Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913
262. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR14. NÓVEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Stiórnvöld á Flórída hyggjast stöðva talningu í einstökum sýslum í kvöld
Baráttan færist inn
á valdsvið dómstóla
Reuters
A1 Gore, forsetaframbjóðandi demókrata, ræðir við fjölmiðla í gær.
Chicago, Tallahassee. AP, AFP. Reuters.
KRÖFU repúblikana um að hand-
talning í nokkrum sýslum í Flórída-
ríki verði stöðvuð var hafnað í alríkis-
dómstóli Flórída í gær. Dómarinn
Donald Middlebrooks féllst á kröfu
demókrata um að málið heyrði ekki
undir alríkisdómstóla. Líklegt þykir
að repúblikanar áfrýi úrskurðinum.
Lögfræðingar George W. Bush
höfðu krafist þess að fallið yrði frá
handtalningu. Middlebrooks sagði að
þrátt fyrir að þær fullyrðingar
repúblikana að handtalning í nokkr-
um sýslum mismunaði kjósendum
íyrir lögum væru um margt réttar
þættu sér það þó ekki nægileg rök til
að stöðva handtalningu.
Skömmu áður en Middlebrooks úr-
skurðaði í íyrsta en ekki síðasta
dómsmáli tengdu bandarísku forseta-
kosningunum kvað innanríkisráð-
herra Flórídaríkis, sem er æðsti emb-
ættismaður ríkisins, Kathrene
Harris, upp þann úrskurð að sam-
kvæmt lögum Flórídaríkis yrðu sýsl-
ur ríkisins að vera búnar að skila sín-
um niðurstöðum viku eftir kosningar.
Höfðuðu demókratar í gærkvöldi mál
til að reyna að fá þeirri ákvörðun
hnekkt af dómara.
Demókratar segja
Harris hlutdræga
í skriflegri yfirlýsingu sem Harris
sendi frá sér í gær kemur fram að
frestur sýslnanna renni út klukkan
fimm í dag að staðartíma, klukkan tíu
í kvöld að íslenskum tíma. Yfii-lýsing
Harris kemur í kjölfar beiðni emb-
ættismanna Volusia-sýslu um lengri
frest til að ljúka talningu og höfðu
fleiri sýslur haft hug á svipuðum að-
gerðum.
Kjörmenn Flórída, sem eru 25 tals-
ins, munu ráða úrslitum í forseta-
kosningunum en úrslit eru heldur
ekki ráðin í Nýju-Mexíkó, þar sem
mjög mjótt er á munum og 370 utan-
kjöretaðaratkvæði ótalin, og í Oreg-
on. Gore hefur tryggt sér 255 kjör-
menn og Bush 246 fyrir utan þessi
ríki.
Warren Christopher, fyrrverandi
utanríkisráðherra, sem fer fyrir lög-
fræðingum Als Gores, gagnrýndi
ákvörðunina harðlega og sagði Harris
hlutdræga vegna pólitískra skoðana
sinna og tengsla við Jeb Bush, bróður
GeorgeW. Bush.
A1 Gore sagði í samtali við frétta-
menn að hann vildi ekki vinna forseta-
embættið með nokkurra atkvæða
mun sem hefðu verið „greidd vegna
misskilnings eða mistúlkuð". Hann
hvatti landa sína til að sýna þolin-
mæði þar til hvert atkvæði hefði verið
talið og talið rétt. Því hefðu demó-
kratar talið nauðsynlegt að fara með
málið fyrir dómstóla til að koma í veg
fyrir að handtalning yrði stöðvuð.
Samkvæmt skoðanakönnun CNN/
USA Today og Gallup, sem birt var í
gær, er mikill meirihluti Bandaríkja-
manna tilbúinn til að samþykkja
hvorn keppinautinn sem er á forseta-
stól, Bush eða Gore. Könnunin sem
var gerð um helgina sýnir að um
helmingur Bandaríkjamanna h'tur á
enduitalninguna sem alvarlegt
vandamál. Eingöngu 15% hta þó svo á
að um stjómlagakreppu sé að ræða.
Bandaríkjamenn ósáttir
við umQöllun fjölniiðla
Um helmingur aðspurðra er sáttur
við hvemig fulltrúar flokkanna hafa
haldið á málum. Rúmur helmingur er
hins vegar óánægður með umfjöllun
fjölmiðla. Stjórnmálaskýrendur eru á
því að þrátt fyrir að almenningur
virðist nokkuð þolinmóður nú geti það
breyst dragist mál á langinn. Stjóm-
málaskýrendur benda einnig á að ver-
ið geti að ímynd Bandaríkjanna sem
homsteins lýðræðis í heiminum hafi
beðið varanlegan hnekki. Fréttastjóri
á dagblaði í Kenýa segir t.d. að í aug-
um Afríku hafi þeir tapað sem séu
baráttumenn lýðræðis og telji Banda-
ríkin fyrirmyndarríki. Sigurvegar-
arnir séu aftur á móti harðstjórar á
borð við forseta Zimbabwe, Robert
Mugabe, sem hafi þegar lýst yfir
ánægju sinni með þróunina í Flórída.
■ Barist um Hvíta húsið/26
Loftslagsráðstefna SÞ
Deilt á
fyrsta
degi
Haag. Reuters, AP, AFP.
STRAX á fyrsta degi tveggja vikna
framhaldsráðstefnu aðildarríkja
loftslagssáttmála SÞ í Haag í Hol-
landi kom upp ágreiningur milh full-
trúa Evrópulanda og Bandaríkjanna
um það hvemig staðið skuh að því að
hamla gegn gróðurhúsaáhrifunum
svokölluðu. Fyrir ráðstefnulok í
næstu viku er stefnt að því að búið
verði að ná samkomulagi um fram-
kvæmd Kyoto-bókunarinnar frá
1997, en í henni var kveðið á um
skuldbindingar iðnríkja heims um að
draga með markvissum hætti úr los-
un gróðurhúsalofttegunda.
Um 10.000 ráðstefnugestir em
samankomnir og munu ræða ófagrar
spár um hækkandi sjávarborð og vax-
andi tíðni skaðræðisfellibylja sem
gætu máð út byggð á smáeyjum og í
strandhéruðum víða um heim, ef iðn-
ríkjunum tekst ekki að grípa til
árangursríkra aðgerða.
Fulltrúar ESB lýstu því yfir í gær,
að þeir vildu að iðnríki heims breyttu
skipulagi samgöngu- og orkumála hjá
sér þannig, að þeim tækist að standa
við að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda. Fulltrúar Bandaríkjanna
krefjast hins vegar hámarkssveigjan-
leika til að stunda viðskipti með los-
unarkvóta, svo að unnt sé að kaupa
slíkan kvóta af löndum sem ekki
þurfa á honum að halda.
Náist ekki málamiðlun renna út í
sandinn vonir um að Kyoto-bókunin
komist til framkvæmda, en sam-
kvæmt henni er stefnt að því að á
tímabilinu 2008-2012 verði iðnríkin
búin að sjá til þess að losun gróður-
húsalofttegunda í heiminum verði
orðin að minnsta kosti 5% minni en
var á árinu 1990.
■ Úrslitatilraun/28
Fjórir Israel-
ar falla í
skotárásum
Lestarslysið í
Austurríki
Ýfir60
lík fundin
Kaprun. AP, The Daily Telegraph.
RANNSÓKNARMENN í Austur-
ríki reyndu í gær að bera kennsl á
líkamsleifar skíðafólks sem fórst í
eldsvoða í toglest við fjallið Kitz-
steinhorn á laugardag. Vitað er með
vissu að 159 fórust en talið líklegt að
þeir séu um 170. Aðstæður þeirra
sem vinna við að ná í líkin eru afar
erfiðar.
Líkin sem þegar hafa fundist eru
um 60, eru mörg þeirra svo illa
brennd að ekki er hægt að greina
andlitsdrætti. Notuð voru lífsýni úr
persónulegum munum til að bera
saman við DNA-erfðaefni úr líkun-
um. Talið er að hitinn hafi farið yfir
1.000 stig á celsius sem dugði til að
bræða plötur og annað efni í lestar-
vagninum. Upplýst hefur verið að
ekki hafi verið slökkvitæki um borð í
lestinni þar sem engin hætta hafi
verið talin á eldsvoða.
■ Engin slökkvitæki/25
Jerúsalem. AP, AFP.
SKOTIÐ var úr launsátri að ísra-
elskum bilum á Vesturbakkanum og
Gaza í gær. Þrír létust í skothríðinni
á Vesturbakkanum og einn á Gaza-
svæðinu og nokkrir særðust. Ehud
Barak, forsætisráðherra Israels, for-
dæmdi árásirnar. Tilkynnti ísraelski
herinn í gær að hann hefði einangrað
alla bæi á hemumdu svæðunum í
kjölfar árásarinnar.
Mjög óvenjulegt er að Palestínu-
menn skjóti á ísraela í dagsbirtu.
Vegna þessa þykir flest benda til að
árásirnar hafi verið mjög vel skipu-
lagðar. Heldur hefur dregið úr
árásum palestínskra hópa á ísr-
aelska herinn undanfarið en árásim-
ar em skæðari en fyrr.
Tveir palestínskir unglingar létust
í átökum við ísraelska herinn. Alls
hafa því rúmlega 200 manns látist í
átökum ísraela og Palestínumanna
sem staðið hafa á sjöundu viku.
Talsmaður ísraelska hersins,
Moshe Fogel, sagði í gær að herinn
myndi bregðast við árásum Palest-
ínumanna af meiri hörku en áður í
lqölfar skotárása Palestínumanna
undanfarið á hersveitir og borgara.
Fogel sagði ekki lengur hægt að tala
um aðgerðir Palestínumanna sem
uppreisn heldur líktust þær meira
hernaði og því þyrfti að endurskoða
þær reglur hersins sem kveða á um
viðbrögð hersins. Nú er hermönnum
bannað að skjóta nema á þá sé skot-
ið.
Barak átti fund með Bill Clinton,
AP
Israelskir hermenn særðust í árás palestínskra Ieyniskyttna í dag.
forseta Bandaríkjanna, í Washing-
ton á sunnudagskvöldið. Haft var
eftir ísraelskum embættismanni að
Clinton hefði krafist þess af Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna, að
verulega yrði dregið úr ofbeldinu á
hemumdu svæðunum.
leitunum á milli ísraela og Palestínu-
manna eftir að eiginmaður hennai-
var myrtur og sögðu ísraelsk stjórn-
völd að Yasser Arafat, leiðtoga Pal-
estínumanna, væri velkomið að vera
viðstaddur útförina.
Leah Rabin látin
Leah Rabin, eiginkona Yitzhak
Rabin, fyrrverandi forsætisráðherra
ísraels, lést af völdum krabbameins
á sunnudag. Leah Rabin, sem var 72
ára, tók mjög virkan þátt í friðarum-
MORGUNBLAÐIO 14. NÓVEMBER 2000