Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 37
Ljósmynd/Halldór B. Runólfsson
Eitt af verkum Þórðar Hall á einkasýningu
hans í Listasafni Kópavogs.
Austurlensk
kyrrð
MYNDLIST
Listasafn Kópavogs
MÁLVERK
ÞÓRÐUR HALL
Til 8. október. Opið þriðjudaga
til sunnudaga frá kl. 11-17.
ÞÓRÐUR Hall heldur nú
einkasýningu í Listasafni Kópa-
vogs. Til skamms tíma hefur gætt
í verkum hans sterkra geo-
metrískra áhrifa sem orsakað
hafa vissa deyfð í verkum hans
líkast því að þau væru gerð eftir
skapalónum. Nú er allt í einu sem
þessari sterku hólfun sé skákað
með lýrísku pensilfari og litrænni
tilfinningu svo nú eru þessi stærð-
fræðilegu gildi á hröðu undan-
haldi fyrir einhverju sem kalla
mætti austurlenska íhugun.
Eftir þvi sem Þórður segir
sjálfur eru þessi dulúðugu lands-
lagsverk hans huglæg minni en
ekki raunveruleg sjónræn upplif-
un frammi fyrir ákveðnu um-
hverfi. Þetta gerir aðferðir hans
enn austurlenskari en tæknin
sjálf gefur til kynna. Kínverskir
málarar og japanskir eftirmenn
þeirra tömdu sér smám saman
tækni sem byggðist á því að horfa
á náttúruna og kanna hana í þaula
en mála ekki fýrr en upplifunin
var orðin minning. Það er enginn
vafi á að þessi sýning er sú lang-
besta sem Þórður hefur haldið.
Svo virðist sem hann hafi tekið
mið af því besta sem fram hefur
komið í íslenskri landslagslist síð-
ustu áratuga og byggt á þeim at-
hugunum sinn eigin impressjón-
íska náttúruheim. Allt er sem í
móðu, eyjar og haf, en á ákveðn-
um stöðum á fletinum þéttast lit-
irnir og kalla fram eitthvað sem
minnir á túnblett, gras, hamar eða
klettaveggi.
Þessi þétting er auðvitað býsna
skyld því sem gerðist á striganum
hjá Turner gamla, þegar meistar-
inn enski var að fást við gufuskip
og eimreiðir í regnstormi og þoku-
súld. Það breytir þvi þó ekki að
Þórður ljær myndum sínum nægi-
lega sterkan persónulegan svip til
að gera þessar endurspeglanir
upplifunarinnar að sínum mynd-
heimi. Þannig er tækni hans orðin
að lifandi miðlun áhrifa um leið og
mýktin læðist inn. Það er engu lík-
ara en Þórði hafi allt í einu skilist
að miðilinn þarf ekki að neyða til
neins. Með því að stýra honum til
góðra verka sæi pensillinn og lit-
imir um flest af því sem nægði tit
að hafa erindi sem erfiði. Það er
gaman að verða vitni að slíkum já-
kvæðum breytingum.
Halldór Björn Runólfsson
www.naten.is
Þúsundir íslendinga
nota fædubótarefnin frá
lUaten af ólíkum
ástædum.
NATEN'
Hvað gæti Naten gert fyrir þig ? J
Fæst í apótekum og sérverslunum um land allt.
/Hnrnðourmil
Perlunni
agb
The Evergreens
Songs oflretand
Okkarverð 299
Ýmsir flytjendur
The Best Ever Ctassics
Okkar verð 299
jussi Björling
Best Recordíngs 1
Okkarverð 699
The Dubliners
Seven Drunken Nights
Okkarverð 499
Coldplay
Paracnutes
Almenntverð 2199
Okkarverð 1699
BARin Vk Hiii
■ j
;
Barry White
The Uttimate Cottection
Atmenntverð 2199
Okkar verð 1699
Macy Gray
On how tife fs
Atmenntverð 2199
Okkarverð 1699
Britney Spears
Oopst... I did ít again
Almenntverð 2199
Okkarverð 1699
Cat Stevens
The Uttimate Cottection
Almenntverð 2199
Okkar verð 1699
Abba
Gotd
Atmenntverð 2199
Okkarverð 1699
The Doors
Greatest Hits
Almenntverð 2199
Okkarverð 1699
Aretha Franklin
Amazing Grace
2 CD verð 1699
Forvarnir skipta sköpum • Naten - órofin heild!