Morgunblaðið - 14.11.2000, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.11.2000, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT V^ANUKV- COUNT''0 . MEANS . u mmpuuvTioi Konur í Bradenton í Flórída krefjast þess að handtalningin í nokkrum sýslum ríkisins verði stöðvuð. Barist um Hvíta húsið fyrir dómstólum Miami. AP, Reuters, Washington Post. EFTIR harða kosningabaráttu í rúmt ár, sem kostaði andvirði rúmra 260 milljarða króna, og látlaus ferða- lög frambjóðendanna um Bandaríkin þver og endilöng hefur baráttan um Hvíta húsið færst yfir í alríkisdóm- stól í Flórída. Lögfræðingar George W. Bush, forsetaefnis repúblikana, vilja að dómari stöðvi handtalningu, sem gæti ráðið úrslitum um hver verði 43. forseti Bandaríkjanna, á þeirri forsendu að hún gangi í ber- högg við bandarísku stjómarskrána. Lögfræðingar Als Gore varaforseta, frambjóðanda demókrata, halda því hins vegar fram að endurtalningin sé í samræmi við lög Flórída og málið heyri ekki undir alríkisdómstóla. Kjörstjórnin í Palm Beach-sýslu í Flórída samþykkti með tveimur at- kvæðum gegn einu að telja 462.000 atkvæði, sem greidd voru í sýslunni, í þriðja sinn, en í þetta skipti með höndunum. Áður höfðu atkvæðin verið endurtalin með talningarvélum. Handtalning hófst einnig í Volusia- sýslu við Atlantshafsströndina. Taln- ingarmenn í Broward-sýslu hófu úr- takshandtalningu sem gæti orðið til þess að öll atkvæðin í sýslunni, alls 550.000, yrðu handtalin. Gert er ráð fyrir að kjörstjórnin í Dade-sýslu ákveði í dag hvort hefja eigi hand- talningu. Demókratar hafa verið með mildð fylgi í þessum sýslum og fulltrúar beggja forsetaefnanna telja að hand- talningin geti orðið Gore í hag. Segja að kjósendum sé mismunað Bandaríski umdæmisdómarinn Donald Middlebrooks samþykkti að taka málið fyrir eftir að lögfræðingar Bush kröfðust þess að handtalningin yrði stöðvuð. Hver sem niðurstaða dómarans verður er hugsanlegt að henni verði áfrýjað, jafnvel alla leið til hæstaréttar Bandaríkjanna. Repúblikanar urðu fyn-i til að leita til dómstólanna þótt þeir hefðu áður gagnrýnt demókrata fyrir að hóta málaferlum í deilunni um kosning- amar í Flórída. Þeir þurfa meðal annars að sanna að kjósendurnir yrðu fyrir „óbætanlegum skaða“ ef handtalning yrði leyfð í sýslunum. Aðalröksemd repúblikana er að handtalning, sem einskorðist við fjór- ar sýslur, sé óréttlát gagnvart öðrum kjósendum í ríkinu og gangi í ber- högg við stjórnarskrárákvæði um að allir Bandaríkjamenn séu jafnir fyrir lögunum. Demóki’atar vörðu hins vegai’ stjórnlagalegt í’éttmæti handtalning- arinnar. Lögfræðingar þeirra, með Laurence Tribe, lagaprófessor við Harvard-háskóla, í broddi fylkingar, sögðu einnig að krafa Bush græfi undan rétti yfirvalda í Flórída til að ákveða hvernig talningunni væri hagað. Samkvæmt lögum Flórída er hægt að hefja handtalningu ef einhver frambjóðendanna krefst hennar inn- an tíu daga frá kosningunum og ef kjörstjórn viðkomandi sýslu sam- þykkir kröfuna. Repúblikanar segja hins vegai’ að lögin séu svo óljós að ekki sé réttlætanlegt að mismuna kjósendunum. Dæmi eru um að kjósendur hafi ekki gert nógu stór göt á kjörseðlana til að talningarvélarnar gætu numið þau og demókratar óskuðu eftir handtalningu í sýslunum fjórum til að talningarmennirnir gætu skorið úr um hvern þessir kjósendur hefðu ætlað að kjósa. Talningarmennirnir í Palm Beach- sýslu héldu kjörseðlunum upp að Ijósi til að leita að götunum en repúblikanar sögðu að talningin væri handahófskennd og byði heim hættu á svikum og mistökum. „Talning sömu atkvæðanna aftur og aftur leiðir ekki til nákvæmari nið- urstöðu, heldur til meiri tafa og rugl- ings,“ sagði Dick Cheney, varafor- setaefni repúblikana, í málshöfðun- arskjali sem lagt var fram á laugardag. Endurtalningar krafíst í öðrum ríkjum? Verði kröfu Bush hafnað er hugs- anlegt að hann óski eftir handtaln- ingu í nokkrum sýslum í Flórída þai’ sem fylgi repúblikana er mikið. Bush gæti einnig krafist endurtalningar í ríkjum þar sem Gore fékk nauman meirihluta í kosningunum, svo sem Iowa og Wisconsin, og í Oregon og Nýju-Mexíkó þar sem talningu er ekki enn lokið. Samkvæmt nýjustu tölum í Nýju-Mexíkó er forysta Bush í ríkinu aðeins fjögur atkvæði, að sögn Eeuters-fréttastofunnar. Repúblikanar segjast ætla að óska eftir rannsókn á nokkrum hugsanleg- um brotum á kosningalöggjöfinni í Wisconsin. Þeir sögðu að La.rn. hefði einn kjósendanna greint starfsmönn- um kjörstaðar síns frá því að hann hefði fengið tvo kjörseðla en þeir hefðu sagt honum að fást ekki um það og kjósa. Þá sögðust repúblik- anai’ hafa fengið upplýsingar um að sjálfboðaliðar á vegum demókrata Fulltrúadeild Filippseyjaþings samþykkir að höfða mál til embættismissis á hendur Estrada Stuðningsmenn for- setans enn í meiri- hluta í öldungadeild Manila. AFP, Reuters. FULLTRÚADEILD Filippseyja- þings samþykkti í gær að höfða mál á hendur Joseph Estrada, forseta landsins, með það fyrir augum að svipta hann embætti en hann er sak- aður um margvíslega spillingu. Munu réttarhöldin í máli hans fara fram í öldungadeild þingsins en þar hafa stuðningsmenn forsetans verið í meirihluta og því óvist, að embættis- sviptingin nái fram að ganga. Estrada er sakaður um spillingu, að hafa þegið andvirði rúmlega 700 milljóna íslenskra króna í mútur frá ólöglegum veðmálafyrirtækjum; um að hafa brugðist trausti almennings og brotið ýmis ákvæði stjórnar- skrárinnar. Estrada reynir þó að bera sig vel og segist alsaklaus en stjórnmálaskýrendur eru sammála um, að hann sé í raun búinn að vei’a sem forseti.Manuel Villar, forseti fulltrúadeildarinnar, lýsti því yfir strax í upphafi þingfundar í gær, að 115 af 218 þingmönnum deildarinnar hefðu undirritað samþykki við því, að málinu yrði strax vísað til með- ferðar í öldungadeildinni en til þess þurfti þriðjung þingmanna eða 73. Kom það stuðningsmönnum Estrada í opna skjöldu því að þeir höfðu ætlað sér að reyna að svipta Villar forseta- embættinu fyrir að hafa yfirgefið stjórnarflokkinn og gengið til liðs við stjórnarandstöðuna fyrir 11 dögum. Andstæðingar Estrada í fulltrúa- deildinni fögnuðu yfirlýsingu Villars ákaflega en stuðningsmenn Estrada brugðust ókvæða við og sökuðu hann um að hafa brotið þingsköp með því að bera málið ekki formlega undir þingheim. Villar svaraði því til, að í þessu máli vægi stjórnarskráin þyngra en þingreglur. Líklegt er, að málið gegn Estrada verði tekið fyrir í öldungadeildinni síðar í mánuðinum en deildin er skip- uð 22 mönnum og þar þarf aukinn meirihluta til að svipta forsetann embætti. Estrada hefur enn mikinn stuðning i öldungadeildinni eins og sýndi sig í gær þegar hún samþykkti með tólf atkvæðum gegn sjö að svipta Franklin Drilon forsetaemb- ættinu í deildinni. Gekk hann til liðs við stjórnarandstöðuna á sama tíma og Villar. I hans stað var kjörinn Aquilino Pimentel en í fréttaskeyt- um er hann ýmist sagður óháður eða hallur undir Estrada. Sakarefnin mörg og alvarleg Sakargiftirnar í máli Estrada eru margvíslegar. Eins og fyrr segir er hann sakaður um að hafa þegið rúm- lega 700 millj. kr. í mútur frá ólög- Al> Luis Singson héraðsstjóri, sem fyrstur skýrði frá því, að Estrada forseti hefði þegið hundruð millj. kr. í mútur. A kröfuspjöldunum er hvatt til hreinsunar í æðstu stjórn ríkisins. legum veðmálafyrirtækjum; að hafa stungið í eigin vasa um 234 millj. kr. eða obbanum af fjárframlagi stjóm- valda til tóbaksræktenda í landinu; að stunda fasteignabrask fyrir milli- göngu fjölskyldufyrirtækis og að hafa rakað saman óútskýrðum auði og gerst sekur um meinsæri vegna þess, að hann, kona hans, hjákonur og börn eigi eignir, sem hvergi var getið í yfirlýsingu hans á sínum tíma. Einnig er hann sakaður um að hafa reynt að hafa áhrif á rannsókn á inn- herjaviðskiptum vinar síns; að hafa reynt að tryggja einu fyrirtæki einkarétt á beinlínutengdu bingói; að hafa hunsað réttarkerfið er hann taldi sig þurfa að greiða úr vandræð- um sona sinna tveggja; að hafa svikið þau heit er hann gaf við embættis- töku að hygla hvorki ættingjum sín- um né kunningjum og að hafa brotið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.