Morgunblaðið - 14.11.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 25
ERLENT
Byrjað að ná í lík fórnarlamba lestarbrunans í Austurríki
Engin slökkvitæki
voru í lestinni
Kaprun í Austurríki. AP, AFP, The Daily Telegraph, Reuters.
ÞJÓÐARSORG ríkti í Austurríki á
laugardag og sunnudag vegna slyss-
ins í toglestinni sem flutti skíðafólk
áleiðis að Kitzsteinhorn-fjalli. Vitað
er að minnst 159 manns fórust,
margir þeirra ungt fólk en 18 tókst
að komast út þegar eldur kom upp í
lestarvagninum þegar hann var um
600 metra inni í jarðgöngum. Enn er
ekki vitað með vissu hve margir voru
um borð en talið að þeir hafi verið
um 180. Ekki voru nein slökkvitæki
um borð í vagninum, að sögn Reut-
ers, vegna þess að menn töldu hætt-
una á eldsvoða enga. Embættismenn
fullyrða að vagninn hafi verið gerður
úr málmi og eldþolnum efnum.
Franskir ráðamenn hafa þegar fyr-
irskipað að öryggismál í toglestum
þar í landi verði könnuð vandlega.
Ekki er heldur Ijóst hvað olli slys-
inu í Austmríki en sjónarvottar
segja að þeir hafí séð eld inni í vagn-
inum áður en hann fór inn göngin.
Getgátur eru settar fram um að
kviknað hafi í feiti og olíu á teinum,
einnig að glóð hafi myndast í raf-
magnsvírum og síðan hafi eldurinn
komist í fatnað og annan búnað
ferðafólksins.
Auk þeirra sem voru í umræddum
vagni fórust þrír sem biðu í skýli við
efri munna ganganna og ökumaður
annars vagns sem var á leið niður og
var nýkominn inn í göngin. Ekki er
talið að fleiri hafi verið í vagninum
sem var á niðurleið. Lestirnar geta
mæst með því að nota hliðarspor í
útskoti um miðbik ganganna.
Lestarvagninn rennur á teinum
en er ekki með sjálfstæðan vélar-
búnað. Hann er dreginn upp teinana
með öflugum stálköplum um þriggja
kílómetra leið sem liggur að mestu
leyti um brött jarðgöng. Menn óttuð-
ust fýrst eftir slysið að vagninn gæti
steypst niður göngin og því var ekki
þorandi að láta hjálparlið fara inn
um neðri munna ganganna. Eitraður
reykur olli því að engin leið var að
komast að vagninum meðan eldurinn
geisaði fyrstu klukkustundirnar og
var það ekki fyrr en á sunnudag að
hægt var að fara inn í göngin.
Hjálparmenn náðu í gær um 60
líkum út úr brakinu og voru þau flutt
til Salzburg til að hægt væri að bera
á þau kennsl. Er talið að tekið geti
nokkrar vikur að bera kennsl á lík-
amsleifar sumra sem fórust í slysinu.
Embættismenn sögðu að með nokk-
urri vissu væri hægt að fullyrða að
92 Austurríkismenn, 37 Þjóðverjar,
10 Japanar, átta Bandaríkjamenn,
fjórir Slóvenar, tveir Hollendingar,
einn Tékki og einn Breti hefðu far-
ist. Lestarvagninn gat tekið 180
manns og talið er að hann hafi verið
fullur.
Eldurinn var svo mikill að stór
hluti af lestarvagninum bráðnaði. Ál-
ið í gólfi og þrepum vagnsins hitnaði
svo mikið að skíðaskór fólksins
höfðu bráðnað. Logatungur og reyk-
ur þeyttust upp göngin sem eru
mjög brött og virkuðu því eins og
reykháfur, soguðu loft inn að neðan-
verðu. Margir farþegarnir komust
út, þeir sem fóru upp göngin létust
úr reykeitrun en þeir sem fóru niður
að neðri munna ganganna komust
lífs af.
Erfiðar aðstæður
Um 110 hjálparmenn voru á
staðnum í gær og bjuggu sig undir
að starfinu yrði haldið áfram alla
nóttina. Franz Lang, yfirmaður í
lögreglunni í Salzburg, sagði að
starfið væri þess eðlis að stöðugt
þyrfti að skipta um fólk í hópnum,
fólk ynni ekki lengur í köldum og
dimmum göngunum en í eina og
hálfa klukkustund í senn og fengu
margir áfallahjálp. Að sögn réttar-
læknis við háskólasjúkrahúsið í Salz-
burg, Edith Tutsch-Bauer, voru
mörg líkin svo illa brunnin að þau
voru óþekkjanleg. Verður notast við
samanburð á DNA-erfðaefni til að
bera kennsl á hina látnu.
Meðl hinna látnu voru Austurrík-
ismaðurinn Josef Schaupper, heims-
meistari í risasvigi, einnig þýska
skíðakonan Sandra Schmitt og for-
eldrar hennar. Hún varð heims-
meistari í skíðafimi í fyrra. Þeir sem
ekki komust út úr lestarvagninum
æptu á hjálp í örvæntingu sinni,
margir áttu erfitt með að hreyfa sig
vegna þess að þeir voru búnir að
setja upp skíðaskóna. Sagt er að þeir
sem brunnu inni í vagninum hafi
margir verið börn og unglingar.
Eldsvoðinn í toglestarvagninum
Talið er að allt að 170 manns hafi farist
er eldur braust út í toglestarvagni í
austurrísku Ölpunum á laugardag.
í vagninum voru skíðamenn á leið
að Kitzsteinhorn-fjalii.
Kitzsteinhom (3,200m)
100 km
ÞYSKALANÐ
Skíðabrekkur
Skíðamiðstöð (í um 2.450 m hæð)
Þar létust þrír farþegar á biðstöð,
þeir dóu úr reykeitrun.
/
Önnur toglest á leið niður göngin
Ökumaður hennar fórst einnig en ekki
ervitað hvort farþegar vorn í lestinni.
Lestin stöðvaðist um 600 metra
frá neðri munna ganganna.
Neðri munni jarðganganna
Brautarstöðin
í 911 metra hæð yfir sjávarmáli
Lestin er
toguð upp
hlíðina með stál-
köplum sem liggja að
efstu brautarstöðinni í
fjallinu. Enginn vélbúnaður
eða eldsneyti er því um borð
ísjálfri lestinni.
Talið erað eldurinn
hafi kviknað aftar-
lega í lestinni.
Farþegar fórust er eldur og
reykur bárust upp á við.
Tólfmanns, þ. á m.
tvö börn, flúðu með því
að brjóta rúður iglugga
afturhluta lestarinnar.
Lestarkerfið er nefnd Gletscherbahn
Heildarlengd er 3,900 m
Jarðgöngin eru 3,000 m
Hækkunin er 1,535 m
Meðalhalli er 42,8 %
Mesti halli er 50%
Hraði 10 metrar á sekúndu
Ferðin tekur 7 mínútur
Toglestar brautarinnar
eru tvær, hvor getur
tekið mest 180 manns.
REUTERS #
Ferðin upp fjallið tekur ekki nema
nokkra mínútur og sé vagninn fullur
af fólki verða allii að standa.
Einn af þeim sem komst af, Ger-
hard Hanetseder frá bænum Gall-
spach, sagðist hafa tekið eftir eldin-
um um leið og lestin fór inn í göngin.
„Fát breiddist út. Við reyndum í
örvæntingu að opna dyrnar, skelf-
ingin varð enn meiri. Vagninn varð
alelda," sagði hann. „Nokkrir far-
þeganna reyndu að brjóta plexigler-
ið í gluggunum með skíðaskóm,
skíðastöfum og öðrum búnaði. Undir
lokin sá ég einhvern stökkva út og ég
reyndi að ná taki á dóttur minni, ýtti
henni út. Og síðan komst ég ein-
hvern veginn út sjálfur."
Norski Verka-
mannaflokkurinn
Hluta-
einka-
væðing
Statoil
samþykkt
SAMÞYKKT var á landþingi
norska Verkamannflokksins
um helgina að einkavæða
skuli að hluta ríkisolíufélagið
Statoil.
Jens Stoltenberg forsætis-
ráðherra hafði beitt sér mjög
fyrir málinu, en þótt sam-
staða hafi náðst um sam-
þykktina hófust strax að
loknu landsþinginu deilur um
hvernig beri að túlka hana.
Samkvæmd frétt Aften-
posten var þó enginn ágrein-
ingur í flokksforystunni um
túlkunina. Stoltenberg sló því
föstu, að landþingið hefði
samþykkt stefnu í olíuvinnslu-
málum sem myndi leiða af sér
skynsamlegri nýtingu olíu- og
gaslindanna. Ríkisstjórnin
hyggst leggja fram frumvarp
um hlutaeinkavæðingu Statoil
fyrir jól.
Samkvæmt samþykktinni á
að leyfa einkafyrirtækjum að
fjárfesta í fyrirtækinu. Verði
það meðal annars gert með
því að Statoil yfirtaki hluta af
svokölluðu „Beinu ríkisfram-
lagi“ (SD0E) í fyrirtækinu.
Það fyrirkomulag sem nú
er á eign ríkisins á Statoil
kom til í tíð hægristjórnar
Káre Willochs. Óttuðust
hægrimenn að ríkisfyrirtækið
yrði of fyrirferðarmikið í hin-
um norska hluta Norðursjáv-
arins.
Það erflott að versla á Islandi
Travolta verslar á Islandi
Á fyrstu sex mánuðum ársins hefur verslun erlendra feróamanna í íslenskum
búóum aukist um tæplega 23% miðað við sama tima á sióasta ári.
Sérvöruverslanir standast vel samanburð vió verslanir erlendis og merkjavara
er oft ódýrari á ístandi.
Það erflott að versía á Istandi - og gott.