Morgunblaðið - 14.11.2000, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 14.11.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ HESTAR ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 5í Þótt keppni sé almennt viðurkennd sem góð leið til framfara í reið- mennsku og veiti áhorfendum ómælda ánægju finnst sumum of mikið af púðri LH eytt í þennan málaflokk og vilja betra jafnvægi milli málefna. upplýsingar um símanúmer dómar- anna og listi yfir þá og því mikið hag- ræði fyrir menn að leita fyrst þangað. Kann reglurnar utanbókar „Þá lendum við oft í því að bjarga ýmsum málum rétt fyrir mót víða um land. Það vantar jafnvel öll eyðublöð og þarf að fjölfalda þau og senda með rútu eða senda í faxi. Oft hefur komið fyrir að hlaupa hefur þurft til um helgar að bjarga slíkum málum,“ seg- ir Sigrún skrifstofustjóri með sínu létta brosi og bætir við hlæjandi: „Síðastliðinn vetur fór ég yfir allar keppnisreglur með Einari Ragnars- syni og ég held ég hafi lesið þær fimm eða sex sinnum yfir. Ég held ég kunni stóran hlutan reglnanna utanbókar." Þá er ótalin mikil vinna fyrir lands-, Norðurlanda- og heimsmeist- aramót en hún tekur fram að fyrir mótið 1998 á Melgerðismelum hafi mjög lítið mætt á skrifstofunni þar sem sérstök skrifstofa fyrir norðan sá um þessa hluti. En íyrir mótið í Reykjavík segir hún mikið hafa mætt á skrifstofu LH og sama gilti um heimsmeistara- og Norðm-landamót- ið sem haldin hafa verið í hennar tíð á skrifstofunni. Þá fari allir hlutir tengdir mótunum í gegnum ski'ifstof- una frá áramótum og fram yfir mótin. Hvar fæ ég notuð reiðstígvél? I upptalningunni endaði Sigrún á þeirri upplýsingastarfsemi sem fram fer í gegnum síma skiifstofunnar en þangað berast ótnílegustu fyrir- spurnir mjög víða að. Allt frá lög- fræðilegum fyiirspurnum úr ráðu- neytum stjómarráðsins yfir í ein- földustu spurningar eins og: hvað eru mörg hross í landinu?, hvar get ég komist á hestbak? og svo framvegis. „í morgun hringdi einn og spurði til dæmis hvar hann gæti keypt notuð reiðstígvél," segir Sigrún og er greinilega skemmt. Það eru nánast engin takmörk íyrir fjölbreytileika fyrirspurnanna. Sömu sögu hefur verið að segja á skrifstofu Félags hrossabænda, þar hefur rignt mjög fjölskrúðugum fyrh'spurnum og mik- ill tími farið í að svara þeim. Nú þegar þesai' skrifstofur hafa verið samein- aðar sagðist Sigrún gera ráð fyrir að einhver tími sparaðist í þessum þætti starfseminnar. Hestamenn skemmtilegir Sigrún lætur vel af samstarfi sínu við hestamenn sem hún segir að séu mjög skemmtilegt fólk að starfa með. Að vinna á skrifstofu hestamanna sé ólíkt venjulegum skrifstofustörfum, þetta séu mun líflegri verkefni og meW samskipti við fólk sem henni finnst vera stóri sjarminn við vinnuna hjá LH. Sjálf segist hún aldrei fara á hestbak, gerði það síðast þegai- hún var tvítug, en hinsvegar sé hún af hestafólki komin og nefnir að Þorlák- ur Ottesen, sá kunni hestamaður, hafi verið bróðir ömmu hennar. „Ég er fyrir utan vinnuna myndlistarmaður og hef bókstaflega engan tíma til að stunda hestamennsku. Ég er aðallega í grafík en fæst einnig við málun og stefni á einkasýningu næsta haust en Samkeppni í kynningu stóðhesta HROSSARÆKTARSAMTÖK Suðurlands hafa nú fengið sam- keppni um kynningu stóðhesta en sem kunnugt er hafa samtökin undanfarin ár gefið út stóðhesta- blað sem í upphafi hafði að geyma framboð stóðhesta á Suð- urlandi en vegna góðra undir- tekta var umfangið fært yfir allt landið. En nú er komin sam- keppni í spilið því hjónin í Holts- múla, Lisbeth og Sigurður Sæ- mundsson, hyggjast opna stóðhestavef þar sem menn geta kynnt stóðhesta sem þeir vilja koma á framfæri til notkunar. Hver hestur mun fá eina síðu og í fréttatilkynningu segir að fyrir utan hefðbundnar upplýs- ingar, sem eru væntanlega ætt, aldur, einkunnir í kynbótamati og dómi, svo eitthvað sé nefnt, sé hægt að skrá árangur í annarri keppni eða önnur afrek hestsins. Þá er birt ein mynd af hestinum en upplýsingar verða bæði á ís- lensku og ensku. Síðan geta eig- endur hesta sem auglýstir eru á heimasíðunni endurnýjað upplýs- ingar eftir því sem ný tíðindi verða á ferli hestanna. Hver stóð- hestur mun verða eitt ár inni á síðunni en þá þai'f væntanlega að endurnýja. Heimasíðan verður tilbúin til birtingar 1. febrúar en hægt er nú þegar að skoða sýnis- horn. Nafnið á síðunni er að sjálf- sögðu stodhestar.is. Vitað er að Eiðfaxi er með svipaða síðugerð í farvatninu þannig að ætla má að enn frekara fjör sé að færast í stóðhestalífið. Framboð álitlegra og góðra stóð- hesta er mikið um þessar mundir og verður sífellt harðsóttara að fá góða notkun á þá. En nú teygir samkeppnin sig yfir í kynningu á hestunum. ég hef tekið þátt í mörgum samsýn- ingum, bæði heima og erlendis,“ segir Sigrún aðspurð og tekur fram að hún þori varla á hestbak því þetta sé svo bráðsmitandi, hún sé í tímaþröng með listina og útilokað að bæta við annarri „dellu“. Sigrún Ólafsdóttii', gjaldkeri LH, segir það fjairi lagi að starfsemi sam- takanna snúist eingöngu um keppni og mótahald en bendir hinsvegar á að keppnin sé að sjálfsögðu mun sýni- legri en til dæmis reiðvegamál og gerð áningarhólfa. Hún vildi meina að mjög mikið starf hefði verið unnið á þeim vettvangi en það fælist að mest- um hluta í símtölum, bréfaskriftum og fundahöldum. Sömuleiðis hefur verið og verður vonandi unnið áfram í umhverfismálum sem eru að sjálf- sögðu nátengd reiðvegagerðinni. Segir hún þennan þátt einn þann mikilvægasta í starfi samtakanna. Umferð ríðandi manna um landið hef- ur margfaldast og nefndi hún sem dæmi að í nágrenni við sig hefði hún tífaldast. Þama væri mjög brýnt að vinna ötullega á næstu árum því ekki liti út fyrir að þar yrði neitt lát á. Þá nefndi hún annað málefni sem væri erlend samskipti að frátöldum heims- og Norðurlandamótum. í þeim samskiptum fælist dulið mark- aðsstarf og taldi hún að enginn sem kynnti sér þann hluta starfseminnar tH hlítar gæti verið á móti henni. Sú gagmýni sem nú hefði örlað á væri mjög eðlileg og sagðist hún skilja hana vel í ljósi þess er að fram- an sagði og telja sjálfsagt að fjallað væri um hver væru verkefni samtak- anna. Keppnismenn áberandi og atkvæðamiklir í Ijósi þess er fram kemur hjá þeim nöfnum má glöggt sjá að málefnin eru fleiri en bara keppni þótt það sé deg- inum ljósara að keppni og mótahald tekur mjög drjúgan skerf af starf- skröftum og fjármunum samtakanna. Á það má einnig benda að málefna- ómiuinn verður alltaf í réttum takti við það hvernig félagsmenn vinna að málum. Keppnisarmurinn hefur oft- ast verið mjög atkvæðamikill í starf- semi samtakanna, keppnin er mjög áberandi á flestum sviðum, hún er það sem vekur mesta athygli. Knapi á glæstum gæðingi á velli vekur að sjálfsögðu meiri eftirtekt en hljóðlát- ur reiðvegur þótt góður sé. Annað sem gæti haft áhrif er að margir úr keppnisarminum sem beita sér í fé- lagsmálum hestamanna eru vel þekktir meðal hestamanna og víst er að það hjálpar mjög í allri málafylgju að þekkja marga og ekki síður að vera vel kynntur og þekktur af mörg- um. Það má því spyrja hvort boltinn sé ekki hjá hinum þögla meirihluta og orðið tímabært að hann láti meira að sér kveða á vettvangi LH. Vega dagur í Lyfju Lágmúla Ráðgjöf frá kl. 14-17 í dag Kemurþér beint að efninu! OlAMMtjWÖ* Ótvíræöur kostur þegar draga á úr ólykt. Lykteyöandi innan frá, vinnur gegn andremmu, svitalykt og ólykt vegna vindgangs kemur lagi á meltinguna. LYFJA Lyf á lágmarksverði Lyfja Lágmúla* Lyfja Hamraborg • Lyfja Laugavegi Lyfja Setbergi* Útibú Grindavík* Ert þú í loftpressu- hugleiðingum? Komdu þá við hjá AVS Hagtæki hf. Við hjálpum þér að meta stærð loftpressunnar með tilliti til afkastaþarfar. Stimpilpressur og skrúfupressur í mörgum stærðum og gerðum, allt upp í fullkomna skrúfu- pressusamstæðu (sjá mynd) Eigum einnig loftþurrkara í mörgum gerðum og stærðum. Gott verð - góð þjónusta! Til sýnis á staðnum PAÐ LIGGUR I LOFTINU jWHÁSTÆKÍ iiF« Akralind 1, Kópavogi, sími 564 3000. Ferðakynning 15. nóvember kl. 20:00 PðskafGio tii Paiú Ævintýri í ríki lnka 7. - 22. apríl Efnt verður til ferðakynningar á páskaferð til Perú í Skála á Radisson SAS Hótel Sögu miðvikudaginn 15. nóvember kl. 20.00. Ferenc Utassy, fararstjóri, kynnir ferðina og töfra Perú með litskyggnum. Nánari upplýsingar um ferðina er að finna á bls. 41 Vetrarsól 2000-2001 og á heimasíðu Úrvals-Útsýnar. Kaffiveitingar kosta 220 kr á manninn. Verið velkomin. b -■■■■. » . URVAIUTSYN www.urvalutsyn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.