götuna fara nú
um 20 þúsund bflar á dag og segir
hann að ef til vill komi til álita að setja
beygjuljós á sum gatnamótanna þar,
helst við Þverbrekku, en Þórarinn
segir að það sé allt óráðið ennþá.
CAOUih
Lyftarar
Stefna
hátt liprir í I
snúningum i
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
AUÐBREKKU 1 200 KÓPAVOGI
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
I www.straumur.is I
BJá[WeUa
hárlagningar
vökvinn
er kominn aftur
Hlíðarfótur og
Kópavogsgöng
HLÍÐARFÓTUR og göng undir
Kópavog er stórframkvæmd sem
talin er þörf á að ráðast verði í á
næstu ámm og er þá verið að horfa
um áratug fram í tímann. Era hug-
myndir um þetta einkum frá ráð-
gjöfum um svæðisskipulag höfuð-
borgarsvæðisins. Þetta yrði
framtíðartenging milli suðurhluta
höfuðborgarsvæðisins og miðborg-
arinnar og myndi létta mjög á
Kringlumýrarbrautinni en vegna
aukningar sem spáð er næstu einn
til tvo áratugina er þessi leið talin
óhjákvæmileg.
Kópavogsgöngin myndu liggja
frá Reykjanesbraut nokkru vestan
Nýbýlavegar og gangamunninn í
vestri yrði í Fossvogsdalnum rétt
við Birkigrand. Þar yrði vegurinn
ofanjarðar en færi að öllum líkind-
um aftur í göng rétt vestan við
Kringlumýrarbraut sem lægju und-
ir kirkjugarðinum og opnuðust við
Hlíðarfót sem mætir Flugvallarvegi
nokkra norðar.
Kostnaður við bæði göngin með
tengingum og gatnamótum í endum
og með tengingum við Kringlumýr-
arbraut í Fossvogsdal era talin geta
kostað 8 til 9 milljarða króna. Alls
yrðu göngin kringum 3,5 km löng.
Fossvogur
Morgunblaðið/Kristinn
Mikil umferð er að háskólasvæðinu og gengur umferð þá rólega um
Hringbrautina um tíma á hverjum morgni.
Fólks- og bílafjölgun
kallar á framkvæmdir
GERT er ráð fyrir að fólksfjölgun á
höfúðborgarsvæðinu verði á næstu
20 árum kringum 36%, sem þýðir að
íbúar verði hátt í 200 þúsund, og að
bflaeign aukist úr 500 bflum á hveija
þúsund íbúa í 600 bfla á sama tíma.
Því er einnig spáð að umferð aukist
um 40-50% en á síðasta ári jókst hún
almennt um 3-4% og um 10-12% á
jaðarsvæðum.
Þetta kemur fram í gögnum um
svæðisskipulag á höfuðborgarsvæð-
inu en á vegum þess hefur verið unn-
ið að ýmsum athugunum varðandi
umferðarmál í framtíðinni.
Forsvarsmenn sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkur,
Bessastaðahrepps, Garðabæjar,
Ilafnarfjarðar, Mosfellsbæjar, Kópa-
vogs og Seltjarnarness beindu á iiðn-
um vetri ákveðnum tillögum til sam-
gönguyfirvalda um framkvæmdir
við þjóðvegi á höfuðborgarsvæðinu
árin 2000-2004. Er þar talin þörf á
framkvæmdum fyrir rúma 10,2
milljarða króna. Aætlað er að fjár-
festing í þjóðvegum á öllu skipulags-
t imabilinu, eða á næstu 20 árum,
þurfi að vera kringum 40 milljarðar
króna. Til samanburðar benda for-
ráðamenn sveitarfélaganna á að
áætlað sé að bygging skóla og leik-
skóla muni kosta sveitarfélögin um
30 milljarða króna og gatna- og hol-
ræsakerfi nýrra hverfa um 25 millj-
arða. Af þeim sökum þyki þeim eðli-
legt að setja fram tillögur um svo
mikil framlög. Ástæðumar eru með-
al annars taldar þær að þörfin hafi
safnast upp undanfarin ár og að
aukning umferðar er meiri en áætl-
að var. Þannig er bent á að hún hafi
verið 3-4% í heild en á jaðarsvæðum
10-12% eins og áður er nefnt og er
þar m.a. átt við umferð um Vestur-
landsveg f Ártúnsbrekku, að og frá
Grafarvogi, á Vesturlandsvegi að
Mosfellsbæ og á Reykjanesbraut frá
Breiðholtsbraut að Vífilsstaðavegi.
Því er spáð að árið 2020 muni um
60 þúsund bflar fara um Reykja-
nesbraut milli Arnamesvegar og
Fífuhvammsvegar, 30 þúsund bflar
um Kópavogsgöng, 34 þúsund um
Hlíðarfót og 73 þúsund um Kringlu-
mýrarbraut. Um vestari hluta
Miklubrautar er gert ráð fyrir að
fari um 41 þúsund bflar og 55 þús-
und á kaflanum frá Kringlumýrar-
braut að Sæbraut.
Fæst í apótekum
og stórmörkuðum
WELLA
- fyrir þig -
Súrefiiisvörur
Karin Herzog
Silhouette