Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 54

Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 54
o4 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, og amma, ÁSTA HANNESDÓTTIR kennari, Hjallabrekku 13, Kópavogi, sem lést á líknardeild Landspítalans þriðju- daginn 26. september, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 2. október kl. 10.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Minningarsjóð líknardeildar Landspítalans. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Salvör Kristjana Gissurardóttir, Magnús Gíslason, Kristinn Dagur Gissurarson, Guðrún Stella Gissurardóttir, Jóhann Hannibalsson, Ásta Lilja, Ásta Björg, Kristín Helga, Magnea Gná og Þorsteina Þöll. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ODDUR DAGBJARTUR HANNESSON, Vesturgötu 19, Akranesi, er látinn. Jarðarförin hefur farið fram I kyrrþey að ósk hins látna. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð. vináttu og hlýhug. Ragna Halldórsdóttir, Hannes Oddsson, Aðalheiður Oddsdóttir, Vilhjálmur Hendriksson, Lára Dóra Oddsdóttir, Sigmar Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur hlýhug, vináttu og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS SIGURGEIRSSONAR frá Helluvaði. Ragnhildur Jónsdóttir, Jón Gauti Jónsson, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Geirfinnur Jónsson, Hlíf Sigurjónsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir, Edward Frederiksen, Herdís Jónsdóttir, Steef van Oosterhout og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, INGIBJARGAR HJARTARDÓTTUR, Blesugróf 6, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Grensásdeildar og B7 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Fossvogi fyrir hlýlegt viðmót og góða umönnun. Bjöm Jóhannsson, Anna Hjördís, Kyle Kledis, Ingunn Hafdís, Kári H. Einarsson, Bima Dís, Steingrímur Ó. Einarsson, Ingi Björn, Ari Bragi og Einar Húnfjörð, Unnur Hjartardóttir, Steindór Hjörleifsson, Hjörtur Örn Hjartarson, Hrefna Hrólfsdóttir. -V UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri iandsbyggðinni. Sverrir Einarsson útfararstjóri, sími 896 8242 'fialdur Sverrir feeieriksen Olsen Bjfjk ^Mútfararstjóri, útfararstjóri. j^tfsími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is SIGRÚN ARNARDÓTTIR + Sigrún Arnar- dóttir fæddist í Reykjavik 13. apríl 1958. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans 21. september síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar eru Björg Guðna- dóttir, f. 7. júlí 1940 og Skúli Guðmunds- son, f. 26. apríl 1941. Systkini Sigrúnar: 1) Álfheiður Arnar- dóttir, f. 5. júní 1960, hennar maki er Stefón Þór Bjarnason. 2) Guðni Þór Skúla- son, f. 13. janúar 1965, hans maki er Sigurbjörg Ámundadóttir. 3) Ragnheiður Linda Skúladóttir. Sigrún giftist hinn 28. mai 1976 Sigurjóni Haraldssyni, f. 16. janúar 1956, þau skildu. Vaktu minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgr.Pét.) Elsku besta mamman mín, ég trúi þessu varla ennþá, trúi ekki að þú sért farin, trúi ekki að ég geti ekki hringt í þig eða kíkt í kaffi, þetta er svo óraunverulegt og sárt og erfitt að sætta sig við. Ég reyni að hugga mig við að þú sért laus við allar þjáningarnar sem þú fannst fyrir í lífinu. Ég á óendanlegan brunn af fal- legum minningum um þig sem ég geymi í hjarta mínu, ég veit líka að þú ferð ekki frá mér þótt ég sjái þig ekki. Elsku mamma, ég trúi að þú haf- ir fundið friðinn og hamingjuna sem þú leitaðir alltaf að. Viltu passa Alexöndru litlu fyrir mig? Bless í bili, mamma mín, og gleymdu aldrei að þú varst besta mamman sem nokkur gat hugsað sér. Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur hug þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Kahlil Gibran.) Takk fyrir að hafa gefið mér heiminn. Ég elska þig. Þín Lilja. Elsku mamma mín, núna veit ég að þér líður vel og að þú ert komin til guðs og englanna. Takk fyrir allt sem þú gafst mér, elsku mamma mín. Vertu yfir og allt í kring, með eilífri blessun þinni, sitji guðs englar saman í hring, sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín Alexandra Mist. Elsku mamma, nú þegar þú ert dáin er allt svo breytt. I hvert skipti sem síminn hringir býst ég Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Börn Sigp-únar: 1) Óskírður sonur, fæddur og dáinn 19. ágúst 1976. 2) Lilja Björg Sigurjóns- dóttir, f. 2 október 1977, hennar dóttir er Sigríður Alex- andra, f. andvana 22. ágúst 1998. 3) Elvar Skúli Sigur- jónsson, f. 18. des- ember 1979. 4) Ingi- björg Karen Sigur- jónsdóttir, f. 1. desember 1984. 5) Daníel Aron Sigur- jónsson, f. 17. október 1990. 6) Gabríela Mist, f. 17. nóvember 1995. 7) Alexandra Mist, f. 26. september 1998. Utför Sigrúnar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. við að það sért þú, en það er alltaf einhver annar. Það var alltaf gott að tala við þig, þú hlustaðir alltaf og ráðlagðir mér þegar ég þurfti á því að halda. Nú er þjáningum þínum loksins lokið og vonandi ertu búin að finna frið- inn og hamingjuna sem þú leitaðir svo mikið að meðan þú lifðir, en fannst aldrei. Nú legg ég augun aftur, ó, guð þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson.) Ég veit ekki um neina aðra mömmu sem er eins frábær og þú varst. Enginn getur komið í þinn stað. Þín dóttir, Ingibjörg Karen. Þegar ég skrifa þessi kveðjuorð, elsku Sigrún mín, er mér efst í huga þakklæti til þín, þakklæti fyr- ir að hafa svo oft verið til fyrir mig, fyrir að fá að vera faðir barnanna okkar sem ég er svo stoltur af, fyrir fyrrverandi tengdaforeldra mína sem ég elska og dái, fyrir þá gagn- kvæmu kurteisi og virðingu sem einkenndu samskipti okkar síðustu æviárin þín, fyrir þann þroska sem þú hefur gefið mér, fyrir allt og allt. Ég veit að nú ert þú hjá algóðum guði, að þjáningum þínum er lokið og þú búin að finna ljósið og þann frið sem þú varst búin að leita að og þrá svo lengi. Eftir stendur minn- ingin um konu sem var svo mikil barnagæla og var svo góð öllum sem voru „öðruvísi" og áttu bágt. Mig langar að kveðja þig með bæn- inni sem þú kynntir mér á sínum tíma. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. Sigurjón Haraldsson. Elsku besta stóra systir. Nú hef- ur vindurinn hægt um sig og öldun- um hefur lægt. Kyrrð og ró. Friður. Þegar ég kom til þín niður á spítala fann ég þig koma til mín svo rólega, umvafða birtu og hlýju til þess að segja mér að nú væri allt í lagi, þú hefðir fundið frið. Loksins. Þó lá líkami þinn meðvitundarlaus að berjast fyrir lífinu. En sál þín hafði valið leið og var lögð af stað í ferð. Mín leiðin löng er síðan églagðiuppáferð, ég er ei efnismikið og ekki lengi verð. Vertu fljótur vinur, ég veitt get svör við því sem viltu fá að vita um veðurofsans gný. Vertu ei spara að spyrja og spjara vel þinn hug, flýt þér áður feykja mér farvindar á bug. Ég man vel eftir góðu og hlýju systur minni, alltaf tilbúin að hjálpa og gefa. Alltaf umburðar- lynd, skilningsrík og barnelsk um- fram allt. Þú tókst mig upp ný- fædda og vildir svo víst ekki sleppa mér eftir það. Við vorum því oft saman systurnar og ansi margar minningarnar. Svo margar ljúfsár- ar minningar. Glerhúsið fyrir ofan rúmið þitt þar sem ég fékk svo oft að kúra. Bláu gallabuxurnar og rauðu klossarnir sem þú keyptir handa mér fyrir fyrstu launin þín. Allt spjallið sem við áttum um heima og geima. Allt. Ég man eftir öllum stöðunum þar sem þú bjóst en best man ég þó eftir okkur heima í Blesugróf. Ég man glaðar stundir og sárar stundir. Reyndar man ég svo vel eftir þér, elsku stóra systir, að ég man varla eftir sjálfri mér. En veistu, ég er sú sem ég er þín vegna, enginn hefur kennt mér eins mikið um lífið og tilveruna eins og þú. Þú varst einstök - en var ég nokkurn tíma búin að segja þér það? Sagði ég það ekki nógu oft eða ekki nógu hátt? Alveg sama hvað ég reyndi, gat ég ekki hjálpað þér til að sjá þig eins og ég sá þig. Sí- fellt meiri þoka og móða, öldu- gangur og rok. Það eru nokkur ár síðan ég varð að horfast í augu við vanmátt minn og ég grét lengi þeg- ar mér varð ljóst að alveg sama hvað ég reyndi og vildi þá gat ég ekki hjálpað þér eða breytt, heldur aðeins þú sjálf. Eftir ótrúlega erf- iða göngu hefur þú tekið þína ákvörðun og ert lögð af stað. Ég færði þér gömlu fenningarbiblíuna mína á spítalann. Ég opnaði hana þar sem stóð að þú yrðir að fara heim í musteri Guðs og ég veit það, systir mín, að nú ert þú engill Guðs og skín skært eins og þú ein getur. Ég veit líka að nú umvefur þú örm- um þínum litla drenginn þinn sem þú misstir og litluna hennar Lilju, þú ert mamma og amma eins og þú áttir að vera og vildir í raun sjálf! Mikið er sárt að missa þig, systir mín, og ég hef verið svo lengi að missa þig. Ef þú bara vissir hvað ég vildi taka það sem á miður fór á milli okkar til baka. Ég elska þig og sakna þín svo sárt. Ég veit samt að þú ert ennþá hjá okkur öllum en mest þó auðvitað hjá börnunum þínum öllum. Já, þú skildir eftir bestu og verðmætustu djásnin þín hjá okkur að annast og elska; Lilju Björgu, Elvar Skúla, Ingibjörgu Karen, Daniel Aron, Gabríelu Mist og Alexöndru Mist. Ég veit hvað þú elskaðir þau öll jafnt og ofurheitt. En sorgir þínar voru dýpri og þyngri en svo að þú gætir borið þær. Ég bið himneska krafta að leiðbeina þeim, hjálpa og varðveita. Ég kveð þig nú í bili, elsku systir mín, það er erfitt og sárt. Ég veit að þú ert farin í þína ferð og hefur öðlast langþráðan frið í hjarta þínu. Ég segi því eins og þú sagðir stund- um við mig, „góða nótt, elsku syst- ir“. Þín litla systir, Ragnheiður Linda. Hinsta kveðja í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Eg reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt, sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér, því veit mér feta veginn þinn, að verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson.) Votta foreldrum, börnum, systk- inum og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Megi Guð vaka og styrkja þau á þessari erfiðu stundu. Álfheiður E. Jónsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.