Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 1 5
Um 600 íbúar í Lindahverfí eru á mdti nýju deiliskipulagi við Lindir IV
Bæjaryfírvöld
samþykkja að
lækka stórhýsi
um 3 hæðir
Kópavogur
UNDIRSKRIFTALISTI
með nöfnum um 600 íbúa í
Lindahverfi í Kópavogi hef-
ur verið sendur bæjaryfir-
völdum en íbúarnir eru að
mótmæla deiliskipulagstil-
lögu fyrir svæðið Lindir IV,
sem afmarkast af Reykja-
nesbraut að vestan og norð-
an, Lindavegi að austan og
Fífuhvammsvegi að sunnan.
Samkvæmt tillögunni átti að
reisa um 25 þúsund fermetra
og tólf hæða verslunar- og
þjónustuhúsnæði á svæðinu.
Birgir Sigurðsson skipulags-
stjóri sagði að í kjölfar mót-
mælanna hefði tillögunni
verið breytt að því leyti að
nú væri gert ráð fyrir níu
hæða byggingu en ekki tólf.
Hann sagði að um helgina
hefði verið auglýst eftir
áhugasömum aðilum til þess
að byggja upp svæðið.
I bréfi sem fylgdi undir-
skriftalistanum segir: „Við
íbúar Lindahverfis í Kópa-
vogi mótmælum harðlega til-
lögu að þeirri gríðarstóru
byggingu með risaturni sem
ætluð er fyrir verslun og
þjónustu."
V erslunarferlíki
„Við íbúar teljum að það
verslunar- og þjónusturými
sem nú er í byggingu vestan
Reykjanesbrautar og einnig
það verslunarrými sem kom-
ið er á svæðið austan megin
sé yfirdrifið nóg. Bílaumferð
og mengun frá þessum
svæðum sé og verði í fram-
tíðinni það mikil að ekki sé á
bætandi að byggja annað
eins verslunarferlíki og það
sem tekið er fram í tillög-
unni með tilheyrandi aukn-
ingu á hljóð- og loftmengun
auk bílaumferðar.
Það er því krafa okkar
íbúa að deiliskipulag sem
liggur fyrir vegna Lindar IV
verði dregið snarlega til
baka. Jafnframt óskum við
eftir því að svæðið verði gert
að grænu svæði með tilheyr-
andi aðbúnaði fyrir íbúa
Lindahverfis, enda aðstaða
Morgunblaðið/GoUi
Samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir 25 þúsund fermetra verslunar- og þjónustuhúsnæði á
níu hæðum á svæðinu austan Reykjanesbrautar við Lindarveg.
fyrir Lindabúa m.t.t. grænna
svæða og íþróttaiðkunar
óviðunandi.“
Ibúarnir gera það að til-
lögu sinni að svæðið verði
gert að alhliða útivistarsvæði
og þannig tengt útivistar-
svæðinu í dalnum vestan
Reykjanesbrautar. Einnig
leggja þeir til að byggð verði
sundlaug á svæðinu.
Birgir sagði að bæjar-
stjórnin hefði tekið málið
fyrir og ákveðið að breyta
stærð hússins úr tólf hæðum
í níu hæðir. Hann sagði að
svæðið yrði samt áfram
verslunar- og þjónustusvæði
enda hentaði staðurinn vel
fyrir slíka starfsemi og hefði
verið skilgreindur sem slíkur
á aðalskipulagi í langan
tíma.
ftarleg athugun á
umferðarflæðinu
Að sögn Birgis var gerð ít-
arleg athugun á umferðar-
flæðinu og sagði hann að
tekið yrði tillit til þess þegar
svæðið yrði byggt, þ.e. að
uppbygging svæðisins og
gatnakerfísins myndi haldast
í hendur. Hann sagði að mik-
il vinna væri enn eftir hvað
varðaði skipulagsvinnuna og
að framkvæmdir myndu því
ekki hefjast fyrr en eftir ár
eða meira.
Birgir sagði að nóg væri
af grænum svæðum í ná-
grenni Lindahverfisins, t.d.
yrði svæðið ofan við Linda-
skóla áfram opið. Þá sagði
hann að ekki væri langt í
Kópavogsdalinn og að fyrir
ofan Salahverfið yrði stórt
grænt svæði.
Morgunblaðið/ Sverrir
Tónlistarskóli
Bessastaðahrepps
vígir nýtt húsnæði
Bessastaðahreppur
TÓNLISTARSKÓLI Bessa-
staðahrepps hefur tekið til
starfa í nýju húsnæði í
norðausturhluta íþrótta-
miðstöðvar sveitarfélagsins.
Formleg vígsla húsnæðisins
fór fram á laugardaginn,
þegar haldnir voru tónleik-
ar í nýja húsnæðinu.
Aðstaða tónlistarskólans
breytist mikið við þetta og
hefur hann nú yfir að ráða
þremur nýjum
einkakennslustofum og
hópkennslustofu, sem m.a.
nýtist í kennslu í tónfræði,
þá hefur aðstaða kennara
verið bætt. Samkomusalur-
inn á efri hæð íþróttamið-
stöðvarinnar mun áfram
nýtast skólanum til kennslu
og tónleika.
Borgar-
bókasafn
í Arbæ
Menningarmálanefnd
hefur samþykkt að stefna
að því að opna borgar-
bókasafn í Árbæ árið
2002. Það var Júlíus Vífill
Ingvarsson, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins,
sem lagði tillöguna fram,
og er því beint til borgar-
bókavarðar að hafa vak-
andi auga með hentugri
staðsetningu. í tillögu
Júlíus Vífils segir m.a.:
„Borgarbókasafn hefur
útibú í Breiðholti og
Grafarvogi. Árbæjar-
hverfið virðist hafa orðið
útundan í þessum efnum
enda þótt það hverfi sé
t.d. mun eldra en Grafar-
vogshverfið. í Árbæjar-
hverfínu, Ártúnsholtinu
og Seláshverfinu búa um
8.700 manns og fer fjölg-
andi. Þaðan heyrast
margar óánægjuraddir
um mjög ófullnægjandi
þjónustu Borgarbóka-
safnsins í hverfinu."
Borgaryfírvöld koma
til móts við óskir íbúa
Gripið til aðgerða
vegna umferðar
við Ofanleiti
Kringlan
BORGARYFIRVÖLD hafa
ákveðið að grípa til aðgerða
vegna umferðaröngþveitis við
Ofanleiti og koma þannig til
móts við óskir íbúa á svæðinu,
en þeir kvörtuðu undan því að
námsmenn við Verslunarskól-
ann og Háskólann í Reykjavík
legðu bílum sínum í götunni.
„Þegar ástandið er verst er
erfitt að koma björgunarbif-
reiðum, slökkvi-, sjúkra- eða
lögreglubifreiðum um göt-
una,“ segir í bréfi sem fylgdi
undirskriftarlista sem 95
íbúar við Miðleiti, Neðstaleiti
og Ofanleiti, skrifuðu undir.
Sigurður Skarphéðinsson
gatnamálastjóri sagði að
skipulags- og umferðarnefnd
hefði samþykkt að láta mála
miðlínur á götuna, sem og að
setja stöðubann á báða kanta
Ofanleitis milli Listabrautar
og Efstaleitis. Hann sagði að
skiltin væru þegar komin upp
og að á næstu dögum yrðu
miðlínurnar málaðar.
Auk þess að óska þess að
Ofanleiti verði akreinaskipt
gata, vildu íbúarnir láta skoða
þann möguleika að loka göt-
unni við skólana og gera þar
bflaplan, en borgaryfirvöld
féllust ekki á það.
Á næstu dögum verður
máluð miðli'na á götuna
Ofanleiti en ibúar í ná-
grenninu hafa kvartað
mikið undan því að lagt
sé upp á kanta og gatan
þannig þrengd. Þegar
hafa verið sett upp skilti
sem banna bifreiðastöður.
Vilja
hraða-
hindrun
við
Gautavík
Grafarvogur
ÍBÚAR í Gautavík í
Grafarvogi hafa sent
borgaryfirvöldum und-
irskriftarlista með 95
nöfnum, þar sem farið
er fram á að sett verði
upp hraðahindrum í
götunni vegna mikils
umferðarhraða. Skipu-
lags- og umferðarnefnd
borgarinnar hefur tek-
ið erindið fyrir og vís-
aði nefndin því til um-
ferðaröryggisnefndar
og samkvæmt upplýs-
ingum frá borgarskipu-
lagi er það enn í
vinnslu þar.
I bréfi íbúanna kem-
ur fram að við Gauta-
vík búi margar barna-
fjölskyldur og því sé
mikið af börnum að
leik um allt svæðið og
sérstaklega við götuna
þar sem enginn leik-
völlur sé nálægt.
„Bílar koma oft á
miklum hraða upp göt-
una,“ segir í bréfinu.
„Börnin leika sér mikið
á og aðallega meðfram
götunni. Þau hlaupa
milli húsanna og skjót-
ast þá fram á milli
kyrrstæðra bíla. íbúar
við götuna átta sig á
þessari hættu, en öðru
máli gegnir um marga
gestkomandi ökumenn.
Þeir aka margir tilfinn-
- anlega hraðar.
Gefa verður til
kynna þá hættu sam
stafar af þessum hrað-
akstri. Draga verður
skilyrðislaust úr um-
ferðarhraða við húsin
með einhverjum hætti.
Mál þetta snertir vel-
ferð barnanna og mun
því verða fylgt fast eft-
ir.“
Enginn á
biðlista
eftir leik-
skóla-
plássi
Seltjarnarnes
EKKERT barn er á bið-
lista eftir leikskólaplássi
á Seltjarnarnesi. Sigur-
geir Sigurðsson bæjar-
stjóri sagði að leikskól-
arnir tækju árlega við 70
til 75 börnum, þ.e. einum
nýjum árgangi og að síð-
ustu ár hefði tekist að
anna eftirspuminni.
Að sögn Sigurgeirs
hefur leikskólabörnum
reyndar lítið fjölgað í
bænum síðustu ár, þar
sem íbúafjöldinn hefur
nánast staðið í stað.
Hann sagði að næstu ár-
um, samfara uppbygg-
ingu á Hrólfsskálamel-
um, mætti búast við því
að íbúum fjölgaði því
gert væri ráð fyrir 90 til
100 nýjum íbúðum á
svæðinu. Hann sagði að
bærinn væri vel í stakk
búinn til að takast á við
fjölgun barna á skóla-
skyldualdri.