Morgunblaðið - 14.11.2000, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Guðmundur Öm
Keldusvininu var sleppt eftir skamma viðdvöl á heimili skólastjörans.
Keldusvíninu sleppt
á Kópaskeri
Forstjóri Símans
Ekki til-
efni til
lækkunar
gjaldskrár
FORSTJÓRI Landssímans tel-
ur ekki tilefni til þess fyrir Sím-
ann að lækka gjaldskrá í kjölfar
þess að Íslandssími er farinn að
bjóða almenna símþjónustu.
Telur Þórarinn V. Þórarinsson
að Síminn sé vel samkeppnis-
fær, þegar litið er á bæði verð og
gæði.
Íslandssími hyggst bjóða
heimilum síma- og netþjónustu
og segja forsvarsmenn fyrir-
tækisins að fyrir þjónustuna
greiði fólk lægra gjald en
Landssíminn innheimtir. Nefna
þeir 7-11% lækkun almennra
heimilissímtala.
Gjaldskráin stöðugt
í endurskoðun
Þórarinn V. Þórarinsson, for-
stjóri Landssímans, segir að
ekki sé að vænta sérstakra við-
bragða þjá Símanum vegna
samkeppninnar frá Íslandssíma.
Til þess séu engin efni vegna
þess að Síminn bjóði betur en
aðrir í almennri símþjónustu
þegar tekið sé tillit til verðs og
þjónustu. Getur hann þess að í
afnotagjaldi símans sé ákveðin
notkun innifalin auk þess sem
afsláttarleiðir séu í boði.
Þórarinn segir hins vegar að
gjaldskrá Símans sé stöðugt í
endurskoðun og hugsanlegt að
fljótlega verði sagt frá breyting-
um á henni.
KRISTINN Haukur Skarphéðinsson
líffræðingur segir að ekkert bendi
til þessað keldusvín verpi hér á
landi. Ástæðan sé ekki síst sú að það
séu svo fáir fuglar sem þvælist til Is-
lands. Þau sjáist hins vegar hér á
landi á hveiju ári. Keldusvín, sem
sjáist hér á landi, séu skráð og á síð-
ustu árum hafi þau verið innan við
10 flest árin. Þess sé því tæplega að
vænta að fleiri en örfáir tugir keldu-
svína komi hingað árlega.
Eins og kom fram í Morgunblað-
inu fyrir helgi fann Pétur Þorsteins-
son, skólastjóri á Kópaskeri, keldu-
svm undir rúmi Iijá sér fyrir
skömmu en kötturinn hans hafði
borið það inn. Pétur náði fuglinum
áður en hann skaðaðist og sleppti
honum daginn eftir. Keldusvfn er
meðal fágætustu fugla á Islandi og
svo skemmtilega vildi til að Pétur
hafði lengi haft áhuga á að sjá slíkan
fugl og hafði raunar lagt talsvert á
sig til að sjá hann. Kristinn Haukur
sagði að þess væru nokkur dæmi að
kettir hefðu drepið keldusvín. Sem
betur fer hefði það ekki orðið niður-
staðan í þessu tilviki. Hann sagði að
besti túninn til að sjá keldusvín væri
á haustin þegar fuglar væru á ferð-
inni og lentu þá stundum í vind-
strengjum sem bæru þá af leið.
Hann taldi ágætar líkur á að keldu-
svfnið á Kópaskeri lifði veturinn af
þrátt fyrir að hafa lent á Islandi fyr-
ir slysni.
Kristinn Haukur sagði að það
væri ekki óalgengt að sjá keldusvín í
nágrenni Reykjavíkur, t.d. í Vatns-
mýrinni.
Hann sagði að það væri hins vegar
ekki rétt að til væri fslenskt afbrigði
af keldusvúú en kenning um það hef-
ur ratað í fúglabækur. Sá litamunur
sem þar væri lýst ætti við um unga
fugla og að öllum likindum væri
keldusvínið á Kópaskeri ungur fugl.
Sjómennirnir sem slösuðust á föstudagskvöld
Sjúkraflugið tafðist um
þrjár klukkustundir
TAFIR í sjúkraflugi frá Egilsstöð-
um urðu til þess að sjómennimir
tveir sem slösuðust um borð í togar-
anum Hrafni Sveinbjarnarsyni GK
255 á föstudaginn þurftu að bíða
sjúkraflugs í rúmlega þrjár klukku-
stundir. Tilboð í ríkisstyrkt sjúkra-
flug voru opnuð í október en enn hef-
ur ekki verið gengið til samninga við
flugfélögin. Að Vestfjörðum frátöld-
um eru því engir samningar í gildi
um sjúkraflug í landinu.
Jón Grétar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri flugfélagsins Jórvik-
ur, segir að beiðni um sjúkraflug hafí
komið frá Neyðarlínunni rúmlega 2
aðfaranótt laugardags. Jón segir að
flugfélagið hafí ekki haft hentuga vél
til flugsins þar sem Piper Navaho-
vél félagsins getur aðeins tekið einar
sjúkrabörur. Þegar Neyðarlínan
tjáði honum nokkru síðar að engir
aðrir gætu flogið til Egilsstaða hafi
hann fallist á að flugfélagið tæki að
sér sjúkraflugið. . Flugvél félagsins
lenti á flugvellinum á Egilsstöðun*
um kl. 5 um morguninn. Um þremur
klukkustundum síðar var komið með
sjómennina tvo að vélinni. Varð að
koma öðrum sjúklingnum fyrir í einu
sæta vélarinnar. Þegar ræsa átti
flugvélina tókst flugmönnunum hins
vegar ekki að koma öðrum hreyfli
hennar í gang. Sjómönnunum tveim-
ur var því ekið á sjúkrahúsið á Egils-
stöðum.
Þegar ljóst var að flugvélin gæti
ekki tekið á loft var Twin-Otter flug-
vél Flugfélags íslands fengin í stað-
inn. Vélin er staðsett á Akureyri en
var stödd í Reykjavík, að loknu öðru
sjúkraflugi. Hún kom með sjúkling-
ana til Reykjavíkur upp úr hádegi.
Þá voru liðnir um 13 klukkutímar frá
því mennirnir slösuðust.
Elna Katrín Jónsdóttir um verkfallið
Snýst um
hvort kennar-
ar snúi aftur
SAMNINGANEFNDIR framhalds-
skólakennara og ríkisins áttu um
þriggja klukkustunda langan samn-
ingafund hjá ríkissáttasemjara í
gær. Elna Katrín Jónsdóttir, for-
maður Félags framhaldsskólakenn-
ara, sagði fundinn hafa verið tíðinda-
lausan og ekkert þokaðist í
samningsátt.
„Sífellt fleirum er að verða ljóst að
framhaldsskólakennarar ætla ekki
að una þessum kjörum lengur og
gildir það ekki einungis um þessa
kjaradeilu heldur hvort fólk snýr aft-
ur til starfa,“ sagði Elna Katrín sem
sagði mikla hreyfingu og óróa hafa
verið í röðum kennara allt frá því í
vor og því væri ekki að neita að í
kjölfar verkfallsins bærust fréttir af
kennurum sem væru að leita fyrir
sér á öðrum starfsvettvangi. „Með
hverjum deginum sem líður eykst
hættan á því að það fólk sem skólam-
ir þurfa helst á að halda að sé kyrrt -
fari að hugsa sér til hreyfings út úr
starfinu. Þetta er bylgjuhreyfing
sem verður til af þessum neikvæðu
aðstæðum sem kennarar búa við.“
Nýr fundur er boðaður í kjara-
deilu ríkisins og framhaldsskóla-
kennara í dag kl. 14:00.
Skorað á samninganefndir að
hraða samningavinnu
Skólameistarfélag íslands sendi
frá sér ályktun í gær þar sem skorað
er á samninganefnd ríkisins og
Kennarasambands íslands að
„hraða allri samningavinnu nú eins
mikið og kostur er.“ Félagið telur
langvarandi verkfall valda óbætan-
legu tjóni í starfi framhaldsskólanna
og það sé „algjörlega óviðunnandi að
starf framhaldsskólanna skuli sífellt
markað löngum og harðvítugum
verkföllum."
Á kennarafundi í Austurbæjar-
skóla var lýst yfir „fullum og óskor-
uðum stuðningi við kjarakröfur
framhaldsskólakennara og þær að-
gerðir sem þeir hafa gripið til.“
Fundurinn skorar á ríkisvaldið að
ganga til „raunverulegra samninga-
viðræðna við framhaldsskólakenn-
ara um að leiðrétta laun þeirra."
Jafnframt eru aðrir grunnskóla-
kennarar hvattir til að styðja kjara-
baráttu framhaldsskólakennara.
Morgunblaðið/Elín Una
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á íþrúttavellinum í Ólafsvík rétt fyrir
hádegið í gær og flutti hinn slasaða til Reykjavíkur.
Þyrla sótti slasaðan
sjómann til
Ólafsvík. Morgunblaöið.
RÚMLEGA þrítugur maður fékk
fiskiker í höfuðið þegar verið var að
landa upp úr lest á báti í Ólafsvíkur-
höfn um klukkan 10.30 í gærmorgun.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send
eftir hinum slasaða til Ólafsvíkur.
Olafsvíkur
Þyrlan flutti manninn á slysadeild
Landspítalans - háskólasjúkrahúss í
Fossvogi í Reykjavík til frekari að-
hlynningar. Kom í Ijós að hann hafði
hlotið minniháttar höfuðáverka en
var talsvert illa brotinn á handlegg.
Þjónusta númereitt!
Nvryi&r &iH~ f noív?u/Yi hflum!
Til sölu MMC Pajero 2800
turbo diesel, nýskráður 4.
2.1997, ekinn 104.000 km,
5 gíra.
Ásettverð 2.090.000.
Nánari uppl. hjá Bílaþingi
Heklu, sími 569 5500
Opnunartímar: Mánud. - föstud. kl. 10-18
laugardagar kl. 10-14
BÍLAÞINGÉEKLU
Laugavegi 174, 105 Reykjavfk, sfmi 569 5500
www.bilathinq.is * www.bilathing.is • www.bilathing.is
Viðbrögð við hjarta-
stoppi rannsökuð
VERIÐ er að kanna hvort merki hafi
ekki borist frá hjartarafsjá sem
tengd var sjúklingi á bráðamóttöku
Landspítala - háskólasjúkrahúss
þegar hann varð fyrir hjartastoppi
með þeim afleiðingum að starfsmenn
hafi ekki brugðist við því á eins
skjótan hátt og unnt er. Jóhannes M.
Gunnarsson lækningaforstjóri segir
að við rækilega skoðun á tækjunum
hafi engin bilun fundist og ekki sé
Ijóst hvort merki barst frá tækinu
eða ekki.
Lækningaforstjórinn segir ekkert
benda til þess að dráttur hafi orðið á
því að sjúklingnum var sinnt.
„Starfsfólkið á vakt var að hefja
stofugang að morgni og herbergi þar
sem sjúklingurinn lá var á móti vakt-
Kannað hvort
merki hafi borist
frá hjartarafsjá
herberginu. Við höfum enga aðra
skýringu en þá að hjartastoppið hafi
orðið á sömu stundu og starfsfólkið
var að ganga yfir ganginn," segir Jó-
hannes. Hann segir að skoðaðar hafi
verið klukkur á hjartarafsjánni, á
hjartastuðtækinu, á vegg í bráða-
móttökunni og í herberginu þar sem
endurlífgun sjúklingsins fór fram
svo og klukkur starfsmanna en eng-
ar þeirra séu samhæfðar. Megi því
hugsanlega ætla að einhverjir hafi
talið að nokkrar mínútur hafi liðið
frá því hjarta sjúklings hættir að slá
og þar til honum var sinnt vegna
mismunandi tímaskráningar eftir
mismunandi klukkum. Talið hefði
verið að seinkunin hefði verið fjórar
og hálf mínúta en það sé minni tínu
en mesti munurinn á umræddum
klukkum.
Endurlífgun sjúklingsins tókst en
lækningaforstjórinn vildi ekki tjá sig
nánar um hann, sagði að hjartastopp
væri alltaf alvarlegt. Hann taldi að
hér hefði orðrómur frá spítalanum
hleypt af stað sögu sem ekki ætti við
rök að styðjast samkvæmt þeirri at-
hugun sem fram hefði farið.
Jóhannes segir skýrslu um málið á
lokastigi og verður það kynnt land-
lækni þegar hún liggur fyrir.