Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 27
hefðu mútað heimilislausu fólki í
Milwaukee-sýslu til að kjósa Gore ut-
an kjörstaðar með því að dreifa sígar-
ettupökkum á meðal þess.
Gore fékk fleiri atkvæði en Bush í
öllum Bandaríkjunum en munurinn á
samanlögðum kjörmannafjölda for-
setaefnanna er svo lítill að sá sem
sigrar í Flórída er nánast öruggur
um að hreppa forsetaembættið. Bush
þyrfti að fá alla kjörmenn Oregon,
Iowa, Nýju-Mexíkó og Wisconsin til
að tryggja sér forsetaembættið án
þess að fá 25 kjörmenn Flórída. Ólík-
legt þykir þó að þetta gerist þar sem
forysta Gores er að minnsta kosti
5.000 atkvæði í öllum þessum ríkjum
nema Nýju-Mexíkó.
Bush er nú með 246 kjörmenn og
Gore 255 þegar niðurstaðan liggur
ekki fyrir í þremur ríkjum, Flórída,
Oregon (sjö kjörmenn) og Nýju-
Mexíkó (fimm). Til að ná kjöri þurfa
frambjóðendurnir að fá að minnsta
kosti 270 kjörmenn.
„Svartur blettur á lýðræðinu“
James A. Baker III, fyrrverandi
utanríkisráðheira sem fer fyrir lög-
fræðingum og öðrum fulltrúum
repúblikana í Flórída, sagði að deilan
um handtalninguna væri „svartur
blettur á lýðræði okkar og kosninga-
fyrirkomulagi“.
Warren Christopher, íyrrverandi
utanríkisráðherra í stjórn Clintons,
sagði hins vegar að handtalningin
væri nauðsynleg í þágu lýðræðisins.
„Ef Bush verður með fleiri atkvæði
en við þegar upp er staðið játar Gore
varaforseti sig örugglega sigraðan,"
sagði Christopher.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum
AP-fréttastofunnar um niðurstöðu
enduitalningarinnar í Flórída er for-
ysta Bush aðeins 288 atkvæði af um
sex milljónum. Ólíklegt er að lokaúr-
slitin liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi á
fostudaginn kemur þegar atkvæði
kjósenda sem búa erlendis þurfa að
hafa borist. Samkvæmt lögum Flór-
ída verða atkvæðin geymd í öryggis-
geymslum í sýslunum þar til frestur-
inn rennur út og kjörstjórnir
sýslnanna eiga að ákveða hvenær
þau verða talin.
Að sögn dagblaðsins Miami Her-
ald voru rúmlega 7.000 kjörseðlar
sendir frá Flórída til kjósenda sem
dvelja erlendis. Ekki er þó vitað
hversu margii’ þeirra voru send til
baka.
Dönsk fjölskylda í Óðinsvéum
skýrði frá því í gær að hún hefði feng-
ið tvo kjörseðla fyrir forsetakosning-
arnar í Bandaríkjunum fyrir mistök.
Kjörseðlarnir hefðu verið í pakka
sem fjölskyldan hefði fengið frá
bandarísku fyrirtæki og merkt hefði
verið við nafn Bush á þeim báðum.
stjórnarskrána með því að láta um
180 millj. kr. af opinberu fé renna til
sjóðs, sem kona hans stýrir. Þá er
hann sakaður um að hafa skipað toll-
yfirvöldum að láta forsetaembættið
fá 52 glæsibifreiðar, sem smyglað
var til landsins, og deila þeim síðan
út meðal ráðherra og háttsettra
embættismanna, og að hafa skipað
suma ráðherra og aðstoðarmenn
þeirra í annað opinbert embætti
samhliða.
Estrada hefur raunar viðurkennt,
að hátt í 350 millj. kr. af fyrrnefndu
mútufé hafi verið lagðar inn á banka-
reikning á vegum forsetaembættis-
ins en heldur því fram, að hann hafi
ekki hreyft við fénu. Það sé því sönn-
un fyrir því, að hann sé saklaus af
mútuþægni.
Efnahagslífið
í uppnámi
Estrada, sem er fyrrverandi kvik-
myndastjai’na, var kjörinn 13. forseti
Filippseyja með rneiri atkvæðamun
en nokkur annar. Er hann enn vin-
sæll meðal margra, einkum lægri
stéttanna, en kirkjan, kvennasam-
tök, ýmis verkalýðsfélög og fjár-
málalífið í landinu vilja hann burt.
Hneykslismálin sem hann er bendl-
aður við hafa haft mjög slæm áhrif á
efnahagslífið, valdið mikilli gengis-
lækkun pesósins og hruni á verð-
bréfamarkaði.
Sum verkalýðsfélaganna höfðu
boðað til verkfalls í dag til þess að
leggja áherslu á kröfuna um brott-
rekstur Estrada.
ERLENT
Skúringakona
kafnaði 1
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÞRIR ungii- menn hafa verið hand-
teknir vegna morðs á tvítugri skúr-
ingakonu, sem fannst látin í kæli
heildsölufyrirtækis í Slagelse í Dan-
mörku um helgina. Mennirnir hafa
viðurkennt að hafa brotist inn í fyr-
irtækið en talið er að skúringakon-
an hafi komið að þeim og þeir lokað
hana inni í kælinum þar sem hún
kafnaði.
Mennirnir stálu vindlingum að
verðmæti um 10 milljónum ísl. kr. í
innbroti sl. föstudagskvöld. Er lög-
reglan rannsakaði innbrotið á laug-
kæliskáp
ardagsmorgni fannst lík stúlkunnar
í kælinum. Engir áverkar voru á því
og nú er ljóst að hún kafnaði í loft-
þéttum kælinum.
Mennirnir neita allir að vera
valdir að dauða stúlkunnar en hann
hefur vakið hörð viðbrögð á meðal
samtaka skúringafólks sem segja að
endurskoða verði vinnufyrirkomu-
lag, svo að skúringafólk starfi á
daginn eða snemma kvölds og að
það sé ekki eitt að störfum, heldur
sé annar fulltrúi viðkomandi fyrir-
tækis viðstaddur.
Karíus og Baktus
fara ekki í jólafrí!
TAHNVERHDARKÁB
Foreldrar og börn athugið
að tennurnar eru jafn-
viðkvæmar í desember
og aðra mánuði.
Byrjum ekki daginn á
neysiu súkkulaðis eða
annarra sætinda
- bað er slæmur siður
á öiium árstímum!
Ertu með eitthvað
d heilanum?
Taíaðu við sérfræðing!
Glitnir er sérfræðingur í fjármögnun atvinnutækja
Rétt val á fjármögnun getur skipt miklu um heildarkostnað við fjárfestingu.
Glitnir býður fjórar ólfkar leiðir við fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru
afgreiddar á skjótan hátt þegar nauðsynleg gögn liggjafyrir.
Hafðu samband við ráðgjafa Glitnis eða heimsæktu heimasíðu okkar
www.glitnir.is ogfáðu aðstoð við að velja þá fjármögnunarleið sem best hentar.
Glitni getur þú treyst. Það sem sagt er stendur.
Glitnir
Kirkjusandi, 155 Reykjavfk,
sími 560 8800, www.giitnir.is
-hluti af Islandsbanka-FBA