Morgunblaðið - 15.10.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 2000 E 13
REYKJANESBÆR
SíM 1 42 I 6700
Nýr leikskóli
Hjallatún við Vallarbraut
Leikskóli er lifandi og skemmtilegur vinnustaður sem býður upp á fjölbreytt starf
með fólki á öllum aldri. Áætlað er að leikskólinn Hjallatún taki til starfa í desem-
ber nk. Hefur þú áhuga á að vera með frá byrjun og taka þátt í að skapa starfs-
* anda og vinnubrögð í nýjum leikskóla? Þá er þetta tækifærið fyrir þig.
Auglýst er eftir:
• Aðstodarleikskólastjóra.
• Leikskólakennurum með deildarstjórn.
• Leikskólakennurum.
• Leikskólakennara, þroskaþjálfa eða starfsmanni með aðra uppeldis-
menntun vegna sérkennslu.
• Matráði og aðstoðarmanni í eldhús.
Æskilegt er að aðstoðarleikskólastjóri geti hafið störf 15. nóvember nk. en eigi
síðar en 1. desember. Ráðið verður í aðrar stöður um miðjan desember.
Heimilt er að greiða leikskólakennurum með full réttindi, sem ráða sig í
100% stöðu við leikskóla Reykjanesbæjar og flytjast þangað búferlum,
fiutningsstyrk kr. 300.000.
Skilyrði er að leikskólakennarar geri samning til minnst 2ja ára.
Upplýsingar veitir Gerður Pétursdóttir leikskólastjóri og Guðríður Helgadóttir
leikskólafulltrúi í síma 421 6700.
Umsóknarfrestur er til og með 27. október nk. Umsóknir berist Skólaskrifstofu
Reykjanesbæjar, Hafnargötu 57, 230 Keflavík, Reykjanesbæ.
Vakin er athygli á því að fáist ekki leikskólakennarar, verða ráðnir starfsmenn með aðra uppeldismenntun eða starfsmenn með
brennandi áhuga á barna- og leikskólauppeldi í stöður leikskólakennara. Launakjör skv. kjarasamningi Félags íslenskra leikskóla-
kennara eða viðkomandi stéttarfélags.
Starfsmannastjóri.
s_______________________________________________________________________-
Sölu- og markaðsstjóri
ferðaþjónustu
Sölu- og markaðsstjóri hefur umsjón með sölu- og markaðsmálum
fyrir baðstaðinn við Bláa lónið á innlendum og erlendum markaði
jafnframt því að hafa umsjón með auglýsinga- og kynningarmálum,
vöruþróun, verkefnastjórnun og er hann auk þess virkur þátttakandi í
stefnumótun og markmiðasetningu.
Víð leitum að drífandi, metnaðarfullum og áhugasömum markaðs-
manni, sem er tilbúinn að taka þátt í ört vaxandi starfsemi á sviði
heilsutengdrarferðaþjónustu. Viðkomandi þarf að hafa menntun á sviði
markaðsmála og/eða marktæka reynslu af sambærilegu. Starfsreynsla
og þekking á sviðiferðamála eráhugaverðurkostur.
Áhersla er lögð á fagmennsku, frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum
og góða samstarfshæfileika. Enskukunnátta er nauðsynleg sem og
kunnátta í einu Norðurlandamáli. Þýsku- og/eða frönskukunnátta er
kostur.
Bláa lónið hf. er traust, metnaðarfullt og ört vaxandi fyrirtæki, sem
gegnirforystu á sínu sviði hérlendis.
Umsóknarfrestur ertil og með 23. október n.k. Gengið verðurfrá
ráðningu fljótlega. Allar umsóknir verða meðhcndlaðar sem
trúnaðarmál.
Guðný Harðardóttir og Jóna Vigdís Kristinsdóttir veita nánari
upplýsingar, en viðtalstímar eru frá kl. 10-13. Umsóknareyðublöð eru
fyrirliggjandi á skrifstofunni, sem er opin frá kl.l 0-16. Einnig er hægt að
nálgastumsóknareyðublöðá heimasíðu www.stra.ls
Með starf
fyrir þig
STRA|||eM. M*l
WORLDWIDE
Mörklnnl 3-108 Rnykjavlk - afml 588 3031 - brófsfmi 588 3044
Q GRUNNSKÓLAR SELTJARNARNESS
Lausar stöður við Valhúsaskóla
é Seltjarnarnesi
í Valhúsaskóla er 7.-10. bekkur með 290 nemendur.
Skólastjóri Sigfús Grétarsson, vs. 595-9250, netfang:
sigfus@ismennt.is
Staða sérkennara eða kennara til að starfa með
fötluðum nemanda í skóianum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af kennslu
mikið fatlaðra nemenda., Laun eru greidd sam-
kvæmt kjarasamningum K( og HÍK við Launanefnd
sveitarfélaga.
2 stöður stuðningsfuiltrúa í hlutastörf til að starfa
með sama nemanda.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu og
áhuga á ao vinna með fötluðum nemendum og
æskííegt er að þeir hafi uppeldisfræðilega menntun
t.d. menntun í uppeldisfræði eða sálfræði.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Starfs-
mannaféíags Seltjarnarness við Launanefnd
sveitarfélaga.
Umsóknir berist til skólastjóra sem veitir allar nánari
upplýsingar um stöðurnar.
I Umsóknarfrestur er
| til 27. október 2000.
1
1 Grunnskólafulltrúi
Seltjarnarnesbær
Lyfjatæknir
Lyfja Setbergi, Hafnarfirði, óskar að ráða Lyfjatækni
í hlutastarf, starfssvið lyfjaskömmtun.
Afgreiðslumaður
Starfsmann í afgreiðslu, starfssvið alm. afgreiðsla.
Reynsla úr apóteki æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Árni Vésteinsson í
síma: 555 2306
Þegar fyrsta Lyfju verslunin var opnuð í Lágmúla
árið 1996 olli það straumhvörfum á lyfja-
markaðnum. Lyfja er brautryðjandi í lækkun
lyfjaverðs en lyf á lágmarksverði hafa verið
einkunnarorð fyrirtækisins frá upphafi. j Lyfju
hefur verið bryddað uppá ýmsum nýjungum í
faglegri þjónustu. Heilsuvefur Lyfju á Vísi.is var
settur á laggirnar s.l. nóvember. Á heilsuvefnum fá
neytendur beinan aðgang að Lyfjubókinni og geta
einnig lagt inn spurningar til lyfjafræðings um
hvaðeina er tengist lyfjum og lyfjameðferð.
Cb LYFJ A
- Lyf á lágmarksveröi
SAMKEPPNISSTOFNUN
Laus staða
Samkeppnisstofnun óskar eftir aö ráða fulltrúa
til starfa m.a. við verðkannanir og eftirlit með
verðmerkingum. Æskilegt er að umsækjandi
hafi verslunarpróf eða sambærilega menntun
og starfsreynslu. Umsækjandi þarf að hafa bíl-
próf. Laun eru samkvæmt launakerfi Starfs-
mannafélags ríkisstofnana.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Samkeppnis-
stofnun, Rauðarárstíg 10, pósthólf 5120,125
Reykjavík, fyrir 26. október nk.
Upplýsingar um starfið eru veittar í síma
552 7422 frá kl. 10 til 12 og kl. 14 til 16.
Sam keppn isstof n u n.