Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 55

Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 29. SBPTEMBER 2000 55 GUNNAR SVEINSSON + Gunnar Sveins- son fæddist á Ilalldórsstöðurn í Ljósavatnshreppi, S- Þing. 22. mars 1926. Hann lést 14. sept- ember síðastliðinn og fór útfor hans fram frá Fossvogs- kirkju 26. septem- ber. Sumarið 1947 voru 72 stúdentar útskrif- aðir úr Menntaskólan- um í Reykjavík. Þetta var í sólríkum júní- mánuði og það var ljúf stund, þeg- ar við settum upp stúdentshúfur og stungum skírteini í vasa eða tösku. Og öll horfðum við björtum augum fram á veginn. Síðan eru liðin 53 ár og hefur nýstúdentun- um þá vegnað á ýmsa vegu eins og gengur. Þeir völdu sér nýjan vett- vang til þess að starfa á og dreifð- ust út og suður. Á þessum langa tíma hafa verið höggvin skörð í okkar raðir og í hvert sinn hverfur hugurinn ósjálfrátt til gömlu menntaskólaáranna. í dag kveðjum við einn skólafé- laga okkar og samstúdent, Gunnar Sveinsson skjalavörð, sem lést 21. september, 74 ára að aldri. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum, séra Sveini Víkingi, þjóðþekktum fræði- manni, og konu hans Sigurlaugu Gunnarsdóttur, en þau voru bæði ættuð úr Norður-Þingeyjar- sýslu. Gunnar bar þess merki í orði og æði að hann hafði alist upp á miklu menning- arheimili. Gunnar var meðal- maður á hæð, grann- vaxinn, mjóleitur, dökkhærður og setti undir sig höfuðið. Hann var hlédrægur og óáleitinn, en fæld- ist ekki félagsskap og sótti jafnan árlegar samkomur okkar skólafélaganna. Best naut hann sín á fárra manna tali, þá hafði hann uppi sögur, margar kímnar. Gunnar var tón- elskur og spilaði vel á hljóðfæri, en vildi samt ekki að hátt færi, og hann var farsæll námsmaður. Eftir stúdentspróf skráði Gunn- ar sig í íslensk fræði í Háskóla ís- lands, sóttist honum námið vel og lauk veru sinni þar með magist- ersgráðu. Hann varð síðan skjala- vörður í Þjóðskjalasafni Islands og var hann þar á réttri hillu sökum lærdóms síns, vandvirkni og glögg- skyggni. Jafnframt vinnu sinni á safninu vann hann við ýmiss konar fræðistörf. Sérstaklega ber að minnast vandaðrar útgáfu hans á mörgum bindum Alþingisbóka Is- lands á vegum Sögufélags, en í það KRISTJÁN BJÖRNSSON + Kristján Björns- son fæddist í Reykjavík 5. maí 1972. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Foss- vogi 10. september siðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 21. september. Kær vinur er dáinn. Okkur langaði til að kveðja þig með nokkr- um orðum. Við kynntumst Krissa í Breiðholtsskóla og vorum við saman alla skólagönguna. Eftir skóla var alltaf farið í leiki í götunni okkar, Skriðustekknum, langt fram á kvöld. Það var svo gam- an, skemmtilegast fannst þér að fara í feluleikinn Einakrónu. Þú varst aðalkvennagullið í skól- anum, allar stelpurnar skotnar í þér, enda varstu algjör gullmoli, alltaf svo rólegur og þægilegur. Eftir skólagönguna fórum við hvert í sína áttina en við fengum alltaf fréttir af þér, hvað þér gengi vel í lífinu. Það voru forréttindi að fá að kynnast þér. Guð veri með þér og ástvinum þín- um. Þínarvinkonur, Lilja og Sólveig. Okkur langar til að minnast og kveðja æskufélaga okkar, Kristján, sem svo skyndilega var tekinn frá okkur í blóma lífsins. Við félagarnir vorum svo lánsamir að kynnast Kristjáni snemma á lífsleiðinni og myndaðist þá strax vinskapur sem hefur haldist alla tíð síðan. Kristján var gæddur þeim einstaka hæfileika að sjá alltaf björtu hliðarnar á tilver- unni. Hann tók öllum eins og þeir voru og átti auðvelt með að koma fólki í gott skap með skemmtilegum frásögnum sínum. Það var þessi eig- inleiki ásamt heiðarleika og góðvild í garð annarra sem gerði það að verk- um að fólk sótti í vinskap hans enda var hann vinamargur. Við félagarnir eigum ótal góðar minningar af sam- verustundum okkar með Kristjáni í gegnum tíðina og í gegnum þessar minningar mun Kristján alltaf verða hluti af okkar félags- skap. Félagi okkar var kvaddur alltof fljótt úr þessum heimi og hefð- um við viljað hafa sam- verustundimar mun fleiri en nú getum við einungis sameinast í sorginni og geymt í hjarta okkar góðar minningar um góðan dreng. Maður bara trúir ekki að þú sért farinn, að við eigum ekki eftir að upplifa fleiri góðar stundir saman, hefur ómað í hugum okkar undanfarna daga. Við fráfall þitt hefur verið höggvið skarð í vina- hópinn sem aldrei verður fyllt. Við vottum unnustu Kristjáns og fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð í sorg þeirra. Eg miimist þín í vorsins bláa veldi, er vonir okkar stefndu að sama marki, þær týndust ei í heimsins glaum og harki, og hugann glöddu á björtu sumarkveldi. Þín sál var öll hjá fógrum lit og h'num, og ljóðsins töfraglæsta dularheimi. Þú leiðst í burt frá lágum jarðarseimi, í ljóssins dýrð, á hugar-vængjum þínum. Eg sakna þín, ég syrgi farinn vin, í sálu þinni fann ég dýpsta hljóminn, er hóf sig yfir heimsins dægur-glys. Á horfna tímans horíi ég endurskin, ég heyri ennþá glaða, þýða róminn, frá hreinni sál með hárra vona ris. (Steinn Steinarr.) Minning þín er perla sem ávallt mun fylgja okkur. Þínir vinir að eilífu. Ari, Eiríkur, Hjalti og Sigurgeir. Ég segja vil með orðum það sem býr í brjósti mér, en þögnin er svo skerandi þú ert ei lengur hér, brunnur minn er tómur í honum ekkert er, ég segja vil með orðum það sem býr í bijósti mér. (Hjalti.) Elsku Kristján. verk fór stór hluti ævitíma hans. Á þessari stundu kveðjum við Gunnar Sveinsson og þökkum góð- um dreng fyrir samfylgdina. Fyrir hönd samstúdenta, Árni Guðjónsson, Stefanía Pétursdóttir, Jón Guðnason. Fyrir röskum mánuði hitti ég Gunnar Sveinsson í síðasta sinn. Hann bar þá líkamleg merki sjúk- dómsins sem varð honum að ald- urtila, en andinn var samur og jafn. Að vera samvistum við Gunnar Sveinsson gat verið eins og að horfa á lokaðan blómknapp og bíða eftir að hann spryngi út. Og það kom fyrir að Gunnar, þessi hlédrægi og hógværi maður, sprakk út. Fróðleikur aldanna svall honum á tungu, galdur íslenskrar ljóðlist- ar fór á kostum, annað veifið frum- saminn og þá alltaf dýrt kveðinn, glettinn og stundum grár. Það var hátíð þegar Gunnar eldi seiði sína. Til hins síðasta, meðan kraftar leyfðu og vel það, sat hann nær daglega í Þjóðarbókhlöðu og iðkaði fræði sín. Verk Gunnars líkjast manninum. Þau láta lítið yfir sér við fyrstu sýn, en hafa gull að geyma þegar dýpra er skyggnst. Það eru for- réttindi að hafa þekkt Gunnar Sveinsson, og minningin um hann er fjársjóður. Við sem erfum þennan fjársjóð, þökkum fyrir samveruna. Helgi Haraldsson, Ósló. Við erum svo þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Þjóðhátíðarnar í Eyjum, kaffi-súp- amir eins og við kölluðum það þegar við hittumst og ræddum heimsmálin á okkar einstæða máta. Síðasta stundin sem við áttum öll saman þegar við fórum út að borða með þér, Helgu og Eiríki er sem gull í minn- ingu okkar. Takk fyrir allt. Kveðja til vinar míns: Hve sárt ég hef þín saknað síðan þú kvaddir mig. Með sorg og brostið hjarta ég bið Guð að blessa þig. Það svo erfitt er að skiija og lífsins tilganginn að sjá, svo ungur þú kvaddir að Guðs vilja úr þessum heimi, okkur frá. Hvað sem yfir dynur, ég gat alltaf treyst á þig. Þú varst sannur góður vinur, ogoftþústyrktirmig. Ó hve góður var sá tími sem við áttum hér með þér. Þó hann komi ekki aftur þá býr minning í huga mér. Nú verð ég víst að kveðja vinur, en hvað er hægt að segja. I eyrum mínum óma þeir sem Guðimir elska, ungir deyja. (Hjalti.) Helga, Sigrún og fjölskylda, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð, Guð veri með ykkur. Þínir vinir að eilífu. Hjalti og Björk. FANNEY HER VARSDÓTTIR + Fanney Hervar- sdóttir fæddist í Súðavík í Álftafírði 17. júní 1931. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 17. sept- ember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akranes- kirkju 26. septem- ber. Kæra vinkona. „Ég leit eina lilju í holti hún lifði hjá steinum á mel“. Alltaf þegar við heyrum þennan söng dettur okkur vinkonum og söngsystrum í litla sönghópnum okkar hún Fanney Hervars í hug. Við höfum komið saman í nokkur ár og rifjað upp gömul og róman- tísk lög, spilað á gítar og sungið okkur til ánægju og alltaf varst þú með nýjan og góðan texta á vörun- um. Það var sama hvar við bárum niður; þú kunnir alltaf eitthvað sem við hinar hjálpuðumst svo að við að rifja upp. Sjálf áttir þú einkar gott með að setja saman texta og lög en hélst því þó sem mest fyrir þig og fjölskylduna, fannst ekki að það ætti að fara lengra. Nú er söngur- inn þinn hljóðnaður elsku vinkona og gítarinn þinn þagnaður en við geymum okkar dýr- mætu minningar um þig sem munu fylgja okkur um ókomin ár. Nú legg ég augun aftur ó, Guð, þinn náðarkraft- ur mín veri vöm í nótt. Æ virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil svo ég rofi rótt. (Þýð. Sv. E.) Við sendum innileg- ar samúðarkveðjur til aldraðrar móður, son- anna og fjölskyldna þeirra, systk- ina og annarra vandamanna. Kær vinkona er nú gengin, hjart- ans þakkir fyrir allt og allt, elsku Fanney, góður Guð geymi þig. Söngsystur. t Elskulegur eiginmaður minn, faðlr okkar, tengdafaðir og afi, ALBERT STEFÁNSSON skipstjóri, Miðgarði, Fáskrúðsfirði, andaðist á heimili sínu mánudaginn 25. sept- ember. Kveðjuathöfn fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. október kl. 15.00. Guðrún Einarsdóttir, Stefán Albertsson, Snjólaug Valdimarsdóttir, Þórhildur Albertsdóttir, Elfas Ólafsson, Margrét Albertsdóttir, Guðmundur K. Erlingsson, Kristín Björg Albertsdóttir og afabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HERMANNS ST. BJÖRGVINSSONAR, Gullsmára 9. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkr- unarfólki á deild 14e á Háskólasjúkrahúsi Landspítala við Hringbraut. Kristín Fjóla Þorbergsdóttir, Björgvin Hermannsson, Sigríður Jóhannsdóttir, Ardís Erlendsdóttir, Katrín Hermannsdóttir, Unnur Hermannsdóttir, Jón Aspar, Stella Hermansson, Sigurrós Hermannsdóttir, Olgeir S. Sverrisson. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sfmi 551 1266 www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. ■Ci Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins 5^^, með þjónustu allan sólarhringinn. % Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.