Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 57, MINNINGAR + Sigurjóna Krist- insdóttir __ var fædd á Gili í Öxnadal 28. október 1905. Hún lést í Landakots- spítala 22. september síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Kristinn Magnús- son, f. 25.12. 1856, d. 10.6. 1916, og María Sigurðardóttir, f. 26.2. 1868, d. 16.4. 1915. Hún átti sex systkini. Þau hétu Jó- hannes, Sigurður, Sigríður, Jóhanna, Margrét og Sigurrós, sem er á lífi og býr á Akureyri. Eignmaður Sigurjónu var Gunnar F. Guðmundsson, f. 12.6. Hún amma er dáin. Jóna amma okkar, eins og hún var kölluð, hefði orðið 95 ára í næsta mánuði, hefði hún lifað og það er sko eng- inn smáaldur. Enda var þraut- seigja hennar mikil og dugnaður og fyrir það minnumst við hennar. Það var alltaf gott að koma til ömmu á Skúlagötuna, þar sem hún bjó lengi ásamt Gumma syni sín- um. Þangað voru allir velkomnir, stórir sem smáir og tók hún sér- staklega vel á móti barnabörnum sínum, hvenær sem þau birtust við dyr hennar. Og þegar við vorum farin að geta farið sjálf í bæinn, var það mest spennandi að heim- sækja ömmu áður en haldið var heim aftur. Hún talaði við okkur með þeirri virðingu og eftirtekt sem ekki var algengt að viðhöfð 1912, d. 28.5. 1987, þau skildu. Þau eign- uðust fimm börn. Þau eru: 1) Björgvin Rósant, f. 3.2. 1936, d. 1.2. 1937. 2) Krist- inn Marinó, f. 23.8. 1934, d. 15.7. 1979. 3) Erla, f. 5.5. 1938. 4) Björgvin Rósant, f. 26.5. 1941, d. 10.12. 1972. 5) Guð- mundur Magni, f. 4.11. 1942. Auk þess lætur hún eftir sig myndarlegan hóp ömmubarna og lang- ömmubarna. Utför Sigurjónu fer fram í Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. væri gagnvart börnum á þeim tím- um. Alltaf lagði hún sig fram um að allir fengju eitthvað í gogginn og enginn mátti fara svangur frá henni. Hún hringsnerist í kringum mann og var áfram um að allir borðuðu sem mest. Oftar en ekki stóðum við á blístri. Amma var mjög myndarleg húsmóðir. Hún bakaði mikið og voru smákökurnar hennar alveg sérstaklega góðar. Enda var það snilld líkast að horfa á hana handleika deigið sem alltaf var jafn sprungulaust og fínt. í augum barnsins var það töfrum líkast og bragðið ógleymanlegt. Amma var Norðlendingur í húð og hár og bar hún það vel með sér í talanda og háttum. Nú þegar hún hefur skilið við erum við þess fullviss að hún er komin á æskus- lóðir sínar. Við kveðjum hana elsku ömmu okkar með hjartahlýj- um minningum með þessum orðum skáldsins: Þar sem háir hólar hálfan dalinn fylla, lék í ljósi sólar, lærði hörpu að stilla hann, sem kveða kunni kvæðin ljúfu, þýðu, skáld í muna og munni, mögur sveita-blíðu. (Hannes Hafstein.) María H. og Jón Gunnar Kristinsbörn. Við viljum með nokkrum orðum kveðja hana Jónu ömmu og þakka henni fyrir þær samverustundir sem við áttum. Þó það hafi verið langt að fara til hennar og Gumma frænda fórum við mjög oft, þar sem hún bjó á Skúlagötunni og við í Hafnarfirði. Margs er að minnast og margs er að sakna. Frá því við munum eftir okkur var alltaf eitt- hvað til hjá henni, lummur eða annað góðgæti. Okkur hefur verið sagt að á sín- um yngri árum hafi amma orðið að vinna mikið og ekki talið það eftir sér og verið eftirsóttur starfs- kraftur, vegna þess hversu dugleg og samviskusöm hún var. Amma var ævinlega hress og kát, sá alltaf björtu hliðarnar á öllu, enda þótt lífið léki ekki alltaf við hana. Þú varst alveg einstök. Við kveðjum þig svo, elsku amma. Þökkum fyrir allar ljúfu stundirn- ar og alla þá ást og umhyggju sem þú gafst okkur. Blessuð sé minning þín. Júlíana (Úlla) og Hafdís (Dísa). SIGURJÓNA KRIS TINSDÓTTIR Judit Polgar og Bologan sigruðu á minningarmót- inu um Najdorf SKAK Ruenos Aires MINNINGARMÓT UM MIGUEL NAJDORF 18.-27. sept. 2000 JUDIT Polgar og Victor Bolog- an sigruðu á minningarmótinu um Miguel Najdorf sem lauk í Argen- tínu á miðvikudag. Lokaumferðin leit út fyrir að geta orðið spennandi þar sem þau Judit Polgar og Bol- ogan voru efst og jöfn og mættust í síðustu umferð. Þau sömdu þó um jafntefli eftir 24 leiki og tryggðu sér með því efsta sætið. Þar með átti Anatoly Karpov (2.699) kost á að ná þeim að vinningum með sigri gegn einum stigalægsta kepp- andanum, Pablo Ricardi (2.488). Fyrirfram var talið að sigurinn mundi reynast Karpov auðveldur, en hann hafði hvítt í skákinni. Eftir 39. leik Karpovs, Khl, kom þessi staða upp: Eins og sjá má er Karpov peði yfir. Það var hins vegar klukkan sem setti strik í reikninginn því Karpov var fallinn á tíma og tapaði þar með skákinni. Þetta var eina tapskák Karpovs á mótinu og í stað þessa að deila efsta sætinu með Bologan og Polgar varð hann að sætta sig við fjórða sætið, þar sem Nigel Short náði að skjótast upp fyrir hann með sigri á Diego Flores í síðustu umferðinni. Lokaúrslitin á mótinu urðu þessi: 1. Judit Polgar 6‘/2 v. 2. Viktor Bologan 6V2 v. 3. Nigel D. Short 6 v. 4. Anatoly Karpov SVá v. 5. Pablo Ricardi 4V4 v. 6. Vadim Milov 4 v. 7. Rafael Leitao 4 v. 8. Facundo Pierrot 3'/2 v. 9. Gilberto Milos 3 v. 10. Diego Flores IV2 v. Skemmtikvöld Skemmtikvöld skákáhuga- manna verður haldið í kvöld, föstu- daginn 29. september kl. 20 í Hell- isheimilinu, Þönglabakka 1. Að þessu sinni verður stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson aðalgestur kvöldsins, en Hannes hefur náð frábærum árangri að undanförnu. Aðgangseyrir er kr. 500, en hann rennur óskiptur til styrktar skák- mótahaldi hér á landi. Skákáhuga- menn eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti. Haustmót, TR Haustmót Taflfélags Reykjavík- ur 2000 hefst sunnudaginn 1. októ- ber nk. kl. 14 og lýkur með hrað; skákmóti 29. október. í aðalkeppninni verða tefldar ellefu umferðir og verður keppendum raðað í flokka með hliðsjón af Eló; skákstigum og tefla allir við alla. í opna flokknum verður teflt eftir Monrad-kerfi. Lokaskráning verð- ur laugardaginn 30. september kl. 14-20. Umferðatafla: 1. sunnud. 1.10. kl. 14-18:30 2. miðv.d. 4.10. kl. 19:30-24 3. sunnud. 8.10. kl. 14-18:30 4. miðv.d. 11.10. kl. 19:30-24 5. föstud. 13.10. kl. 19:30-24 6. sunnud. 15.10. kl. 14-18:30 7. miðv.d. 18.10. kl. 19:30-24 8. föstud. 20.10. kl. 19:30-24 9. sunnud. 22.10. kl. 14-18:30 10. mánud. 23.10. kl. 19:30-24 11. miðv.d. 25.10. kl. 19.30-24.00 Tímamörk: P/2 klst. á 30 leiki + 45 mín. til að Ijúka skákinni. Verðlaun í A-flokki: 1. verðlaun 60.000 kr., 2. verðlaun 30.000 kr., 3. verðlaun 20.000 kr. Mótsgjald er 4.000 kr. fyrir 18 ára og eldri (3.000 kr. fyrir félagsmenn TR), 3.000 kr. fyrir 15-17 ára (2.000 kr. fyrir fé- lagsmenn TR) og 2.000 kr. fyrir 14 ára og yngri (1.500 kr. fyrir félags- menn TR). Tekið er við skráningum í mótið í síma TR 588 4113 og 896 3969 eða með tölvupósti (rz@itn.is). Hraðskákmót TR fer fram 29. október kl. 14:00. Verðlaunagripir fyrir efstu þrjú sætin. Haustmót TR - unglingaflokk- ur: Keppni fer fram laugardagana 7. og 14. október. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi með 30 mín. umhugsunartíma. Verðlaunagripir og verðlauna- peningar fyrir fimm efstu sætin auk bókaverðlauna. Skákmót á næstunni 29.9. Hellir. Skemmtikvöld 29.9. SA Skylduleikjamót 29.9. SÍ. Norðurl.mót grunnsk.sv. 1.10. SA. 15 mínútna mót 1.10. TR. Haustmót 7.10. TR. Haustmót, unglfl. 9.10. Hellir. Atkvöld Daði Örn Jónsson + Faðir okkar, MATTHÍAS JOCHUMSSON, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Seljahlíð þriðjudaginn 26. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudag- inn 29. september kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Blindrafélagið. Erla Schoellkopf, Þórunn Matthíasdóttir. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BÖÐVAR ARI EGGERTSSON, Selvogsgrunni 13, Reykjavík, sem andaðist þriðjudaginn 19. septemþer verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn 2. október kl. 15. Guðjón Böðvarsson, Guðríður Sveinsdóttir, Sigrún Böðvarsdóttir, Lúðvík Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, JÓHANNS KRISTJÁNSSONAR, Holtastíg 8, Bolungarvík. Evlalia Sigurgeirsdóttir, Halldóra Jóhannsdóttir, Jóhann Magnússon, Margrét Jóhannsdóttir, Bjarni L. Benediktsson, Sigurgeir G. Jóhannsson, Guðlaug Elíasdóttir, Oddný H. Jóhannsdóttir, Kristján L. Möller, Bjarni K. Jóhannsson, Anna S. Jörundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BERTHU KARLSDÓTTUR, Suðurhólum 18, Reykjavík. Markús Örn Antonsson, Steinunn Ármannsdóttir, Karl Magnússon, Vigdís A. Guðmundsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Óskar Sigurðsson, Erla Kristfn Magnúsdóttir, Halldór Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hiýhug vegna andláts og við útför elskulegs eiginmanns, föður okkar, tengdaföður og afa, BÁRÐAR GUNNARSSONAR, Lyngholti 6, Akureyri. Halldóra Guðmundsdóttir, Guðmundur Bárðarson, Steingerður Steinarsdóttir, Jóhanna Bárðardóttir, Guðni Þóroddsson og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð vegna fráfalls eiginmanns míns, HALLGRÍMS VIGFÚSSONAR, Borgarfirði eystra. Emilía L orange og fjölskylda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.