Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 70

Morgunblaðið - 29.09.2000, Síða 70
/70 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ORKUMJOLK EINböNGU NÁTTÖRULE6 NCRINGAR- 06 BITIEFNt ^ Uppistaöan í Orkumjólk er léttmjólk. Hún inniheldur ríflega dagskammt af B12-vítamtni, þriðjung af ráðlögðum dagskammti af B2- og D-vítamíni og helming af ráðlögðum dagskammti af kalki. www.ms.is FOLKIFRETTUM MYNDBOND Póstkort frá paradís Ströndin (The Beach) NETVERSLUN Á mbl.is Veður og færð á Netinu (gjmbl.is D r a m a ★ Leikstjóri: Danny Boyle. Handrit: John Hodge. Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio, Virginie Ledoyen, Guillaume Canet, Tilda Swinton. (119 mín.) Bandaríkin. Skífan, 2000. Myndin er bönnuð börnum innan 16 ára. Með blaðinu a morgun Með blaðinu á morgun fylgir 20 síðna blaðauki um Tölvur og tækni Tölvur 03 t&kni STRÖNDIN er byggð á metsölu- bók Alex Garlands sem lýsir ágæt- lega þránni að komast út úr hinu hraða samfélagi dagsins í dag og finna ósnortna para- dís. Richard (Leon- ardo DiCaprio) er ungur Bandaríkja- maður á bakpoka- ferðalagi um Taíland sem hittir vægast sagt undarlegan mann einn daginn sem kallar sig Dafíy Duck (góður Robert Carlyle). Daffy segir honum frá stað, rétt fyrir utan Taíland, þar sem aðeins fáeinar valinkunnar manneskjur búa í friði og ró með ógrynni af vímuefnum til ynd- isauka. Stuttu eftir finnst Dafíy látinn á hótelherbergi sínu en Richard fær kort þar sem paradísin er merkt inn. Hann og franskt par ákveða að leita að staðnum og finna hann loks. í upp- hafi virðist allt vera eins og í draumi en Adam var ekki lengi einn í paradís. Eftir tvær frábærar myndir (Shallow Grave og Trainspottin) gerðu þeir John Hodge og Danny Boyle Living Less Ordinaiy sem var frekar mis- heppnuð vegamynd en það gerist oft hjá bestu mönnum að myndir þeirra hitta ekki alveg í mark. Þessi mynd vekur hins vegar upp þá spurningu hvort að þeir séu algjörlega brunnir út. Það er engin persónusköpun í henni og Boyle er svo upptekin af glæsilegri náttúru landsins að hann gleymir alveg að gæða söguna lífi með einhverri dramatík. DiCaprio er lélegur í hlutverki Richards og letju- leg 1. persónu frásögn hans hræði- lega illa unnin. Bók Garlands átti miklu betra skilið en þetta skrípi. Öttó Geir Borg NYR ÍÞRÓTTASALUR Laugardaginn 30. september kl. 14:00 mun Hafnarfjarðarbær afhenda Knattspyrnufélaginu Haukum nýjan og glæsilegan íþróttasal í íþróttahúsinu áÁsvöilum. Lúðrasveit Hafnarfjarðar spilar Bæjarstjórnin keppir við fulltrúa yngri kynslóðarinnar í knattspyrnu Séra Einar Eyjólfsson blessar íþróttahúsið íþróttaálfurinn mætir á svæðið Hafnarfjarðarbær og Haukar bjóða til dagskrárinnar í opnu húsi áÁsvöllum. ImW Boðið er upp á hressingu tfUih' oelkðMtoifo! Ristir ekki djúpt Stúlka, trufluð (Girl, Interrupted) Drama ★% Leikstjóri: James Mangold. Hand- rit: Mangold, Lisa Loomer og Anna Hamilton Phelan. Byggt á bók Susönnu Kaysen. Aðalhlutverk: Winona Ryder, Angeiina Jolie, Whoopi Goldberg og Vanessa Redgrave. (127 mín) Bandaríkin, 1999. Skffan. Bönnuð innan 16 ára. YFIRBORÐSKENND hinnar stöðluðu Hollywood-framleiðslu sést hvergi betur en í myndum á borð við wmmmmmmmmmmmm þá sem hél' um ræðir. Hún er byggð á sjálfsævi- sögulegri bók eftir Susanne Kaysen, sem lýsir dvöl sinni á geðsjúkrahúsi sem ung kona á sjöunda áratugi aldarinnar. Kvik- myndahandritið sem smíðað er upp úr bókinni virðist hins vegar grunsamlega langt frá því að lýsa einhverri reynslusögu úr veruleikanum. Vistmennirnir sem Susanne kynnist á geðsjúkrahúsinu eru kunnuglegar staðaltýpur og at- burðarásin er vandlega uppbyggð samkvæmt lögmálum kvikmynda- handrita. Þá virðast engin eiginleg geðræn vandamál hrjá vistmenn, þeir virðast alltaf kunna réttu svörin og skilja allt best, eins og kemur fram í dramatískri uppgjörssenu undir lok myndarinnar. Sálræn vandamál aðalpersónunnar komast mjög illa til skila, og einu merki geð- truflunar sem hún sýnir koma fram í atriði þar sem hún rakar á sér fótleggina án þess að nokkurt ein- asta hár sé þar fyrir. Umbyltinga- tímar sjöunda áratugarins eiga að virka eins og leiðarstef í myndinni og vísa til samfélags sem reynir að bæla frumlegt og gagnrýnið fólk með því að loka það inni á stofnunum. Þessi þáttur sögunnar hefði getað orðið áhugaverður, en er unnin með of miklu hálfkáki til að virka almenni- lega. Winona Ryder sýnir mjög þroskaðan leik í hlutverki aðalpers- ónunnar en frammistaða Angelinu Jolie er hins vegar ljóslega ofmetin. Þessi kvikmynd er fyrst og fremst áferðarfalleg og vel unnin tæknilega en ristir grunnt. Heiða Jóhannsdóttir SUSHI á föstudögum Tilbúnir bakkar með blönduðum fisk og hrísgrjónarúllum ÉK náttúrulega! Æilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.